Morgunblaðið - 14.07.2004, Side 4

Morgunblaðið - 14.07.2004, Side 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ JÓN Sveinsson og Kristinn Hall- grímsson, sem sæti áttu í starfs- hópi ríkisstjórnarinnar um undir- búning þjóðaratkvæðagreiðslunnar, voru síðustu gestir sem boðaðir höfðu verið á fund allsherjarnefnd- ar í gær. Fyrr um daginn mættu Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttar- lögmaður, Herdís Þorgeirsdóttir þjóðréttarfræðingur og Jakob R. Möller hæstaréttarlögmaður. Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar, sagði að í stuttu máli teldi Jakob R. Möller það ekki fara í bága við stjórnarskrá að fella fjölmiðlalögin úr gildi án þess að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram. Hann væri hins vegar þeirrar skoð- unar að efni frumvarpsins stæðist ekki ýmis ákvæði stjórnarskrárinn- ar eins og fyrra frumvarpið um fjölmiðla. Mismunandi skilningur Sérfræðingar eru ósammála um hvaða leið ríkisstjórninni er heimilt að fara. Komið hefur fram það sjónarmið að málið sé úr höndum Alþingis eftir synjun forseta Ís- lands og því beri að halda þjóð- aratkvæðagreiðslu samkvæmt 26. grein stjórnarskrárinnar. Aðrir telja að ríkisstjórninni sé heimilt að fella lögin úr gildi án þess að halda þjóðaratkvæðagreiðslu en ekki setja ný fjölmiðlalög jafn óðum. Þá hefur þeirri skoðun verið lýst að meirihluta Alþingis sé bæði heimilt að fella fjölmiðlalögin úr gildi og setja ný lög lítið breytt. Bjarni hefur sagt eðlilegt að deilt sé um hvaða leiðir séu færar þar sem Alþingi hafi aldrei áður staðið frammi fyrir þeirri stöðu að forseti synji lögum staðfestingar. Hann segir að störf allsherjarnefndar hafi gengið vel hingað til. Í dag verði hagsmunaaðilum á fjölmiðla- markaði, sem þess hafa óskað í um- sögnum sínum, boðið að koma fyrir nefndina og útlista sín sjónarmið. Einnig eigi eftir að fara yfir inn- sendar umsagnir sem þurftu að berast í síðasta lagi í gærkvöld. Ljúki allsherjarnefnd störfum á fimmtudagskvöld er ekki gert ráð fyrir að þingfundur verði boðaður fyrr en á mánudaginn, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Þá hefjist önnur umræða um fjölmiðla- frumvarpið. Nefndarmenn eigi eftir að ljúka greinagerðum sínum um efni og málsmeðferð frumvarpsins. Væri lögfræðileg áhætta Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir einna merkilegast að á fundi allsherjar- nefndar hafi Kristinn Hallgríms- son, sem átti sæti í starfshópi rík- isstjórnarinnar, lýst því að lögfræðingar í hópnum hafi fyrst talið lagalega unnt að setja tak- markandi reglur um þjóðarat- kvæðagreiðslu. Í vinnunni hafi síð- an komið fram alvarlegir lög- fræðilegir annmarkar á því sem hafi orðið til þess að þeir treystu sér ekki til að gera beinlínis til- lögur um lágmarksþátttöku eða önnur skilyrði. Þeir hafi hins vegar lokið vinnunni því það kynni að vera að stjórnmálamenn vildu taka þá lögfræðilegu áhættu. Össur segir líka merkilegt að fá að heyra að Ólafur Jóhannesson, sem hafi verið okkar helsti sér- fræðingur á sviði stjórnskipunar- réttar, lagði fram þrjár þingsálykt- unartillögur á sjöunda áratugnum um smíði reglna um framgang þjóðaratkvæðagreiðslna. Í greinar- gerð sé m.a. sérstaklega vísað í 26. grein stjórnarskrárinnar, sem fjallar um synjun forseta Íslands, en hvergi að finna nokkrar vís- bendingar um að hann teldi að setja ætti einhverjar takmarkandi reglur. Þingfundur verður líklega boðaður strax eftir næstu helgi Hagsmunaaðilar fyrir allsherjarnefnd í dag Morgunblaðið/Ásdís Allsherjarnefnd fundar stíft um fjölmiðlafrumvarpið þessa dagana. VINSTRI-GRÆNIR