Morgunblaðið - 25.07.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.07.2004, Blaðsíða 1
Ráðgátan Bobby Fischer Helgi Ólafsson fjallar um mesta skáksnilling allra tíma | 10 Tímaritið og Atvinna í dag Tímaritið | Gimsteinar á flóamörkuðum  Sívinsæll Artúr konungur Lærði margföldun í Afríku  Pönkaður Loðvík XIV Atvinna | 70 á landinu á vegum Nordjobb Laun hækka en kaupmáttur minnkar 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 Auglýsing FRAMLEIDD hefur verið þýsk kvikmynd sem fólki nnst vera fyndin. Þetta þykir nokkrum tíðindum sæta. Myndin heitir „Good Bye Lenin!“ og verður tek- in til sýningar í kvikmyndahúsum hérlendis á næstu dögum. „Ég var að hlusta á fólk tala þýsku og hló samt,“ sagði einn af viðmælend- um okkar. „Hver hefði trúað því?“ Þýsk – en fyndin/52 Þýsk - en fyndin STOFNAÐ 1913 201. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is ÞAÐ er engu líkara en hópur ógnandi bergrisa og þursa fylgist með smávöxnum ferðamönnunum sem lögðu leið sína að Langasjó í vikunni. Fjölda andlita má sjá í sorfnum klettunum. Þessi furðustaður er við rætur Breiðbaks, hæsta fjallsins vestan við Langasjó, en hann er 1.018 metra hár. Breiðbakur er hluti Tungnaárfjalla. Austan við Langasjó eru Fögrufjöll. Vatnið sjálft er um 20 km langt en breiðast aðeins um 2 km. Langisjór er ekki í alfaraleið en hann er að mati margra sem til þekkja eitt fegursta stöðuvatn landsins. Með fyrirhug- aðri Skaftárveitu er ætlunin að veita vesturkvíslum Skaftár inn í Langasjó með stíflu, og frá Langasjó yrði vatninu veitt um jarðgöng undir Tungnaárfjöll til Lónakvíslar á vatnasvæði Tungnaár og Þjórsár. Morgunblaðið/RAX Töfraheimur við Langasjó MEGINTILGANGUR með nýleg- um kerfisbreytingum á húsnæðis- lánakerfi ríkisins var að lækka vexti á útlánum til viðskiptavina Íbúðalánasjóðs, að sögn Guð- mundar Bjarna- sonar, fram- kvæmdastjóra sjóðsins. Um síðustu mánaðamót bauð sjóðurinn skipti á stórum hluta útistandandi hús- og húsnæðis- bréfa fyrir nýja tegund skulda- bréfa, íbúðabréf, og var samtals um 90% bréfanna skipt. Segir Guðmundur að nauðsyn- legt hafi verið að skipta út bréf- unum og taka upp íbúðabréf, sem séu markaðshæfari og standi fleiri aðilum til boða. „Til þess erum við að gera skuldabréfaflokkana svona vel markaðshæfa að þeir séu að- gengilegir fyrir sem flesta fjár- festa, innlenda sem erlenda. Það leiðir væntanlega til þess að vextir lækka til hagsbóta fyrir viðskipta- vini okkar.“ Þar að auki segir Guðmundur að vegna þess hve hlutur Íbúðalána- sjóðs er stór á íslenskum skulda- bréfamarkaði muni vaxtabreyting á bréfum sjóðsins væntanlega hafa áhrif til vaxtalækkunar almennt í þjóðfélaginu. Mun ekki brjóta nokkurn rétt Hvað varðar gagnrýni á fram- kvæmd skiptanna segir Guðmund- ur m.a. að auðvitað hafi komið upp einstök vandamál og þættir sem þurft hafi að glíma við að leysa. Hann telji hins vegar að engu máli hefði skipt hversu miklu betur sjóðurinn hefði undirbúið skiptin, hann hefði alltaf staðið frammi fyrir því að leysa einhver vanda- mál og viðfangsefni sem komið hefðu upp á síðustu stundu. „Að gefnu tilefni, vegna umræðu um útdrátt útistandandi húsbréfa, er hins vegar rétt að taka fram að