NT - 19.12.1985, Page 11

NT - 19.12.1985, Page 11
flokksstarf ffF Fimmtudagur 19. desember 1985 11 Ll þeir með engu móti fylgt eftir nema þá að stórskaða sjálfa sig. Ég geri þar á ofan ekkert með skipanir þeirra um það hvernig ég eigi að greiða atkvæði á Alþingi. Þann rétt hef ég bundinn í stjórnarskrá og tek ekki við fyrir- mælum þeirra. I ummælum mínum á Alþingi fólst að sjálfsögðu ekki van- traust á utanríkisráðherra. Geir Hallgrímsson er mjög mikilhæfur stjórnmálamaður og langfremstur sinna flokksbræðra að mínum dómi. Þetta breytir því þó ekki að ég er honum ekfci sammála í hvívetna oo áskil mér rétt til þess að láta það í ljósi. Því er við að bæta að Geir hefur nú mjög sterka aðstöðu sem utanríkis- ráðherra. í kjölfar síðustu stjórn- armyndunar var ákveðið að Fram- sóknarmenn færu með forystu í utanríkismálanefnd þannig gætu Framsóknarmenn haft áhrif á gang utanríkismála og átt þátt í stefnu- mótun á öllum stigum. Ólafur Jóhannesson var kjörinn formaður nefndarinnar. Eftir lát hans sat varaformaður Eyjólfur Konráð Jónsson í formannssæti til næsta hausts. Þá var Tómas Árnason kjör- inn formaður. Tómas hætti þing- mennsku og varaformaður stýrði nefndinni. Við upphaf þings í haust ákváðum við Framsóknarmenn að Haraldur Ólafsson tæki við for- mennskunni. en þá sviku Sjálfstæðis- menn samkomulagið frá 1983 og kusu allir sem einn Eyjólf í formannssætið og náði hann því með stuðningi stjórnarandstöðunnar. Kjartan Jóhannsson kaus Eyjólf Konráð en fulltrúar Alþýðubanda- lags og Kvennalista létu formennsku Eyjólfs óátalda og sátu hjá. Þannig þarf Geir einungis að ráðfæra sig við Eykon sem formann utanríkismála- nefndar og býður þetta fyrirkomulag upp á árekstra um utanríkismál á milli stjórnarflokkanna. Tillöguflutn- ingur minn Mér var það ljóst að hinum heimskulegu hótunum sjálfstæðis- manna yrði að mæta af festu og sá það í hendi mér að nauðsynlegt væri að taka frumkvæði að því að koma íslandi í félagsskap annarra Norður- landa hvað varðar afstöðuna til kjarnavopnafyrstingar. Ég kannaði óformlega mánudaginn 9. desember hvort meirihluti gæti orðið á Alþingi fyrirsvohljóðandi tillögu; „Alþingi lýsir þeirri skoðun sinni, að eðlilegt sé að ísland hafi samstöðu með öðrum ríkjum Norðurlanda í atkvæðagreiðslu á þingi Sameinuðu þjóðanna um tillögu Mexíkó, Sví- þjóðar og fleiri rt'kja um frystingu kjarnavopna.“ Ég vissi auðvitað að til þess að þessi tillaga gæti náð fram að ganga með þinglegum hætti, á þeim tveim- ur dögum sem voru til stefnu, þriðj- udegi og miðvikudegi, (en atkvæð- agreiðslan hjá S.Þ. var fyrirhuguð á fimmtudegi), þá yrði að vera um hana rík samstaða. Það mikið kann ég fyrir mér í þingstörfum að ég veit að 2-3 menn geta auðveldlega tafið mál um einn eða tvo daga. Mál þetta þurfti tvær umræður og meðferð í nefnd. Mér var kunnug andstaða margra sjálfstæðismanna, þó að mér lægju í léttu rúmi stjónarslitahótanir þeirra, sérstaklega vegna þess að þeir gátu ekki farið úr ríkisstjórninni af þessu tijefni qo höfðu nnoa stöðu í kocnino. ar með Hafskipsmálið á allra vörum. Þeir gátu heldur ekki gengið til stjórnarsamstarfs við aðra flokka eftir að þeir hlutaðeigandi tlokkar hefðu samþykkt tillögu sem væri or- sök stjórnarslita. Ég sá að þannig voru þeir negldir niður í sína ráð- herrastóla og