Morgunblaðið - 14.07.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.07.2004, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 23 S kýrsla Ríkisendurskoð- unar um háskólastigið er að mörgu leyti grein- argóð lýsing á þeim gíf- urlegu breytingum er orðið hafa á íslensku háskóla- samfélagi síðastliðinn áratug. Sú gífurlega gróska sem skýrslan lýs- ir á sér líklega fá fordæmi í menntasögu okkar Íslendinga. Óhætt er að fullyrða að þessi ára- tugur hafi verið mesta grósku- og umbreytingaskeið í íslensku há- skólalífi frá stofnun Háskóla Ís- lands. Því miður virðist hins vegar sem helsti talsmaður Samfylking- arinnar í menntamálum hafi ekki gefið sér tóm til að lesa skýrsluna áður en hann fór að básúna það út að skýrslan væri „nokkuð afdrátt- arlaus áfellisdómur yfir stefnu- og metnaðarleysi“ stjórnvalda í mál- efnum háskólastigsins. Það kemur þó í sjálfu sér ekki á óvart þar sem það hefur sjaldan flækst fyrir talsmönnum þessa ágæta flokks að hafa skoðanir á málefnum án þess að kynna sér efnisatriði málsins. Skýrsla Ríkisendurskoðunar hefst raunar á eftirfarandi setn- ingu: „Á undanförnum árum hefur verið mikil gróska í háskóla- menntun á Íslandi.“ Sem í túlkun Samfylkingarinnar útleggst sem „skilningsleysi á mikilvægi há- skólastigsins“ og „vegferð án fyr- irheits“. Hver er sú vegferð sem skýrsla Ríkisendurskoðunar lýsir? Fjöldi þeirra nemenda er stunda há- skólanám á Íslandi hefur tvöfald- ast á þessum áratug. Árið 1993 voru skráðir nemendur við ís- lenska háskóla 7.000 en tæplega 14 þúsund árið 2002. Nýir skólar á háskólastigi hafa bæst við. Há- skólinn í Reykjavík og Við- skiptaháskólinn á Bifröst urðu til á þessum tímabili. Sömuleiðis Listaháskólinn og Tækniháskólinn. Námsframboð hefur stóraukist og bjóða íslenskir skólar á há- skólastigi nú upp á 300 náms- brautir en þeim hefur fjölgað um 100 frá árinu 1999. Framlög til há- skóla nema um ellefu milljörðum frá hinu opinbera. Það kann vel að vera að þessi þróun hafi farið fram hjá tals- mönnum Samfylkingarinnar. Lík- legra er hins vegar að þeir kjósi að horfa fram hjá henni og reyna með innantómum frösum að beina athygli manna frá henni. Stað- reyndirnar blasa hins vegar við öllum þeim er fylgst hafa með þróun háskólastigsins síðastliðin ár. Drifkrafturinn í þessari já- kvæðu þróun hefur verið sú skýra stefna að auka frelsi í skólamálum. Því má hins vegar aldrei gleyma að frelsi fylgir jafnframt ábyrgð. Ríkisendurskoðun gerir nokkuð úr því að íslensk stjórnvöld skorti stefnu í málefnum háskólastigsins að því leytinu til að ekki hafi verið sett töluleg og tímasett markmið. Bent er á að Hollendingar stefni að 50% þátttöku í háskólanámi ár- ið 2010 og að Bretar stefni að því að 50% þeirra sem orðnir eru 30 ára hafi hafið nám á háskólastigi árið 2010. Það er umhugsunarefni hvort við eigum sömuleiðis að setja okk- ur markmið sem þessi. Hver svo sem niðurstaðan verður er ljóst að við erum nú þegar að ná því markmiði að 50% hvers árgangs hefji háskólanám. Því hefur menntasókn síðasta áratugar, sem skilmerkilega er lýst í skýrslu Ríkisendurskoðunar, skilað. Þessum miklu um- breytingum fylgja hins vegar óneitanlega og óhjákvæmilega vaxt- arverkir. Ríkisend- urskoðun bendir á nokk- ur atriði, sem ég er sammála um að rétt er að skoða vandlega á næstu misserum. Ég hef til dæmis lagt ríka áherslu á að skýrar gæðakröfur verði gerðar til háskóla. Ríkið greiðir fyrir þjón- ustu háskólanna að miklu leyti og ber því skylda til að fylgjast með