Morgunblaðið - 14.07.2004, Síða 34

Morgunblaðið - 14.07.2004, Síða 34
DAGBÓK 34 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Vestur finnur strax aumasta blettinn þegar hann spilar út hjartadrottningu gegn fjórum spöðum suðurs. Norður ♠K10763 ♥Á32 ♦D5 ♣DG5 Vestur Austur ♠Á ♠2 ♥DG108 ♥976 ♦K983 ♦G764 ♣Á1087 ♣K9432 Suður ♠DG9854 ♥K54 ♦Á102 ♣6 Suður gefur; allir á hættu. Vestur Norður Austur Suður – – – 1 spaði Dobl 4 spaðar Pass Pass Pass Hvernig er best að spila? Tapslagur blasir við á hvern lit og eina vonin er að fría slag á tígul áður en vörnin nær að sprengja upp hjartað. Svo ekki þýðir að fara í trompið strax. Útspilið er tekið heima með kóng og tígli spilað að blindum. Vestur tekur væntanlega á kónginn og nú er ekki um annað að ræða en henda drottningu undir og búa þannig í haginn fyrir svín- ingu síðar. Vestur spilar hjarta áfram, sem tek- ið er með ás og tígultíu svínað. Austur verður að eiga gosann. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þetta er ekki góður dagur til að taka mikilvægar ákvarðanir eða ganga frá stórum innkaupum. Þú átt erfitt með að sjá hlutina á hlutlausan hátt í dag og því er hætt við að þú standir þig ekki sem skyldi í samningaviðræðum. Naut (20. apríl - 20. maí)  Ekki eyða peningum í neitt annað en mat í dag. Þótt þú hafir mikla löngun til að kaupa eitthvað skaltu alls ekki láta það eftir þér. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þetta er góður dagur til sköpunar og skemmtana. Dagurinn hentar hins veg- ar engan veginn til mikilvægrar ákvarð- anatöku. Það er hætt við að þær ákvarðanir sem þú tekur í dag muni ekki ganga upp. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þetta er góður dagur til að stunda jóga eða hugleiðslu. Þú munt líka njóta þess að vinna að listsköpun og fara í göngu- túr. Ekki reyna að sannfæra neinn um neitt í dag. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ættir að verja deginum með vinum þínum ef þú mögulega getur. Forðastu þó að taka endanlegar ákvarðanir eða skuldbinda þig til nokkurs. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú munt draga að þér athygli annarra með hverju sem þú tekur þér fyrir hendur í dag. Þetta er þó ekki rétti dagurinn til að koma sjónarmiðum þín- um á framfæri. Reyndu að láta sem minnst fyrir þér fara. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú gætir leiðst út í deilur um stjórnmál eða trúmál í dag. Þú ættir þó ekki að leggja of mikla orku í þessar samræður því þér mun ekki takast að sannfæra nokkurn mann um nokkurn hlut í dag. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þetta er ekki rétti dagurinn til að skipta peningum eða sameiginlegum eignum eða ábyrgð. Bíddu með það til morguns. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Ekki reyna að synda á móti straumnum í dag. Reyndu að forðast deilur við maka þinn og vini þótt þið séuð ekki á einu máli um hlutina. Það borgar sig fyrir þig að láta sem minnst fyrir þér fara. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ekki stinga upp á nýjungum í vinnunni í dag því hugmyndir þínar munu ekki falla í góðan jarðveg. Bíddu til morguns með að koma hugmyndum þínum á framfæri. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Dagurinn í dag ætti að verða skapandi og ánægjulegur. Njóttu þess að vinna að listsköpun og leika við börnin. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þetta er góður dagur til að dytta að ýmsum smáatriðum á heimilinu. Dag- urinn hentar hins vegar engan veginn til að taka mikilvægar ákvarðanir. Stjörnuspá Frances Drake Krabbi Afmælisbörn dagsins: Eru heillandi og sannfærandi og eiga auðvelt með að laða að sér fólk. Þau þurfa að taka mikilvægar ákvarðanir á árinu og ganga frá ákveðnum hlutum svo þau geti opnað fyrir eitthvað nýtt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Börn Brúðubíllinn | verður í dag kl. 10 á Kjal- arnesi við Fólkvang, og kl. 14 í Skerjafirði við Reykjavíkurveg, á morgun kl. 14 við Hlaðhamra. Hólar í Hjaltadal | Barnadagar kl. 15. Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9. Hár- greiðsla, fótaaðgerð. Árskógar 4 | Bað kl. 9–12, spil kl. 13.30, pútt kl. 10–16. Ásgarður | Glæsibæ. Samfélagið í nær- mynd kl. 11 þáttur um málefni eldri borg- ara á RÚV. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla kl. 8–13, bað kl. 8–12.30, handavinna kl. 9–16, bridge/vist kl. 13–16.30. Dalbraut 18–20 | Hárgreiðsla kl. 9–16.45, bað kl. 9–14, leikfimi kl. 10–10.45, ferð í Bónus kl. 14.40, pútt. Dalbraut 27 | Handavinnustofan kl. 8–16, verslunin kl. 10–13, bankinn kl. 13.30, leik- fimi kl. 11–11.30. Gerðuberg | Lokað vegna sumarleyfa frá 5. júlí til 17. ágúst. Gjábakki | Fannborg 8. Handavinna kl. 10–17, bobb kl. 17. Hraunbær 105 | Pútt, hárgreiðsla, fóta- aðgerð og banki kl. 10–11, brids kl. 13. Hraunsel | Flatahrauni 3. Ferð á Snæ- fellsnes. Brottför kl. 9, kl. 14–18 pútt á Ásvöllum. Hraunsel lokað vegna sum- arleyfa til 9. ágúst. Hvassaleiti 58–60 | Jóga kl. 9–10 og kl. 10–11, samverustund kl. 10.30–11.30. Fóta- aðgerð, hárgreiðsla. Hæðargarður 31 | Vinnustofa kl. 9–16.30, pútt, hárgreiðsla kl. 9–12, fótaaðgerð kl. 9–16.30. Kópavogur | Skrifstofan er opin í dag frá kl. 10–11.30, viðtalstími í Gjábakka kl. 15– 16. Langahlíð 3 | Hjúkrunarfræðingur á staðnum kl. 9.30, hárgreiðsla kl. 10, versl- unin kl. 10–12, föndur og handavinna kl. 13. Norðurbrún 1 | Fótaaðgerð kl. 9–16, fé- lagsvist kl. 14, kaffi og verðlaun. Vinnu- stofur lokaðar vegna sumarleyfa til mán- aðamóta. Vesturgata 7 | Sund í Hrafnistulaug kl. 10–12, fótaaðgerð og hárgreiðsla kl. 9–16, verslunarferð kl. 12.15–14.30, myndbands- sýning, spurt og spjallað kl. 13–14. Vitatorg | Smiðjan kl. 8.45–11.45, hár- greiðsla kl. 9–16, handmennt kl. 9.30–16, morgunstund kl. 10–11, fótaaðgerð kl. 10– 16, verslunarferð kl. 12.30. Sléttuvegur 11 | Opið í júlí og ágúst frá kl. 10–14. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Sól- vallagötu 48, lokað vegna sumarleyfa til september. Fundir GA-Samtök | spilafíkla. Fundur kl. 18 á Digranesvegur 12, Kópavogi og í Eg- ilstaðakirkju. Kirkjustarf Dómkirkjan | Hádegisbænir kl. 12.10. Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8. Háteigskirkja | Bænaguðsþjónusta kl. 11. Súpa og brauð kl. 12. Brids kl. 13–16. Mánudaga og miðvikudaga verður spilað „pútt“ í garðinum frá kl. 13–15. Kaffi á eft- ir. Kvöldbænir kl. 18. Laugarneskirkja | Gönguhópurinn Sólar- megin kl. 10.30 alla miðvikudagsmorgna. Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Vídalínskirkja | Foreldramorgnar kl. 10–12 í sumar. Víðistaðakirkja | Kyrrðar- og fyrirbæna- stund kl. 12. Fyrirbænaefnum má koma til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Súpa og brauð að kyrrðarstund lokinni. Þorlákskirkja | Barna- og foreldramorgn- ar kl. 10–12. Selfosskirkja | Opið hús kl. 11 fyrir mæð- ur og börn í safnaðarheimilinu. Tíða- söngur og fyrirbænastund kl. 10 þriðjudag til föstudags. Fyrirbænum er hægt að koma til prests, djákna eða kirkjuvarðar. Kaffisopi á eftir. Lágafellskirkja | AA-fundur kl. 20.30. Sauðárkrókskirkja | Kyrrðarstund kl. 21. Kletturinn | Kl. 20.30 Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í síma 565 3987. Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut 58. Samkoma í kvöld kl. 20. Ræðumaður Birna G. Jónsdóttir. Kaffiveitingar eftir samkomu. Myndlist Gallerí Klaustur | Skriðuklaustri Pétur Behrens myndlistarmaður opnar sýningu sem hann kallar „Líthógrafíur og gæð- ingar“. Þar sýnir hann myndir unnar með steinþrykki. Einnig eru á sýningunni vatnslitamyndir en myndefnið er hestar og menn. Sýningin stendur til 2. ágúst. Opið alla daga kl. 10–18. Söfn Minjasafn | Austurlands. Sölvi Aðalbjarn- arson setur upp eldsmiðju og kennir gest- um réttu handbrögðin kl. 13–17 á morgun. Tónlist Gamlibaukur | Húsavík. Ragnheiður Gröndal og hljómsveitin Black Coffee. Leikin verða ýmis blús-, djass- og popp- lög ásamt lögum eftir Ragnheiði. Auk hennar skipa hljómsveitina Sigurður Þór Rögnvaldsson gítar, Pétur Sigurðsson bassa og Kristinn Snær Agnarsson trommur. Útivist Hafnargönguhópurinn | Kvöldganga kl. 20 frá horni Hafnarhússins, norðanmegin. Stóra-Kóngsfell | Gönguferð á vegum Útivistar á Stóra-Kóngsfell, 602 m. Brott- för kl. 18.30 frá Toppstöðinni í Elliðaárdal. Þátttökugjald er ekkert. Staðurogstund idag@mbl.is Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund á forsíðu mbl.is. Meira á mbl.is 100ÁRA af-mæli. Á morgun, 15. júlí, verður 100 ára frú Margrét Hann- esdóttir frá Núps- stað, Langholts- vegi 15, Reykja- vík. Af því tilefni býður hún vinum og vandamönnum að koma og gleðjast með sér í safn- aðarsal Áskirkju á afmælisdaginn kl. 17. Það gleddi hana mjög að sjá sem flesta. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html Lárétt | 1 auðveldur, 8 nötraði, 9 reiður, 10 grein- ir, 11 flýtirinn, 13 starfs- vilji, 15 fjárreksturs, 18 lítil tunna, 21 blekking, 22 smávaxna, 23 óþekkt, 24 þyngdareiningar. Lóðrétt | 2 óhreinkaði, 3 tilfinningalaus, 4 allmikill, 5 reyfið, 6 aldursskeið, 7 vaxa, 12 eyktamark, 14 vafa, 15 látið af hendi, 16 snauð, 17 deilur, 18 slungnu, 19 grasflötur, 20 duglega. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 flets, 4 þófar, 7 leggs, 8 örkin, 9 sýl, 11 skap, 13 saki, 14 eljan, 15 hörð, 17 Ægis, 20 æra, 22 lofað, 23 skúta, 24 sælir, 25 ausan. Lóðrétt |1 fólks, 2 ergja, 3 sess, 4 þjöl, 5 fokka, 6 rændi, 10 ýkjur, 12 peð, 13 snæ, 15 hælis, 16 ræfil, 18 grúts, 19 skarn, 20 æður, 21 assa.  80 ÁRA af-mæli. Í dag, 14. júlí, er átt- ræð Ingveldur Helga Sigurð- ardóttir (Lilly), kaupmaður og hannyrðakona. Af því tilefni tekur hún á móti ætt- ingjum og vinum á heimili sínu, Nesbala 7, kl. 16–20. 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Rf6 4. Bb5 Dc7 5. 0–0 Rd4 6. He1 a6 7. Bc4 d6 8. h3 e6 9. a4 Be7 10. d3 0–0 11. Be3 Rxf3+ 12. Dxf3 b6 13. Ba2 Bb7 14. d4 cxd4 15. Bxd4 Bc6 16. De3 b5 17. axb5 axb5 18. b4 Db7 19. Bb3 Hxa1 20. Hxa1 Ha8 21. He1 h6 22. f4 He8 23. Dg3 Bd8 24. e5 dxe5 25. Bxe5 De7 26. Hd1 Bb6+ 27. Kh2 Bc7 28. De3 Hc8 29. Dd4 Hd8 30. Da7 Staðan kom upp í lokaumferð hol- lenska meistaramótsins sem lauk fyrir skömmu. Hollenski meistarinn, fimmta árið í röð, Loek Van Wely (2.651) hafði svart gegn Friso Nijboer (2.578) og tryggði sér sigurinn með glæsilegri fléttu. 30. … Rg4+! 31. hxg4 Dh4+ 32. Kg1 Dxg4 svartur hótar nú í senn máti á g2 og hróknum á d1. 33. Hxd8+ Bxd8 34. Kf1? Leiðir rakleiðis til máts en 34. Rd5 hefði veitt harðvítugra viðnám. 34. … Dxg2+ 35. Ke1 Bh4+ 36. Kd1 Df1+ 37. Kd2 Be1+ og hvítur gafst upp enda verður hann mát eftir 38. Ke3 Df2+ 39. Kd3 Dd2#. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Guðmundsson (Hrafnaspark) og Englend- ingurinn Jack Hickman. Á fyrri hluti tónleikanna skipa aðal- hlutverkið Erla á fiðlu og Dan á gítar. Spila þau keltnesk og amerísk lög, ásamt nokkrum frumsömdum tónverkum eftir Dan. DAN Cassidy, fiðlu- og gítarleikari, heldur tónleika í tónleikaröð Bláu kirkjunnar á Seyðisfirði kl. 20.30 í kvöld. Efnisskráin samanstendur af keltneskri og amerískri fiðlutónlist, „swing“-lögum og ballöðum. Meðleikarar Dans eru fiðluleikarinn Erla Brynjarsdóttir, gítarleikarinn Jóhann Morgunblaðið/Árni Sæberg Dan Cassidy, fiðlu- og gítarleikari, heldur tónleika í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði. Sveifla í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði Í frétt á forsíðu Morgunblaðsins á mánudag um Brynjar Sigurðsson trillusjómann var farið rangt með nafn trillunnar. Trillan heitir Dögg en ekki Sjöfn eins og stóð í fréttinni og er beðist velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.