Morgunblaðið - 14.07.2004, Síða 27

Morgunblaðið - 14.07.2004, Síða 27
segja amma og afi og síðan hefur hún alltaf kallað ykkur ömmu Fríðu og afa Gunna í Svíþjóð. Eftir tveggja ára dvöl okkar í Sví- þjóð fluttum við litla fjölskyldan aft- ur til Íslands, ævintýraferðin búin og eftir sitja margar skemmtilegar minningar en upp úr stendur sá sterki vinskapur og öll sú hlýja og hjálpsemi sem þið veittuð okkur á þessum árum. Síðan liðu árin, þið í Svíþjóð og við heima á Íslandi. Við Beta töluðum reglulega saman í síma og símreikningarnir voru oft ansi háir á þessum tíma. Við fengum fréttir af ykkur og alltaf munduð þið eftir Írisi Ósk á afmælum og jólum og eftir að Ólöf Ýr fæddist gleymd- ist hún ekki. Árið 1998 fluttust þið svo aftur til Íslands. Mikil tilhlökkun hjá okkur og áttum við saman margar gleði- stundir eftir að þið fluttuð heim. Árið 2000 fundum við litla fjöl- skyldan aftur fyrir ævintýraþránni og fluttumst til Danmerkur. Nokkr- ar hafa heimferðirnar verið hjá okk- ur síðasta ár vegna veikinda pabba og núna í febrúar kvaddi hann svo þennan heim eftir erfið veikindi. Þú sem varst svo duglegur að stappa í mig stálinu og er mér það svo minn- isstætt hvernig þú kenndir mér slökunaröndunina sem reyndist þér svo vel við jarðaförina þegar móðir þín dó. Ekki grunaði okkur á þeirri stundu að þinn tími væri að nálgast, svo hress og kátur sem þú varst og ekki hægt að ímynda sér að aðeins 5 mánuðum seinna upp á dag yrðir þú borinn til hinstu hvílu. Megi guð varðveita þig, elsku vin- ur. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði.) Elsku Fríða, Beta, Judith, Svav- ar, Sunna, Tanja og Ísabella Eir og aðrir ástvinir, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Guð blessi ykkur í þessari miklu sorg. Lilja, Hilmar, Íris Ósk og Ólöf Ýr. Elsku afi Gunni í Svíþjóð. Þú hefur alltaf verið eins og afi fyrir mig, ég hef elskað þig eins og afa og þegar ég var lítil kallaði ég þig alltaf afa í Svíþjóð og geri enn. Í Svíþjóð hélt ég alltaf að þú vær- ir afi minn. Mínar minningar munu alltaf vera í hjarta mínu, minningar um það hversu góð þið amma Fríða voruð alltaf við mig. Þú gerðir mig glaða og fékkst mig til að brosa og hlæja ef ég var leið. Það er erfitt að sætta sig við að þú sért farinn, það er bara eins og að þú hafir farið í vinnuna og komir brátt aftur. Ég vona að þú hafir það gott í himnaríki og megi Guð vernda, passa og elska þig jafnmikið og allir elska þig hér. Hugur minn mun alltaf vera hjá þér. Kær kveðja Íris Ósk. Í dag kveðjum við vin minn Gunn- ar Christiansen. Gunni, en það var hann kallaður venjulega, var fæddur í Færeyjum en flutti ungur til Vest- mannaeyja og síðan til Reykjavíkur. Það var í ársbyrjun 1965 að ég hóf nám hjá Sláturfélagi Suðurlands, þá var Gunni þar í námi og með okkur tókst mikil vinátta sem staðið hefur í tæp 40 ár og hafa aldrei slitnað vináttutengsl okkar. Þegar Gunni lauk námi réðst hann sem fagmaður í kjötverslun í Hólmgarði. Þar kynntist hann Fríðu (Hólmfríði Kristinsdóttur). Gunni og Fríða eignuðust hana Betu (Elísabet), hún er í sambúð með Svavari Guðjóns- syni og dæturnar eru þrjár. Þegar ég skrifa minningargrein um Gunna er það erfitt, þetta er eitthvað skrít- ið. Þetta átti ekki að fara svona, við áttum eftir að gera svo margt, eins og t.d. að fara til Ítalíu, eins