hvernig þeim fjármunum er varið. Hin mikla fjölgun námsbrauta er þannig fagnaðarefni. Fjölgunin má hins vegar aldrei verða á kostnað gæða. Þeirri spurningu er einnig varp- að fram í skýrslunni hvort íslensk- ir skólar séu of margir og smáir og fjármagnið of dreift til að þeir geti fullnægt kröfum um kennslu og rannsóknir til jafns við erlenda háskóla. Það ber að mínu mati að skoða rækilega og með opnum huga hvort ástæða sé til að þeir skólar sem nú eru starfandi taki upp formlegra samstarf í auknum mæli til að nýta krafta sína betur og jafnvel hvort hugsanlega séu forsendur fyrir samruna skóla til að mynda stærri og sterkari ein- ingar. Það hefur margt áunnist og við munum áfram láta verkin tala. Það er hins vegar ótrúlegt að sjá hversu innantóm „samræðustjórn- mál“ Samfylkingarinnar reynast vera. Það er sorglegt að sjá ungan þingmann halda innihaldssnauðum frösunum á lofti trekk í trekk og ganga jafnvel svo langt að vilja gengisfella sjálfstæðu háskólana sem tekið hafa til starfa á und- anförnum árum. Trúir því nokkur maður að tilkoma Háskólans í Reykjavík, Viðskiptaháskólans á Bifröst og Listaháskólans hafi orð- ið til að „gengisfella háskólanámið almennt“? Það væri stórkostlegt áfall fyrir íslenskt þjóðfélag og menntakerfi ef slík sjónarmið réðu ferðinni við stjórn menntamála. Afdráttar- laus gróska Eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur ’Það ber að mínu mati aðskoða rækilega og með opn- um huga hvort ástæða sé til að þeir skólar sem nú eru starfandi taki upp formlegra samstarf í auknum mæli til að nýta krafta sína betur og jafnvel hvort hugsanlega séu forsendur fyrir samruna skóla til að mynda stærri og sterkari einingar.‘ Höfundur er menntamálaráðherra. Morgunblaðið/Kristinn Austurlöndum og að þróa þær viðræður áfram í raun- verulegt samstarf. Við hleyptum einnig af stokkunum „Istanbúl-samstarfsverkefninu“, það felur í sér raun- hæfa aðstoð í öryggismálum við þjóðirnar í Mið- Austurlöndum. Mörg aðildarríki Persaflóaráðsins hafa þegar lýst yfir áhuga á samstarfivið NATO og við förum því vel af stað hvað þetta varðar. NATO-fundurinn í Istanbúl sýndi skýrt að Atlants- hafs-samstarfið felur í sér að litið er til þeirra vandamála sem aðkallandi eru í dag og í okkar nánustu framtíð og að bandalagið er reiðubúið til að takast á við þær erfiðu áskoranir sem blasa við í öryggismálum, hvar í heim- inum sem er. Fundurinn sá NATO fyrir auknum póli- tískum og hernaðarlegum tækjum til að stuðla að stöð- ugleika þar sem stöðugleika er þörf. Mestu máli skiptir að fundurinn staðfesti hlutverk bandalags lýðræðisríkja beggja vegna Atlantsála, að þessi ríki deila sömu gildum og að bandalagið sé það afl sem best er í stakk búið til að móta framtíð okkar með jákvæðum hætti. an kafla í samskiptum okkar við aðrar þjóðir: þessu fylgja tækifæri fyrir ríki til að þróa samband sitt við NATO þannig að henti hverju fyrir sig, lögð er aukin áhersla á umbætur í varnarmálum og sjónum beint í rík- ari mæli til Kákasus-svæðisins og Mið-Asíu. Ennfremur lýstum við ánægju okkar með þann áhuga sem Rússar og Úkraínumenn hafa sýnt á því að taka þátt í „Active Endeavor“, æfingum okkar í Miðjarðarhafinu sem mið- ast að því að styrkja varnir gegn hryðjuverkum á sjó, en við teljum hann enn eina vísbendinguna um sívaxandi mikilvægi samstarfs okkar við þessar þjóðir. Að síðustu er rétt að nefna Miðjarðarhafið og stöðuna í Mið-Austurlöndum. NATO ákvað í Istanbúl að bjóða aðstoð sína á nýjum svæðum sem mikilvæg