Morgunblaðið - 14.07.2004, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 14.07.2004, Qupperneq 11
SAMKVÆMT skýrslu NOAA, stofnunar sem fer með málefni hafsins og andrúmsloftsins í Bandaríkjunum, hefur fisk- veiðistjórnunin haft jákvæð áhrif á stöðu fiskstofna við landið. Náðst hefur að byggja fjóra af helztu fisk- stofnunum upp á ný, 10 tegundir eru ekki lengur á lista yfir ofveidd- ar tegundir og ofveiði hefur verið stöðvuð á fimm tegundum. Á hinn bóginn hefur tveimur teg- undum verið bætt á listann yfir of- veiddar tegundir og fjórir stofnar eru að auki ofveiddir. Í skýrslunni, sem er árleg og fjallar um stöðu fiskstofna við Bandaríkin, segir að stofnunin hafi á síðustu áratugum stöðugt unnið að því að snúa við þeirri óheillaþró- un sem ofveiði hafi í raun verið. Niðurstöðurnar nú sýni að sam- starf NOAA við svæðisbundnar fiskveiðistjórnir, sjómenn, útvegs- menn, sportveiðimenn og nátt- úrverndarsamtök hafi orðið til að tryggja skynsamlega nýtingu auð- linda hafsins til langs tíma. Skýrsl- an flokkar fiskstofna eftir stöðu þeirra. Það eru stofnar sem hafa verið ofveiddir og þarfnast upp- byggingar, stofnar þar sem ofveiði er stunduð, veiðarnar ekki sjálf- bærar, og stofnar sem hafa verið byggðir upp á ný. Skýrslan tekur til 894 fiskstofna. 76 þeirra eru taldir í verulegri hættu vegna of- veiði, veiðar úr 60 stofnum eru ekki sjálfbærar, þannig að langflestir fiskstofnar eru í góðu lagi og veið- um úr þeim stjórnað með þeim hætti að þær séu sjálfbærar og gangi ekki á stofnstærðina. Góð staða vestanhafs Fiskveiðar Það fæst oft góður afli við Alaska, sérstaklega á ufsaveiðunum. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 11 MEISTARANÁM í lögfræði við Við- skiptaháskólann á Bifröst hófst sl. mánudag og er þetta í fyrsta sinn sem framhaldsnám í lögfræði er kennt við annan íslenskan háskóla en Háskóla Íslands. Skólinn býður upp á nám til tveggja mismunandi gráða, annars vegar ML-gráðu í lögfræði og hins vegar MS-gráðu í viðskiptalögfræði. Menntamálaráðherra veitti leyfi fyrir kennslu á þessu sviði sl. vor eftir ít- arlega úttekt á skólanum. Í ræðu sinni við setningu meistara- námsins sagði Runólfur Ágústsson, rektor, leyfi menntamálaráðuneytis- ins fyrir meistaranámi við skólann vera mikla viðurkenningu á því starfi sem hefur verið unnið á Bifröst. Hann sagði jafnframt að því fylgdi ábyrgð enda hefðu viðtökur við meistaranám- inu farið fram úr björtustu vonum. Runólfur gagnrýndi æðstu emb- ættismenn þjóðarinnar og leiðtoga stjórnmálaafla á Alþingi fyrir að beita stóryrðum frekar en málefnalegri umræðu þegar fjallað er um grund- völl lýðræðisins; lög og stjórnarskrá. „Ganga má svo langt að segja að ekki sé því fjarri að stjórnlagakreppa vofi yfir hérlendis þessar vikurnar, en slíkt mun harla fátítt í þróuðum lýð- ræðissamfélögum og segir e.t.v. eitt- hvað um íslenskt samfélag sem okkur væri hollt að hugleiða,“ sagði Runólf- ur. Meistaranám í lögfræði haf- ið á Bifröst LENDINGAR á Keflavíkurflugvelli í fyrra voru alls 9.503 talsins, 8.840 árið 2002 en um tíu þúsund þrjú árin þar á undan. Fyrstu fimm mánuði ársins var fjöldi lendinga 3.964 en fyrstu fimm mánuðina í fyrra 3.298 og 3.239 árið 2002. Björn Ingi Knútsson flugvall- arstjóri segir umferðina hafa aukist jafnt og þétt í áraraðir. Bakslag hafi komið árið 2001, fyrir hryðjuverkin í Bandaríkjunum, það hafi í raun haf- ist í lok árs 2000 en nú sé umferðin aftur að aukast. Auk áætlunarflugs segir hann fraktflug hafa aukist mjög svo og leiguferðir, jafnvel dagsferðir með erlenda ferðahópa frá nágrannalöndum. En má búast við áframhaldandi aukningu? Hægt að anna meiri umferð „Flugvöllurinn getur tekið við meiri umferð en á álagstímum, bæði snemma morguns