áttum við eftir að spila marga hringi í golfi og margt annað. Við vorum heppnir með það að konurnar okkar urðu líka góðar vinkonur. Það eru svo margar samverustundir sem við höfum átt saman og ferðalög bæði hér heima og í Færeyjum og Sví- þjóð en Gunni og Fríða höfðu búið bæði í Færeyjum og Svíþjóð. Gunni var góður fagmaður, matargerð hafði hann í puttunum og þjónustu- lund góða, hann var eftirsóttur í þjónustustörf. Hann hlustaði vel, það var oft sem við sátum saman að spjalli um lífið og tilveruna, hann hafði yndi af tónlist og var mikill fagurkeri. Fæðingarstað sínum vildi hann vel og skipuðu Færeyjar stór- an sess í hans lífi. Gunni minn, ég þakka þér fyrir þennan tíma sem við höfum átt. Mér þykir slæmt að geta ekki verið viðstaddur útförina en þetta fylgir sjómennskunni. Fríða, Beta, Svavar, Sunna, Tanja og Ísa- bella, ykkur votta ég mína dýpstu samúð. Þinn vinur Guðjón H. Finnbogason. Gunni Færeyingur eins og við vorum vanir að kalla hann er nú far- inn frá okkur á annað tilverustig, langt fyrir aldur fram. Með þessum fátæklegu orðum langar mig að minnast vinar míns sem var mér svo kær. Ég kynntist honum sem ungur maður í knattspyrnufélaginu Þrótti. Gunni var liðtækur knattspyrnu- maður og spilaði og starfaði að fé- lagsmálum fyrir félagið sitt í mörg ár. Gunni kom hingað til lands ásamt foreldrum sínum og systur sem ungur maður frá heimalandi sínu, Færeyjum, en alla tíð var hann landi sínu mikill „ambassador“ hér á landi. Þó að Gunni væri færeyskur þá var ekki hægt að heyra það á mæli hans því íslenskan hans var betri en okkar ef eitthvað var. Já, það lá greinilega vel fyrir Gunna að læra tungumál því hann dvaldist um hríð í Svíþjóð og það sama var um sænskuna, hann talaði hana eins og innfæddur. Ég varð þeirrar lukku aðnjótandi að hafa Gunna í vinnu hjá mér, bæði sem þjón og sem matreiðslumann. Hann var reyndar lærður kjötiðn- aðarmaður en matreiðsla var eitt- hvað sem lék í höndunum á Gunna. Við unnum saman að kynningar- málum fyrir Færeyjar og það þótti Gunna ekki leiðinlegt. Ef einhvern ætti að aðla fyrir óeigingjarnt starf fyrir land sitt þá hefði það átt að vera hann en það er of seint núna og við sem þekktum Gunna vitum að það var ekki hans stíll að sækjast eftir slíku. Hann var ekki vanur að hrósa sjálfum sér fyrir mörg þau góðu verk sem hann leysti af hendi heldur sáu aðrir um það og mættum við mörg taka hann til fyrirmyndar í því sem svo mörgu öðru í fari hans sem gerði hann svo einstakan. Við fórum margar ferðirnar sam- an til Færeyja og þá sá ég hversu Gunni unni heimahögum sínum og hélt ætíð tryggð við sitt fólk, já þannig var Gunni sannur vinur vina sinna. Þessi hægláti góðlegi maður sem nú er farinn skilur eftir margar góðar minningar sem koma til með að vera í huga mínum um ókomna tíð. Það fór ekki mikið fyrir Gunna en skemmtilegur var hann og hnytt- in tilsvör voru hans aðalsmerki sem gerði það að verkum að Gunni var hvers manns hugljúfi. Að lokum vil ég segja þetta kæri vinur: Þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér með viðveru þinni, og Fríða mín og aðrir nákomnir ættingjar, ykkur votta ég mína innilegustu samúð og megi góður Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Far þú í friði, elsku Gunni minn. Jóhannes Viðar Bjarnason Kæri vinur. Hvern gat grunað að þegar við