NT - 12.12.1985, Blaðsíða 12

NT - 12.12.1985, Blaðsíða 12
1 HCggjðg CAB®UNNAB Gerð A: Breidd 40 cm Hæð 22 cm Dýpt 30 cm Cartomobili boxið er framleitt úr sérstaklega styrktum harðpappa með áferðarfallegri glanshúð. Tilvalin geymsla t.d. fyrir skóladót, blöð, leikföng, fatnað, prjónadót og margt fleira. Einnig má útbúa úr boxinu skápa- pláss og skrifborð. Enda- lausir uppröðunarmögu- leikar. 5 litir: Hvítt, rautt, gult, grænblátt og bleikt. 1 stk. 250 kr. 10stk ípk. 2.249 kr. Dreifing á íslandi: r diopion Hafnargötu 90 - 230 Keflavík Símar: 92-2652 og 92-2960 allt i einum dropa n j 2 HOBNSjgffl Cgg^pONNAB Gerð B: Breidd 40 cm Hæð 40 cm Dýpt 25 cm Cartomobilj kassinn er framleiddur úr sérstak- lega styrktum harð- pappa með áferðarfal- legri glanshúð. Kassinn er styrktur með járnumgjörð. Mjög hentugt sem geymslupláss fyrir bækur og ýmislegt ann- að. Litir: Hvítt, rautt, gult, grænblátt og bleikt. 1stk.340kr. 6stkipk.1.890kr. Dreifing á (slandi: r diopinn Hafnargötu 90 - 230 Keflavík Símar: 92-2652 og 92-2960 allt í einum dropa mikilli tryggð við leikmenn sína jafnvel þótt illa gengi á tímabili. Lykilleikmenn í liði Malofeyevs eru markvörðurinn snjalli Rinat Dasayev, markaskorarinn Oleg Protasov og leikstjórnandinn Fyodor Cherenkov. Hinn 21 árs gamli Protasov setti nýtt markamet í sovésku deildinni á þessu ári, þegar hann skoraði 35 mörk alls. Ánægjulegasta framför- in fyrir Malofeyev er þó frammi- staða Fyodors Cherenkovs á miðj- unni en hann stjórnar leik liðsins og þykir nú einn sá besti í heimin- um í þeirri stöðu. Pá er vert að geta miðherjans gamalkunna Oleg Blokhins sem hefur nú leikið nær 100 landsleiki fyrir þjóð sína. Hann var ekki með í síðasta lands- leik Sovétmanna gegn Norðmönn- um en gæti átt eftir að spila stórt hlutverk í keppninni í Mexíkó. Auk þess að stjórna liði Sovét- manna þjálfar Malofeyev lið Dy- namo Moskvu sem rétt slapp við að falla úr fyrstu deild á þessu ári. Malofeyev leynir því heldur ekki hvort starfið hann telji mikil- vægara: ,.Ég er ungur maður sem þarfnast mikillar og góðrar þjálf- unarreynslu en landsliðið mun og verður ávallt að hafa forgang." ...Amsterdam, París, Bris- bane, Nýja-Delhi, Barcel- óna, Belgrad og Birming- ham eiga eitt sameiginlegt áhugaefni. Allar borgirnar vilja fá að halda Sumaról- ympýuleikana árið 1992. Lillehammer, Albertville (Frakklandi), Sofía. Falnu (Svíþjóð), Cortina D'Am- pezzo (Ítalíu), Berchtesga- den (V-Pýsklandi) og Anc- horage (Álaska) hafa allar áhuga á Vetrarleikunum 1992. Lokaákvörðun um staðsetningu verður tekin á næsta ári... ...Karen Kayedavy sigraði á hinu alþjóðlega „Moscow news" listdansmóti á skaut- um en þeirri keppni lauk í gær. Hún er fyrsta banda- rtská stúlkan sem nær að sigra á þessu sterka móti. Tvær sovéskar stúlkur komu næstar. Sovétmaðurinn Al- exander Fadeyev sigraði í karlaflokki... Fimmtudagur 12. desember 1985 12 fþróttir Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu: „Við erum ekki auðsigrað lið“ segir þjálfari sovéska landsliðsins Eduard Malofeyev Úrvalsdeildin í körfu rúmlega hálfnuð: Njarðvíkingar öflugir ■ Úrvalsdeildin í körfuknattleik er nú rúmlcga hálfnuð en línur cru cnn óljúsar um hvaða tjögur lið komast í úrslitakeppnina sem hefst síðnstu vikuna í febrúar og stcndur fram í miðjan mars. Staðan er nú þéssi: 1. Njarðvík 11 961:848 20 stig 2. Haukar 11 883:835 14 stig 3. Valur 12 934:917 12 stig 4. ÍBK 12 912:938 12 stig 5. KR 12 927:995 8 stig 6. lR 12 954:1017 4 stig Stigahæstur einstaklingar: Valur Ingimundarson, Njardvik 297 stig Pálmar Sigurdsson, Haukum 235 stig Ragnar Torfason, ÍR 235 stig Birgir Mikaelsson, KR 230 stig Jón Kr. Gíslason, ÍBK 223 stig Gíslason eru stcrkustu menn Keflvíkinga sem hafa látið spá- dóma haustsins um slæmt gengi sem vind um eyru þjóta fram að þessu. Sigurður Ingimundarson, bróðir Vals hjá Njarðvík, er hald- inn svipaðri áráttu og bróðir hans og skorar grimmt. Einar Ólafsson er spútnikleikmaður þeirra Valsmanna um þessar mundir og á hvern stórleikinn á fætur öðrum. Pálmar Sigurðsson og ívar We- bster eru í liði Hauka og það gefur liðinu þegarstyrkleikasvip. Þá eru í liðinu efnilegir og öðru fremur duglegir leikmenn á borð við Henning Henningsson og ívar Ás- grímsson. Haukar hafa