Morgunblaðið - 14.07.2004, Side 12

Morgunblaðið - 14.07.2004, Side 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÓTTAST er að ný bankakreppa sé í uppsiglingu í Rússlandi, en aukinn fjármagnsflótti úr landinu og minnk- andi bjartsýni neytenda hafa neytt nokkra banka til að loka dyrum sínum og aðra til að grípa til harkalegra að- gerða til að koma í veg fyrir að þeim blæði út. Kemur þetta fram í frétta- skeyti AFP. Sérfræðingar hafa kennt seðla- banka landsins um það hvernig komið er fyrir bankakerfi Rússlands, og eru flestir sammála um að ástandið eigi enn eftir að versna, og að líklegt sé að gjaldþrot tuga, eða jafnvel hundraða banka verði afleiðing kreppunnar. Þó er ekki talið að kreppan verði jafn- alvarleg og árið 1998, þegar milljónir Rússa töpuðu sparifé sínu í öldu bankagjaldþrota. Ótti við „svarta lista“ Vandi millistórra og lítilla banka í Rússlandi er tvíþættur. Annars vegar hafa stærri bankar nánast hætt að veita þeim millibankalán og hins veg- ar hefur mikill fjöldi almennra spari- fjáreigenda misst traust á bankakerf- inu og tekið fé sitt út úr bönkunum. Um alvarlegan lausafjárskort rúss- neskra banka er því að ræða, og hafa sérfræðingar viljað kenna stjórnvöld- um og seðlabankanum rússneska um hvernig komið er fyrir bankakerfinu. Er seðlabankinn sakaður um að hafa ekki komið í gegn nauðsynlegum umbótum á bankakerfinu og að hafa ekki sinnt eftirlitshlutverki sínu. Það kann því að hljóma kaldhæðnislega að rekja má upphaf bankakreppunnar til þess er seðlabankinn hristi af sér slenið og tók í taumana á bankanum Sodbusinessbank og svipti hann starfsleyfi um miðjan maímánuð. Strax í kjölfarið komst á flug orðróm- ur um að seðlabankinn væri með svartan lista yfir fjármálastofnanir sem loka ætti, og þar sem enginn vissi hvort þessi listi væri til eða hver væri á honum hættu bankar að lána hver öðrum fé af ótta við að fá það ekki greitt til baka. Þá óttaðist almenning- ur um sparifé sitt og hóf að taka það út úr bankakerfinu. Rússneskir bank- ar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir breytingum á kjörum á millibanka- lánum, þar sem þau eru mun algeng- ari en annars staðar í heiminum. Ástand betra en 1998 Eins og áður segir hafa það einkum verið bankar í minni stærðarflokkum sem hafa þurft að grípa til aðgerða, en undanfarið hefur kreppan einnig snert stærri fjármálastofnanir. Guta Bank, 22. stærsti banki landsins hætti í síðustu viku að afgreiða þá sem vildu taka út fé, og nokkrum dögum síðar greip Alfa Bank, fjórði stærsti banki landsins, til þess ráðs að leggja tíu prósenta aukagjald á allar úttektir og bauð þeim viðskiptavinum sem skildu fé sitt eftir betri innlánskjör. Í frétt Financial Times frá því fyrr í vikunni segir að skömmu eftir að þetta gerð- ist hafi hluthafar Alfa tekið í taumana og sprautað um 58 milljörðum króna í bankann til að halda honum á floti. Þá hefur Vneshtorgbank, næststærsti