NT

Ulloq

NT - 21.12.1985, Qupperneq 7

NT - 21.12.1985, Qupperneq 7
Laugardagur 21. desember 1985 7 Útlönd Konunglegar reykingar I.ondon-Keuter. ■ Elísabet Bretadrottning hefur neitaö að meina sígarettufram- leiðendum að nota konunglegt innsigli á sígarettupakka þótt nokkrir þingmenn telji að með slíku hvetji drottning þegna sína til reykinga. Nokkrir sígarettuframleiðend- ur eru í hópi mörg hundruð vöru- framleiðenda sem hafa leyfi til að ■ „Margrét Thatcher nær til hluta heilans sem aðrír forsætisráðherrar komast ekki til“. nota konungsinnsigli á vörur sínar þar sem þær eru reglulega notaðar við hirðina. Þingmaður Verkamanna- flokksins, Ernie Roberts, bað drottningu urn að banna sígarettuframleiðendum að nota konungsinnsiglið í janúar á þessu ári eftir að systir hennar, Margrét prinsessa, sem reykir mikið, varð að gangast undir lungnauppskurð. Roberts segist nú hafa fengið bréf frá hirðinni þar sem segi m.a. að það sé almennur kurteisissiður við hirðina að bjóða gestum síga- rettur. Því konti ekki til greina að banna fyrirtækjum, sern leggi fram sígaretturnar að nota kon- ungsinnsiglið. Gull grafið úrveggjum Perlh-Kcuter. ■ Nýjasti gullfundurinn í Ástralíu er í veggjum myntslátt- arsmiðju ríkisins í ntiðborg borg- arinnar Perth. Paö er talið að um þúsund únsur af gulli (28,3 kg.) leynist í gömlum múrsteinum í veggjum smiðjunn- ar þar sem gull hel'ur verið unnið og slegið í 86 ár. Embættismenn smiðjunnar segja að gullið hafi gul'að upp við vinnslu fyrr á árum þegar vinnslu- aðferðir voru enn tiltölulega ófull- komnar. Þeir segja nauösynlegt að bræða veggi og loft smiðjunnar til að ná gullinu sem er metið á hálfa milljón ástralskra dollara (14 milljón ísl.kr.). Enn næst samband við geimfornminjar San Francisco-Reuter. ■ Vísindamenn hjá bandarísku geimvísindastofnuninni náðu í þessari viku aftur sambandi við elsta geimfar sem ntenn hafa sent á braut umhverfis sólina. Geimfarinu, Pioneer 6, sem er bandarískt, var upphaflega skotið á loft 16. desember 1965. Það hafði þá aðeins rannsóknarverk- efni til sex mánaða. Pioneer 6 hafði það hlutverk ásamt þrem öðrunt Pioneer-geim- förum að rannsaka ákveðin atriði í uppbyggingu sólkerfisins. Pað vegur aðeins 63 kíló og tæki þess eru knúin með sólarrafhlöðum. Pioneer 6 hefur enst ntun betur en menn þoröu að vona. Pað sendir enn út upplýsingar með átta watta útvarpssendi og banda- rískir vísindamenn telja að það haldi áfram útsendingum í að minnsta kosti nokkur ár til viðbót- ar. Upplýsingar frá Pioneer 6 hafa aukið mjög þekkingu manna á sólkerfinu. Frá því eru t.d. fyrstu upplýsingar um sólstorma, geim- geisla og segulsvið sólar komnar. Thatcher góð gegn kölkun London-Rcutcr. ■ Svo virðist sem Margrét Thatc- her forsætisráðherra Breta nái betur til elliærra og kalkaðra öldunga en nokkur annar forsætisráðherra. Samkvæmt könnun á minni og öðrum andlegum hæfileikum elli- hrumra öldunga í tveimur sjúkrahús- um í London 1961-62, 1968-69 og 1983-84, sem birt var í breska lækna- tímaritinu, British Medical Journal, mundu mun fleiri elliærir öldungar eftir Thatcher en öðrum forsætisráð- herrum. í lyrstu könnuninni mundu 15% eftir þáverandi forsætisráðherra. Harold MacMillan, aðcins 12% könnuðúst við Harold Wilson í ann- arri könnuninni cn hvorki mcira né minna en 27%.vissu um Thatcher í seinustu könnuninni. Dr. Ian Deary, scm tók þátt í aö gera kannanirnar segir að svo virðist sem Thatchcr sé elliærum öldungum eftirminnilegri cn aðrir forsætisráð- herrar. „Hún nær til hluta heilans sem aðrir forsætisráðherrar komust ekki til.