geta starfað í meirihluta með Sjálfstæðisflokknum eins og öðrum stjórnmálaflokkum í borgarstjórn Reykjavíkur eftir næstu sveitar- stjórnarkosningar, segir Árni Þór Sig- urðsson, forseti borgarstjórnar. Árni Þór fjallaði um þetta í Morg- unpóstinum, sem er vefrit VG í Reykjavík, um síð- ustu helgi. „Við treystum okkur til að vinna að málum í samstarfi við aðra flokka og það er enginn flokkur útilok- aður fyrir fram í því sambandi,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. Hann nefnir sem dæmi að fulltrúar VG í sveitarstjórn Skagafjarðar hafi átt ágætt meirihlutasamstarf við full- trúa Sjálfstæðisflokksins. Hann hafi kynnt sér það sérstaklega og almenn ánægja sé með það meðal sveitar- stjórnarmanna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Það sama eigi við um samstarf flokksins í Reykjavík við Framsóknarflokkinn og Samfylk- inguna. Í vefpistlinum segir Árni m.a.: „Flokkurinn hefur sýnt í verki að hann er verður trausts og trúnaðar og fer vel með það umboð sem honum er veitt og að hann getur starfað með öllum öðrum stjórnmálaflokkum af heilind- um, hvort sem er í meirihluta eða minnihluta.“ Í því liggi heilmikil sókn- arfæri sem þurfi að nýta vel og byggja á. Árni Þór vill að VG bjóði fram undir eigin nafni sem víðast í sveitarstjórn- um í næstu kosningum árið 2006. Það geti þó verið í bandalagi með öðrum flokkum. Mikilvægt sé að VG séu sýni- legir í slíkum framboðum og það hafi verið þróunin innan R-lista samstarfs- ins. Það sé tvímælalaust vilji í hans flokki að flokkarnir sjálfir séu meira áberandi en verið hefur. Árni segir flokk sinn hafa fyrst verið þátttakanda í sveitarstjórnarkosning- unum vorið 2002. Aðeins hafi verið boðið fram í fáum sveitarfélögum. „Við erum farin að ræða heilmikið saman í okkar flokki um næstu sveit- arstjórnarkosningar, hvernig við eig- um að standa að þeim og hvaða mál við viljum sjá sem rauðan þráð í gegnum okkar málflutning,“ segir Árni, þó ým- is mál séu alltaf staðbundin. Oddviti VG í borgarstjórn Reykjavíkur Árni Þór Sigurðsson Treysta sér í sam- starf við Sjálf- stæðisflokkinn VÍSINDAMENN við háskólann í Árósum hafa sett upp hermi sem líkir eftir aðstæðum á Mars á rannsóknarstofu sinni og nota hann til að rann- saka jarðveg og hvort líf sé að finna á reiki- stjörnunni. Dr. Haraldur Páll Gunnlaugsson, lektor í eðl- isfræði við Ár- ósaháskóla, er meðal þeirra vísindamanna sem vinna að verkefninu en hann er staddur hér á landi vegna ráð- stefnunnar um byggilega hnetti. Haraldur vann með öðrum að hönnun segulbúnaðar sem settur var á rannsóknarjeppana Spirit og Opportunity, sem sendir voru til Mars í janúar á þessu ári. Seg- ulbúnaðurinn hefur þann tilgang að taka upp ryk úr andrúmsloft- inu á Mars og greina það með lit- rófsgreiningum og efnagrein- ingum. Haraldur segir að þetta séu mikilvægar rannsóknir til að skilja efnasamsetningu reikistjörn- unnar en í Marsherminum sem Haraldur og félagar hans í Mars- hóp skólans hafa sett upp eru vindgöng þar sem jarðvegur og vindar eru eins og á Mars. „Þetta er eins konar smækkuð útgáfa af Mars á jörðinni. Aðstæður þar eru mjög ólíkar þeim sem við eigum að venjast á jörðinni og það er mikilvægt fyrir fræðimenn að geta gert rannsóknir í umhverfi sem líkist aðstæðum á Mars. Það gerir þeim kleift að framkvæma tilraunir til að svara spurningum um hvernig bakteríur hegða sér við slíkar aðstæður, meðal annars hvernig þær lifa af kulda og út- fjólubláa geislun,“ segir Haraldur. Svör um líf liggja ekki fyrir Hann segir svör við stærstu spurningunum um líf á Mars enn ekki liggja fyrir. „Það má þó