Morgunblaðið - 28.12.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.12.2003, Blaðsíða 28
28 | 28.12.2003 Áramótin eru ekki síður tími fjölskyldu- og vinahefða en jólin og hjá mörgumhefur nýársballið 1. janúar verið fastur liður árum saman. Sextíu og áttakynslóðin hóf sína hefð í Leikhúskjallaranum en var á endanum orðin helst til fjölmenn til þess að rúmast þar og flutti sig þá yfir í Súlnasal Hótels Sögu. Sextíu og átta kynslóðin, kynslóðin í mussunum, bættu flíkunum og kínaskón- um (ef hún var þá ekki bara berfætt) fann sinn gamla góða takt við undirleik hljómsveitarinnar Pops sem spilaði gömlu, góðu Stones, Eagles og Joe Cocker lög- in sem endurvöktu hugarástand og tilfinningar þess tíma þegar enginn átti sér ills von; lífið var bara bjartar vonir, óbeislaðar væntingar og tilhlökkun. Og víst er það einhvers virði að ná í skottið á því ástandi eina nótt ár hvert. En í hverju mætir svo mussukynslóðin á sitt árlega ball? Mætir hún í Woodstock-tónleikagallanum; mussum, síðum pilsum úr indverskri bómull og berfætt, með hárið villt og sítt? Ónei, nú er öldin önnur, fágunin hefur fyrir löngu haldið innreið sína og ekki í takt að vera bestur í því að vera frjálslegur. Áramótakjóllinn er orðinn „flíkin“ sem vandlegast er valin ár hvert. Sextíu og átta kynslóðin hefur skipt um gír. Strákarnir eru komnir í jakkaföt, jafnvel smóking og stelpurnar í glitrandi og glæsilega síðkjóla með öllu tilheyrandi. Áramótahópur Eddu Sverrisdóttur er þar engin undantekning. Hópurinn hefur komið saman síðustu tólf árin, borðað saman og dansað fram undir morgun. En þótt aðeins sé um að ræða eitt kvöld á ári, er byrjað að pæla í áramótakjólnum snemma í desember – stundum fyrr. Auk Eddu og eiginmanns hennar Gottskálks Friðgeirssonar, eru í hópnum Elín Sigfúsdóttir og Gissur Gottskálksson, Valborg Snævarr og Eiríkur Thorsteinsson, María Ólafsdóttir og Sveinn Jónsson, Svava Magnúsdóttir og Ingvar Ágústsson. Tilurð hópsins byggist á því að stelpurnar í hópnum hafa lengi verið vinkonur – sumar frá því á hippaárunum, jafnvel lengur. Þær Edda, Elín, Valborg, María og Svava segja 1. janúar alltaf vera með svipuðu sniði hjá hópnum. „Við höfum reyndar aldrei farið í matinn á undan ballinu,“ segja þær, „heldur borðum við saman heima og skiptumst á að elda, förum hringinn.“ Hvers vegna sparið þið ykkur ekki þessa vinnu og borðið bara á ballinu? „Þessi vinahópur nær því yfirleitt ekki að hittast allur nema tvisvar til þrisvar á ári svo okkur finnst þetta góð leið til þess að fá allar nýjustu fréttir hvert af öðru og hrista hópinn saman áður en farið er á ballið. Þegar þangað er komið þekkjum við svo marga að við hefðum aldrei næði fyrir slíka „forvinnu“ þar. Fáið þið ykkur nýjan kjól fyrir hver einustu áramót? „Nei, við erum nú ekki algalnar. Það kemur fyrir að við notum kjóla sem við eig- um en í annarri útfærslu, með öðruvísi skartgripum, sjali eða jakka en áður. En þegar við kaupum nýjan kjól, þá er það vegna þess að við vitum að við munum nota hann aftur, til dæmis á næstu árshátíðum, jafnvel á áramótaballinu næst eða þarnæst. Þetta er ekki síður spurning um að fá sér flík sem er nokkuð klassísk og maður sér fram á að geta notað aftur og aftur við ýmis tækifæri um ókomin ár.“ Hvers vegna byrjið þið þá að pæla í áramótakjólum snemma í desember? „Það er svo ansi góð leið til að byrja að hlakka til; hlakka til að hittast öll, hlakka til að borða saman, hlakka til að heyra tónlistina okkar og hlakka til að dansa.“ ÞÆR ERU AÐ FARA Á BALL Sextíu og átta kynslóðin hefur skipt um gír og mætir á nýársballið 1. janúar í sínu allra fínasta pússi STRAUMAR 29 TÍSKA Gull fyrir gamlárskvöld 30 MATUR OG VÍN Veitingahús 32 MATUR OG VÍN Bestu vín ársins 34 HOLLUSTA Krydd L jó sm yn d: G ol li

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.