Morgunblaðið - 14.07.2004, Side 26

Morgunblaðið - 14.07.2004, Side 26
MINNINGAR 26 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ www.mosaik.is LEGSTEINAR sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960 Guðmundur Jóhannsson f. 10. 6. 1932 d. 8. 3. 1989 Minning þín lifir Hvíl í friði ✝ Gunnar Christi-ansen fæddist á Skála í Færeyjum 12. mars 1948. Hann lést 5. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Anton Christiansen, f. 5. mars 1915, d. 12. október 1970, og Semona Christian- sen, f. 22. júlí 1923, d. 26. febrúar 1998. Systir Gunnars er Judith Elísabet Christiansen, f. 21. október 1944. Gunnar kvæntist 24. maí 1970 Hólmfríði S. Krist- insdóttur, f. 10. ágúst 1950. Dótt- ir þeirra er Elísabet Anna Christiansen, f. 11. febrúar 1972, sambýlismaður Svavar Örn Guð- jónsson, f. 21. ágúst 1976, dóttir þeirra er Ísabella Eir, f. 7. ágúst 2003. Fyrir átti Elísabet tvær dætur, Hallfríði Sunnu, f. 16. desember 1991, og Tönju Björk, f. 12. feb. 1996. Gunnar lauk námi í kjötiðn 1968 og starfaði við þá iðn lengst af. Síðustu árin starfaði hann sem sölumaður. Gunnar bjó ásamt fjölskyldu sinni 4 ár í Færeyjum og 9 ár í Svíþjóð. Hann var í Íslenska kórnum í Gautaborg og Þing- eyingakórnum síð- ustu árin. Gunnar var mikill áhuga- maður um knatt- spyrnu og starfaði við hana bæði hjá Þrótti í Reykjavík og B36 í Færeyjum. Einnig vann hann mikið við félagsstörf og var í stjórn Íslendingafélagsins í Fær- eyjum og Svíþjóð og Færeyinga- félagsins í Reykjavík. Útför Gunnars verður gerð frá Fella- og Hólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Far þú í friði, ástin mín. Fríða. Elsku besti pabbi minn. Mig langar til að skrifa nokkur kveðjuorð til þín, elsku pabbi minn. Já, kveðjuorð, hver hefði haldið að það yrði á þessum tímapunkti. Ég er enn að ná áttum og reyna að telja mér trú um að þetta sé satt. Þetta er svo sárt, pabbi, ég er svo reið, svo ósátt. Af hverju þurfti að taka þig frá okkur núna strax. Þú varst bara 56 ára og áttir eftir að gera svo margt, við áttum eftir að gera svo margt saman. Það eru svo margar spurningar sem koma upp, ef þetta og ef hitt. Spurningar sem verður aldrei svar- að. Þú barðist samt eins og hetja í veikindum þínum sem stóðu yfir í lengri tíma en nokkur maður vissi um. Þú varst ekki sú manngerð að kvarta yfirhöfuð. Þú varst alltaf hraustur og svo duglegur, hvern hefði órað fyrir því að eitthvað þessu líkt myndi gerast. Þú áttir það svo sannarlega skilið að fara að hafa það gott, þið mamma saman. Þú ætlaðir að fara að slaka aðeins á og spila golf með strákunum þegar þú yrðir frískur og hætta að taka að þér svona mikið af verkefnum. Æ, þetta er svo óraunverulegt, svo ósanngjarnt. Af hverju þurftir þú að fá svona sjaldgæfan sjúkdóm. Við áttum svo sérstakt samband, þú og ég. Við heyrðum alltaf reglu- lega hvort í öðru en í þau fáu skipti sem heill sólarhringur fékk að líða sagði mamma: „Nú er hann pabbi þinn kominn með fráhvarfsein- kenni“. Þú getur rétt ímyndað þér hvernig það verður að heyra ekki í þér meir. Þú varst alltaf til staðar fyrir alla, vildir alltaf hjálpa til eins mikið og þú gast og helst meira. Þú varst svo góðhjartaður maður og alveg ein- stakur. Þú varst líka svo skemmti- legur og gast oftar en ekki komið fólki til að brosa eða jafnvel skelli- hlæja. Ég mun sakna þess að fá ekki að fíflast meira með þér, við tókum oft ágætis rispur saman og þótti öðrum gaman að. Þetta eru allt dýr- mætar minningar sem ég mun ávallt geyma, elsku pabbi minn. Það eru forréttindi að hafa átt þig að sem föður og vildi ég engu hafa breytt, þú varst fullkominn í mínum augum. Stelpurnar eiga eftir að sakna þín mikið og þarf ekki að segja að þú varst auðvitað besti afi í heimi. Það ætla allir að hjálpa Ísabellu Eir, sem er svo lítil, að minnast þín. Ég elska þig, pabbi minn, og mun ávallt gera. Ég gæti setið endalaust og skrifað en ég ætla að ljúka þessu og kveðja þig með orðunum sem ég hvíslaði alltaf í eyru þín þegar ég kvaddi þig eftir heimsóknir á spít- alann: „Bless pabbi minn, ég elska þig, góða nótt, sofðu vel og Guð geymi þig, gussi nussi.