kvöddum þig í apríl væri það í síðasta skipti sem við hittumst. Á þessari stundu reikar hugurinn vítt og breitt um fleiri ára minn- ingar, þegar maður hefur þekkst í yfir þrjátíu ár er af mörgu að taka. Samt er allt bara tómt þegar það rennur upp ljós, þú ert horfinn og við komum aldrei til með að hittast aftur. Hvernig kveður maður vin sinn, bara í orðum eða með kveðju sem birtist á prenti? Minningarnar um þig verða alltaf til staðar, þær getur enginn tekið frá okkur, að setja þær á prent núna er alltof sárt. Við höfum því miður ekki tök á að fylgja þér síðasta spölinn, en kveðj- um þig með þessum línum. Hvíldu í ró, elsku Gunnar. Elsku Fríða, Beta, Svavar, Sunna, Tanja og Ísabella, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og hugur okkar er með ykkur á þessari sorgarstund. Júlíus Sigmundsson og Birna Ágústsdóttir. Mér brá talsvert þegar góður vin- ur okkar kom til mín þar sem ég var að undirbúa síðustu vormessuna okkar í Skårs-kirkju í Gautaborg og sagði mér þær fréttir að þú lægir þungt haldinn af erfiðum sjúkdómi. Á hljóðri stund í guðsþjónustunni sameinuðust allir gömlu félagarnir þínir um kveðju. Hlýjar hugsanir streymdu frá Íslendinganýlendunni í Gautaborg heim til þín. Á meðan þú bjóst hér var það segin saga að þegar leið á sumarið hringdirðu í mig og sagðir: „Eigum við ekki að fara að byrja?“ Með þessari spurningu áttirðu við það hvort kórinn okkar ætlaði ekki að fara að hefja vetrarstarfið. Þú varst oft óþolinmóður og þér þótti satt að segja eitthvað vanta þegar þú gast ekki komið á æfingar á mánudags- kvöldum. Þannig varstu dæmigerð- ur fyrir hinn sanna kórfélaga og alltaf varstu boðinn og búinn til þess að standa í ýmsum uppákomum í kórnum og nýlendunni allri. Það var æði oft að þú varst aðalmaðurinn og skipuleggjandinn í alls kyns veislu- höldum og fagnaði. En svo skildi leiðir. Þú fluttir heim á Frón með fjölskylduna. Það varð skarð fyrir skildi í nýlendunni. En þannig er lífið og það eru sjaldan gleðifregnir fyrir kórstjórann þegar tryggur félagi kemur og segir: „Jæja, nú er ég bara að flytja heim.“ En alltaf héldum við þó sambandi og ég fylgdist til dæmis af áhuga með tilraunum þínum og kunningjanna með að halda utan um hóp heim- fluttra kórfélaga. Gunnar, vinur og félagi. Nú verð- ur ekki af því að við förum til Fær- eyja undir þinni leiðsögn, eins og við vorum þó oft búnir að tala um. Ég var búinn að hlakka til að fara þessa ferð með þér. En það er ætíð svo að maðurinn áformar en Guð ræður. Kæra Fríða, á þessari stund vil ég flytja þér samúðarkveðju kórfélag- anna í Gautaborg. Kunningjar og vinir hugsa til þín á erfiðri stund, en við skulum vera minnug þess að minningin um góðan dreng og tryggan félaga lifir. Kristinn Jóhannesson. Leiðir okkar Gunna lágu saman þegar hann hóf störf hjá Sælkera- dreifingu sumarið 2002. Gunni var og er yndislegur maður sem á sér fáa líka. Góðmennska, yf- irvegun, húmor og réttlæti – öllu þessu fékk ég að kynnast hjá honum Gunna. Það voru skemmtilegir tímar sem við áttum saman í Sælkeradreifingu og mun ég aldrei gleyma þessum fáu en góðu árum. Elsku Gunni minn, megi góður guð vera með þér og þínum á þess- um erfiðu tímum. Þessi yndislegu kynni mun ég varðveita að eilífu, takk fyrir allt. Þinn vinur Sigurgísli Bjarnason. Okkur langar að kveðja vin okkar Gunna sem