þó ekki sama styrkleikasvipinn og besta liðið í deildinni í Njarðvík. Þar eru margir góðir leikmenn og tveir mjög góðir leikmenn, þeir Valur Ingimundarson og Jóhann- es Kristbjörnsson. Mótið hefur fram að þessu veriö hið skemmtilegasta og setur gott áhorfendafylgi Suðurnesjalið- anna og Hauka svip sinn á það. Næsti leikurerannað kvöld en þá takast á toppliðin Njarðvík og Haukar. ■ Oleg Blokhin er þekktasti knattspyrnumaður Sovétmanna og er kominn með hátt í 100 landsleiki. Miðbæjarhlaup - framundan - Hlaupið á mesta annadegi ársins - Gott framtak Fyrsti maður í hvorum flokki fær bikar til varðveislu í eitt ár svo og þriggja manna sveit karla og kvenna. Verðlaunapeningar verða fyrir 3 fyrstu sæti í hvorum flokki. Búningsaðstaða verður í íþrótta- húsi M.R. frá kl. 12.30, þangað þarf að sækja númerin sín í síðasta lagi kl. 13.30, hálffíma áður en hlaupið hefst. Pylsuvagninn í Austurstræti býður svo hlaupurun- um upp á hressingu eftir hlaup gegn afhendingu keppnisnúmers. Þátttökutilkynningar þurfa að berast fyrir 19. des í síma 12891 eða 39571. Þátttökugjald er kr. 200 og er öllum heirnil þátttaka. ur. ■ Laugardaginn 21. desember ki. 14.00 gangast áhugamannafé- lög uni gamla miðbæinn og frjáls- íþróttadcild KR fyrir götuhlaupi í hjarta Reykjavíkur. Hlaupiö hefst syðst í Aðalstræti, þaðan verður hlaupið norður Að- alstræti.austur Hafnarstræti, upp Hverfisgötu og að Rauðárárstíg (Hlemmtorgi). Þá verðurfarið nið- ur Laugaveg og Bankastræti, suöur Lækjargötu, um Skólabrú, Póst- hússtræti og austur Austurstræti og endað við Lækjartorg. Hlaupið er um það bil 3,5 km. Keppt verður um 4 farandbikara í karla- og kvennaflokki sem Tísku- verslunin Assa og Hlemmtorg gef- ■ Forráðamenn knattspyrnu- mála í Sovétríkjunum eru bjartsýn- ir á að landslið þeirra eigi eftir að standa í þeim bestu og jafnvel komast alla leið í úrslitin í hcinis- meistarakeppninni í Mexíkó á næsta ári. „Við erum ekki auðsigraðir," segir Eduard Malofeyev þjálfari sovéska liðsins en hann tók við því í maí 1984 og hefur tekist að skapa sterkt og vel samhæft lið. Leiðin til Mexíkó byrjaði þó ekki vel, þeir töpuðu gegn írum í sínum fyrsta leik í undanriðlinum og voru fyrr á þessu ári með aðeins fjögur stig eftir fimm leiki. Eftir 4-2 tapið gegn Dönum í Kaupmannahöfn í júní síðastliðn- um voru uppi háværar raddir í Sovétríkjunum að Malofeyev ætti að segja af sér. Það gerði hann hins vegar ekki heldur stýrði liðinu til sigurs í fjórum síðustu heima- leikjunum - þar með voru Sovét- menn komnir með farseðilinn til Mexíkó í hendurnar. Malofeyev, sem er 43 ára og lék með Sovétmönnum í úrslitum heimsmeistarakeppninnar í Eng- landi 1966, segir aðalástæðuna fyr- ir vaxandi gengi liðsins á síðustu mánuðum hafa verið sigurinn á V- Þjóðverjum í ágúst síðastliðnum: „Þjóðverjar eru ein sterkasta knattspyrnuþjóð heims og mikil virðing er borin fyrir þeim hér heima. Þessi sigur okkar (1-0) gaf leikmönnum mínum aukið öryggi og var því fyrst og fremst sálfræði- legur sigur", útskýrir Malofeyev. Á þcim 20 mánuðum sem Malof- eyev hefur starfað hefur hann gert mjög litlar breytingar og haldið Reykjavíkurliðin KR og ÍR eiga undir högg að sækja. ÍR-ingar hafa þó verið að sækja í sig veðrið að undanförnu þó stigasöfnun hafi ekki gengið sem skyldi. Liðið vinnur vel saman, hefur á að skipa góðum bakvörð- um og Ragnar Torfason er sá leikmaður sem einna mestar framfarir hefursýnt í körfunni hér á landi. Fallið þarf því ekki endi- lega að falla ÍR-ingum í skaut þeg- ar upp verður staðið. Vesturbæjarliðið hcfur fjórum stigum meira en ÍR en leikur þess er ekki sannfærandi um þessar mundir. KR-ingar hafa að vísu sigrað Hauka tvívegis í vetur en þess á milli tapað að því virtist auðveldari viðureignum þ.á.m. gegn ÍR. Birgir Mikaeisson hefur verið drjúgur við stigaskorunina hjá KR í vetur. Valur og Keflavík eru bæði með tólf stig en eru hvorugt í áberandi hærri gæðaflokki en tvö fyrst- nefndu liðin. Landsliðsmennirnir Hreinn Þorkelsson og Jón Kr. ■ Þessar ungu stúlkur úr Gerplu eru nú farnar til Þýskalands þar sem þær munu æfa fimleika. Með þeim á mynd Árna Bjarna eru Valdimar Karlsson þjálfari og Áslaug Dís Ásgeirsdóttir fararstjóri og þjálfari.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.