í framhaldi af lagabreytingunum í vor hefur verið sett reglugerð um áhættustýringu Íbúðalánasjóðs. Í reglugerðinni eru ákvæði um fjár- hagsnefnd, sem gerir tillögu til stjórnar sjóðsins um hvernig haga skuli fjármögnun, fjárstýringu og áhættustýringu. Sú vinna er nú í gangi. Ég vil fullvissa þá, sem kunna að bera einhvern ugg í brjósti um hvernig þeim málum verður hagað, að Íbúðalánasjóður mun að sjálf- sögðu fara að lögum í því efni og ekki brjóta nokkurn rétt á við- skiptavinum eða fjárfestum sem eiga kröfur á sjóðinn,“ segir Guð- mundur. Vonast til að ná fram vaxtalækkun  Stærsta/10 Guðmundur Bjarnason ÁKVEÐIÐ hefur verið að fjölga um einn íslenskan gæslu- mann í norrænu friðareftirlits- sveitinni Sri Lanka Monitoring Mission. Að sögn Þorbjarnar Jónssonar, sendiráðunautar hjá Íslensku friðargæslunni, óskaði norska utanríkisráðu- neytið eftir því við íslensk stjórnvöld fyrir skömmu að Ís- lendingar bættu einum eftir- litsmanni við í sveitina. Ákveðið hafi verið að verða við þeirri ósk, og því verða Íslendingar í sveitinni fjórir talsins. Eftir fjölgun verða 58 gæslu- menn við friðargæslu á Sri Lanka; fjórir Íslendingar, nítján Norðmenn, tólf Danir, tólf Svíar og ellefu Finnar. Sri Lanka Monitoring Miss- ion er rekin af norskum stjórn- völdum og yfirmenn hennar eru Norðmenn. Utanríkisráðu- neyti hvers lands um sig stend- ur straum af launagreiðslun- um. Sveitin hefur starfað við frið- argæslu á Sri Lanka frá því að vopnahléssáttmáli á milli stríð- andi fylkinga, Tamíl-tígra og srilanskra stjórnvalda, var undirritaður 22. febrúar 2002. Aðalhlutverk sveitarinnar er að hafa eftirlit með því að deiluað- ilar haldi sáttmálann í heiðri. Fjölgað um einn við friðargæslu á Sri Lanka  Sri Lanka/18 HREYFINGARLEYSI veldur enn fleiri ótímabærum dauðsföllum en reykingar, ef marka má rannsóknir sem gerðar hafa verið í Hong Kong. Kannaður var ferill 24.079 karla og kvenna yfir 35 ára aldri er létust á árinu 1998. Niðurstaðan var að hreyfingarleysið varð um 6.400 manns að bana en fórnarlömb reyk- inganna voru um 5.700. Hreyfingarleysið eykur m.a. hætt- una á krabbameini um 45% hjá körl- um og um 28% hjá konum. Rann- sóknin var gerð af Hong Kong-háskóla og heilbrigðisráðu- neyti borgarinnar. Lam Tai-hing, sem stýrir rannsókn á almannaheil- brigði hjá háskólanum, tók skýrt fram að hvorttveggja, hreyfingar- leysi og reykingar, stytti lífið. „Margir sem ekki reykja gera lítið af því að þjálfa líkamann. Skilaboðin til þeirra eru: það er gott að þið skulið ekki reykja. En ef þið þjálfið ykkur ekki eruð þið samt í mikilli hættu.“ Letin enn verri en reykingar Hong Kong. AFP. ♦♦♦ MINNSTA hryggdýrið er fiskur sem lifir við Miklarif norðaustan við Ástralíu – að minnsta kosti þar til minna dýr finnst. Hæng- urinn er aðeins um sjö millimetr- ar að lengd, hrygnan örlítið lengri, að sögn fréttavefjar BBC. Krílið fannst fyrst árið 1979 en hefur ekki verið rannsakað fyrr en nú. Fiskurinn nefnist stout infant- fish á ensku sem gæti verið digra- seiði á íslensku. Ævi digraseiðis er talin vera aðeins um tveir mánuðir. Minnsti fiskur í heimi? Hængurinn er að- eins 7 millimetrar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.