“ En nú sjáumst við ekki á morgun. Nú munu Guðs englar, amma og afi og aðrir ástvinir, sem kvatt hafa jarðríki, taka á móti þér opnum örmum. Ég er viss um að þú verður ávallt til staðar sem okkar vernd- arengill og fylgist með litlu fjöl- skyldunni þinni og leiðir okkur á rétta braut. Við munum svo hittast síðar á nýjum stað. Við mamma pössum hvor aðra vel á meðan. Elsku mamma mín, Judith og aðr- ir ástvinir, við biðjum Guð að styrkja okkur öll í þessari miklu sorg. Þín litla pabbastelpa Elísabet. Elsku Gunni. Mín fyrstu kynni af þér voru mjög ánægjuleg í byrjun ársins 2002. Ég sá strax hversu góður maður þú varst, og hversu mikið og gott þú gafst af þér. Hvernig þær Sunna og Tanja löðuðust að þér og Fríðu hef- ur mér alltaf fundist afar hjart- næmt. Einnig var augljóst strax frá byrjun hversu gott samband þitt við hana Elísabetu var. Það er í mínum augum alveg einstakt. Ég man að ég var með smá hnút í maganum þarna í ársbyrjun 2002 þegar ég var í þann mund að hitta þig í fyrsta skiptið. Ég man svo vel eftir því. Ég var búinn að hitta Fríðu eitthvað áður og hún var ynd- isleg eins og hún er ávallt. Þessi smá hnútur í maganum hvarf um leið og þú gekst inn. Jafn viðkunn- anlegan og þægilegan mann hef ég aldrei hitt. Mér leið strax vel í kringum þig og Fríðu. Og mér fannst alltaf gaman og gott að hafa ykkur nálægt. Hverjum hefði dottið það í hug að þú skyldir hverfa á braut svo skyndilega tveimur og hálfu ári síð- ar. Hver hefði trúað að slíkt gæti gerst með jafn heilsuhraustan mann. Þú sem varst góðmennskan uppmáluð og gerðir allt fyrir alla eins vel og þú gast. Þegar ég sit hér og hugsa til þín koma svo margar góðar minningar upp í huga mér. Þessi ár sem ég upplifði með þér eru búin að vera svo góð. Það er sárt að missa þig svo ungan. Ég finn fyrir reiði yfir því að þú skulir þurfa að kveðja svona skyndilega. Af hverju svona góður maður eins og þú. Ég veit að ég á aldrei eftir að sætta mig við þurfa að kveðja þig svona snemma, Gunni minn, en ég mun læra að lifa við þetta og takast á við það að þú skul- ir ekki vera lengur á meðal okkar. En minningarnar gleymast aldrei. Við höfum alltaf þessar góðu minn- ingar sem hlýja okkur um hjarta- rætur er við minnumst þín um ókomin ár. Elsku Fríða, Judith, Elísabet, Sunna, Tanja, Ísabella og aðrir að- standendur. Ég votta ykkur dýpstu samúð mína. Megi guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Þinn tengdasonur, Svavar Örn Guðjónsson. Elsku besti afi. Frá því ég fæddist hefur þú verið besti afi í heimi. Mér finnst erfitt að hugsa til þess að þú sért farinn. Þú varst alltaf svo góður við mig og skilningsríkur. Þú hefur gefið mér ást þína og allan styrk sem ég þarf frá þér. Þegar ég söng á tónleikum í söngskólanum komst þú og horfðir á og gafst mér styrk. Þú hefur alltaf hjálpað mér og huggað mig þegar ég hef þurft á því að halda og gert mig glaða, elsku besti afi í heimi. Ég vildi að þú hefðir aldrei farið frá okkur, því við elskum þig svo mikið. Ég vona að þér líði betur núna, og finnir ekki eins mikið til. Ég mun alltaf elska þig mikið. Núna ertu hjá guði og