NT - 21.12.1985, Síða 1

NT - 21.12.1985, Síða 1
 Grímuklæddir árásarmenn brutust inn í íbúð í Kópavogi ■ Tveir grímuklæddir „Hjálpum þeim“ -12.3 milljónir hafa safnast ■ Söfnunarátak Hjálparstofn- unar kirkjunnar „Brauð lianda hungruðum heiini," hefur geng- ið mjög vel að sögn Gunnlaugs Stefánssonar, starfsmanns Hjálparstofnunarinnar. Frá því átakið hófst 8. des. sl. hafa 12.3 milljónir króna safnast. Þar af hefur platan „hjálpum þeim“ sem selst hefur í 15.000 eintök- um skilað 4.5 milljónum króna. Átakið heldur áfrarn nú unr helgina. Og er hægt að koma söfnunarbaukum og framlögum til skila í banka, sparisjóði og póstafgreiðslur auk skrifstofu Hjálparstofnunar. kirkjur og söfnunarbíla. Þá er hægt að gefa gegnum síma, með því að nota greiðslukort. Sími stofnunar- innar er 26440 og 25290. menn brutust inn í íbúð við Háveg 1 í Kópavogi um há- degisbilið í gær og réðust á mann sem þar býr. Reyndu árásármennirnir að svæfa manninn með ether en hann lá í rúmi sínu þegar hann varð þeirra var. Til nokkurra átaka mun hafa komið en við þau missti ann- ar árásarmaður trefil sem hann hafði bundið fyrir and- lit sitt til að hylja það og við það lagði hann ásamt félaga sínum á flótta. Maðurinn sem ekki mun meiddur náði að gera lög- reglunni viðvart. Eftirgrennslan var þegar • hafin en til árásarmannanna sást er þeir hlupu út úr hús- inu. Nágrannar urðu varir við hávaða frá íbúðinni en maðurinn bjó einn og lítið fé- mætt mun hafa verið í íbúð- inni utan persónulegra muna hans. Rannsóknarlögregla ríkis- ins hefur nú málið til rann- sóknar en þegar blaðið fór í prentun höfðu árásar- mennirnir ekki náðst. NEWS SUMMARYIN ENGLISH SEEP, 6 Undanbragðapólitík Byggingameistarar losna við launatengd gjöld ■ „Á undanförnum mán- uðúm hefur verið mjög vax- andi tilhneiging hjá atvinnu- rekendum að semja við starfsmenn sína um að þeir gerist undirverktakar og er full ástæða til að vara menn við slíkum samningum," seg- ir í nýju fréttabréfi Tré- smiðafélags Rcykjavíkur. „Við vörum ntjög við þessu, m.a. vegna þcss að menn sem gera þetta eru þá að taka sjálfir á sig alla ábyrgð t.d. í veikinda- og slysatilfellum, auk þess sem þeir firra sig öllunt rétti til at- vinnuleysisbóta jafnframt því sem þeir tapa öðr- um áunnunt réttiudum svo sem uppsagnarfresti," sagði Benedikt Davíðsson, forni. Félags byggingarmanna. Spurður um ástæður, sagði hann þetta svona undan- bragðapólitík. Atvinnurek- endurnir séu með þessu að losa sig undan kostnaöi af launatengdum gjöldum og sköttum og losna viö ábyrgð af þessum starfsmönnum sínum. Hjá starfsmönnum felist freistingin í því að þeir fái borgað t' sinn vasa til við- bótar við sitt kaup, hluta þess sem atvinnurekandinn hefði el.la þurft að greiða vegna þeirra. Þessa peninga eigi menn auðvitaö að nota til að tryggja sig - borga í líf- eyrissjóö, sjúkrasjóð og ann- að slíkt. Benedikt sagði enga breyt- ingu verða á starfinu sem slíku þó menn gerist undir- verktakar - þetta sé aðeins formbreyting í framangreind- um tilgangi. Atvinnurekand- inn losnar við greiðslu allra launatengdra gjalda og skatta - skipti þeim hluta með undirverktakanum