NT

Ulloq

NT - 21.12.1985, Qupperneq 15

NT - 21.12.1985, Qupperneq 15
Laugardagur21.desember 1985 15 ■ Fáar plötur hafa vakið eins mikla athygli fyrir ytri búning og plata Skriðjöklanna frá Akureyri, enda fáar hljómsveitir sem láta prenta umslög sin í Plastprenti. Skriðjöklarnir voru upphaflega stofnaðir fyrir hljómsveitakeppnina í Atlavík fyrir þremur árum síðan og þóttu ekkert rosalega góðir, en þeir komust ódýrt inná hátíðar- svæðið og það vartilgangurinn. Hljómsveitarmeðlimir héldu uppteknum hætti, Atlavík gaf þeim reynslu og þeir tóku þátt í sveita- ballaslagnum. Það varð svo úr að þeir unnu sjálfa hljómsveitar- keppnina í Atlavík og nú er platan sem sagt komin út. Strákarnir eru að norðan, yrkis- efnin líka. Það er sungið um Frey- vang, vöggu norðlensku sveita- ballanna og smellur plötunnar er um Steina, sem löngu er orðinn þjóðsagnapersóna á Akureyri. Það var slegið á þráðinn norður og sá sem svaraði var Raggi Sót, söngvari Skriðjöklanna. Hann var fyrst spurður hvort þeir væru ekki Akureyrarhljómsveit og bara mis- skilningur hjá þeim að gera út á landið allt. „Nei, nei. Hvernig dettur þér þessi vitleysa í hug. Platan hefur selst þokkalega og rétt tæplega fjórðungurinn hefur farið hér á Akureyri. Það er rétt að við höfum sungið um Steina, sem Akureyringar kannast við, en lagið er spilað víð- ar en hér. Margir héldu fyrst að við værum að fífla þennan gamla mann, en svo er nú ekki. Þetta er mikill og góður vinur okkar. Ég vann með honum í tvö ár og við höfum verið nágrannar í innbænum ein sjö ár. Við gerðum videó og þar sást vel, að ekki er verið að gera grín að neinum. Það gekk reyndar illa að fá Steina til að koma fram í myndinni en það tókst og hann lagði líf og sál í leikinn og oft var erfitt að fá hann til að hætta." Var það ekki hámarkið að vinna Atlavíkurkeppnina, hættir hljóm- sveitin ekki störfum þegar tak- markinu er náð? „Nei, við höfum verið með kon- serta bæði hér og fyrir sunnan, Reykvíkingar kunna vel að meta okkur. Svo höfum við spilað á skólaböllum hér fyrir norðan. En það háir okkur óneitanlega að hljómsveitarmeðlimirnir búa bæði á Akureyri og í Reykjavík. Það verður því oft lítið um æfing- —Vinsældalistar NT-listinn-12tommur 1. Hjálpum þeim..................................... Ýmsir 2. l’amYourMan........................................Wham 3. SpysLikeus ............................. Paul McCartney 4. We Build This City............................ Starship 5. StairwayToHeaven .................................. Far 6. Say You, Say Me............................Lionel Richie 7. Lay Your Head On Me..................... TompsonTwins 8. Chrounch.................... ................RAH Band 9. Pretty Young Girl.......................... BadBoysBlue 10. AWoman..................................... BadBoyBlue Rás2 1. Hjálpum þeim................................... Ýmsir 2. Tóti tölvukarl .................................Laddi 3. In The Heat Of the Night ..................... Sandra 4. GaggóVest ............. Eiríkur Hauksson/Gunnar Þórðarson 5. Tango .........................................Grafík 6. Can't Walk Away...................Herbert Guömundsson 7. I’am Your Man....................................Wham 8. Into the Burning Moon ....................... Rikshaw 9. Gleöi og friöar jól ...Pálmi Gunnarsson og Siguröur Helgi 10. Allur lurkum laminn ................... Bubbi Morthens Grammið 1. Holidays In Europe ............................. Kukl 2. Once Upon a Time......................... Simple Minds 3. Franken Christ......................... Dead Kennedys 4. CutttheCrapp.................................. Class 5. In Consert ........................Linton Kwesi Johnson 6. Slave to the Rhythm....................... GraceJones 7. Song To Learn and Sing ......... Echo and the Bunnymen 8. RainDogs ................................... TomWaits 9. Love.............................................Cult 10. EasyTiaces.................Loyd Cole And the Commotions Popp „Steini er vinur „okkar“ RaggiSót tekinntaii ar.“ Þið hafið verið orðaðir við skemmtilega sviðsframkomu, eru Skriðjöklarnir frekar tónleikasveit er stúdíó hljómsveit? „Á vissan hátt má segja það. Við erum aldir upp á sveitaböllum og erum ágætlega hannaðir fyrir sveitaballabransann. Platan er frekar hrá og hún átti að vera þannig. Ég er mjög sáttur við hana og tel að hún hefði verið eyðilögð ef við hefum vandað okk- ur meira. Við viljum skemmta fólki og það hefur okkur tekist. Það er ekki okk- ar markmið að vera rosalega góðir hljófæraleikarar. Reyndarerum við með góðan bassaleikara og hljómborðsleikarinn er líka góður, en við hinir erum engir afburða tónlistarmenn". En hvað með framtíðina, stefnið þið í atvinnumennskuna? „Auðvitað væri gaman ef við gætum haft í okkur og á með spila- mennsku yfirsumartímann, en það verður tæþlega yfir veturinn. Nú, svo er aldrei að vita nema við gerum annað vídeó þegar líða fer að vori, svona rétt il að minna á okkur áður en ballvertíðin hefst. Laddi kominn ígull Og Strumparnir líka ■ Jólaplötuflóðið hefur getið af sér fyrstu gullplöturnar og merki- legt nokk, sami maðurinn fær þær báöar. Laddi, sjálfur Strumpa- faðirinn verður gullinu rikari. Platan hans, „Einn voða vit- laus“, hefur selst í meira en 5.000 eintökum og það sama má segja um „Strumparnir bjóða gleðileg jól.“ Ætlunin er að afhenda Ladda gull- plöturnar við hátíðlegt tækifæri á Lækjartorgi klukkan 3.30 í dag. Vinur hans og samstarfsmaður, Eiríkur Fjalár mun vera i verslunar- ferð þennan sama dag. Labbar hann niður Laugaveginn og hyllir Ladda niðrá Lækjartorgi. Gullplata er veitt fyrir 5.000 seld eintök, sem er töluvert meiri sala en ameriskir hljómplötuútgefendur styðjast við, sé miðað við höfða- tölu. Ein íslensk plata hefur þó selst betur en plötur Ladda, en það er „Hjálpum þeim“, sem Hjálpar- stofnun kirkjunnar gefur út. Hún er þó undanskilin reglum um gull- þlötur, þar sem hún flokkast sem 12 tomma en ekki LP plata. Umsjón: Þorsteinn G. Gunnarsson Dýnustærð: Teak 90x200 cm. Beyki 92x191 cm. Verð með dýnu kr. 19.500.- HUSGOGN OG INNRETTINGAR SUÐURLANDSBRAUT18 68 69 „CABINA“ rúmsamstæðurnar eftirsóttu fást nú aftur

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.