og síðdegis, er Flugstöð Leifs Eiríkssonar hins vegar fullnýtt og vel það og því verð- ur umferðin vart aukin nema á öðr- um tímum sólarhringsins,“ segir Björn Ingi og telur það mögulegt. Yfirvöld flugvallarins og flug- stöðvarinnar hafa kynnt völlinn en Björn Ingi segir markaðsmöguleik- ana takmarkaða. „Áætlunarflug mun aukast jafnt og þétt en leigu- flug markast af markaðsstarfi ferða- málayfirvalda og landkynningu. Við getum hins vegar auglýst völlinn sem ákjósanlegan viðkomustað fyrir svokölluð tæknistopp, fyrir flugvélar sem eru á ferð milli Evrópu og Am- eríku og þurfa að hafa viðkomu á leiðinni til eldsneytistöku eða ann- ars. Þar keppir völlurinn við ná- granna á Írlandi, Skotlandi, í Kan- ada og Grænlandi. Hér er hægt að taka á móti alls konar flugvélum í þessu skyni,“ segir Björn Ingi og á þar við þá sem annast þjónustu við flugvélar og afgreiðslu þeirra, svo sem Flugþjónustuna á Keflavík- urflugvelli, Suðurflug og Vallarvini. Björn Ingi segir ekki mikið um aðra flugumferð en þá sem tengist alþjóðafluginu, stundum séu flug- nemar að æfa lendingar en þeim sé yfirleitt beint annað á annatíma og segja megi að slík flugumferð sé ekki heppileg á alþjóðaflugvelli. „Flugnemum og einkaflug- mönnum finnst gott og eftirsókn- arvert að lenda á Keflavíkurflugvelli en þeir eru hér yfirleitt í sjónflugi og slíkt æfingaflug hentar ekki vel inn- an um og saman við reglubundið millilandaflug og því hentugra að menn æfi sig annars staðar. Þetta snertir líka þá breytingu sem varð hér þegar við féllum frá skipulagn- ingu fluggarða, flugskýla fyrir einkaflugvélar og Suðurflug, sem hafði kennslu og slíka þjónustu á hendi, tók að einbeita sér að af- greiðslu véla í millilandaflugi.“ Rekstur Keflavíkurflugvallar heyrir undir utanríkisráðuneytið og segir Björn Ingi nána samvinnu við Flugmálastjórn enda falli allt sem tilheyrir flugstarfsemi undir eftirlit hennar. Þá er samvinna við stjórn FLE um ýmis atriði í rekstrinum en segja má á einfaldan hátt að undir flugvallarstjóra falli flugvöllurinn, flugumferðarstjórn og flugstæði með tilheyrandi búnaði en undir FLE falli allt innanhúss. „Þarna eru því margir aðilar sem koma við sögu og reynir á lipurð og þjónustulund allra þegar hver aðili þarf að vinna sitt verk samkvæmt ýtrustu örygg- iskröfum en um leið að láta hlutina ganga hratt fyrir sig eins og nauð- synlegt er varðandi hvaðeina í flug- heiminum,“ segir Björn Ingi að lok- um. 28–30 við flugumferðarstjórn Milli 28 og 30 manns starfa við flugumferðarstjórn á Keflavík- urflugvelli, undir stjórn Haraldar Ólafssonar yfirflugumferðarstjóra. Frá flugturni vallarins er stjórnað aðflugi að vellinum í um það bil 40 mílna radíus og upp í 24 þúsund feta hæð. Í flugturninum eru starf- ræktar tvær deildir. Annars vegar er um að ræða deild sem veitir turn- þjónustu en þar er allri umferð á flugvellinum og í nánasta nágrenni stjórnað. Hins vegar er deild sem veitir aðflugsþjónustu, þaðan er stjórnað allri flugumferð í 10 til 40 mílna radíus frá flugvellinum. „Í turninum eru mannaðar tvær starfsstöðvar, sem við köllum svo, önnur stjórnar m.a. akstri flugvéla og ökutækja um völlinn og hin stjórnar flugumferð í nánasta ná- grenni vallarins og á flugbrautum,“ segir Haraldur Ólafsson. „Síðan höf- um við stjórnstöð á annarri hæð sem sér um aðflugið í þessum víðari rad- íus og aðflugið að Reykjavík- urflugvelli.“ Haraldur segir mynstrið í flug- umferðinni hafa breyst mikið á síð- ustu árum. „Farþegaflugið hefur aukist mikið en herflugið minnkað sem þýðir að heildarumfangið er svipað. Kafbátaleitarvélarnar voru mikið á ferðinni í eftirlitsferðum og stunduðu líka mikið snertilendingar svo það munaði um brotthvarf þeirra. En orrustuþotunum hefur líka fækkað og þess vegna er allt umfang herflugsins orðið mun minna.