NT - 19.12.1985, Page 9
_ ____________________Fimmtudagur 19. desember 1985 9
Vettvangur
Ræða Guðmundar Bjarnasonar, varaformanns fjárveitinganefndar við 2. umræðu fjárlaga:
„Sömu krónurnar verða
ekki notaðar tvisvar“
■ Guðmundur Bjarnason: Hcrra
forseti. Frv. til fjárlaga fyrir árið
1986 hefur nú vcrið til athugunar
og meðferðar í fjvn. Alþingis frá
því að þing kom saman í haust. Það
cr mikil vinna hjá fjvn.-mönnum
og þeim embættismönnum Fiár-
laga- og hagsýslustofnunar cr tneð
þeini starfa fyrir þetta verkcfni
og viðtölin sem ncfndin ;i við ýmsa
aðila og erindin sem hcnni bcrast
skipta hundruðum.
Að þcssu sinni voru ncfndar-
störfin mcð nokkuð scrstökum
hætti að því leyti að tvisvar á þcini
tíma scm ncfndin var að fjalla um
frv. koniu tilkynningar frá ríkisstj.
um veigamiklar breytingar sem
hún lagði til að gerðar yrðu á frv.
bæði gjalda- og te'kjuhliðum þcss.
Fyrri tilkynningin kom frarn í fram-
soguræðu hæstv. fjmrh. scm flutt
v;ir 12.nóv.sl. Varþargcrt ráðfyr-
ir lækkun á ýmsum útgjaldaliðum,
bæði framkvæmda- og rekstrarlið-
um, þó einkum rekstrarliðum. þ.e.
launum og öðrum rckstrarútgjöld-
um ráðuneyta og ríkisstofnana sem
ná skal fram með auknu aöhaldi og
sparnaði. Einnig var gcrt ráð fyrir
lækkun á tekjuhlið frv. og munaði
þar mestu að horíið var frá hug-
myndurn um að leggja söluskatt á
ýmsar vörur og þjónustu sem ekki
hefur veriö söluskattsskyld.
Eftir þessar fyrirhuguðu breyt-
ingar var lækkun útgjalda rnciri cn
lækkun tekna og hefði því staða
ríkissjóös átt að styrkjast, tckjur
umfram gjöld að hækka.
Scinni tilkynningin frá ríkisstj.
um fyrirhugaðar breytingar fjallar
hins vegar að mestu um tekjuhlið-
ina. Fallið et Irá hugmyndum um
breytingar á tollalögum og lögum
um vörugjald og frestað cr áætlun-
um um niðurfcllingu tekjuskatts af
almennum launatekjum scm fram-
kvæma átti í áföngum. Þessar
ákvarðanir lciða til nokkurrar
lækkunar á tckjum ríkissjóðs.
Fá liggur fyrir að hækka þarf
framlög til Tryggingastofnunar
ríkisins og Atvinnutryggingasjóðs
þó breytingar þar að lútandi séu
látnar bíða til 3. umr. frv. Pá eru
málefni Lánasjóðs ísl. námsmanna
til sérstakrar athugunar og einnig
tel ég æskilegt að hækka framlög til
Húsnæðisstofnunar ríkisins til að
auðvelda að staðið verði við hug-
myndir um sérstakar aðgerðir í
húsnæðismálum vegna greiðslu-
vanda íbúðareigenda. Allt þetta
bendir til þess að útlit sé fyir nokk-
urn greiðsluhalla á fjárlögum næsta
árs að öðru óbrcyttu.
Hins ber að geta að eftir er að
endurmeta tekjuáætlun fjárlaga-
frv. og færa það síðar til áætlaðs
verðlags á næsta ári. Þetta verður
skv. venju gcrt við 3. umr.
At' framansögðu má Ijósl vcra,
að vinnan í fjvn. hefur verið með
nokkuð sérstökum hætti að þessu
sinni. Reynt hefur verið að gæta
ítrasta aðhalds og gera sem allra
minnstar tillögur til hækkunar á
frv. Nema sameiginlegar tillögur
nefndarinnar og þær till. sem meiri
hl. flytur til hækkunar samtals 95
millj. kr. sem svarar til um 0.25%
hækkunar á útgjaldahlið frv. Hafa
breytingar n. aldrei verið jafn litlar
þann tíma sem ég hef átt sæti í
fjvn., en þettaer7. fjárlagafrv. sem
ég tek þátt í að glíma við. Megin-
ástæður fyrir því að brtt. nefnd-
arinnar eru nú svo litlar og raunar
mikið minni en oftast áður tcl ég
vera. í fyrsta lagi eru áællaðar
raunhæfari fjárveitingar til ráðu-
neyta og stofnana en oftasl áður.
