Sunnudagsblaðið - 03.03.1957, Síða 2
ISO
SUNNUDAGSBLAÐIÐ
áleiðis. Þá tólcu sig 5 frá, og kom-
ust við veikan mátt ofan að Guil-
bringum tii Jóljailnesar Jónsson-
ar Lúnd. Var þá enginn þeirra svo
fær, að geta staðið upp hjálpar-
laust, þegar þeir duttu. Jóhannes
tók þeim, sem föng voru á. Þegar
hann frétti hvað um var, hljóp
hann þegar, er hann hafði hjálpað
þessum 5 úr fötunum, móti þeim
3, sem eftir voru: Pétri, Einari og
Gísla á Snorrastöðum. Gekk hann
þá í braut þessara 5 inn á Geld-
ingatjarnarhæðir, og tafðist hon-
um að finna mennina bæði sökum
kafalds, og þess, að þeir voru komn
ir í aðra átt en hann vænti, eftir
brautinni. Loks kom liann auga á
þá niður með Geldingatjarnarlæk.
Stefndu þeir þá suður beint um
austurhalann á Grímsmannsfelli.
— Voru þeir þá mjög af sér komn-
ir, er Jóhannes kom til þeirra, og
varð hann að ganga undir Pétri
lieim til sín. Af þeim 8, sem til
Jóhannesar komust var Pétur
lakast á sig kominn, liann var
rænulaus þegar í bæinn kom, og
þekkti þá ekki lagsmenn sína./
Hjálpaði Jóhannes nú þessum úr
íötunum, og setti þá niður í vatn
og snjó að þörfum, og veitti þeim
allan beina, sem hann gat. Að því
búnu fór hann þegar ofan til bæja
að fá menn og hesta, sem þurfti.
Um eða undir hálfbirtu á sunnu
dagsmorguninn Jögðu mennirnir
af stað þaðan sem þeir lágu um
nóttina. KI. nálega 6 komust þeir
ö til Jóhannesar, en kl. hérum bil
10 hinir 3, sem hann sótti, að því
er hann segir sjálfur, en um há-
degið kom hann ofan að Mosfelli.
Allan þennan tíma, sem menn-
irnir voru á heiðinni, frá Þrívörð-
um, var hörku kafalsbilur með
brunafrosti og ofsalegum vindi. Á
laugardaginn sá lengi fram eftir
öðru hverju til sólar, og til dags
sást á sunnudagsmorguninn, þegar
dagur var nokkuð hátt á loft kom-
inn, en batnaði það, að ratljóst
varð á heiðinni fram úr dagmál-
um. Siðan batnaoi veðrið alltaf, og
gjörði gott veður, ná?rri kafalds-
laust og lygnt, fram úr hádeginu.
Undir miðmunda á sunnudag
voru 8 manns neðan úr Mosfells-
dalnum komnir með Jóhannesi
upp í Gullbringur með 7 hesta, og
þurr klæði til að sækja mennina,
er þar voru. Voru þá þegar fluttir
þaðan 6. Sveinn og Gísli voru lang
minnst kaldir; Sveinn varla neitt,
Gísli helzt á kinn og eyra. Bjarni
og Guðmundur þóttu ekki flutn-
ingsfærir og voru kyrrir um nótt-
ina á Gullbringu. Á mánudaginn
voru þeir fluttir til byggða.“
Séra Magnús Grímsson skýrir
því næst frá því í niðurlagi skýrslu
sinnar að 3 Mosfellsdalsmenn hafi
þegar á sunnudaginn verið sendir
með duglega hesta frá Gullbring-
um til að finna hina látnu og far-
angurinn, að þeir hafi brátt ,,fund-
ið lík Guðmundar frá Múla
skammt frá Smalaskála hinum
eystri“, þar næst hafi þeir fundið
ísak nokkru norðar „með mjög
Jitlu lífsmarki; fluttu þeir hann
slrax að Stardal, því þangað var
skemmst, en hann dó á leiðinni og
varð ekki lífgaður"; því næst
sneru þeir 3 byggðarmanna aftur
upp á heiðina og fundu þá „far-
angurinn og hina fjóra mennina
sunnan til við Leiruvogsvatn í
Lómatjarnarlæk. Höfðu þeir lagzt
rétt í lækinn“ Jón frá Ketilsvöll-
um var þá enn með lífsmarki, og
„fluttu þeir hann að Stardal, en
hann dó á leiðinni og var ekki lífg-
aður.“
— Séra M.G. skýrir loks frá
hversu allar tilraunir hafi verið
við hafðar eftir réttum lækna regl-
um til að meðhöndla líJján og reyna
að kveikja aftur líf með með þeim
— og frá greftrun þeirra.
Ilin svokölluðu miklu tæki-
færi, eru venjulega árangur mik-
ils starfs.
Villð þér ...
að amerískir seglbátar liafa undan
íarið verið útbúnir gegnsæuni
plastseglum; þetta hefur að
vísu einungis verið gert í til-
raunaskyni fram að þessu, en
búizt er við að ekki líði á löngu
þar til farið verður að fram-
leiða slik plastsegl til sölu.
að á árinu sem leið voru opnuð
850 ný kvikmyndahús i Japan,
en þar fer áhugi fólks fyrú’
kvikmyndum sífellt vaxandi.
að tæplega 200 sjónvarpstæki eru
nú í notkun í Noregi.
að Skandinaviska flugfélágið SAS
áætlar 4 tíma flug milli Ósló
og New York árið 1975, er það
hefur tekið í notkun hinaf
þrýstiloftsknúnu farþegavélai'
DC-10.
að árið 1810 var fyrsta hraðpress-
an fyrir bókaprentun tekin 1
notkun.
að kanínur eru hreinasta land-
plága í Ástralíu; áætlað er að
þar séu nú um 2 milljarðú'
kanína.
að hraðskreiöasta farþegaskip ver
aldarinnar er 82 000 smálestú''
Það er „United States“.
að Studebaker-Paekard bílaverk-
smiðjurnar hafa ákveðið að
hætta framleiðslu á liinun>
dýru Packardbílum, en í stað
þess hefja framleiðslu ódýraO
bifreiða.
að íbúar Óslóborgar eru nú laldir
vera um 454 000,
að áætlunarflugvélar í Bandaríkj-
unum höfðu flutt árið sem leiö
300 milljónir farþega.
að verzlunai'skipafloti veraldar-
innar var árið sem leið 105 200
000 brúttolestir.. Noregur a
þriðja stærsta skipastólinn
einstökum löndum, eöa 8 035
000 lestir, og kemur næst á eft-
ir Bandaríkjunum og Bret-
landi.