Morgunblaðið - 28.12.2003, Side 32
32 | 28.12.2003
Það skortir ekki úrvalið af vínum hér á landi lengur og það er afsem áður var þegar framboðið af tegundum var fasti sem hægtvar að ganga að nokkurn veginn vísum ár eftir ár. Nú streyma
nýjar tegundir inn á markaðinn og aðrar detta út á móti, allt eftir því
hvað fellur neytendum í geð. Stundum finnst manni hins vegar sem
meira mætti leggja upp úr gæðum og fjölbreytni. Leit á vínbúð-
arvefnum gróf þannig upp 176 Chardonnay-vín. Hversu mikill mun-
ur skyldi nú vera á þeim? Því miður er mín reynsla sú að mörg
þessara vína eru keimlík og persónuleikasnauð. Þá reyndust vín úr
Cabernet Sauvignon vera 208 og því miður á það sama við þar.
Merlot-vínin náðu hins vegar einungis 121 tegund.
En þetta eru ekki allt einsleit vín og inni á milli leynast sannkall-
aðir gullmolar. Hér eru þau tíu vín sem mér eru eftirminnilegust
meðal nýjunganna á þessu ári. Ekki ber að líta á þetta sem lista
yfir tíu bestu vínin í vínbúðunum heldur þau tíu vín sem standa
upp úr á árinu.
Fonterutoli Castello di Fonterutoli er líklega það vín sem
stendur upp úr hjá mér. Fyrst kom 1999-árgangurinn og nú
2000, sem er síst síðri.
Hér hefur 10% Cabernet Sauvignon verið blandað sam-
an við Sangiovese en þetta er besta Chianti Classico-vín
Mazei-fjölskyldunnar. Fantavín, dökkur og þykkur ávaxta-
hjúpur, feitt súkkulaði, plómusulta, mentól og púðursyk-
ur í nefi. Vín sem hægt er að njóta eins og sér, þetta er
þvílíkt sælgæti, eða þá með vönduðum, bragðmiklum
og góðum mat. Kraftmikið en jafnframt fínlegt og ar-
istókratískt. Hins vegar ungt og krefst tvímælalaust
umhellingar ef það fær ekki nokkurra ára geymslu.
2.950 kr.
Chateau St. Jean Cinq Cepages 1997 er orðið að
„költvíni“ í Bandaríkjunum eftir að 1996-árgang-
urinn var valinn vín ársins af bandaríska tímarit-
inu Wine Spectator. Ekki spillir fyrir að 1997 er
enn betri árgangur og einhver sá besti í langan
tíma í Kaliforníu. Nafnið þýðir „þrúgurnar
fimm“ og vísar til þeirra fimm þrúgnategunda er
mynda uppistöðu sígildra Bordeaux-vína. Þurr
ilmur, pipraður, þarna er reykur og eik og sól-
ber. Í munni tannískt, stíft með glæsilegri
uppbyggingu. Dýptin er gífurleg í bragðinu,
apótekaralakkrís og krydd. Hefur kraft og
fínleika í senn. Hér dugir ekkert annað en
eldrauð nautasteik af bestu vöðvunum. Kali-
fornía eins og hún gerist best og kostar líka
sitt líkt og góð vín þaðan gera yfirleitt.
5.990 krónur.
Nautasteik ætti einnig vel við vínið
Roda II., Bodegas Roda er einn þeirra
framleiðenda er hafa verið í fararbroddi
í Rioja-nýbylgjunni. Sígildu Rioja-vínin
eru ljós á lit og bera þess sterklega
merki að hafa legið lengi á eikarám-
um, oft gömlum amerískum tunnum.
Nútíma Rioja-vín eru dökk og áhersl-
an á þyngd í ávexti og mikla nýja
franska eik.
Roda II er líklega það vín fyr-
irtækisins sem er hvað aðgengilegast
fyrir budduna en þarna er samt sem
áður engin smásmíði á ferðinni.
