Morgunblaðið - 14.07.2004, Qupperneq 16
MINNSTAÐUR
16 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Álfkonuhvarf 63-67
- Sérinngangur af svölum
- Frábært útsýni
- Frábær staðsetning með óbyggðu svæði í nánd við blokkina.
- Náttúrukyrrð
- Glæsilegar íbúðir með vönduðum innréttingum.
- Traustur byggingaraðili = Vandaðar íbúðir
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
www.borgir.is
GREGORÍANSKIR lofgjörð-
arsöngvar hljóma um sali Bragg-
ans í Núpasveit í Öxarfirði til
heiðurs Maríu mey. Bragganum
hefur verið breytt úr fjárhúsi í
fjölnotahús sem blasir við vegfar-
endum og þar stendur nú yfir
myndlistarsýning eigandans og fé-
laga.
Ingunn St. Svavarsdóttir, sál-
fræðingur og fagurlistaverkakona,
eins og hún titlar sig í símaskrá,
og maður hennar, Sigurður Hall-
dórsson, yfirlæknir í Norður-
Þingeyjarsýslu, keyptu hluta af
jörðinni Valþjófsstað í Núpasveit
og búa þar í kúluhúsi sem þau
nefna Vin. Á landi þeirra stendur
amerískur hermannabraggi sem
þar var reistur árið 1964 og var
notaður sem fjárhús. Þau hafa
innréttað braggann upp á nýtt og
komið þar fyrir vinnustofum fyrir
Ingunni og gestaíbúð. Í björtu
miðrými stendur nú yfir sýning
meðlima Súpunnar um Maríu mey.
Súpan er hópur félaga Ingunnar
úr Myndlistarskólanum á Ak-
ureyri og kennara þeirra sem hitt-
ast reglulega til að spjalla um
listina yfir súpudiski. Sýningin
stendur aðeins í hálfan mánuð og
lýkur næstkomandi laugardag.
Sátt við það
Ingunn var þekkt sem sveit-
arstjóri á Kópaskeri í áratug en
áður hafði hún starfað sem sál-
fræðingur. Fyrir nokkrum árum
söðlaði hún aftur um. „Ég var bú-
in að koma hitaveitu í sveitina og
var sátt við það. Dreif mig í
myndlistarskóla á Akureyri,“ segir
Ingunn. Hún útskrifaðist 2002 af
fagurlistabraut og þaðan er hug-
myndin að titlinum fagurlista-
Bragganum breytt úr
fjárhúsi í vinnustofu listamanns
„Líf mitt er
eins og vind-
arnir blása“
LANDIÐ
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur
dæmt karlmann á þrítugsaldri í þriggja mán-
aða fangelsi fyrir hrottalega líkamsárás á
mann á götu á Akureyri í júní í fyrra og fyrir
brot gegn valdstjórninni með því að hóta varð-
stjóra lögreglunnar á Akureyri lífláti og of-
beldi og hóta að beita fjölskyldu hans ofbeldi.
Annar karlmaður á þrítugsaldri var einnig
dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að taka þátt í líkamsárásinni og
voru mennirnir báðir dæmdir til að greiða
manninum sem þeir réðust á 330 þúsund krón-
ur í bætur.
Mennirnir tveir voru ákærðir fyrir að ráðast
gegn þriðja manninum, fella hann í götuna og
slá hann mörg hnefahögg í andlit og líkama og
sparka í hann liggjandi með þeim afleiðingum
að hann nefbrotnaði, tvær framtennur í efri
gómi brotnuðu, hann marðist og bólgnaði um
augu, hlaut sár á enni og skurðsár á vinstri
kinn og marðist og hruflaðist á vinstra hné.
Fram kemur í dómnum, að af framburði
mannanna tveggja og þess sem á var ráðist
megi ráða að væringar hafi orðið með honum
og öðrum árásarmanninum umrætt kvöld, sem
hófust í veitingahúsinu Sjallanum og héldu síð-
an áfram er þeir hittust í miðbæ Akureyrar
eftir að veitingastaðnum var lokað. Ekki hafi
orðið um alvarleg átök þeirra á milli að ræða
og virðist samskiptum þeirra hafa lokið með
vinsemd. Dómnum þótti síðan sannað, m.a.
með framburði lögreglumanna, að í framhaldi
af framangreindum samskiptum hafi báðir
hinir ákærðu veitt þeim þriðja eftirför að bíla-
planinu vestan við Borgarbíó og ráðist þar á
hann.
Þá þótti dóminum sannað, með vætti
tveggja lögreglumanna, að annar sakborning-
urinn hefði haft uppi hótanir í garð lögreglu-
manna þegar verið var að flytja hann á lög-
reglustöð og í fangaklefa.
Fangelsi
vegna líkams-
árásar
UMFANGSMIKLAR endurbætur hafa verið
gerðar á 11. braut golfvallarins á Jaðri og í
gær var brautin formlega vígð. Það voru þau
Gunnar Sólnes og Karólína Guðmundsdóttir
sem vígðu brautina en þau hafa verið lengst í
Golfklúbbi Akureyrar af núlifandi félögum.
Sú 11. er stutt par þrjú braut en þar hefur
verið byggð ný flöt og umfangsmiklar endur-
bætur verið gerðar á brautinni. Þar eru nú
tvær tjarnir við flötina og þrjár sandgryfjur.
