Morgunblaðið - 14.07.2004, Síða 8

Morgunblaðið - 14.07.2004, Síða 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Fæst innbrot ístærsta sumar-húsahverfi lands- ins upplýsast nokkurn tíma og tilviljun ræður því oft hvort þau upplýsast. Í Árnessýslu, þar sem flesta bústaði er að finna, má reikna með að eitt af hverjum tíu innbrotum upplýsist að sögn lög- reglu. Innbrotum þar fjölgaði fram að 2001 en þá fækkaði þeim og því er ljóst að innbrotatíðnin sveiflast nokkuð. Í Borgarfirði er einnig mikil sumarbústaðabyggð en árið 2003 voru 2.250 bústaðir í sýslunni og hef- ur innbrotum þar fækkað nokkuð. Nefna má að árið 2002 voru 60 innbrot og tókst að upplýsa 20 þeirra. Í fyrra voru innbrotin 24 og þar af 3 upplýst. Það sem af er árinu hafa verið 9 innbrot í ein- ungis tvo bústaði og eru málin óupplýst. Skýringar á fækkun innbrota segir Theodór Kr. Þórðarson, yf- irlögregluþjónn í Borgarnesi, að rekja megi til meiri viðveru í betri bústöðum og bættum sam- göngum. Að hans sögn eru þjóf- arnir upp til hópa fólk í fíkniefna- neyslu í leit að verðmætum til að fjármagna neysluna. Hann segir vel hafa tekist til við að upplýsa „stóru rispurnar“ á undanförnum árum, þegar brotist er inn í marga bústaði í einu. „Það var farið inn í 23 bústaði eina vornótt- ina 1998 og stolið mjög mörgum sjónvörpum, raftækjum og fleiru. Þeir sem þarna voru að verki náð- ust og þýfið sömuleiðis, nær allt óskemmt,“ segir Theodór. Að sögn lögreglunnar á Selfossi sækja þjófar einkum í bústaði þar sem aðgengi er auðvelt og reynsl- an sýnir að þeir hverfa jafnvel frá ef bústaðurinn er vel læstur og frágenginn, frekar en að böðlast á hurðum og gluggum. „Við höfum orðið varir við að menn hafa ekki valdið miklu tjóni við að komast inn í húsin og þeir hafa stundum hætt við innbrot í þá bústaði sem erfitt er að komast inn í, og farið í þann næsta,“ segir Þorgrímur Óli Sigurðsson lögreglufulltrúi. „Við erum því þeirrar skoðunar að eft- ir því sem erfiðara er að koma að húsunum og inn í þau, því betra er það. Auðvitað eru þeir menn til sem hafa svo sterkan brotavilja að þeir láta ekkert standa í vegi fyrir sér, en menn virðast reyna að komast inn með sem minnstum skaða.“ Bústaðir nálægt þjóðvegi berskjaldaðir Bústaðir nálægt þjóðvegi verða oftar fyrir barðinu á þjófum en þeir sem fjær eru og dæmi eru um að brotist hafi verið inn hvað eftir annað í suma bústaði sem blasa vel við frá þjóðvegi. Einkum eru það rafmagnstæki af ýmsum gerðum sem þjófarnir eru á hött- unum eftir, s.s. útvörp og sjón- vörp, en ólíkt því sem sumir kunna að halda, þá er lítið um að vínbirgðum bústaða, ef einhverjar eru, sé stolið. Um 5 þúsund sumarbústaðir eru í Árnessýslu, en stærstu bú- staðahverfin eru í Grímsnesi og við Laugarvatn. Einnig má nefna stór hverfi eins og Miðhúsaskóg og Reykjaskóg. Undanfarin ár hafa verið framin 30–50 sumarbú- staðainnbrot á ári í sýslunni, lang- flest í Grímsnesinu. Eru innbrotin í heild á þessu ári orðin 24 talsins. Árið 2001 sker sig úr en þá voru innbrotin 52 og hafa verið um 35 undanfarin tvö ár. Lögreglan á Selfossi segir ekki hafa verið setta af stað sérstaka forvarna- vinnu í samvinnu við bústaða- eigendur þegar þessi hverfi voru að byggjast upp og ekki hafi held- ur komið fram auknar kröfur frá eigendum um hertara eftirlit lög- reglu. Fólk hafi hins vegar leitað til lögreglunnar um ýmis ráð gegn innbrotsþjófum og hindrað að- gang inn í hverfin með uppsetn- ingu hliða og girðinga. Sumir hafa fengið sér þjófavarnarkerfi og einnig hafa einkaaðilar boðið upp á gæslu. Það sem gerir málin erfið í rannsókn er hversu langur tími líður