og hvorugur skili svo neinu af þeim peningum. Að sögn Benedikts er svip- að ástand búið að ganga yfir í Noregi með miklum þunga. „Og þeir segja okkur koll-, egar okkar þar að þetta sé eitt af stærstu vanda- málunum sem þeir hafa við að glíma í félögunum - og þá fyrst og fremst vcgna bóta- réttar mannanna - svo marg- ir missi hann og fari illa út úr því. Það sania virðist vera að gerast hér í vaxandi mæli." ■ Sveinn Björnsson yfirmaður rannsóknarlögreglunnar í Hafnarfirði og reyndar allri Kjósarsýslu er hér að störfum um hánótt og handleikur Ijósmyndavélina af kunnáttu. Sveinn er nú þekktari sem listmálari en runnsóknarlögreglumaöur en ckki scgist hann nota Ijósmyndavélina við þá iöju. „Vélin kemur oft að góðum notum við rannsókn mála,“ scgir Svcinn og það er betra að hafa hlutina á lircinu þegar þarf að koina upp um skúrka eða sanna saklcysi manna.“ M-niynd: Svcrrír. Heilbrigðisyfirvölcfl hafa áhyggjur af lyfjaáti landsmanna: Fúkkalyfjanotkun margföld hér á við nágrannaþjóðanna Tugir milljóna króna fara í óþarfa lyfjakaup ■ í ljós hefur komið að sala á fúkkalyfjum hér á landi er miklu meiri en í næstu nágrannalöndum okkar eöa tvisvar til þrisvar sinnum meiri. Endanlegar tölur fyrir árið í ár liggja enn ekki fyrir en á undan- förnum þremur árum hefur sala fúkka- eða sýklalyfja aukist svo að heilbrigðis- yfirvöld hafa miklar áhyggj- ur af þróun þessara mála. í vikunni efndi landlækn- ir ásamt heilbrigðisráðu- neyti til fundar með sér- fræðingum þar sem reynt var að leita svara viö ýms- um spurningum í þessu sambandi. í framhaldi af fundinum hefur verið ákveðið að kanna nánar ýmis atriði varðandi notkun þessara lyfja hér á landi. Pétur Pétursson læknir á Bolungarvík er einn þeirra sem varað hefur við ofnotk- un fúkkalyfja og segir hann að við gætum að meina- lausu minnkað neysluna til mikilla muna. Pétur skrifar til dæmis um 40 lyfseðla á mánuði upp á umrædd lyf á hverja 1.000 íbúa en l’lest bendir til þess að landsmeð- altal sé um 80 til 120 lyfseðl- ar mánaðarlega á hverja þús- und íbúa. „Miðað við þær forsend- ur sem ég gef mér þá sýnist mér að sjúklingum hér á landi séu gefin fúkkalyf sem þeir sjálfir grciða 40 til 50 milljónir fyrir og hafa ekk- ert gagn af, að ekki sé minnst á kostnað ríkisins af innflutningi þessara lyfja.“ Sigurður Guðmundsson læknir á Borgarspítalanum í Reykjavík segir margt benda til þess að sýklalyf séu ofnotuð hér á landi. „ Við vitum reyndar of lít- iö enn um raunverulega notkun til að hægt sé að full- yrða of mikið en vissum flokkum sýklalyfja cr ávís- að miklu meira af læknum hér en í nágrannalöndum okkar. Þaö hefur verið tal- að um að almenningur þrýsti á lækna að skrifa út lyf við ýmsum pestum sem fólk cr haldið og ef það fengi ekki lyfin hjá einum lækni leitaði það til þess næsta.“ Ofnotkun sýklalyfja segir Sigurður einkum hafa tvær hættur í för með sér en þær eru að lyfjunum fylgja viss- ar aukaverkanir og svo að mikil notkun leiði til þess að vissir bakteríustofnar verði ónæmir og við það verði til sterkar bakteríur sem erfitt ^etur verið að drepa.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.