Að sögn Halldórs Rafnssonar, formanns GA,
er kostnaður við þessar framkvæmdir um 2
milljónir króna. Það var Edwin Rögnvaldsson
sem hannaði hina nýju braut.
Halldór sagði að nauðsynlegt hefði verið að
ráðast í lagfæringar á golfvellinum en sem
dæmi nefndi hann að klúbburinn hefði misst
af umferð í Toyota-mótaröðinni sl. sumar
vegna ástands vallarins. Fyrirhugað er að
ráðast í enn frekari lagfæringar á vellinum
og er unnið eftir framkvæmdaáætlun sem
Jón Baldvin Hannesson, formaður vallar-
nefndar, hefur sett upp. GA fékk á dögunum
30 milljóna króna styrk frá Akureyrarbæ, 10
milljónir á ári næstu þrjú árin og verða þeir
fjármunir notaðir til lagfæringa á vellinum
og klúbbhúsi. Þá má einnig geta þess að veg-
urinn frá Brálundi og upp að golfvelli hefur
verið lagður olíumöl, sem er mikil bylting að
sögn Halldórs.
Mikil gróska er í golfíþróttinni á Akureyri.
Alls hafa um 130 nýliðar gengið til liðs við
klúbbinn á árinu og eru félagar nú um 600
talsins og hafa aldrei verið fleiri. Einnig hef-
ur verið unnið að því að bæta innra starf
klúbbsins og hefur sú vinna farið vel af stað,
að sögn Halldórs. Jafnframt er unnið að því
að GA verði fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
Morgunblaðið/Kristján
Betra að hitta flötina. Við elleftu flötina eru nú tvær tjarnir og þrjár sandgryfjur.
Ellefta brautin
formlega vígð
Gunnar Sólnes „vippar“ inn á flötina á 11.
braut. Karólína Guðmundsdóttir fylgist með.
Á FJÓRÐA tug tillagna barst í opna samkeppni
um hönnun menningarhúss á Akureyri. Að sögn
Jónasar Karlessonar, ritara dómnefndar sam-
keppninnar, rann skilafrestur tillagna út í byrj-
un síðustu viku og mun dómnefndin hefja störf í
dag. Jónas sagði að dóm-
nefndin ætlaði að vinna hratt
og stefndi að því ljúka störf-
um í lok næsta mánaðar.
Miðað við núverandi tíma-
áætlun er gert ráð fyrir verk-
lokum í ágúst 2006.
Í dómnefndinni eru tveir
fulltrúar Akureyrarbæjar,
bæjarfulltrúarnir Sigrún Björk Jakobsdóttir og
Oddur Helgi Halldórsson, tveir fulltrúar Arki-
tektafélags Íslands, Þorvaldur S. Þorvaldsson
arkitekt og Guðrún Ingvarsdóttir, arkitekt og
fulltrúi menntamálaráðuneytisins, Guðmundur
Árnason ráðuneytisstjóri, sem jafnframt er for-
maður dómnefndar.
Heildarkostnaður við bygginguna
áætlaður rúmir 1,2 milljarðar króna
Menningarhúsið mun rísa á uppfyllingunni á
horni Strandgötu og Glerárgötu og er heildar-
kostnaður við bygginguna áætlaður rúmir 1,2
milljarðar króna. Ríkið greiðir 60% af kostnaði
við framkvæmdina, á móti 40% hlut Akureyr-
arbæjar.
Samkvæmt tillögu verkefnisstjórnar um
byggingu menningarhússins, verður 500 manna
tónlistarsalur í húsinu, auk fjölnotasalar sem
rúmar 200 manns og nýtist við fjölbreytileg
tækifæri. Húsið verður um 3.500 fermetrar að
stærð.
Opin samkeppni um hönnun
menningarhúss á Akureyri
Á fjórða
tug tillagna
barst
AKUREYRI
Sundlaugin lokuð | Framkvæmdir standa
nú yfir við nýju íþróttamiðstöðina við Greni-
víkurskóla, en þar er verið að byggja nýja bún-
ingsaðstöðu við íþróttahúsið og í leiðinni að
bæta við húsnæði grunnskólans.
Vegna framkvæmdanna hefur orðið að loka
sundlauginni um óákveðinn tíma. Við veg
Grýtubakkahrepps eru íbúar og gestir beðnir
velvirðingar „á þessum leiðindum en fram-
kvæmdir ganga samkvæmt áætlun og sund-
laugin mun verða opnuð aftur við fyrsta tæki-
færi,“ segir á vefnum.
Sígræn djasslög | Kvartett Kára leikur á
fjórða heita fimmtudeginum í Deiglunni við
Kaupvangsstræti á fimmtudagskvöld, 14. júlí,
kl. 21.30. Kvartettinn er skipaður Kára Árna-
syni, trommur, Tómasi R. Einarssyni, kontra-
bassa, Snorra Sigurðssyni, trompet og Ómari
Guðjónssyni, gítar. Kvartettinn leikur einkum
„sígræn djasslög í nýjum búningi og er djass-
inn í flokki auðmeltanlegra og þægilegra
djasssöngva,“ eins og segir í frétt um tón-
leikana.