lést 1. júlí, eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu. Gunni var gift- ur æskuvinkonu okkar, þau kynnt- ust fyrir allmörgum áratugum, þeg- ar hippatíminn, blómatíminn og Glaumbæjarfjörið stóð sem hæst. Þau gengu í hjónaband 1970, eign- uðust sólargeislann sinn Elísabetu 1972 og hún á þrjár dætur. Gunni var dagfarsprúður maður, hafði mikið dálæti á dóttur sinni og afa- börnum sínum. Hann var alltaf reiðubúinn að gefa af sér til þeirra. Hann var góður eiginmaður, hafði marga eiginleika og áhugamál, þar á meðal tónlist og söng sem var hans yndi og hann var í kór. Þau voru sérstaklega gestrisin og alltaf var gott að koma til þeirra. Nú er komið að kveðjustund. Við vinkonurnar minnumst Gunna sem sanns Víkings og Færeyings. Við vottum Fríðu, Elísabetu, Svavari, dætrum þeirra og ættingjum dýpstu samúð. Einn þú hefur allt í höndum, öll þér kunn er þörfin mín, ó, svo veit í alnægð þinni einni mér af ljósi þín. Anda þinn lát æ mér stjórna, auðsveipan gjör huga minn, og á þinnar elsku vegum inn mig leið í himin þinn. (Steingrímur Thorsteinsson.) Hvíl þú í friði. Hulda Fríða og Erla. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Við kveðjum þig með miklum söknuði, elsku vinur. Axel og Sólveig. Fyrir þrjátíu og fimm árum síðan stóð ungur maður fyrir framan mig í Kjötbúðinni Hólmgarði, hann var að sækja um vinnu. Gunnar var þá ný- útskrifaður sem kjötiðnaðarmaður frá Sláturfélagi Suðurlands, tvítug- ur að aldri. Fljótlega kom í ljós að Gunnar var frábær fagmaður, ná- kvæmur og vandaður til allra verka. Þrátt fyrir rólegt yfirbragð var hann fljótastur allra að vinna kjöt, en það var svo með öll hans verk að hann gekk að þeim af miklu öryggi og fagmennsku. Þar fór maður sem vissi nákvæmlega hvað hann var að gera. Gunnar var 12 ára þegar hann fluttist með foreldrum sínum og systur frá Færeyjum til Íslands, en ekki var hægt að greina á mæli hans að hann væri frá Færeyjum. Hann talaði vandað mál og málfræðin var honum hugleikin. Oft mátti maður sæta því að hann benti manni góð- látlega á villur í fljótaskrift dagsins. Á sama tíma vann hjá mér ung stúlka, Hólmfríður Kristinsdóttir. Fljótlega tókust með þeim kynni sem enduðu með hjónabandi sem hefur enst alla tíð síðan, svo hefur og okkar vinátta. Fallegt heimili og gestrisni var þeirra aðalsmerki. Okkur Lillý er mjög minnisstætt þegar við heim- sóttum þau til Svíþjóðar fyrir nokkrum árum. Þau hjón gengu úr rúmi fyrir okkur og báru okkur á höndum sér þá daga sem við dvöld- um hjá þeim. Tónlistin var stór þáttur í lífi Gunnars. Hann átti stórt plötu- og diskasafn og var mjög glöggur á gæði tónlistar á hinum ýmsu svið- um. Hann var sjálfur liðtækur trommari og lék með félögum sínum í Svíþjóð um nokkurra ára skeið meðan hann dvaldi þar. Kórsöngur átti hug hans allan og söng hann bæði í kór í Svíþjóð og hér heima, en ég veit að aðrir munu gera þeim þætti betri skil. Stuttu eftir að þau hjón fluttu heim frá Svíþjóð hófum við Gunnar að hittast reglulega og bættust aðrir félagar fljótlega í hópinn svo úr varð matarklúbbur sem hefur fundað tvisvar í viku sl. 5 ár. Oft var gest- kvæmt á þessum fundum og voru það að mestu gestir á vegum Gunn- ars bæði frá Svíþjóð og Færeyjum. Hans er nú sárt saknað í þeim hópi. Gunnar hafði mikinn áhuga á að efla samstarf á sviði tónlistar milli