NT


NT - 19.12.1985, Síða 2

NT - 19.12.1985, Síða 2
Fimmtudagur 19. desember 1985 2 Ríflega 100 myndlistarmenn í Reykjavík: Skora á Hannes að semja við borgina ■ „Við undirritaðir myndlistar- þegar til samninga við borgaryfir- menn lýsum yfir þeirri skoðun okkar, að nauðsynlegt sé að gera breytingar á iofti Kjarvalsstaða til þess að lýsing sé viðunandi og sýn- ingarsalir geti þjónað tilgangi sínum. Skorum við því á Hannes Kr. Davíðsson, arkitekt að ganga nú ■ Myndlistarmenn í Reykjavík segja að sýningarsalirnir njóti sín ekki vegna loftsins og m.a. speglun í gleri myndanna svo ekki sé talað um allan kostnaðinn vegna lýs- ingarinnar, sem sé óheyrilega mikill. Reykvíkingar byggja 50*70 m stærri hús en landsbyggðarmenn ■ Um 220 fermetrar er nieðal- stærð þeirra einbýlis- og raðhúsa sem Reykvíkingar liafa byggt á áruniim 1975-1983 - stærst 227. lérmetrar á árinu 1982. Á sama tíma létu einbýlls- og raðhúsbyggj- endur á iandshyggðinni sér nægja 50-70 fcrnietriini niinni hús, eða 150-170 fermetra að með- altali, en það er sú stærð sem Reykvíkingar byggðu á 7. ára- tugnuin. l'ótt mórguin sýnist veg- legar liallir í nágrannasveitarlé- lögiim Reykjavíkur konmst þær ekki npp fyrir 200 fcrnietrn að ineðaltali fyrr en árið 1982. Meðalstærð allra sérbýlishúsa í Reykjavík er rúmir 186 fermetr- ar, eða 10 fermetrum stærri en annarsstaðar á höfuðborgarsvæð- inu, þrátt lyrir að mun meira er um gömul hús í höfuðborginni en í nágrannasveitarfélögum hennar. Meðalstærð sérbýlis annars- staðar á landinu er um 127-140 fermetrar, eða um 50 fermetrum minni íbúðir cn í höfuðstaðnum l'ar hafa rnenn lítið sem ekkert byggt stærra síðustu árin heldur en á árunum í kring um 1960. Framangreindar upplýsingarer að finna í ársskýrslu Húsnæðis- stofnunar ríkisins. 1 árslok 1983 töldust íbúðir í landinu alls 81.307 og voru þær 115 fermetrar að meðaltali. Á sama tíma töldust íslendingar 237.894, scm þýðir 2,93 að meðaltali í hvcrri íbúð. Hver íslendingur hefur því liaft að meðaltali 39,3 fermetra íbúð- arhúsnæðis ef jafnt hefði verið skipt og þær tölur hafa síðan hækkað. völd, svo að þetta mál fái farsæla Iausn." Þannig hljóðar áskorun sem ríflega 100 myndlistarmenn í Reykja- vík hafa undirritað og afhent Hann- esi Kr. Davíðssyni. Aðsögri Ingunn- ar Eydal grafíklistakonu og Kristín- ar Jónsdóttur arkitekts munu stjórn Kjarvalsstaða og Davíð Oddsson borgarstjóri einnig fá afhenta áskorunina. Þær Kristín og Ingunn sögðu í sam- tali við NT að óánægja hefði verið með loftið frá fyrstu tíð og í gegnum árin hefðu orðið talsverð blaðaskrif vegna þessa máls. Fyrir um ári hefði stjórn Kjarvalsstaða samþykkt að breyta loftinu en Hannes Kr. Davíðsson arkitektinn, hefði sett lögbann á breytingar á þeim forsend- um að um listaverk væri að ræða og vísaði til höfundalaga því til stuðnings. Myndlistarmennirnir sem undir áskorunina skrifuðu vilja að þessu lögbanni verði rift. Sýningarsalirnir njóti sín ekki vegna loftsins, speglun yrði í gleri myndanna og dagsbirtan nyti sín ekki. Að auki væri kostnaður við lýsingu óheyrilega mikill. Salirnir væru því ekki færir um að gegna hlut- verki stnu. Myndlistarmennirnir sem undir áskorunina rita eru úr öllum starf- andi félögum myndlistarmanna, á öllum aldri og búa allir í Reykjavík. Fugleiðir: Nýársorlof á Hótel Esju RUM \FURUHILLUR sem stœkka með \ og BÖRNUNUMXSKÁPAR V' jm\s Eigum til á lager þessi fallegu og sérstaklega hand- hœgu barnarúm, sem hœgt er að lengja úr 140 cm í 175 cm. Mjög hagstœtt verð. Fallegar furuhillur og skápar. Hentugt í barnaherbergið eða sumarbústaðinn, Húsgögn fyrir þá er unna furuhúsgögnum. SENDUM í PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT. Sími 68 51 80 FURUHÚSGÖGN Smiðshöfða 13 ■ Innanlandsflug Flugleiða ntun nú um áramótin í fyrsta skipti bjóða upp á sérstaka nýársferð sem kölluð hef- ur veriö nýársorlof. Mun nýársorlofið hefjast 27. des- ember og verður dvalið á Hótel Esju í sex nætur. Innifalið í nýársorlofinu er llug til og frá Reykjavik, gisting í sex nætur, leikhúsferð, veglegur kvöldverður, móttaka við komu og alls kyns fyrirgreiðsla. í fréft frá Flugleiðum segir að ef vel takist til með nýársorlofið megi gera ráð fyrir að þetta verði endur- tekið á næsta ári og þá e.t.v. víðar á landinu. Arnarflug: 55 ferðir fyrir jólin ■ Arnarflug gerir ráð fyrir að farn- ar verði 55 ferðir til tíu áfangastaða nú fyrir jólin og þar er um að ræða 19 reglulegar áætlunarferðir og 36 aukaferðir. Til flugsins verða notaðar fjórar vélar, tvær Cessna 402 vélar Arnar- flugs og Chieftain flugvél frá Flugfé- lagi Norðurlands sem leigð hefur verið og auk þessara véla mun Twin Otter flugvél frá Flugfélagi Norður- lands fljúga nokkrar ferðir. Farþegum er bent á að tryggja sér sæti í tíma þar sem miklar annir eru hjá Arnarflugi um þessar mundir. Nánari upplýsingar veita Guð- mundur Hafsteinsson forstöðumað- ur innanlandsdeildar og Sighvatur Blöndahl forstöðumaður kynningar- deildar.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.