oft frá innbroti þangað til það uppgötvast. Ekki er óalgengt að sá tími sé nokkrar vikur og á þeim tímapunkti er erfitt að byrja að rekja slóðina, ekki síst ef eng- um vitnum er til að dreifa. Málin upplýsast því sjaldnast og þau, sem það gera, koma oft upp á yf- irborðið í tengslum við önnur af- brot t.d. á höfuðborgarsvæðinu þegar farið er í húsleitir þar sem þýfi úr löngu liðnu sumarbústaða- innbroti austur í sveitum finnst. Lögreglan á Selfossi viðurkennir því að erfitt geti verið að verjast þessum innbrotum. Það virðist ótrúlegt hvað inn- brotsþjófar komast upp með í þessu sambandi því dæmi eru um að þeir hafi bókstaflega haldið til í bústöðum vikum saman án þess að fólk í næstu bústöðum gruni neitt. Þetta á sér sínar skýringar, t.d. þær að sumir bústaðir eru lánaðir eða leigðir út og því er erf- itt fyrir nágranna að ákvarða hver sé óvelkominn hvar. Helstu varnir sumarbústaða- eigenda felast að mati lögreglunn- ar í því að kaupa tryggingar og ganga vel frá bústöðunum og læsa þeim vandlega. Fréttaskýring | Sumarhúsainnbrot Fæst innbrot- in upplýsast 10% af sumarbústaðainnbrotum tekst að upplýsa og þá jafnvel fyrir tilviljun Gott er að hindra aðgengi og læsa. Þjófarnir skemma yfirleitt ekki mikið við innbrotin  Lögreglan viðurkennir að erf- itt sé að eiga við innbrotsþjófa sem herja á sumarbústaði. Þeir eru einkum á ferð á veturna en einnig á sumrin og dragast að bústöðum nálægt þjóðvegi. Dæmi er um að þeir haldi til vik- um saman í herteknum bústað án þess að eftir sé tekið. Skemmdir í innbrotunum eru þó yfirleitt litl- ar og þjófar hætta jafnvel við innbrot ef bústöðum er ramm- lega læst og aðgengi hindrað með tiltækum ráðum. orsi@mbl.is Í MIÐJUM Eyja- og Miklaholts- hreppi á Snæfellsnesi, undir Ljósu- fjöllum, sést til stórra hvítra húsa frá þjóðveginum og margra íbúðar- húsa í hnapp. Þetta er félagsbúið á Miðhrauni, þar sem hjónin Bryndís Guðmundsdóttir og Sigurður Hreinsson reka fiskþurrkun og flytja í gámum til Nígeríu. „Þetta var hefðbundinn sveita- bær með tilheyrandi búskap. Þegar umsvifin minnkuðu í þeim geira gafst færi á að snúa sér að öðru. Okkur hjónin langaði að flytja í sveitina og fórum að prófa okkur áfram,“ útskýrir Bryndís fyrir blaðamanni og ljósmyndara Morg- unblaðsins. Þau hafa breytt bæj- arhúsum mikið og eru með fjölda manns hjá sér í vinnu, allt að tutt- ugu manns þegar mest er að gera. Stórar stæður af þorskhausum standa á grindum sem heitt loft leikur um. Fisklyktin er mikil, enda blásturinn um allt, og hausarnir eru um fimm daga í þurrki áður en næsti skammtur fer inn. Þurrk- húsin á Miðhrauni voru áður loð- dýrahús, en hjónin Sigurður og Bryndís höfðu reynt þá búgrein og fiskeldi einnig áður en þau sneru sér að fiskþurrkuninni. „Við sáum okkur leið í að reyna við gamla og góða atvinnugrein, fiskþurrk- unina,“ segir Bryndís. Hún segir síst verra að vera með starfsemi af þessu tagi í sveit en við sjávarsíð- una. „Mávurinn lætur okkur alveg í friði af því að við erum svo langt frá sjónum,“ útskýrir hún. Einnig þurrkað á gamla mátann Í fyrra byggðu þau sjálf við þurrkhúsin stórt stálgrindarhús, sem verður pökkunarsalur í fram- tíðinni. „Það er mikill munur að vera kominn með nýja húsið. Við byggðum húsið alveg sjálf í stað þess að kaupa það tilbúið að utan.