ríkisbanki Rússlands, samþykkt að taka yfir stjórn Guta Bank. Frá hruninu 1998 hafa rússneskir bankar sótt í sig veðrið, og samkvæmt frétt Wall Street Journal Europe eru allar ytri aðstæður í Rússlandi í betra lagi. Lán til einkaaðila jukust á síð- asta ári um 28% og lán til almennrar neyslu jukust um 20%. Í frétt FT seg- ir að innlán í bankakerfinu hafi aukist úr 8% af vergri landsframleiðslu árið 1998 í 15% í ár. Í leiðara rússneska viðskiptadag- blaðsins Vedomosti, sem gagnrýnt hefur seðlabankann harðlega, sagði um daginn: „Maður þarf virkilega að leggja hart að sér til að skapa alvarleg vandamál fyrir rússneska bankakerf- ið við þær góðu aðstæður sem ríkja í dag.“ Fréttaskýring Bjarni Ólafsson Bankakreppa í Rússlandi Ástandið ekki jafnalvarlegt og 1998 en spáð er gjaldþrotum banka bjarni@mbl.is                                 !  "  #" $  $ %" $  #" & # & "  # '    '    ()  (    $! *    ! "   #     +#    #" # #     #$ , -$!  .  ! /, )  0$  #"$   % 1 , 2)  ( ( #"  # (# +# (#" (1#  (#   ) .  )!  .        #   /!  3(1$  # $"%&"  $   #" 4.  %"   #"  (#  1 1 .   +#  #" (    !  56789 6:799 ;97<9 87=9 >78< =7:9 56=7<9 =7>9 <;799 3 87<9 6<789 ;;799 :7;< >?799 676? 57?9 :7?9 <7=9 67;: 3 3 :799 8=7>9 3 :7=9 57=< 3 3 3 <7>9 3 ;:7<9 3 3 3 3 >7<9 3 3 8=799  .   .  !  97?9 9769 9759 39796 3 97;9 97<9 9789 97<9 3 979> 97?9 97;9 979< ;7<9 3 3 3 3 979< 3 3 97;9 3 3 397;9 97;5 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 6799 @ 676AB @ 97:AB @ 579AB @ 397<AB 3 @ ;76AB @ 97;AB @ 87>AB @ ;79AB 3 @ ;7:AB @ 87:AB @ 97?AB @ 97:AB @ 676AB 3 3 3 3 @ 675AB 3 3 @ ;75AB 3 3 @ 3;78AB @ 879AB 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 @ <7>AB  #"    "  #$ # " C  (# 85>!:;> 688!=>5 ;:9!;>< 6!><= <9= 899!:=5 ;6=!;;8 69<!888 ;5!>:9 3 66!5:; =>!69? ;:!8;9 ;?!?9= ;:<!656 6?? ?= ?59 =!?:> 6!5=> 3 3 ;>6 :!:69 3 869 ;!58= 3 3 3 <!>99 3 86!986 3 3 3 3 ;!>=9 3 3 5!>;; 5;7=9 6>7>9 ;9759 87=9 3 =7>< 56?799 =7<9 <97<9 >759 875< 6<799 ;97?9 :7;< >?799 676? 5759 :7=9 <7<9 67;8 3 ;?7=9 :79< 8=7>9 67<9 >789 57:? 3 ;799 3 <7<< 3 ;:769 8789 8769 8?7<9 97>9 :7<9 9789 97=; 8:7:9 56759 6:7;9 ;97>9 5799 >7:9 =7:9 56?7<9 =7>9 <;799 >7<9 87<9 6<789 ;;7;9 :769 >?7<9 6786 57?9 :7?9 <7?9 67;: 8799 69799 :7;9 8=7=9 67:9 :7=9 57?9 57?9 ;7;9 :799 <7>< ;7=9 ;:7=9 87<9 87<9 5;7<9 97:9 :7:< 975< 97=< 8=799     D- ! ! ! E ) #  #"    8= ;9 6? : 6 ;5 ;: 8> ;; 3 ? ;> > > 6; 6 ; 6 ; < 3 3 < ; 3 6 6 3 3 3 ; 3 > 3 3 3 3 8 3 3 5 ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI HALLDÓR Kristmannsson, for- stöðumaður innri og ytri samskipta Actavis, segir að Actavis sé ekki að tala við makedóníska lyfjafyrir- tækið Alkaloid AD Skopje. Actavis hafi skoðað þetta fyrirtæki eins og mörg önnur og átt í mjög óform- legum viðræðum, en hafi síðan ekki haft áhuga og viðræðurnar hafi ekki haldið áfram. Halldór segir ekkert tilefni hafa verið til tilkynn- ingar um viðræðurnar. Í