Þar á ég við sjálft umfangið hvað
varðar mannahaldið og raunveru-
legan reksturskostnað. Ymsar
stofnanir scm áður höfðu séð
ástæðu til að ganga á fund nefndar-
innar til að óska leiðréttingar á
málum sínurn hafa ckki þurft að
ganga slíkan bónarveg að þessu
sinni. Margar hafa að sjálfsögðu
komið til að biðja um aukin umsvif
og einstaka til að biðjast vægðar og
óska eftir að fjárframlög verði ekki
lækkuð frá þvi sem frv. ráðgerir.
Rétt er að geta þess að nokkrar
stofnanir eru cnn í sérstakri athug-
un sem leiða kann í Ijós að gera
þurfi írekari leiðréttingar á
rekstrargrunni þeirra. Þar á meðal
eru lögreglustjóraembættið í
Reykjavík. Bifrciðaeftirlit ríkisins
og ríkisspítalarnir. Ég tel mjög
nauðsynlegt að útgjöld séu rétt
áætluð og sú starfsemi sem í gangi
er fái þær fjárveitingar sem hún
þarf sé á annað borð ætlast til að
starfsemin sé óbreytt. Annað eru
blekkingar og óraunsæi sem koma
bara í koll stðar.
Sumar af brtt. ncfndarinnar eru í
samræmi við þetta sjönarmið, t.d
leiðréttingar á vanáætluðum launa-
liðum vegna yfirvinnu eða álags-
greiðslna, húsaleigugreiðslum eða
öðrum rekstrarko'stnaði svo að
citthvað sé nefnt.
Hins vegar er alltaf erfiðara að
áætla rétt fyrir verðlagsbreytingum
og sá halli á fjármálum ríkisins sem
nú virðist stefna í á þessu ári er
cinkum þannig til kominn að
launa- og kostnaðarhækkanir al-
mennt hafa orðið meiri en ráð var
fyrir gert en tckjurnar hafa ckki
aukist að sama skapi.
í öðru iagi vil ég nefna að boðað-
ar lækkanir af hálfu ríkisstj. á ýms-
um útgjaldaliðum frv. leggja þá
skyldu á herðar nefndarinnar eða
a.m.k. meiri hl. hennar að halda
niðri svo sem frekast er unnt öllum
óskum ríkisstofnana um nýjar
stöður eða nýja starfsemi. Það væri
hjákátlegt að verða við óskum að
flytja brtt. til lækkunar á ýmsum
fjárlagaliðum, flestum sjálfsagt
bæði þörfum og æskilegum en gera
síðan margvíslegar tillögur til
hækkunar á einhverjum öðrum lið-
um frv. þó að cinnig gæti talist
nauðsynlegir. Slíkt verður að bíða
að þessu sinni.
Þriðja og jafnframt veigamesta
ástæðan sem ég nefni fyrir því livað
boðaðar breytingar af hálfu nefnd-
arinnar eru litlar er auðvitað sú að
það er ekkert svigrúm til aukinna
ríkisútgjalda ætli stjórnvöld að
standa við þær hcitstrengingar sem
hafðar voru í frammi er fjálagafrv.
var lagt fram á haustdögum, cn þar
á ég fyrst og fremst við markmiðin
um hallalausan ríkisbúskap og
stöðvun á erlendri skuldasöfnun.
Þcssi atriði eru þau sem ríkisstj.
vcrður að hafa að leiðarljósi ætli
hún ckki að missa allt úr böndun-
um hvað varðar stjórn efnahags-
mála á næstu vikum og mánuðum.
En hvers vegna er ekkcrt svig-
rúm til aukinna ríkisútgjalda og
hvers vegna er hlutfall fjárfcsting-
arframlaga af heildarútgjöldum
ríkissjóðs orðið svo lítið scm raun
■ Guðmundur Bjarnason.
ber vitni? Mig langar að fara um
þetta örfáum orðum og nefna
nokkur dæmi sem ég tel vcra ástæð-
ur fyrir því að svona er komið.
Allt bendir til aðárið 1985 ætli að
verða með allra bestu aflaárum i
sögunni. Því ræða menn um og
spyrja, hvernig stendur á öllufn
þessum erfiðleikum í ríkisbú-
skapnum og öllu þessu krepputali
þegar aldrei hefur aflast betur cn
einmitt nú? Von cr að spurt sé, en
málið er því miður ekki svona ein-
falt. Aflamagnið segir ckki alla
söguna. Þegar rætt er um metaflaár
ber að hafa í huga, að þá er átt við
þyngd aflans án tillits til verðmætis.
Rétt er að bcnda á að hvert tonn á
þorski upp úr sjó er nú unt þaö bil
tífalt verðmætara enn tonn af
loðnu. Þcgar bera á saman afla-
brögð milli ára er því réttara að
rniðla við verðmæti aflans cn magn.