þessara þriggja þjóða: Íslands, Færeyja og Svíþjóðar og hafði hann ýmislegt á prjónunum í þeim efnum þegar hann féll frá. Elsku Fríða, við Lillý sendum þér og fjölskyldu þinni okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Farðu í friði guðs héðan frá þér tekin þraut drenginn ljúfan fengum léðan lífs á sinni stuttu braut. Gunnar Páll og Lillý. Mig langar með fáum orðum að minnast vinar míns og félaga Gunn- ars Christiansen. Leiðir okkar Gunna lágu saman er ég keypti af honum fyrirtæki hans og réð hann í vinnu. Gunni var góðmenni og sérhvers hugljúfi, ró- legur og yfirvegaður herramaður. Hann var fæddur í Færeyjum og átti alla tíð góð tengsl við föðurland- ið. Við Gunni ferðuðumst mikið sam- an og er einna minnisstæðust ferð okkar norður að landamærum Sví- þjóðar og Finnlands þar sem við átt- um ánægjulegar stundir með sænskum viðskiptafélögum okkar. Gunni var mjög vel tengdur Sví- þjóð enda bjó hann þar í mörg ár og talaði sænskuna eins og innfæddur. Það er mikil eftirsjá að Gunna og sorglegt að læknavísindin gátu ekki hjálpað honum. Elsku Fríða, við biðjum góðan guð að halda verndarhendi yfir þér, dóttur ykkar og fjölskyldu í ykkar miklu sorg. Ég veit að það verður einmana- legt til að byrja með en tíminn læknar öll sár. Megi góður guð blessa minningu Gunna um alla eilífð. Bjarni Óskarsson og fjölskylda. Kveðja frá kórfélögum Guð geymir sálir látinna, við sem eftir lifum geymum minning- arnar. Kórfélagi okkar Gunnar Christi- ansen er látinn og langar mig fyrir hönd okkar kórfélaganna að minn- ast hans. Minningarnar um Gunnar eru í senn ljúfar og góðar. Gunnar var prúður maður, einstaklega hlý- legur og kurteis. Hann hafði góða nærveru og brosið hans var í senn fallegt og fullt af kímni. Það var gott að fá bros frá Gunnari þegar mætt var á kóræfingar, hann var lúmskt fyndinn og oftar en ekki gátum við hlegið að einhverri vitleysunni. Við Gunnar ræddum síðast saman þegar kórinn fór í æfingaferð í Brautar- tungu í byrjun mars sl. og þá var Gunnar orðinn veikur án þess að nokkurt okkar gerði sér grein fyrir alvarleika veikindanna. Þar ræddum við um allt það sem lífið hefur upp á að bjóða og er sannarlega hluti af því að vera til. Það var í senn gaman og fróðlegt að spjalla við Gunnar. Það var einkennileg tilfinning, sem við fundum öll fyrir þegar kórinn fór til Færeyja í söngferð í byrjun júní sl. en þá átti Gunnar þess ekki kost að vera með. Þetta var hans hug- mynd og hans heimaslóðir en veik- indi hans komu í veg fyrir að hann væri með okkur. Mig langar með fallegu ljóði Páls Óskars að senda fjölskyldu Gunnars og ættingjum öllum, mínar dýpstu samúðarkveðj- ur og bið guð að veita þeim styrk og þol á erfiðum tímum. Þegar næðir í mínu hjarta og í huga mér engin ró og ég þrái að sjá hið bjarta sem að áður í mér bjó þá er lausnin ávallt nálæg, ef um hana í auðmýkt bið og með bæninni kemur ljósið og í ljósinu finn ég frið. Ó, svo dapur er dagur vaknar, dægurþrasið svo fjarri er. Mundu þegar þú sárast saknar og sólin skín hvergi nálægt þér að í bæn er falinn máttur er þig magnar þúsundfalt því með bæninni kemur ljósið og í ljósinu lagast allt. (Páll Óskar/Brynhildur Björnsdóttir.) Guðrún Jóna Bragadóttir. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 27

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.