Morgunblaðið - 28.12.2003, Síða 8
8 | 28.12.2003
Áttu þér uppáhaldssveinka?
Já, Gáttaþefur var mitt uppáhald frá upphafi. Alfreð
Andrésson var umsjónarmaður barnatímans og mín
fyrirmynd sem Gáttaþefur. Röddin sem ég beitti sem
Gáttaþefur var í raun rödd Alfreðs Andréssonar, því lít
ég á sjálfan mig sem arftaka hans.
Er einn sveinn vinsælli en annar hjá börnunum?
Ég veit það ekki, mér fannst Gáttaþefur gera sig mjög
vel, kannski þessi snuðrari hafi höfðað til barnanna.
Stækkað nefið var sívinsælt. Eitt laganna hét einmitt
Þegar Gáttaþefur missti nefið. Ég held að ég hafi
hreinlega náð eyrum krakkanna með nefinu.
Lékstu jólasveininn fyrir þín eigin börn?
Nei. Aldrei heima. Synir mínir hafa stundum brugðið á
leik í jólsveinagervi á ættarmótum fjölskyldunnar.
Hvaðan er Grýluhugtakið komið?
Hún virðist hafa fylgt okkur lengi og virkað á börn
jafnt sem fullorðna eins og sjá má á hugtökum eins og
Rússagrýla.
Hvað gefa jólasveinarnir Grýlu í jólagjöf?
Ef eitthvað er að marka textann minn Ó, Grýla þá
myndu þeir áreiðanlega gefa henni krullujárn, því hár-
ið á henni er reytt og rifið eins og ryðgað víradrasl.
Hvað er í matinn hjá Grýlu á jólunum?
Með járnkarli hún bryður bein og brýtur þau í mél og
hrærir skyr í stórri og sterkri steypuhrærivél.
Ætli það sé ekki beinamulningur og hrært skyr í eft-
irrétt?
Lítil átta ára skotta spurði mig alvörugefin: Hvernig fer
einn maður að því að dreifa þvílíkum fjölda gjafa í skó
jafn margra barna á einni nóttu? Þeir eru hittnir eins og
körfuboltamenn og kasta gjöfunum hreinlega inn um
neshálendinu. Það bjargaði okkur að allir voru af vilja
gerðir til að ýta okkur og hleypa okkur fram fyrir. Þeg-
ar við komum á ballið í Sigtúni við Austurvöll var
skeggið á mér og aðstoðarjólasveini mínum orðið ein
klakabrynja. Allt ballið bráðnaði klakinn og skeggið
seig undan þunganum. Seinna frétti ég af nokkrum 8
og 9 ára börnum, sem farin voru að efast um tilvist
okkar. Þau endurnýjuðu trúna á okkur þarna á ballinu
og sögðu foreldrum sínum frá því að þau hefðu séð
jólasveinana koma ofan af fjöllum með frosið skeggið.
Hvað finnst þér um hreindýraveiðar?
Ég lít á hreindýraveiðar eins og aðrar veiðar. Ég er ekki
andvígur hófsamri og tillitssamri veiði. Veiðieðlið er
grópað í manninn og ég skil menn sem hafa ánægju af
veiðum en ég hef aldrei veitt nokkurn skapaðan hlut.
Einu sinni ætlaði ég að veiða hornsíli í sveitinni með
hárneti húsfreyjunnar og var næstum drukknaður. Það
læknaði mig af allri veiðimennsku fyrir lífstíð.
Hvað er jákvæðast og hvað neikvæðast í starfi jóla-
sveinsins?
Það jákvæðasta var að þetta var sameiginleg skemmtun
með krökkunum. Það neikvæðasta var helst hvað starf-
ið var oft krefjandi og gat gengið nærri manni.
Var þá ekki oft lítið eftir af þér fyrir þín eigin börn
þegar jólin hófust?
Jú, það er sennilega það nei-
kvæðasta að mín eigin börn
sátu á hakanum.
Er jólakötturinn fress eða
læða?
Sennilega fress. Héti hann ekki jólakisa ef um læðu
væri að ræða?
Er ekki kominn tími á endurvakningu jólasveins allra
tíma?