Samanburður á breytingum afla-
magns annars vegar og aflavcrð-
mætis hins vegar milli áranna I983
og 1985 gefur ákaflcga skýra mynd
af þessum mun. Þrátt fyrir tvöföld-
un á aflamagni á þessum tvcimur
árum úr 839 þús. lestum 1983 í um
þaðbil 1670þús. lestirskv. spá fyrir
árið 1985 er einungis gert ráð fyrir
unt fimmtungsaukiningu á vcrð-
mæti aflans. Skýringin er augljós.
Tvöföldun á aflamagni má fyrst og
fremst rekja til aukinnar loönu-
veiði en botnfiskafli dregst sanian.
A mælikvarða aflamagns upp úrsjó
í tonnum talið má reyndar leiöa að
því líkur að árið 1985 geti orðið
metaflaár. Sama gæti orðið uppi á
tengingnum þegar aflaverðmæti er
skoðað, en þá virðist stefna í svip-
aðar tölur og 1980-1981, scm cru
mestu aflaárin til þcssa.
Sé hins vegar litið á afurðaverð-
mætið kemur í Ijós að talsvert
skortir á að hámarkinu frá 1981
vcröi náð nú. Mælt í dollurum
vantar um fjórðung. en þar sem
miklar sveiflur hafa verið á dollara-
gengi undanfarin ár er eðlilegra að
líta á raunviröi afurðaverðmætis
scm gefur þá niðurstöðu að þrátt
fyrir metafla á þessu ári verður
afuröaverðmætið enn tæplega 10%
minna en 1981. Þessi samanburður
sýnir þannig glöggt hversu hæpið
það getur veriö að skoða cingöngu
tonnafjölda upp úr sjó án tillits til
afla eða afurðaverðmætis. Saman-
burðurinn skýrir einnig hvers
vegna aukið aflamagn bætir ckki
þjóðarhag enn mcir en raun cr a.
Vissulega hefur stóraukin loðnu-
veiði haft mikið að segja og ætla ég
síst af öllu að gera mikið úr því. en
ítreka aðeins að við samanburð á
aflamagni verður cinnig aö taka til-
lit til afurða verömætisins. Og þrátt
fyrir aukin verðmæti er enn langt
frá því að viö hölum jafnað okkur
eftir áfall og aflahrun scinustu ára.
En hverjar eru skýringarnar á
breyttum hlutlöllum ríkisútgjalda
til hinna einstöku verkefna? Ymsir
nýir og stórir útgjaldaliðir hala
komið til á seinustu árum og aörir
hafa hækkað hlutfallslcga. Og
þessar brcytingar hal'a fyrst og
fremst komið niöurá fjárfestingar-
þáttunum. Þar sem ég var áöan að
ræða utn afla ogsjávarúlveger ckki
úr vcgi að nefna sem fyrstu ástæður
þcssara breytinga endurgreiðslu
söluskatts í sjávarútvegi sem er nýr
liður í fjárlögum þessa árs aö upp-
hæð kr. 430 millj. auk þess sem
rúmar 30 millj. kr. voru á árinu
veittar meö aukafjárvcitingu til
þcssa liðar. Að mestu leyti rennur
fjármagn þetta til útgeröarinnar í
gegnum Aflatryggingasjóð og hef-
ur verulega þýðingu fyrir afkomu
hcnnar.
Hins vegar má spyrja hvort hérsé
rétt að málum staðið að cndur-
greiða til atvinnuvegar skatt sem á
Itann hefur veriö lagður umfratn
það scm liann gctur borið. Hér er t
raun viðurkennt að gengiö hafi ver-
ið of langt þegar ríkissjóöur styrkir
þann atvinnuveg sem þjóðfclagið
lifir að mestu lcyti á. í fjárlagafrv.
fyrir 1986 er þessi upphæð áætluö
600 millj. kr. Ljóst eraðþónokkuö
mætti framkvæma í höfnum lands-
ins væri hægt að ráðstafa upphæð
þessari til fjárfcstingarverkefna.
Ég tel hins vegar að fyrr en síðar
verði að finna lcið til að losa ríkis-
sjóð og atvinnulífið við millifærslur
af þcssu tagi.
Önnur ástæðan scm cg vil ncfna
fyrir auknum rckstrarútgjöldum
ríkissjóðs er fjölgun heilsugæslu-
stöðva og sjúkrarúma á undanförn-
um áru. Þctta er að vísu ekki nýtt
dænti en mjög táknrænt fyrir þær
breytingar scm eru að gerast.