hann mun alltaf passa þig. Ég mun sakna þín alla mína ævi. Elsku besti afi í heimi. Kær kveðja, Sunna. Elsku afi. Ég er viss um það að þú varst besti afi í heimi. Það var alltaf gam- an að hitta þig og þú varst svo góð- ur. Það er svo rosa sárt að hitta þig aldrei aftur. Ég skal passa ömmu vel fyrir þig. Bless elsku afi minn. Þín Tanja Björk Ég vil minnast mágs míns, Gunn- ars Christiansen, sem lést langt um aldur fram. Gunnar var ljúfmenni og höfðingi heim að sækja. Öðru eins snyrtimenni hef ég ekki kynnst. Kynni mín af Gunna eins og hann var oftast kallaður, hófust fyrir rúmum 30 árum er hann hóf sambúð með systur minni, Hólmfríði Krist- insdóttur. Gunnar kom mér fyrir sjónir sem mikið gæðablóð, sem vildi allt fyrir alla gera, ég kunni strax vel við þennan Færeying sem var ekki hár í loftinu, en því stærri maður hið innra. Það sem kemur fyrst upp í hug- ann þegar ég rifja upp kynni mín af Gunnari er snyrtimennskan, ég man ekki til þess að hafa séð Gunnar öðru vísi en snyrtilegan til fara, hvað þá að skórnir hans væru skít- ugir. Á þessum árum sem við vorum yngri, þá var það nær daglegt brauð að við strákarnir værum skítugir, skríðandi undan einhverri bíldrusl- unni, en Gunna sá maður aldrei skít- ugan. Mig minnir að fyrsti bíll Gunna hafi verið Rambler American 64 sem mér fannst flottur, held að hann hafi hangið saman á snyrti- mennskunni einni saman, því ekki voru þetta nýir bílar sem við vorum með í höndunum, en þóttumst sælir af. Gunnar fluttist ungur að árum til Íslands, frá Færeyjum, og kom úr ástríku umhverfi, frá fjölskyldu sem sómi er að hafa tengst. Gunnar var lærður kjötiðnaðarmaður og vann við það til fjölda ára, fyrstu árin vann hann hjá Gunnari Ingólfssyni í kjötbúðinni Hólmgarði 34, og mynd- aðist með þeim kær vinnátta sem entist fram á síðasta dag. Þar hófst líka ástarsamband Gunnars og syst- ur minnar Fríðu, og er mér það minnisstætt, að þau þóttu lukkuleg að aka heim að loknum vinnudegi á Ford Anciliu sem var sendiferðabíll kjötbúðarinnar. Gunnar hafði mikinn áhuga á tón- list og hafði ótrúlega þolinmæði að taka upp tónlist, sem á þessum ár- um var öll á kassettum, það þurfti að spóla fram og til baka og passa upp á að öll lögin kæmust fyrir á kassettunni, þetta dundaði hann sér við öllum stundum, blístrandi eða syngjandi rólegur. Gunnar var aldrei að sýnast, ég minnist þess heldur ekki að hafa heyrt hann tala illa um nokkurn mann eða dæma fólk. Hann átti sér drauma og metnað, sem rættust upp og ofan eins og hjá okkur flestum. Gunnar var mikil félagsvera, var stússandi í félagsstarfi út og suður og framan af í félagsstarfi Knatt- spyrnufélagsins Þróttar, var spil- andi í hljómsveitum og syngjandi í kórum, fór hann svo vítt yfir að ég náði aðeins að fylgjast með úr fjar- lægð. Skyndileg veikindi sem virtust við fyrstu sýn ekki vera meira en venjuleg flensa, eins og hann hélt sjálfur fram, báru þennan góða dreng ofurliði. Fríða, Judith, Beta, Sunna, Tanja og Ísabella, megi algóður Guð styrkja ykkur í sorg og söknuði. Góður eiginmaður, vinur og afi er fallinn frá. Guð geymi þig, kæri mágur, þakka þér fyrir að hafa leyft mér að kynnast þér. Jón Kr. Kristinsson. Það er ekki ofsögum sagt að sam- félag Færeyinga á Íslandi hafi orðið fyrir miklu áfalli nú þegar Gunnar féll frá. Gunnar hefur undanfarin ár verið einn af samhentri stjórn Færey- ingafélagsins í Reykjavík og hefur starf hans fyrir félagið einkennst af óeigingirni og dugnaði. Sjálf hefur undirrituð þekkt Gunnar lengi, en þau kynni urðu enn ánægjulegri þegar hann tók sæti í stjórn Færeyingafélagsins í Reykjavík árið 2000 og