Vínið sýnir vel hversu aflmikil vín
úr Tempranillo (82% blöndunnar)
geta verið. Vínið hefur mjög dökkan lit og ungt yfirbragð. Svartur sól-
berjaávöxtur í bland við mikla eik sem vefst saman við ávöxtinn, það
örlar á kryddi, jafnvel anís. Einnig lakkrís og votti af leðri. Þarf tví-
mælalaust umhellingu og það með nokkrum fyrirvara. 2.490 krónur.
Frá Chile kemur Casa Lapostolle Cuvée Alexandre Merlot 2000,
dúndurvín úr Colchagua-dalnum. Ávöxtur dökkur og brenndur,
skarpkryddaður, í munni heitur og ágengur, minnir mest á apótek-
aralakkrís. Þurrt og áfengt (14%). Afskaplega öflugt vín, titrandi af
krafti. 1.990 krónur.
Annað Chile-vín, sem heillar vegna þess hve ólíkt það er hin-
um hefðbundnu vínum landsins, er Miguel Torres Cordillera
2000, blanda úr þremur þrúgum, Syrah, Merlot og Carinena
(Carignan). Vínið er hart, ungt, mjög tannískt og yfirbragðið evr-
ópskt, minnir helst á betri vín frá Miðjarðarhafssvæðum Frakk-
lands. Þurrkað og þurrt, rúsínur, vanillusykur, dökkt súkkulaði.
Nokkuð lokað og stíft, mikill bolti. Þarf einhver ár í geymslu,
annars umhellingu. 1.990 krónur.
Ástralinn Peter Lehmann býr til mörg frábær vín. Vín-
ið Clancy’s 2000 er vín sem heillar mann upp úr skónum
og vel það.
Hér eru það Shiraz, Cabernet Sauvignon, Merlot og
Cabernet Franc sem leika sér saman. Ávöxturinn þéttur
og þroskaður, sólber og bláber í bland við eik og súkk-
ulaði. Í munni mjúkt sem flauel, aðgengilegt en allstórt.
Kostar 1.760 krónur.
Ítalska fjölskyldan Bava hefur framleitt vín í Pied-
mont um langt skeið og fjögur vín frá henni komu í
sölu seinni hluta ársins, öll mjög góð. Toppurinn er
Barbera Stradivario. Ungt og þurrt í nefi sem munni.
Ristuð angan, kaffi og viður, ávöxturinn svartar sult-
aðar plómur. Djúpt í alla staði og flauelsmjúkt. Mæli
með umhellingu. 3.690 krónur.
Firriato Casa Vinicola Firriato Santagostino Bagl-
io Soria 2002 er frábært sikileyskt hvítvín unnið úr
þrúgunum Cataratto (70%) og Chardonnay.
Ferskur titrandi ilmur, sítrus, kíví og kantalúpu-
melónur í nefi. Í munni hefur vínið gífurlega
dýpt í bragði í bland við yndislegan ferskleika.
Þroskann úr sól Sikileyjar en jafnframt fínleika
og elegans vína sem einungis kemur með frá-
bærri víngerð. Yndislegt í alla staði. 1.790
krónur.
Annað frábært ítalskt hvítvín er Umani
Ronchi Casal di Serra Verdicchio di Jesi 2001.
Magnað í nefi jafnt sem munni, liturinn
gullinn og aðlaðandi. Í nefi fíkjur og mel-
ónur, í munni eik og kryddaður hitabelt-
isávöxtur. Vínið er stórt og hrífandi. Þetta
er hvítvín sem hrífur mann með sér, djúpt
og seiðandi. Kostar 1.490 krónur.
Og loks franskt hvítvín í hæsta gæða-
flokki sem sýnir að enginn stenst
Frökkum snúning þegar komið er upp
í dýrustu flokkana. Francois d’Allaines
Saint-Aubin 1er Cru en Remilly 1999
er yndislegt hvítt Búrgundarvín. Mikil
dýpt og þroski í ávextinum og stein-
efnakennt í nefi. Í munni þægilegur
hnetukeimur, örlítið smjör og mikil
lengd. Skólabókarbúrgundari. 3.990
krónur.
sts@mbl.is
BESTU VÍN ÁRSINS
MATUR OG VÍN | STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON
Þetta eru ekki allt einsleit vín og inni á milli leynast sannkallaðir gullmolar