I grcin sem Skúli G. Johnsen
borgarlæknir ritar nýlcga í Lækna-
blaðið segir m.a. með leyfi hæstv.
forseta:
„Síðasti áratugur var einhver
mesti uppgangstími heilbrigðis-
þjónustunnar hér á landi frá upp-
hafi. Sjúkrahús voru byggð og
stækkuð um allt land og fjölda
heilsugæslustöðva komið á fót. A
árunum 1970-1982 fjölgaði sjúkra-
rúmum úr 2933 eða 14.3 rúmum á
hverja 1000 íbúa í 3890 eða 16.6
rúmum í hverja 100 íbúa. Þetta cr
meðal hins hæsta sem gerist. Á
sama tímibili voru tcknar í notkun
29 heilsugæslustöðvar og má nú
segja að allir landshlutar þegar frá
eru taldir Reykjavík og Reykjanes
hal'i fullnægjandi aðstöðu til heilsu-
gæslustarfs skv. lögum."
Og þrátt fyrir alla þcssa upp-
byggingu cr ckkert lát á. Sá lram-
kvæmdaliðurinn sem crfiðast var
að skipta upp að þessu sinni var
einmitt bygging sjúkrahúsa og
hcilsugæslustöðva. Byggingar
þcssar eru mjög dýrar og cnn dýrari
í rckstri þegar þær loks cru tcknar í
notkun, enda þessar stofnanir með
stærstu vinnuveitendum á þcim
stöðum þar sem þær starla.
I þriðja lagi vil ég svo ncfna fjár-
veilingar af ýmsu tagi til málefna
fatlaðra. Ekki cr nokkur vafi á að
þcssi mál voru vanrækt um langt
árabil, en á seinustu 5 árum cða svo
hcfur veruleg breyting orðið á.
Á vcgum félmrn. er á næsta ári
ráðgert að verja 450 niillj. kr. til
þessa málaflokks og eru þá ótalin
framlög sem kotna í gegnum
mcnntamála- og hcilbr.- og trmr.
Skv. þcssu verða starfandi tnilli 60-
70 þjónustu- og vistUnarstofnanir á
landinu öllu á árinu 1986. Allt cr
þetta nauðsynlcg starfscmi sem
mikil þörf var l'yrir.
Hins vegar virðist nauðsynlegt
að ininna mcnn stöðugl á að sömu
krónurnar vcrða ckki notaðar
tvisvar.
1 ljórða lagi neini ég lengda
skólaskyldu, fjölgun fjölbrauta og
menntaskóla og aukna aðsókn að
Háskóla íslands. Fjölgun nema á
framhalds- og háskólastigi kallarsí-
fellt á aukin Iramlög til l.ánasjéiðs
ísl. nátnsmanna t>g alll cykúr þetta
rekstrarútgjöld ríkissjóðs.
Liðurinn, jöfnun námskostnaðar
cr óbrcyttur 20 millj. kr. frá l'jár-
lögum til frv. og má vissulega gagn-
rýna það að ekki skuli gert betur og
svo má auðvitað scgja utn ýmsa
aðra liði lrv. Ég vil hins vegar
leggja áherslu á að besta jöfnunin
til náms er auðvitað sú að l'æra
námið sem mest heim lil unga
fólksins og það cr einmitt skv.
þeirri stefnu setn fjölbrauta- og
menntaskólar hafa vcrið byggðir
upp nú á undanförnum árum. Fjár-
veiting á liðnum Jöfnun náms-
kostnaðar fer til að greiöa uppihald
framhaldsskólanema sem þurfa að
sækja nám sitt fjarri heimabyggö.
Þegar svo háttar til fá nemendur
sem sækja nám annað ekki greidd-
an jöfnunarstyrk og cr því minni
þörf fyrir þennan liö en áður og er
það vcl.
Að lokum herra forscti, vil ég
svo minna á lántökur ríkissjóðs á
undanförnum árum og þá vaxta-
byrði scm af þcim lciðir. Vaxta-
greiðslur verða sífcllt hærra og
hærra hlutlall af heildarútgjöldum,
á næsta ári áætlaðar á 4. milljarð
kr. Út út þessum vítahring verðum
við að komast. Á það hef ég lagt
áherslu áöur og eyði ég ckki flciri
orðum hér.
Tekjuhlið l'rv. og nokkrir stórir
málaflokkar sem ég nefndi í upp-
hafi máls míns eiga cítir að fá frek-
ari umfjöllun í ncfndinni milli 2. og
3. umr., svo og B-hluta fyrirtækin.
Trúlega á cinnig eftir að gera
nokkrar smærri breytingar og lag-
færingar á nokkrum liðum og mun
það einnig koma fram við 3. umr.
frv.
Ég vil að lokum þakka formanni
og meðnefndartnönnum, ritara
nelndarinnar og starfsfólki Fjár-
laga- og hagsýslustofnunar l'yrir
gott samstarf:
I„Reynt hefur verið að gæta ýtrasta aðhalds og
gera sem allra minnstar tillögur til hækkunar á
frumvarpinu“
„Og þrátt fyrir aukin verðmæti er enn langt frá
því að við höfum jafnað okkur eftir áfall og afla-
hrun seinustu ára.“