Morgunblaðið - 14.07.2004, Blaðsíða 17
verkakona komin. Það var mikið
starf að breyta Bragganum og
telst því verki nú lokið. Bragginn
er eiginlega stórt listaverk þar
sem hann hefur verið málaður að
utan í skrautlegum litum og blasir
við vegfarendum sem leið eiga um
veginn til Kópaskers.
Ingunn hefur ekki í hyggju að
opna þar gallerí. Hún segist hafa
áhuga á að hafa sýningu í stuttan
tíma á sumrin, svipaða þeirri sem
nú stendur yfir. „Mig langar að
vinna meira í listinni og læra
meira. Notkun Braggans mun
þróast og líf mitt er eins og vind-
arnir blása, það er svo gaman,“
segir Ingunn.
Fagurlistaverkamaður: Ingunn St. Svavarsdóttir sýnir verk sitt, Hvítu
Maríu, í Bragganum. Sýning Súpunnar er tileinkuð Maríu mey.
Morgunblaðið/Kristbjörg
Fjölnotahús: Bragginn er stórt listaverk sem blasir við vegfarendum um Núpasveit.
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 17
REYKJAVÍK • AKUREYRI
Sláttuorf
Þau mest seldu.
Tilvalin í garðinn
og sumarbústaðinn.
Verð frá
kr. 10.500.-
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Heimsferðir selja nú síðustu sætin í sólina um verslunarmannahelgina og
bjóða þér einstök tilboð á vinsælustu áfangastaði Íslendinga. Bókaðu
núna og tryggðu þér síðustu sætin. Sjá nánar á www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 39.990
M.v. hjón með 2 börn, 2 - 11 ára,
stökktutilboð, 28.júlí. Netverð
Síðustu sætin
í sólina um
verslunarmanna
helgina
Mallorka
Verð kr. 49.990
M.v. 2 í íbúð/herbergi, stökktutilboð,
28.júlí, vikuferð. Netverð.
Verð kr. 39.990
M.v. hjón með 2 börn, 2 - 11 ára,
stökktutilboð, 29.júlí, vikuferð. Netverð.
Rimini
Verð kr. 49.990
M.v. 2 í studio/herbergi, 29.júlí,
vikuferð, stökktutilboð, Netverð.
Verð kr. 39.995
M.v. hjón með 2 börn, 2 - 11 ára,
stökktutilboð, 28.júlí, vikuferð. Netverð.
Portúgal
Verð kr. 49.990
M.v. 2 í íbúð, vikuferð með sköttum,
stökktutilboð. Nnetverð. 28.júlí
Verð kr. 39.995
Trinisol, hjón með 2 börn, 2 - 11 ára,
vikuferð, Netverð. 28.júlí
Benidorm
Verð kr. 49.990
M.v. 2 í íbúð, Tinisol III, vikuferð.
Netverð. 28.júlí
Verð kr. 29.990
Flugsæti með sköttum. Netverð
Barcelona
Verð kr. 39.990
M.v. 2 í íbúð/herbergi, NH Master,
29.júlí, vikuferð. Netverð..
Verð kr. 29.990
Flugsæti með sköttum. Netverð
Verona
Verð kr. 39.990
M.v. 2 í herbergi, hótel Maxim, 5 nætur,
29.júlí, vikuferð. Netverð.
Sandgerði | Áttatíu ungmenni úr
unglingadeildum björgunarsveita
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
á Suðvesturlandi voru á lands-
hlutamóti við bæinn Nesjar í
Hvalsneshverfi um helgina. Með
þeim voru fjörutíu leiðbeinendur.
Krakkarnir æfðu sig í björg-
unarstörfum og sum kynntust nýj-
um verkefnum á því sviði.
Landshlutamót unglingadeilda
björgunarsveitanna eru haldin
annað hvert ár, á móti lands-
mótum deildanna. Á mótinu í
Sandgerði voru félagar úr átta
unglingadeildum á svæðinu frá
Snæfellsnesi og austur að Hellu.
Margrét Lilja Heiðarsdóttir og
Helena Magnúsdóttur, umsjón-
armenn unglingadeildarinnar Von-
ar í Sandgerði, og Gunnlaugur
Ottesen frá Björgunarsveitinni
Sigurvon voru aðalskipuleggj-
endur mótsins í Sandgerði. Mar-
grét Lilja segir að mótið hafi
gengið vel.
„Við leyfðum krökkunum að
kynnast ýmsum störfum tengdum
sjónum, en það eru einmitt þær
æfingar sem við leggjum áherslu á
hér í Sandgerði vegna þess að við
erum sjóbjörgunarsveit,“ segir
Margrét. Kynnt var notkun flug-
línutækja þar sem æfð var björgun
manns af báti og í land. Æfð var
notkun á gúmmítuðrum og krakk-
arnir fengu að prófa köfun sem
margir höfðu ekki gert áður. Einn-
ig var skyndihjálparæfing þar sem
bílslys var sett á svið.
Á laugardaginn var slegið upp
grillveislu og farið í leiki við sund-
laugina í Sandgerði. Æfingunni
lauk síðan með siglingu úr Sand-
gerðishöfn með tveimur björg-
unarskipum sem komu úr Hafn-
arfirði og Grindavík.
Haldið frá ruglinu
Margrét Lilja sem er liðlega tví-
tug gekk í unglingadeildina í
Sandgerði fimmtán ára og færðist
síðan upp í björgunarsveitina við
átján ára aldur. „Þetta er æðislega
gefandi og skemmtilegt starf, ekki
síst félagsskapurinn,“ segir hún.
Margrét segist hafa ánægju af að
starfa með unglingunum sem um-
sjónarmaður deildarinnar. Hún
segir að mest áhersla sé lögð á
forvarnir. Markmiðið sé að halda
krökkunum frá ruglinu. Starfið
felist mest í göngum, ferðalögum
og námskeiðum. Hún segir að ekki
sé lögð eins mikil áhersla á þjálfun
í björgunarstörfum eins og víða
annars staðar en krakkarnir hljóti
þó grunnþjálfunina og síðan taki
alvaran við þegar þau gangi upp í
björgunarsveitina. Þá sé farið á
fleiri námskeið og þjálfunin tekin
fastari tökum þannig að björg-
unarsveitarfólkið sé tilbúið þegar
á þarf að halda.
Áttatíu krakkar á landshlutamóti unglingasveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Æfing: Unga björgunarsveitafólkið fékk að spreyta sig á björgun með fluglínutækjum á mótinu í Sandgerði.
Gefandi og skemmtilegt starf
Leiðbeinendur: Magrét Lilja Heiðarsdóttir og Sigurður Stefánsson úr
Björgunarsveitinni Sigurvon voru meðal leiðbeinenda á námskeiðinu.
SUÐURNES
Fréttasíminn
904 1100