komust ekkert burtu. Alþýðuflokkurinn vildi heldur ekki lofa að styðja tillögu mína og meðal sumra flokksbræðra minna var talið að það væri óþarfa harðleikni við sjálfstæðismenn að láta þá éta ofan í sig stóryrðin um stjórnarslit. Fyrir mér vakir raunar ekki að auðmýkja sjálfstæðismcnn. þótt mér þættu þeir hafa unnið til nokkurrar hirting- ar. Norræn samstaða Fyrir mér vakir það fyrst og fremst að koma á norrænni samstöðu um af- stöðuna til frystingar kjarnavopna. Ég tel að Norðurlönd eigi að hafa samstöðu út á við, ef þau mögulega geta og þannig verði áhrif þeirra á gang hcimsmála langmest. Ég tel að það sé heillavænlegt fyrir gang heimsmála að áhrif Norðurlanda séu sem mest, Ég er meðflutningsmaður tillögu á vettvangi Norurlandaráðs um það að kannað verði hvernig Norðurlönd geti best látið til sín heyra út á við og ég hef sem forseti Noröurlandaráðs ásamt með for- sætisnefndinni heimsótt ýmsar al- þjóðastofnanir í Genf, Strasbourg og París til þess að kynna viðhorf Norðurlandaráðs. Forsætisnefnd Norðurlandaráðs ákvað einnig í sumar að boða til fjölþjóðaráðstefnu um loftmengun næsta haust. Með ofangreint markmið í huga varð mcr ljóst að hyggilegast væri að ég beitti mér fyrir tillöguflutningi sem ætla mætti að nyti víðtæks stuðn- ings á Alþingi og næði þó því tak- marki að koma Norðurlöndunum í einn hóp. Þess vegna ákváðum við framsóknarmenn að flytja eftirfar- andi tillögu til þingsályktunar: „Tillaga til þingsályktunar um frystingu kjarnorkuvopna. Flutningsmenn: Páll Pétursson, Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirs- son, Haraldur Ólafsson, Þórarinn Sigurjónsson, Guðmundur Bjarna- son, Jón Kristjánsson, Davíð Aðal- steinsson. Alþingi lýsir þeirri skoðun sinni að ísland eigi að leitast við að ná sam- stöðu með öðrum ríkjum Norður- landa um „frystingu" á framleiðslu kjarnavopna og bann við tilraunum með kjarnavopn. ísland skal hafa frumkvæði um tillöguflutning á vett- vangi Sþ. um þau mál á grundvelli ályktunar Alþingis 23. maí 1985." Greinargerð. I ályktun Alþingis um stefnu ís- lendinga í afvopnunarmálum sem einróma var samþykkt 23. maí 1985 segir m.a.: „Alþingi fagnar hverju því fruni- kvæði sem frarn kernur og stuðlað getur að því að rjúfa vígbúnaðar- kapphlaupið. Alþingi ályktar að beina því til ríkisstjórnarinnar að styðja og stuðla að allsherjarbanni við tilraunum, framleiðslu og uppsetningu kjarna- vopna undir traustu eftirliti, svo og stöðvun á framleiðslu kjarnkleyfra efna í hernaðarskyni, jafnframt því að hvetja til aþjóðlegra samninga um að árlega verði reglubundið dregið úr birgðum kjarnavopna. Þessu banni og samningum um niðurskurð kjarnorkuvopna verði framfylgt á gagnkvæman hátt þannig að málsað- ilar uni því og treysti enda veröi það gert í samvinnu við alþjóðlega eftir- litsstofnun. Leita verður allra leiða til þess að draga úr spennu og tortryggni milli þjóða heims og þá einkum stórveld- anna. Telur Alþingi að íslendingar hljóti ætíð og hvarvetna að Ieggja slíkri viðleitni lið." Á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna er til umfjöllunar tillaga um frystingu kjarnorkuvígbúnaðar, flutt af Mexíkó, Svíþjóð og fleiri ríkjum. Afstaða íslands var sú að sitja hjá, en þeirri afstöðu viljym við breyta. Þess er rétt að geta aðiNorð- menn höfðu sömu skoðun