Ég er með ákveðna hugmynd um endurvakningu hans,
sem gæti komið til framkvæmda ef ég hef nógan tíma.
Það verður þó á allt öðrum nótum en áður.
Hver væri jólagjöf Gáttaþefs til Íslands?
Jólasveinaland sem væri í augum alheimsins heimkynni
jólasveinsins og stæðist allar þær kröfur sem heims-
byggðin gerir til hins sanna jólasveinalands.
Ef hinn rauði kókakóla-jólasveinn myndi hitta hinn al-
íslenska jólasvein, hvað myndu þeir segja hvor við
annan?
Hinn íslenski myndi segja: Mikið vorkenni ég þér að
vera svona illa klæddur við þvílíkar aðstæður. Hinn
ameríski myndi svara: Blessaður vertu, ég þarf ekkert á
hlýrri klæðnaði að halda, ég er aðallega í stórmörk-
uðunum!
Hvað fá jólasveinar í jólagjöf?
Þeir fá nokkur þúsund hlý handtök íslenskra barna.
rebekka@centrumis
© Rebekka Rán Samper
Beinmulningur
og hrært skyr
í jólamatinn
Kannski þessi
snuðrari hafi höfð-
að til barnanna
Jóhannes Páll II páfi lætur 83 ára aldur sinn og slæma heilsu ekki aftra því
að koma fram og boða frið. Það voru margir sem áttu von á því að páfinn
fengi friðarverðlaun Nóbels í ár. Nóbelsnefndin var gagnrýnd og talið að
páfi ætti Nóbelsverðlaunin skilin fyrir baráttu sína fyrir friði og bættum
heimi. Verðlaunin féllu í hlut Shirin Ebadi fyrir baráttu hennar fyrir lýð-
ræði og mannréttindum í Íran. Páfinn hefur verið óþreytandi að boða frið
um allan heim allt frá því hann tók við embætti en á árinu var því fagnað
að 25 ár voru liðin frá því hann tók við páfadómi og hafa einungis þrír
menn setið lengur á páfastóli.
ÁRIÐ SEM ER AÐ LÍÐA
PÁFINN Í RÓM
R
eu
te
rs
Púlsinn Ómar Ragnarsson | Rebekka Rán Samper
gluggana. Þeir leika sér að því að kasta gjöfum inn í
heila blokk.
Heldurðu að íslenski jólasveinninn lifi auglýsinga-
væðingu kókakóla-jólasveinsins af?
Já, hann fer létt með það. Þetta er þvílíkur ævintýra-
heimur þessara 13 sveina ásamt öllu hinu hyskinu sem
fylgir. Nú er Davíð Þór Jónsson að bæta við lífi inni í
þennan heim með jólasnótirnar. Þær eru 13 líka og eru
nágrannar í næsta helli. Foreldrar jólasnótanna heita
Grýlir og Leppalúða.
Þú lékst oft íslenskan jólasvein, Gáttaþef, í amerísk-
um búningi. Af hverju notaðirðu ekki íslensku jóla-
sveinafötin?
Það kom seinna. Því miður var það ekki til þá. Það var
bara ekkert um það að íslenski jólasveinninn væri í ís-
lenskum búningi á þessum tíma. Þegar ég hætti voru
íslensku jólasveinarnir rétt að birtast í sínum uppruna-
legu fötum á Þjóðminjasafninu. Það var ekki aftur snú-
ið fyrir mig. Gáttaþefur kom árlega í kókakóla-föt-
unum og ég varð bara að halda mig við það. Það hefði
ekki hæft að hann skipti skyndilega um alklæðnað.
Fá jólasveinar í skóinn?
Nei, í stígvélin.
Hver gefur þeim í stígvélin?
Allt hyski þeirra sem ég syng um í Ó, Grýla.
Hirðir þar um hyski sitt með hreinum myndarbrag.
Af alls kyns mat og öðru líku eldar hún þar fjöll,
ofaní þrettán jólasveina og áttatíu tröll.
Það eru sem sagt 80 tröll sem gefa þeim í stígvélin.
Hefurðu einhvern tíma orðið veðurtepptur sem jóla-
sveinn?
Næstum því. Ég lenti í mjög mikilli ófærð á Arnar-