hljóta að teljast, einkum og sér í lagi í Mið-Austurlöndum. Þróun mála þar skiptir meira máli fyrir öryggi okkar á næstu árum en þróunin nokkurs staðar annars staðar. Við þurfum á því að halda að ríki beggja vegna Atlantshafs- ins leggi sitt af mörkum í þessum heimshluta með mark- vissum hætti, NATO verður hluti af þeirri viðleitni. Við samþykktum að leggja aukna áherslu á Miðjarðarhafs- viðræður okkar við sjö ríki í Norður-Afríku og í Mið- fhæf. r ráð- itískt na að- afli verði mann- O. önnur fulltrúar u, Eist- og Slóv- ar væru ga í um til að nig nýj- r Istanbúl Reuters stanbúl í Istanbúl. Davíð Oddsson forsætisráðherra er lengst til vinstri, við hlið hans er George W. Bush Bandaríkjaforseti, þá Kjell acques Chirac Frakklandsforseti, Simeon Saxe-Coburg, forsætisráðherra Búlgaríu, og lengst til hægri er greinarhöfund- tjóri NATO. n að m- Höfundur er framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO). við beinum þeim tilmælum til viðeigandi stjórnvalda [þegar kínverskan gest ber að garði] að þau hafi hemil á mótmælendum, að þau hafi stjórn á aðstæðum, til að tryggja að heimsóknin gangi vel fyrir sig.“ Alnæmi vandamál í Kína Wang er spurður um nýleg ummæli Wens Jiabao, forsætisráðherra Kína, varðandi útbreiðslu HIV-veirunnar og al- næmis (AIDS) í Kína en athygli vakti að Wen skyldi tala jafnopinskátt um vandann og raun bar vitni. „Persónulega hef ég sett þetta mál mjög á forgangslista eftir að hafa starfað á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna,“ segir Wang. „Mikilvægast er að menn taki höndum saman um að vekja fólk til vitundar um þann mikla vanda sem við stöndum nú frammi fyrir og sem al- næmi er. Ég fékk á sínum tíma tækifæri til að heimsækja mörg Afríkuríki og ég sá með eigin augum þann vanda sem HIV- veiran og alnæmi hefur valdið þar. Það halda því margir fram að AIDS sé nú stærsti vandinn sem Afríkubúar standa frammi fyrir, ekki fátækt eða stríð. Ég er fyllilega sammála því mati. Ég hef því reynt að vekja athygli á þessu vandamáli. Hitt er ánægjulegt að geta greint frá því að allir helstu forystumenn í kínversk- um stjórnmálum hafa sett baráttuna gegn alnæmi á forgangslista. Ástandið í Kína er ekki eins slæmt og í sumum löndum Afr- íku; nýjustu tölur gefa til kynna að um 800.000 Kínverjar séu smitaðir af HIV eða með alnæmi. En alnæmi breiðist hratt út og mér skilst að spár bendi til að ef ekki verði gripið til róttækra ráðstafana þá verði árið 2010 um tíu milljónir Kínverja smitaðir. Þessi ríkisstjórn leggur því mikla áherslu á að bregðast við þessum vanda. Og ég er ekki í neinum vafa um að við getum haldið alnæmi í skefjum,“ sagði Wang Yingfan. gan gest beri að garði, eins og an þjóðarleiðtoga, þá sé eðlilegt eyni að tryggja að allt gangi vel Við sýnum gestinum ávallt til- urteisi,“ segir hann. „Það er ræmi við kínverskar hefðir að dur fái að hrópa að hinum er- ursgesti ýmis ókvæðisorð eða um hitt og þetta. Við reynum að á slíkum uppákomum. Við reyn- ósi þess að Falun Gong stendur herferð, að komast hjá þeim m sem þess háttar mótmæli . Þetta er líka ástæða þess að ’[...] alnæmi breiðisthratt út og mér skilst að spár bendi til að ef ekki verði gripið til róttækra ráðstafana verði árið 2010 um tíu milljónir Kín- verja smitaðar.‘ Morgunblaðið/Eggert fan lýsir eftir því að Evrópusambandið taki að sér stærra hlutverk. „Heims- að vera á forræði allra þjóða. Við viljum ekki að eitt stórveldi ráði öllu.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.