Vefvísi greiningardeildar Landsbankans í gær segir frá því að á heimasíðu Kauphallarinnar í Makedóníu sé að finna frétt um mögulega yfirtöku Actavis á þessu makedóníska lyfjafyrirtæki. Í frétt- inni, sem sé dagsett 1. júní síðastlið- inn, komi fram að Alkaloid sé í samningaviðræðum við samstarfs- aðila um mögulega yfirtöku og hafi átt í viðræðum við Actavis. Í Vegvísinum segir að samkvæmt upplýsingum á síðu Kauphallar- innar í Makedóníu hafi fyrirtækið skilað um 330 milljónum króna í hagnað á síðasta ári og markaðs- virði þess sé um 4 milljarðar króna. Markaðsvirði Actavis er rúmir 125 milljarðar króna. „Svo virðist sem umfjöllun um Actavis erlendis sé sífellt að færast í aukana og er skemmst að minnast umfjöllunar um fyrirtækið á net- fréttamiðlinum Times Online um daginn. Þrátt fyrir að ekki sé alltaf um áreiðanlegar fréttir að ræða bendir aukin umfjöllun til þess að Actavis sé orðið þekkt fyrirtæki í lyfjaiðnaðinum,“ segir í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans. Ranghermi um Actavis í kauphöllinni í Makedóníu Ekkifréttir? Fréttir af Actavis er- lendis eru sagðar aukast, en munu vera misjafnlega áreiðanlegar. BRESKA verslanakeðjan Marks & Spencer hefur snúist til varnar gegn yfirtökutilraunum Philips Greens. Stuart Rose, nýr framkvæmdastjóri fyrirtækisins, kynnti í byrjun vikunn- ar nýja áætlun sína um framtíð þess. Green, eigandi verslanakeðjanna Bhs og Arcadia, hefur undanfarinn hálfan annan mánuð reynt yfirtöku á Marks & Spencer og kynnti lokaboð sitt í síð- ustu viku. Rose freistar þess að tryggja sér stuðning hluthafa með því að greiða þeim 2,3 milljarða punda, jafnvirði um 300 milljarða króna. Þessi greiðsla verður að hluta fjár- mögnuð með sölu á fjármálaþjónustu Marks & Spencer, en stærstur hluti verður fjármagnaður með lántöku. Umtalsvert vanmat Marks & Spencer hyggst ekki selja fasteignir sínar, en hefur endurmetið þær til hækkunar um 1,4 milljarða punda í 3,6 milljarða punda, rúma 470 milljarða króna. Rose segir að fyrirtækið hyggist draga úr kostnaði, einbeita sér betur að kjarnastarfsemi sinni, bæta vör- urnar og hætta útþenslu á rekstri sem ekki skilar fullnægjandi afkomu. The Wall Street Journal hefur eftir Rose að áætlun hans sýni, að hug- mynd Greens um verðmæti Marks & Spencer sé umtalsvert vanmat á fyr- irtækinu. Reuters hefur eftir tals- manni Greens, sem hefur tryggt sér stuðning tveggja af stærstu hluthöf- um fyrirtækisins, að hann ætli að bíða og sjá hver viðbrögð markaðarins verða. Í gær varð Green fyrir því að einn af stærri hluhöfunum hafnaði boði hans og sagði það vanmeta bata- horfur fyrirtækisins. Green vill greiða 400 pens fyrir hvern hlut, sem er nokkuð yfir markaðsverði fyrirtækis- ins. Markaðsverðið hefur að undan- förnu verið um og yfir 360 pens, en áð- ur en Green lét vita af áhuga sínum var verðið 290 pens. Green hætti við eða leggi fram formlegt tilboð Þrátt fyrir þau átök