Morgunblaðið - 28.12.2003, Side 6

Morgunblaðið - 28.12.2003, Side 6
6 | 28.12.2003 Hvað þarf marga femínista til að skipta um ljósaperu?Svar: Þetta er ekki fyndið. Það hefur gjarnan loðað við femínista að þeir séu húmorslausir. Svo mikið reyndar að þeir hafa stundum fundið sig knúna til að svara slíkum dylgjum en slíkt er náttúrlega frekar snúið. Hvað segir maður eiginlega? Jú, ég er víst fynd- in? Femínistar eru orðnir meðvitaðir um steríótýpuna af húm- orslausa femínistanum og vilja líklega ekki samræmast henni. Þó benda þeir líka á að dylgjur um húmorsleysi eru öflug leið til þöggunar, samanber viðkvæðið: ,,Hvaða, hvaða, hefurðu ekki húmor?“ Þá er spurning hvers vegna femínistar hafa orðið fyrir slík- um aðdróttunum umfram aðra baráttuhópa. Herstöðvaand- stæðingar eru nú ekki beint að reyta af sér brandarana svona að jafnaði, ekki umhverfisverndarsinnar heldur. Samt er ekki tönnlast á því að það hafi nú ekki verið mikill húmor í fólki í Keflavíkurgöngunni eða að fólk mætti nú vera aðeins léttara á því þegar það kyrjar ættjarðarsöngva á Austurvelli. Nei en femínistar, þeir eru húmorslausir. Ég man hvenær ég heyrði fyrst af því að vísindin hefðu sannað að heilar karla og kvenna væru í eðli sínu ólíkir. Það er heill áratugur síðan að vinur minn, innblásinn af lestri bókar um að heilar karla og kvenna væru gjörólíkir, lýsti því fjálglega hvernig þetta fælist allt í tengingunum milli heilahvelanna, þess vegna gætu karlar bara gert eitt í einu en konur margt o.s.frv. Fljótlega urðu slíkar hug- myndir á allra vörum og holskefla bóka þessa efnis komu út og seldust í bílförmum. Þar fór fremst í flokki bókin um karla, konur, Venus og Mars … Auðvitað er þetta skemmtilegt umræðuefni og býður upp á endalausa vinkla á umræður um hvernig karlar eru og hvernig konur eru og svo náttúrlega ekki síst hvernig maður sjálfur er. Kenningar þess efnis að það sé í eðli kvenna að vera safnarar og karla að vera veiðimenn hafa smám saman síast inn og þykja jafnvel sjálfsögð sannindi, enda gjarnan studdar einhvers konar vísindarökum. Og bækur þessa efnis eru enn að skrifast og seljast. Þar fara framarlega höfundarnir Allan og Barbara Pease, en bók þeirra Hvernig stendur á því að karlar hlusta aldrei og konur geta ekki bakkað í stæði? kom út í íslenskri þýðingu í fyrra. Þau hafa skrifað fleiri bækur sama efnis, þar á meðal: Why Men Lie and Women Cry (Hvers vegna karlar ljúga og konur gráta), Why Women Can’t Read Maps and Won’t Stop Talking (Hvers vegna konur kunna ekki að lesa kort og hætta ekki að tala) og Why Men Can Only Do One Thing at a Time and Women Can’t Stop Talking (Hvers vegna karlar geta bara gert eitt í einu og konur hætta ekki að tala). Sem sagt: Karlar eru takmarkaðir þumbar og konur tala út í eitt, það er að segja þegar þær eru ekki grenjandi. Femínistar hafa löngum haft óbeit á eðlishyggju um kynin, það er að segja hugmyndum um að kynin séu í eðli sínu ólík og að þessi munur sé algjörlega óbreytanlegur. Þessi andstaða stafar bæði af því að slíkar eðliskenningar standast ekki vís- indalega og ekki síður vegna þess að svona hugmyndir hafa gjarnan verið notaðar til að skýra og afsaka ójafna stöðu kynjanna. En það er auðvelt að væna femínista um húmors- leysi og grafa þannig undan gagnrýni þeirra á þennan kúltúr sem byggist á eðlishyggju um kynin, enda er hann á köflum bráðfyndinn. Og því sitjum við húmorslausu femínistarnir undir misferskum bröndurum um að ,,við konur tölum nú svo mikið að það er ekki venjulegt“, og bíðum eftir því að hinir fatti að jafnvel bestu brandarar verða á endanum þreyttir. bab@mbl.is Hefurðu ekki húmor? Birna Anna ,,Karlar geta bara gert eitt í einu og konur hætta ekki að tala?“ H elena Sverrisdóttir fæddist 1988 í Reykjavík. Hún bjó fyrst í Breið- holtinu en flutti snemma í Hafn- arfjörðinn. Helena er í 10. bekk í Víði- staðaskóla og spilar körfubolta með meistaraflokki Hauka. Í fyrra var hún yngsti leikmaðurinn sem hafði verið valinn í A-landsliðshóp Íslands í hópíþrótt – að- eins 14 ára gömul. „Ég byrjaði fimm ára að æfa körfubolta, mest fyrir þrýsting frá fjölskyldunni,“ segir hún en systkini hennar, faðir og móðir eru öll tengd íþróttinni, hvert með sínum hætti. „Ég æfi á hverjum degi og spila leik einu sinni í viku,“ segir hún. Haukar eru efstir í annarri deild og ætla sér því mikið á þessu leikári. Helena byrjaði reyndar 12 ára að æfa með meistaraflokki Hauka. Hún leikur ýmsar stöður en er oftast bakvörður. Í fyrstu átta leikjunum skoraði hún um 22 stig að meðaltali í leik. Í ágúst sl. lék Helena með íslenska stúlknalandsliðinu sem sigraði Promotion Cup mótið. Það var í fyrsta sinn sem yngra kvennalandslið Íslands vann mót á vegum alþjóða körfuknattleikssambandsins. Að mótinu loknu þegar valið var lið mótsins voru tveir íslenskir leikmenn, þær Helena Sverrisdóttir og Kristrún Sigurjónsdóttir, valdir í það. Helena segist nú ekki hafa mörg önnur áhugamál enda taki körfuboltinn ærinn tíma. Hún gerir sér vonir um að síðar geti hún komist á íþróttastyrk við bandarískan háskóla – þannig mun karfan koma sér vel í námi. Hún veit þó ekki nákvæmlega hvaða nám hún ætlar að leggja stund á. Helena er 180 sm á hæð og segist vera búin að ná endalegri hæð. Hún er ekki yngst í meistaraflokknum því ein er fædd 1990 og tvær aðrar eru jafnaldrar hennar. Aldursforsetinn er reyndar ekki nema 18 ára gömul stúlka. „Körfubolti kvenna er ung grein og hefur verið að byggjast hratt upp á síðustu árum,“ segir Helena þessu til skýringar. guhe@mbl.is Helena Sverrisdóttir LOFAR GÓÐU L jó sm yn d: G ol li Yngsti leikmaðurinn valinn í A-landslið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.