Morgunblaðið - 14.07.2004, Síða 32
Grettir
Grettir
Smáfólk
VILTU
HEYRA RIT-
GERÐ UM JÓN
SIGURÐSSON?
Í DAG ER AFMÆLISDAGUR
JÓNS... HVER VAR JÓN
SIGURÐSSON? ÉG SKAL
SEGJA YKKUR ÞAÐ... JÓN
VAR TÍUNDI KÓNGURINN
OKKAR OG HANN FEÐRAÐI
MARGAR EIGINKONUR...
ÆTTI ÉG AÐ
SEGJA FRÁ ÞVÍ
AÐ HANN ER Á
500 KALLINUM?
ÞAÐ
GÆTI
VERIÐ
SNIÐUGT
HELDURÐU
AÐ ÉG FÁI
“A”?
GEFA
ÞEIR
“Ö”?
ERTU Í ALVÖRUNNI
MEÐ NÍU LÍF?
NEI! MÉR FINNST ÞAÐ BARA VEGNA ÞESS
AÐ ÉG BÝ MEÐ ÞÉR
ER ÉG YNDISLEGASTI MAÐUR Í
ÖLLUM HEIMINUM?
OG ELSKARÐU MIG? ÉG HAFÐI ÞAÐ BARA EKKI Í MÉR AÐ
SEGJA HENNI AÐ ÞETTA VÆRI
SKAKT NÚMER
EN
HUGULSAMT AF
ÞÉR ÆVINTÝRA-
STRÁKUR
Svínið mitt
SNIFF!
© DARGAUD
SKO ...
SNIFF
GROIN!
NÚNA ÆTLA ÉG AÐ KUBBA
NAFNIÐ MITT ...
SNIFF!
OG SVO ÞITT ...
ADDA!!
ÞÚ MÁTT EKKI GERA ÞETTA!
ÞÚ DEILIR EKKI SAMLOKUNNI
MEÐ SVÍNINU
JÁ, ÞÚ GÆTIR
SMITAST
AF VÍRUS ...
... SVONA BERAST
SMITSJÚKDÓMAR ...
ÉG HELD AÐ HÚN HAFI
SKILIÐ ÞETTA!
ERTU VISS?? DREKKTU RÚNAR, DREKKTU
HÓSTASAFANN ÞINN ÉG HELD ÉG
HAFI SMITAÐ ÞIG
SNIFF!
Dagbók
Í dag er miðvikudagur 14. júlí, 196. dagur ársins 2004
Víkverji er nýkominnfrá útlöndum og í
fríhöfninni gleymdi
hann tveimur pokum
með fríhafnarvarningi
og matvöru og barna-
kerru.
Í öngum sínum
hringdi hann upp á
flugvöll og spurði
hvort svo vildi til að
þessir hlutir hefðu rat-
að í hornið fyrir tapað-
fundið hjá þeim. Þar
var allt lokað en elsku-
legur tollvörðurinn
sem svaraði var ekki
lengi að finna út að
hlutirnir væru á staðnum. Hann sá
einnig til þess að þeir færu með
næstu rútu í bæinn. Víkverji, sem
lenti síðast í þeirri óskemmtilegu
reynslu að tollvörður umturnaði öllu í
töskunni hans og var heldur óvin-
samlegur, hefur nú fengið aðra og
betri reynslu af tollvörðum og kann
honum bestu þakkir fyrir greiðvikni.
x x x
Síminn hjá móður Víkverja bilaðisíðastliðinn laugardagsmorgun
og hringt var í bilanir hjá Símanum.
Eftir dúk og disk fékkst samband og
þá kom í ljós að ekkert var hægt að
gera fyrr en eftir helgi því enginn var
á vakt. Sá sem svaraði
hjá bilanaþjónustu
sagði þó einn mögu-
leika og það væri að
kalla út mann sem
væri rándýrt.
Móðir Víkverja átti
þá að vera símalaus
fram á mánudag. Á
tímum samkeppni velt-
ir Víkverji fyrir sér
þessari þjónustu. Er
þetta nokkur hemja?
x x x
Maki Víkverja er aðsmíða verönd við
sumarhúsið sitt og hef-
ur púlað í því fram á kvöld und-
anfarna daga. Það kom að því að
hann vantaði steypu í undirstöðurnar
og þá var hringt á nokkra staði. Lág-
markseining með bíl kostaði um
15.000 krónur. Hagstæðast var þó að
fara með sína eigin kerru og fá til-
búna afgangssteypu. Þegar makinn
kom á Steypustöðina fékk hann
slatta af steypu í kerruna og þegar
gera átti upp var honum sagt að hann
mætti bara eiga það sem í kerrunni
væri. Hins vegar er vert að geta þess
að þetta er mikill mokstur og fólk
þarf að hafa sterkt bak til að ráða við
verkið því steypan verður fljótt hörð
og moka þarf rösklega.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Tónlist | Senn líður að fyrstu áheyrnarprófum Idol-Stjörnuleitar. Byrjað
verður 28. ágúst á Hótel Loftleiðum í Reykjavík, þá verður haldið til Vest-
mannaeyja, Ísafjarðar, Akureyrar og loks Egilsstaða. Skráning er hafin á
stod2.is, þannig að ekkert er því til fyrirstöðu að hæfileikarík ungmenni
landsins taki af skarið og freisti gæfunnar.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Stjörnuleit í aðsigi
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Og þá munuð þér vera mín þjóð, og ég mun vera yðar
Guð. (Jer. 30, 22.)