Sunnudagsblaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 4
708
regntré. Blöð þess draga til. sín
raka og loka sér á nóttunni Á
morgnana opnast þau skvndilega
og bellast þá vatnsgusur vfir þá,
er af tilviljun eiga leið hjá.
í miðbænum eni verzlanirnar,
þar á meðal þúsundir gimsteina-
verzlana. Stjórarúbínar og stjóra-
safírar eru mest eftirsóttir af ferða
mönnum og sala þeirra gífurleg.
Ég fór í könnunarferð um iandið
ásamt séríróðum embættismanni
ríkisstjórnarinnar í eðalsteina-
framleiðslu. Við ókum fram hjá
rísökrum, páimalundum oe silfur-
tærum vatnsföllum, og alltaf gat
hann verið að segja mér frá eðal-
steinum. Hvort ég vissi, að stærsti
stjörnusafír í heimi. sem fiármála-
maðurinn bandaríski. J. P. Morg-
an, keypti fvrir offjár, væri upn-
runninn frá Ceylon? Hvort ég
vissi. að safírar og rúbínar væru
í rauninni sami steinninn, í mis-
munandi litum? Hvort ég vissi, að
á Ceylon finnast allar tegundir
eðalsteina að smarögðum og de-
möntum undanskyldum?
í nágrenni við Ratnapura, sem
þýðir „borg eðalsteinanna11, sá ég
verkamenn nokkra að vinnu sinni
í leit að eðalsteinum. Þeir grófu
grvfjur í votan, leirborinn malar-
jarðveg, fylltu léttar bvttur og
skoluðu leir og mold frá. Aðferðin
er mjög svipuð og við gullþvott.
Te er svo að segja hjartablóð
Ceylons. Þeir kalla það maha.hadde
(hinn mikla iðnað). Útflutningur-
inn nemur um það bil 160 þúsund
tonnum á ári, þ.e. meira en þriðj-
urigurinn af öllú bví te, sem kem-
ur á heimsmarkaðinn. Aðeins Ind-
land framleiðir meira te.
Cevlon-teið er svart, op bezt það
sem ræktað er í 1500—1800 metra
hæð vfir siávarmáli. Ég kom á 490
hoktara plantekru, þar sem vinna
1600 manns. Terunnarnir eru hálf
þriðja milljón, og yfir hverjum
þeirra er vakað af nærfærni inn-
byggja. Yiltur er erunninn allt
SUNNODAGSBLAÐIÐ
að níu metra hár, en ræktaður er
hann aðeins einn meter og stöðugt
skorið ofan af honum. Tamilkon-
urnar lesa tesprotana af runnun-
um ca. 10 hvern dag. Það þarf ca.
6600 sprota til þess að fá í eitt kíló.
Það líða aðeins 48 tímar frá því
teið er lesið af runnunum og þar
til það er fullverkað. Blöðin eru
þurrkuð í sól vaíin saman og þurrk
uð síðan í 93 stiga heitum ofni í
20 mínútur. Þá er það orðin full-
komin söluvara og getur geymzt
árum saman viö rétt skilyrði.
Dag nokkurn spurði ég kunn-
ingja minn um nafnið á sérkenni-
legu, keilumynduðu fjalli, sem
sýnilegt er nær hvaðanæva að frá
öllum suðurhluta landsins. Hann
horfði á mig undrandi og i'ullur
meðaumkunar. Vitanlega Adams-
tindur.
Samkvæmt arfsögn Múhameðs-
trúarmanna máttu Adam og Eva
velja sér hvern þann stað á jörð-
inni, sem þau vildu, þegar þau
voru rekin út úr Paradís — og
þau völdu Ceylon. Mér fáfróðum
var skýrt frá því, að Adamstindur
væri heilagasti staður á jörðinni
að áliti meira en milljarð manns,
af því að efst á tindinum finnst í
klöpp nokkurri mótað l'ótspor eftir
mann!
Hundruð milljóna Múhameðs-
trúarmanna eru sannfærðir um
að þetta sé spor eftir Adam. Um
það bil 400 milljón Búddhatrúar-
manna trúa því jafn statt og stöð-
ugt að það sé eftir Buddha og frá
því er hann í þriðja og síðasta sinn
kom til Ceylon. Og samkvæmt trú
hindúanna er það eftir guð þeirra
Siva. Grísk-kaþólskir telja það eft-
ir postulann Tómas. Samtals eru
áhangendur þessara trúarbragða
nær því helmingur mannkvns, og
ég hafði sem sagt aldrei heyrt á
fjall þetta minnst. Hvað um þig
lesandi góður?
Það liggja margir stígir upp á
fjallstindinn. Sá hættulegasti
þeirra, — og þar með sá, sem píla-
grímarnir helzt velja — liggur upp
eftir snarbröttu klettariði, og þar
er aðeins hægt að komast upp með
því að lesa síg upp eftir járnkeðju
mikilli. Sagan segir, að hana hafi
lagt Alexander mikli. Það fær þó
ekki staðizt, af þeirri einföldu á-
stæðu, að hann kom þangað aldrei.
Fjölfarnasti stígurinn er lagður
hundruðum úthöggvinna stein-
þrepa. Heppilegasti tíminn til þess
að ganga á fjallið er nóttin, þegar
tungl er fullt. Sé lagt af stað um
klukkan hálf tvö, er maður kom-
inn upp um sólarupprás, og útsýn-
ið er dásamlegt.
Efst á tindinum er koparklukka,
og pílagrímarnir mega hringja
henni jafnoft og þeir hal'a klifið
tindinn. Einstaka hringir 25 sinn-
um. Búddhaprestar í skrautlegum
búningum veita pílagrímunum
blessun. Staða æðstaprestsins á
fjallinu er æðsta tignarstaða
Búddhatrúarmanna.
Herra Amarasinghe (það þýðir
„hið ódauðlega ljón“) bauð mér í
ferðalag til Kandy, sem er einn
fegursti og frægasti staður á meg-
inlandi Ceylon. Vegirnir, sem við
ókum eftir, voru alþaktar breiðum
af blómum, sem höfðu fallið af
trjánum, sem breiddu lim sitt yfir
vegina. Fílar siluðust til vinnu
sinnar. við hægðum ferðina til þess
að láta eðlu nokkra, er einna helzt
líktist dreka og var heldur ófögur
á að líta, komast vfir veginn. Þessi
eðlutegund er aðeins hættuleg
slöngum og því friðuð. Við námum
staðar við Buddhahof nokkurt í
gili einu miklu. Jafnskjótt flykkt-
ist um okkur flokkur apa; hvort
það var fyrir forvitnis sakir eða
að þá langaði í hnetur, vissum við
ekki, en hnetur fengu þeir.
Loks komumst við til Kandy.
Þar bjuggu síðustu konungarnir,
sem ríktu á Ceylon. Kvennabúr
þeirra var á ey, gerðri af manna-