höfum við unnið saman á þeim vettvangi síðan. Það var okkur í stjórninni mikið áfall að heyra af alvarlegum og óvæntum veikindum Gunnars og hugur okkar hefur verið með hon- um, Fríðu og þeirra nánustu þennan tíma. Framlag Gunnars til Færeyinga á Íslandi hefur verið mikið á undan- förnum árum. Hann hafði mikinn áhuga á að flugsamgöngur á milli Færeyja og Íslands yrðu betri og tíðari og átti hann í því sambandi marga fundi með færeyska flug- félaginu um að fjölga flugferðum en hafa verðið jafnframt hóflegt. Fær- eyingar og Íslendingar munu njóta ávaxta af því starfi hans á komandi árum. Störf hans fyrir stjórn Fær- eyingafélagsins hafa annars verið fjölbreytt og má m.a. nefna dugnað hans og ósérhlífni við undirbúning á hinum ýmsu veislum og skemmtun- um sem félagið stendur fyrir á ári hverju. Skarð Gunnars verður vand- fyllt í þeim efnum sem öðrum. Einn- ig lagði hann mikla vinnu í ýmis menningarkvöld tengd Færeyjum og var hann mikilvægur tengiliður fyrir stjórnina við færeyinga og fær- eyingavini úti um allt land. Mikil reynsla Gunnars af fé- lagsmálum kom sér einnig vel fyrir innra starf stjórnarinnar þannig að þegar kom að lausn ýmissa vanda- mála átti hann jafnan stóran þátt í farsælli lausn. Fyrir það og öll hans störf í þágu Færeyinga á Íslandi er- um við honum ævinlega þakklát. Síðast en ekki síst hefur Gunnar reynst okkur öllum góður vinur og félagi og munum við eiga góðar minningar um samverustundir með honum. Fyrir hönd Færeyingafélagsins í Reykjavík vil ég senda innilegar samúðarkveðjur til Fríðu, Elísabet- ar og annarra ástvina Gunnars. Elin Svarrer Wang, formaður Færeyingafélags- ins í Reykjavík. Elsku Gunni. Eða afi Gunni eins og Íris Ósk kallaði þig alltaf. Okkar fyrstu kynni voru í Svíþjóð árið 1990 þegar við fluttumst þang- að. Við, ungir krakkar með ársgam- alt barn á vit ævintýranna. Eftir stutta veru okkar í Svíþjóð kynnt- umst við Betu sem alltaf var svo vilj- ug að passa fyrir okkur Írisi Ósk ef við þurftum á því að halda og með okkur myndaðist fljótlega mjög ná- inn og góður vinskapur sem hefur styrkst og eflst með árunum. Eftir kynni okkar við Betu fórum við að venja komur okkar til þín og Fríðu. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar, á sunnudögum í kaffi og vöfflur og á hátíðisdögum þegar það var svo erfitt að vera án fjölskyldunnar, var okkur svo oft boðið til ykkar. Já, þetta var það sem okkur vantaði, fjölskyldan sem við vorum svo háð heima á Íslandi. Þarna fundum við þá hlýju sem okk- ur vantaði og sóttum æ oftar í hana. Íris Ósk var oftar og oftar hjá ykkur þegar við Beta þurftum aðeins að skreppa út á lífið eða að þið buðuð henni að vera hjá ykkur ef við skruppum eitthvað sem þið vissuð að barn á þessum aldri hefði ekki gaman af. Mér er það mjög minnisstætt þegar við komum að ná í hana eitt skiptið, þá var búið að æfa Írisi í að GUNNAR CHRISTIANSEN Elsku Eva frænka mín. Ég trúi ekki að þú sért farin frá mér. Ég mun sakna þín mjög mikið en ég verð að halda áfram að lifa. EVA BJÖRK EIRÍKSDÓTTIR ✝ Eva Björk Ei-ríksdóttir fædd- ist í Reykjavík 25. september 1977. Hún lést á Landspítalan- um mánudaginn 21. júní og var útför hennar gerð frá Frí- kirkjunni í Reykja- vík 29. júní. Það verður erfitt. Nú get ég ekki lengur hringt í þig en ég gat þó talað við þig í síð- asta sinn. Það var svo gaman að tala við þig. Sú minning geymist í hjarta mínu. Ég var alls ekki tilbúin að kveðja þig, elskan, en maður er aldrei tilbú- inn. Megir þú hvíla í friði. Núna ertu hjá Guði og hann verndar þig. Þín frænka Lára María.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.