en hafa nú breytt afstöðu sinni og styðja tillög- una. Flutningsmenn telja eðlilegt að fs- lendingar hafi frumkvæði að sameig- inlegri stefnumótun Norönrlanrt- ánna." Þetta er lillaga sem hvorki Sjálf- stæðismenn né stjórnarandstaða ciga þægilegt með að leggjast gegn og verð ég að gera ráð fyrir að hún verði gerð að ályktun Alþingis og þar meö væri stórt skref stigið í rétta átt og afstaða íslands ákveðin. Það er til frambúðar miklu stærra skref og var- anlegra heldur en þótt að Alþingi hefði gefið fyrirmæli um aðstyðja til- lögðu Indónesíu, Mexíkó, Svíþjóðar Perú og Uruguay sem satt að segja er ekki afgerandi og gagnslítil, þó hún sé eins og ég sagði í þinginu „skref í rétta átt". Viðbrögð Þjóðvilja og Morgunblaðs Viðbrögð Morgunblaðsins og Þjóðviljans hafa verið nokkuð dæmi- gerð og lærdómsrík. Mbl. hefur raunar ekki sérstakt dálæti á mér og þar var skrifaður leiðari 11.12. sem heitir „Páll Pétursson hopar" og Þjóðaviljinn slær því upp 10.12. að „Páll hafi runnið á rassinn". Mér er alveg sama þótt Mogginn og Þjóð- viljinn séu eitthvað sárir út í mig. Ég veit sjálfur að ég stend fast í lappirn- ar og rann ekki á rassinn og ég hef hvergi hopað, heldur þvert á móti sótt verulega fram og er bara góður mcð mig. Ritskoðun? Þegar égsá að Þjóðviljinn og Mbl. voru að skrökva að lesendum sínum þá baö ég bæði Stefán Friðbjarnar- son þingfréttaritara Mbl. og Lúðvík Geirsson þingfréttamtmn Þjóðviljans að birta tillögu okkar Framsóknarmanna svo og greinar- gerðina, þannig að lesendur blað- anna gætu séð hvert ég hefði hopað eða hve langt ég hefði runnið á rass- inum. Svo ber nú við að þó ég setti þessa bón fram á miðvikudegi 11. des. hafa hvorugt blaðanna ennþá, þann 15. des., birt þingskjalið. Það er ástæðan til þess að ég skrifa þetta opna bréf til lesenda Þjóðviljans. Þingfréttamönnum Þjóðviljans vil ég svo að endingu ráðleggja að fara að eins og Bergur móðurbróðir og „segja söguna eins og hún gekk“ þá mundu lesendur Þjóðviljans fá allt aðra mynd af störfum og vopnavið- skiptum á Alþingi og ekki eiga skynfæðina á hættu. Með góðri kveðju Páll Pétursson Jólatréskemmtun Freyjukonur Kópavogi halda jólatréskemmtun laugardaginn 28. desember í Hamraborg 5, Kópavogi kl. 3.30. Vinsamlegast pantið miðasem fyrst í simum 43420,43054 og 42014 BLAÐBERA VANTAR I EFTIRTALIN TVÖ HVERFI: Tún og Mýrar t Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Sigurveigar Guðmundsdóttur Strandarhjáleigu Sérstakar þakkir til kvenfélagsins Bergþóru fyrir veitta aðstoð. Einnig bestu þakkir til starfsfólks sjúkrahúss Suðurlands fyrir góða hjálp og hjúkrun. ísleifur Einarsson og systkini hinnar látnu Vöruhús Vesturlands Borgarnesi sími 93-7200 Jólin eru hátíð friðar. Þá á fólki að líða vel og hvílast. Hvíldarinnar er best að njóta þegar jólaundir- búningi er lokið tímanlega. Það er vont að vera á síðustu stundu. Við í Vöruhúsi Vesturlands höfum fyrir löngu lokið okkar jólaundirbúningi en hann felst í því að leggja okkar af mörkum til að ykkar jólaundirbún- ingur verði eins léttur og unnt er. Þetta er okkar hlutverk og það tökum við alvar- lega. Það er óneitanlega kostur að fá allt sem þarf í einni ferð. Ferð í Vöruhús Vesturlands sparar sporin og er þess vegna ferð til fjár.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.