sem nú standa yfir um eignarhald og yfirráð Marks & Spencer hefur Green ekki enn gert formlegt tilboð, aðeins greint frá fyr- irætlunum sínum og nefnt verð. Fin- ancial Times segir að Yfirtökuborðið, sem hefur eftirlit með yfirtökum á breska markaðnum, hafi farið fram á það við Green að annaðhvort leggi hann fram formlegt tilboð fyrir 6. ágúst eða láti af tilraunum til yfirtöku. Marks & Spencer snýst til varnar Útspil Stuart Rose spilar út eigna- sölu, kjarnastarfsemi og aðhaldi. ● BANDARÍSKA fyrirtækið Google Inc., sem rekur samnefnda leitarvél á Netinu, hefur ákveðið að skrá hlutabréf sín í Nasdaq-kauphöllinni en ekki í kauphöllinni í New York, NYSE. Frá því í apríl, þegar Google til- kynnti um fyrirhugaða skráningu, hef- ur óvissa ríkt um hvor kauphöllin yrði fyrir valinu, en mikill fengur þykir að því að fá Google til skráningar þar sem líklegt er að þetta verði eitt helsta frumútboð ársins. Flest tæknifyrirtæki á borð við Google hafa skráð bréf sín í Nasdaq- kauphöllinni, en Google hefur farið ótroðnar slóðir sem er ein af ástæð- um þess að vangaveltur voru uppi um hvar fyrirtækið yrði skráð. Frum- útboðið sjálft er óvenjulegt, því að fyrirtækið hyggst bjóða bréfin til sölu á Netinu í stað þess að fara hefð- bundna leið með aðstoð fjárfesting- arbanka. Ekki hefur verið upplýst í smáatriðum hvernig uppboðið mun fara fram eða hvernig bréfin verða verðlögð, en áætlað er að frumút- boðið skili Google 2,7 milljörðum dala, eða um 200 milljörðum króna. Google fer hefðbundna leið ● HLUTABRÉF í Kauphöll Íslands héldu áfram að hækka í gær og endaði Úr- valsvísitalan í 3.037 stigum eftir 1,2% hækkun yfir daginn. Vátryggingafélag Íslands, VÍS, hækkaði allra félaga mest, um 5,6%, og hefur það verið á hraðri uppleið síðustu daga og vikur. Eins og bent var á hér um daginn á VÍS tals- verðan eignarhlut í KB banka sem hafði aukist mjög að verðmæti án þess að sú hækkun hefði endurspeglast í gengi bréfa VÍS. Breska verslanakeðjan Big Food Group, sem Baugur á 22% hlut í, hélt áfram að lækka á hlutabréfamarkaði í gær. Lækkunin nam 7% og var lokagengið rúm 80 pens. Gengi Big Food Group fór í um 180 pens í byrjun febrúar á þessu ári. Hækkunin heldur áfram ● BANDARÍSKA pitsukeðjan Dom- ino’s mun á næstunni metta fleira en maga, því fjárfestar munu geta satt hungur sitt eftir hlutabréfum með kaupum í fyrirtækinu. Domino’s hyggur á skráningu í kauphöllina í New York, NYSE, og áformar að sögn BusinessWeek Online að afla 385 milljóna dala, 27 milljarða króna, með sölu á 37% hlut í fyrirtækinu. Undir nafni Domino’s eru reknir yfir 7.450 pitsustaðir í 50 löndum og velta fyrirtækisins er um 300 milljarðar króna. Keppinautar eru að sögn Business Week Online Papa John’s International og Pizza Hut. Domino’s á markað  "F (GH <99      A A (4 I     A A KK 59 '&J     A A J       A A LK4J ;< IM 0     A A

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.