Sunnudagsblaðið - 03.03.1957, Síða 16
144
SUNNUDAGSBLAÐIÐ
STEFNÍR STJÖRNUNNI
Klæðskeri nokkur í Na-
poli, Lelio Galateri, hefur
stefnt ítölsku kvikmynda-
stjörnunni, Sophia Loren,
fyrir það, að hafa ekki
greitt honum fatnað, sem
hann saumaði fvrir hana
árið 1953. „Þáer geta vorið
skuldseigar þessar stjörn-
ur segir hann.
—o—
KONUR SKÁRUST í
LEIKINN.
í Madrid fór í sumar
sem leið fram knatt-
spyrnuleikur milli giftra
og ógiftra karlmanna.
Þcir ógiftu höfðu yfir-
höndina og höfðu skorað
eitt mark gegn engu, þeg-
ar þeir fengu vítaspyrnu
á þá giftu. En vítaspyrn-
an varð aklrei fram-
kvæmd, því áður en því
varð komið í verk, flykkt-
ust eiginkonurnar út á
völlinn og gerðu aðsúg að
dómaranum og þeim ó-
giftu.
FYRSTA GTTFUSKIPIÐ.
Fyrsta gufuskipið var
byggt í Skotlandi árið
1S02 af William Syming-
ton, og var það nefnt
„Charlotte Dundas“. Það
átti að sigla um Forth-
skurðinn, en þar eð stjórn
skurðarins áleit að svo
mikil hreyfing og öldu-
gangur myndi koma á
vatnið í skurðinum að það
myndi orsaka spjöli við
bakka skurðarins, varð að
leggja skipinu.
' —o—
KANÍNIJR í LJÓNA-
BÚRI MITSSOLINIS.
í nánd yið.Forli, ekki
langt frá fæðingarbæ
Mussolinis sáuga, er göm-
ur hrörleg höll, sem nú er
til sölu fyrir lágt verð.
Fáum er kunnugt um, að
það var í þessari höll,
sem Mossolini hélt sig,
þegar hann þráði hvíld og
næði frá hinum erilsömu
dögum 1 Róm. íbúar Forlí
höfðu nefnilega eitt sinn
gefið honum þessa gömlu
höll, og var ekkju Mosso-
linis, Rachel Mussolini,
sem nú er orðin öldruð
kona, leyft að halda þess-
ari eign eftir fall Musso-
linis, þó að flestar eignir
hans rynnu þá annars til
ríkisins. — Höllin er nú
rúin flestum verðmætum
og skrauti. Þar eru aðeins
eftir tvö ljónabúr, sem
voru bar í tíð Mussolinis.
— „Ég hefi nú kanínur í
ljónabúrunum", segir frú
Mussolini, og hún heldur
höllinni fram við líklega
kaupendur með því að
minna þá á hvert stór-
menni hafi búið þar fyrr-
um. En ennþá hefur henni
ekki heppnazt að selja,
enda er það altalað í Forlí
að það sé reimt bak við'
hina dökku múra, og það
var einmitt vegna þess að
bærinn gaf Mussolini höll
ina á sínum tíma!
45 ÁRA MET.
Sá sem hefur getað hald
ið lengst niðri í sér andan
um, er franskur maður
nokkur, sem árið 1912
vann það afrek að halda
sér í kafi í vatni 6 mínút-
ur og 29 sekúndur. Þessu
45 ára meti hefur engum
tekizt að hnekkja ennþá.
—o—
KAPPDRYKKJA.
í Murcia á Spáni stað-
hæfði einn bargestur að
hann gæti drukkið eins
mikið koníak yfir daginn
og mesta kaffikerling
gæti látiö niður í sig af
óaffi. Kona ein, sem þótti
kaffisopinn góður, gaf sig
þá fram og kvaðst reiðu-
búin til kappdrykkju. Um
lokunartíma hafði hún
drukkið 78 kaffibola, en
koníaksberserkurinn var
með 38. gasið og hafði
augsýnilega tapað veðmál
inu. Kaffikonan var flutt
beint á sjúkrarús, en sá
koníaksdrukkni í „kjali-
arann“.
—o—
ÁRTALID.
Á almanakinu hjá okk-
ur stendur ártalið 1957,
,en þannig er því ekki vai’-
5ð allstaðar í heiminum-
í hinum arabísku lönd-
unum var um síðustu ára-
mót boðið velkomið árið
1377; í Egyptalandi og
Etopiu fögnuðu menn ár-
inu 1674 en á almanaki
Gyðinga stendur ártal'ð
5618.
SJÁLFSÆVISAGA.
Hinn fræga ameríska
negrasöngkona, Mariaii
Anderson hefur skrifað
sjálfsævisögu, „My Lord.
What a Morning“. Bókia
er komin út hjá The Vik-
ing Press í New York, og
telja gagnrýnendur hana
mjög athyglisverða.
SUNNUDAGSBLAÐIÐ
ÚTGEFANDI: Sunnudagsblaðið h.f.
RITSTJÓRI: Ingólfur Kristjánsson,
Stórholti 17. Sfmi 6151. Box 1127.
AFGREIÐSLA: Ilverfisgötu 8—10. Sími 4905.
Lausasöluverð kr. a.oo. Ársfjórðungsgjakl kr. 60.
Alþýðuprentsmiðjan.