“ Bókin fær stórkostlegar viðtökur! Bókin var fyrst gefin út í júií 1983. Kiljuútgáfan sem kom tæplega ári seinna hefur slegið öll sölumet. Hátt í tvær milljón- ir eintaka hafa selst af bókinni. Rúmlega ári seinna (nóv. 1985) er bókin ennþá í 5. til 6. sæti á metsölubókalista New York Times. Þá er búið að þýða bók- ina á norsku, sænsku, dönsku og finnsku, og alls er búið að þýða bókina á 13 tungumál. Unnið er að gerð sjónvarps- myndar um efni bókarinnar hjá ABC-sjónvarpsstöðinni og er myndin væntanleg á markað 1986. Ég reyndi að halda huganum opnum á þessu ferðalagi, því ég fann að mér voru birtar, smátt og smátt en ákveðið, víddir í tíma og rúmi, víddir sem fyrir mér höfðu tilheyrt vísindaskáldsögum eða öllu heldur þeim andlega heimi sem dul- spekin lýsir. En þessar víddir birtust mér. Þetta skeði hægt. Þessar víddir birtust með hraða sem hæfði mér, og ég held að allir hafi sinn eigin hraða í þessum efnum. Fólk þroskast og tekur framförum eftir því sem það er tiibúið til. Ég hlýt að hafa verið tilbúin að taka á móti þeim fróðleik sem ég fékk, því þetta var rétti tíminn...“ -Shirley MacLaine Kjötiðnaðarmaður Kaupfélag V-Húnvetninga óskar eftir aö ráða kjötiðnað- armann, sem veita á forstöðu kjötvinnslu kaupfélagsins. Húsnæði fyrir hendi. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist kaupfélagsstjóra eða starfsmannastjóra Sam- bandsins er gefa frekari upplýsingar. Umsóknarfrestur til 5. janúar næst komandi. Kaupfélag Vestur-Húnvetninga Hvammstanga_________ CPC6128 'æknilegar upplýsingar: 128K RAM 48K ROM innbýggt Basic. Z80A örtölva 4 MHZ. CP/M plus stýrikerfi. Dr. Logo forritunarmál. 20, 40, 80 stafir í línu. 27 litir. B40 x 200 teiknipunktar á skjá. • Litaskjár eða grænn skjar. • Innbyggt 3" diskadrif (360 K á disk). • Innbyggður hátalari (sterio með aukahátalara). • Fullkomið lykaborð með sér- stökum númerslyklum. • 12 forritanlegir lyklar. • Innbyggt tengi fyrir prentara og segulband. Afburðatölva Tölvukaupendur fá alltaf meira og meira fyrir peningana sína. í þeirri þróun er AMSTRAD tvímælalaust toppurinn: 128 K tölva, skjár og innbyggð diskettustöö. Frábær hönnun, afl og hraði, skínandi litir, gott hljóð og spennandi möguleikar. CPC-6128 m/grænum skjá Yerð aðeins 23.830 kr. staðgr. CPC-6128 m/litaskjá Verð aðeins 32.980 kr. staðgr. Soluumboð úti á landi: Bókabúð Keflavikur Kaupfólag Hafnarfjaröar Múslk & myndir, Vestmannaeyjum Bókaskemman Akranes! Seria sf Isafirðl KEA-hljómdelld Akureyrl Bókaverslun Þórarlns Húsavlk FJölrltun s.f., Eflllsstöðum Söluumboð i Reykjavik: [Xí\ Bókabúð Tölvudeildir: Laugaveg 118 v/Hlemm, s: 29311, 621122 TOLVULAND H/F ALLT í MASTER: 2 hallir, allir fylgihlutir, 20 teg. af körlum Athugið - Hundruó leikfanga á gömlu verði Sparið þúsundir og kaupið jólagjafirnar tímanlega Póstsendum LEIKFANGAHÚSIÐ Skólavörðustíg 10. S. 14806.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.