“ Tæknideild frá Varnarliðinu Í flugturninum er einnig til húsa tæknideild frá Varnarliðinu þar sem starfa 22 Íslendingar. Haraldur seg- ir að það sé enginn munur fyrir þá hvort borgaraleg flugvél eða hervél á í hlut, vinnubrögðin við flug- umferðarstjórnina séu þau sömu. Á einu sviði eigi flugumferðarstjór- arnir þó ákveðna samvinnu við varn- arliðsmenn. „Það er þegar orrustu- flugmennirnir vilja æfa lendingar á flugmóðurskipi. Þá er aðflugið með öðrum hætti og varnarliðsmennirnir taka við þeim 10 mílur úti á loka- stefnu og „tala“ þá niður. Það þýðir að flugmennirnir fljúga ekki eftir aðflugsgeisla heldur munnlegum upplýsingum frá flugumferð- arstjórum sínum og þannig er aðflug þeirra svipað því sem er á flugmóð- urskipi.“ Aðspurður segir Haraldur að þokkalega gangi að fá nema í flug- umferðarstjórn en um þrjú ár tekur að öðlast full réttindi eftir nám hér- lendis og erlendis. Eins og fyrr segir eru stöðurnar hjá honum 28 til 30 en Haraldur hefði ekkert á móti nokkr- um til viðbótar. „Ef vel ætti að vera þyrftu þær að vera 35. Við vorum komin á nokkuð gott ról en í dag er talsvert keyrt á yfirvinnu og ekki síst vegna þess að við höfum lánað tvo menn til Kosovo sem við fáum ekki aftur fyrr en í lok næsta árs. Einnig lánuðum við nýlega mann tímabundið til Kabúl í Afganistan.“ Flugumferð á Keflavíkurflug- velli fer vaxandi á nýjan leik Haraldur Ólafsson yfirflugumferðarstjóri (t.v.) og Björn Ingi Knútsson flugvallarstjóri ásamt starfsfólki flugumferðarstjórnar. Morgunblaðið/jt Björn Ingi Knútsson, flugvallarstjóri Keflavíkurflugvallar. Bakslag varð í lendingum 2001 og árið 2002 voru þær ekki nema 8.840 en í fyrra jókst umferðin aftur en þá voru lendingar 9.500. ÖGMUNDUR Jónasson, þing- flokksformaður Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs og formaður BSRB, gerði mannréttinda- brot að umtals- efni á fundi með varaforseta kín- verska þingsins og öðrum kín- verskum ráða- mönum sem dval- ist hafa á Íslandi undanfarna daga í boði Alþingis. Ögmundur fjallar um fundinn í pistli á vefsíðu sinni og segist hafa vísað á fundinum til skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International, þar sem m.a. sé fjallað ofsóknir á hendur fólki sem hafi beitt sér í verkalýðsbaráttu. Af- henti hann kínversku sendinefndinni skýrsluna og óskaði eftir skýringum. Ræddi mann- réttindi við varaforseta þings Kína Ögmundur Jónasson ÚR VERINU LÝSI hf. hyggst hefja framleiðslu í nýrri verksmiðju á næsta ári og flytja um leið alla starfsemi sína í nýtt húsnæði sem nú er verið að reisa undir starfsemina við Fiskislóð í Reykjavík. Lýsi hefur rekið verksmiðju við Grandaveg í Reykjavík frá árinu 1937 og er haft eftir Snorra Má Eg- ilssyni verksmiðjustjóra í Hafnar- blaðinu að löngu tímabært hafi verið að endurnýja verksmiðjuna. Nýja húsnæðið verður um 3.300 fermetr- ar, á tveimur hæðum en þar verða einnig skrifstofur og rannsóknar- stofa fyrirtækisins. Segir Snorri Már að afkastageta nýju verksmiðj- unnar verði mun meiri en þeirrar gömlu og ekki veiti af þar sem spurn eftir lýsisafurðum hafi aukist til muna. Alls starfa um 40 manns hjá Lýsi hf. segir Snorri að þú að vel hafi farið um menn og vélar á Granda- veginum, verði allir ánægðir á Fiski- slóðinni, enda mikið lagt upp úr góðu og nútímalegu starfsumhverfi. Þá verði allur vélbúnaður í verksmiðj- unni endurnýjaður, m.a. verði hún búin nýjustu tækni við hreinsun úr- gangsefna og því verði nágrannar ekki varir við lykt eða önnur óþæg- indi af framleiðslunni. Tölvuteikning Verksmiðja Lýsis sem verið er að reisa við Fiskislóð. Lýsi hf. flytur á Fiskislóð ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.