“ Til viðbótar við hausa og fleira sem þurrkað er í þurrkhúsunum hengja þau hausa einnig út upp á gamla mátann og hjallarnir standa allt í kringum þurrkhúsin. „Við leyfðum hausunum að hanga úti um nokkurra mánaða skeið og kaupendur okkar eru hvað hrifn- astir af þessari verkun. Þá hanga hausarnir í öllum veðrum, sól jafnt sem rigningu. Þeir allra bestu, að mati Nígeríumannanna, eru þeir hausar sem mest hvítna í sólinni,“ útskýrir Bryndís. Hún segir úti- þurrkuðu hausana geta geymst óralengi, miðað við þá sem þurrk- aðir séu í þurrkhúsunum. Auk hausaþurrkunarinnar er einnig verkuð skreið til útflutn- ings, og hjónin ákváðu að prófa að verka saltfisk núna í vetur og sjá hvernig það gengi. „Við vorum með starfsmenn frá Græn- höfðaeyjum hérna hjá okkur sem undruðust að við verkuðum ekki saltfisk. Við ákváðum því að slá til og verka smávegis, mest til gam- ans, og sjá hvernig til tækist,“ út- skýrir hún. Allt fer til útflutnings Öll framleiðsla Fiskþurrkunar- innar á Miðhrauni fer til útflutn- ings, en Bryndís segist hafa orðið vör við nokkurn áhuga á fram- leiðslunni hér innanlands, sér- staklega hjá eldra fólki. „Þegar við hófumst handa í þessari verkun, og kunnum sjálf lítið til verka, kom það mér á óvart hvað margt eldra fólk þekkti vinnubrögðin við þurrkunina, þrátt fyrir að hún sæ- ist vart lengur. Þá hafa ýmsir fal- ast eftir einum og einum haus frá okkur,“ útskýrir hún. Vörumerki Fiskþurrkunarinnar erlendis er UDE, skrifað inn í glampandi sól og með Ljósufjöllin í baksýn. Bryndís hefur ekki enn farið til Nígeríu en er alltaf á leið- inni. „Það er mjög mikilvægt að fara og fylgja vörunni eftir og okk- ur hjónunum hefur verið boðið að heimsækja landið,“ segir Bryndís að lokum. Hjónin á Miðhrauni starfrækja fiskþurrkun á Snæfellsnesi Morgunblaðið/RAX Jakob Eyjólfsson, Þráinn Ásbjörnsson og Khaserdin Bathar vinna við að stafla hausum til útflutnings. Langaði í sveit og fórum að prófa okkur áfram ÞRÖSTUR Elliðason, leigutaki á Nes- og Árnessvæðum Laxár í Að- aldal, sagði í gær veiði mjög að glæð- ast í ánni og nefndi sem dæmi að um morguninn hefðu menn sett í tíu laxa og náð að landa þar af fjórum. Af þeim voru tveir 12 og 15 pund. Líf- legra væri einnig neðar í ánni heldur en í byrjun vertíðar og greinilegt að smálaxagöngur væru sterkari nú heldur en síðustu sumur. 24 punda bolti … Þröstur sagði ennfremur frá því að í veiðibókina í Nesi væri skráður 12 kg lax á Núpafossbrún. „Þessi skráning er í bókinni, en ég á eftir að fá meiri upplýsingar. Þetta er vænt- anlega áætluð þyngd því fiskinum var sleppt,“ bætti Þröstur við. Líflegt í vatnsleysinu Þröstur er einnig með Hrútafjarð- ará á leigu og þar sagði hann furðu líflegt miðað við að áin væri orðin af- ar vatnslítil eftir þurrkana að und- anförnu. „Það hefur greinilega kom- ið góð ganga í rigningunni um daginn, eftir það var t.d. holl sem setti í 18 fiska og náði 9, mest á hitch- túpur. Menn hafa séð stóra laxa í Bálki og Réttarstreng, en laxarnir sem hafa veiðst eru allir smálaxar,“ sagði Þröstur sem renndi hýru auga til vaxandi straums og vætu í veð- urkortunum á næstu dögum. Hítará „loðin“ Bergur Steingrímsson, fram- kvæmdastjóri SVFR, hafði eftir veiðimönnum við Hítará að þar væri „allt loðið af laxi“ og veiðin í ánni hef- ur tekið góðan kipp. Ekkert lát er á góðu gengi í öðrum ám á Snæfells- nesi og Mýrum, en þó hefur ört minnkandi vatn sett nokkurt strik í reikninginn. Til marks um skotið í Hítará, þá veiddust 15 laxar í ánni á mánudags- morgninum einum og voru það nær allt grálúsugir smálaxar á bilinu 4 til 6 pund. Veiddust þeir um alla á og menn settu í fjölda laxa sem sluppu að auki. Þar með var áin skriðin yfir 90 laxa í heildarveiði og í gærdag var áin komin yfir hundrað. Laxá í Þing að koma til ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Morgunblaðið/Golli Vænn urriði berst um í Galtalæk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.