kannski segja að við séum komnir nær því að vita hvernig eigi að leita lífs á Mars,“ segir Haraldur. Hann segir að evrópska geimfarið Mars Express hafi sent mikið að áhugaverðum myndum til jarðar. „Margar þeirra hafa fengið fræði- menn til að klóra sér í kollinum og endurskoða margar af sínum fyrri niðurstöðum,“ segir Har- aldur. Áformað er að senda banda- ríska geimfarið Phoenix til Mars árið 2007 til að kanna vísbend- ingar um að vatn sé undir yf- irborði Mars og árið 2009 ráðgera bandaríska geimvísindastöðin og sú evrópska að senda í sameiningu tvo rannsóknarjeppa til Mars til frekari rannsókna. George W. Bush hefur tilkynnt að Bandaríkin ætli sér að senda mannað geimfar til Mars og koma þar upp bæki- stöð til frekari rannsókna á ár- unum 2015–2020. Íslenskt berg rannsakað Rannsóknarjepparnir á Mars hafa tekið sýni úr bergi og sýnt fram á að samsetning bergsins þar er um margt lík íslensku bergi. Haraldur segir að jepparnir greini svokölluð Mössbauer-hrif bergsins, en þannig má fá eins konar fingrafar af berginu og greina eiginleika þess. „Samskonar tækni hefur verið notuð hér á landi og því var hægt að bera saman þær niðurstöður sem rannsóknarjepp- inn sendi við gagnagrunn og at- huga hvers konar berg var um að ræða og hvernig það hefði mynd- ast. Bergið á Mars er svokallað ólívín-basalt og ég held að um 15– 20% af íslensku bergi falli í þenn- an flokk,“ segir Haraldur sem tel- ur að skýra megi rauða litinn á berginu með því að fíngert ryk í loftinu hafi gefið því þennan lit. Fræðimenn á þessu sviði hafa því í auknum mæli beint sjónum sínum að bergrannsóknum á Ís- landi og borið saman við berg á Mars. „Við þurfum að skilja jarð- fræði reikistjörnunnar til að geta svarað spurningum um líf á henni. Bergið á Mars og Íslandi virðist eiga sér mikla samsvörun og það er hægt að nota þá þekkingu sem til er um þróun bergs á Íslandi til að segja til um hvað menn sjá á Mars,“ segir Haraldur. Dr. Haraldur Páll Gunnlaugsson rannsakar jarðveg og lífverur á Mars Nota Marshermi til að leita ummerkja lífs Haraldur Páll Gunnlaugsson kom að hönnun segulbúnaðar á jeppunum Spirit og Opportunity sem eru á Mars núna. Pílan sýnir hvar seglarnir eru á jeppunum en búnaðurinn safnar í sig ryki sem er efnagreint. Dr. Haraldur Páll Gunnlaugsson SKJÁR einn skrifaði undir þriggja ára samning við Premier League í Englandi um sýningarrétt á ensku knattspyrnunni í gær og verður fyrsta útsendingin 14. ágúst þar sem sýnt verður frá leik Liverpool og Tottenham. Stefnt er að því að hafa útsendingarnar í opinni dagskrá. Magnús Ragnarsson sjónvarps- stjóri segir samningsupphæðina trúnaðamál og ekki verði ráðinn hóp- ur fastra starfsmanna til að annast þá innlenda dagskrárgerð sem unnin verður í kringum enska boltann. Hins vegar verði notaður hópur lausráð- inna starfsmanna til að lýsa leikjum og annast dagskrárgerð. Ekki verða allir leikir sendir út með íslenskri íþróttalýsingu, heldur er áætlað að senda út suma leiki með ensku tali. Magnús segist telja að Skjá einum sé heimilt að senda út óþýtt efni á meðan efni frá Eurosport sé sent út án ís- lenskrar þýðingar. Snorri Már Skúlason hefur verið ráðinn verkefnastjóri vegna enska boltans. „Við erum afskaplega ánægðir með samninginn þrátt fyrir tafir á frá- gangi við hann,“ segir Magnús Ragn- arsson. „Þetta á eftir að gera Skjá einn að miklu öflugri sjónvarpsstöð á næstu misserum.“ Sendir verða út sex leikir á viku en leiktímabilið er 42 vikur. Samningur Skjás eins um enska boltann Stefnt að útsendingu í opinni dagskrá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.