Morgunblaðið - 25.07.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.07.2004, Blaðsíða 41
AUÐLESIÐ EFNI MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 41 ÓVANALEGU sumar-þingi lauk á fimmtudag þegar þingið samþykkti fjölmiðla-frumvarpið endanlega. Frumvarpið var mjög breytt frá upphaflegri mynd. Öll ákvæði um eignarhald á fjölmiðlum höfðu verið felld út úr frumvarpinu og með því voru einnig fyrri lög um eignarhald á fjölmiðlum afnumin. Stjórn Sjálfstæðis-flokks og Framsóknar-flokks ákvað á þriðjudag að breyta frumvarpinu. Var það tilkynnt í allsherjar-nefnd Alþingis í kjölfarið. Meirihluti nefndarinnar mælir einnig með því að nýtt frumvarp um fjölmiðla verði undirbúið og lagt fram á haust-þingi. Þá leggur hann til að skipuð verði nefnd með fulltrúum allra flokka um að endurskoða stjórnar-skrána. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri-grænna, sagði að ríkisstjórnin og stjórnar-meirihlutinn hefðu gefist upp fyrir sterkri samstöðu í þjóðfélaginu og sameinaðri stjórnar-andstöðu. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði að með því að fella fjölmiðla-lögin úr gildi lýsti þingið því yfir að rétt hefði verið hjá forseta Íslands að synja lögunum staðfestingar 2. júní. Davíð Oddsson forsætis-ráðherra var spurður hvort hann teldi að betra hefði verið að sleppa lagasetningu um fjölmiðla: „Ég tel að stjórnmála-menn eigi að setja fram þau sjónarmið sem þeir hafa og berjast fyrir þeim og reyna að koma þeim fram,“ svaraði Davíð. „Ég tel að þegar rykið hefur sest munum við sjá hverjir hafa staðið málefnalega að málunum og hverjir ekki.“ Engin lög um eignarhald á fjölmiðlum Morgunblaðið/Þorkell Bjarni Benediktsson, formaður allsherjar-nefndar, í ræðustóli Alþingis við aðra umræðu um fjölmiðla-frumvarpið. Netfang: auefni@mbl.is UNGUR api í dýragarði í Ísrael er farinn að ganga eins og maður. Þetta gerðist eftir að apinn, sem er kvenkyns, veiktist lífs-hættulega af maga-kveisu. Apinn heitir Natasha. Fyrir hálfum mánuði greindust hún og þrír aðrir apar með alvarlega maga-inflúensu. Sérfræðingar telja möguleika á því að heilinn í henni hafi breyst eftir veikindin. Þess vegna gangi hún eins og maður. Api gengur uppréttur MANN-RÆNINGJAR í Írak slepptu á þriðjudag úr haldi filippseyskum gísli sínum, Angelo de la Cruz, eftir að her Filippseyja yfirgaf landið á mánudag. De la Cruz var vel tekið þegar hann kom heim til Filippseyja á miðvikudag eftir að hafa verið heimtur úr helju. Hann segist aldrei aftur ætla að hætta sér til Mið-Austurlanda. Mann-ræningjarnir höfðu hótað að taka de la Cruz af lífi ef stjórnvöld á Filippseyjum kölluðu ekki her sinn frá Írak. Fimmtíu og einn filippseyskur hermaður var í Írak og var ákveðið að kalla þá heim til að bjarga lífi de la Cruz. Yfirvöld á Filippseyjum hafa þó sagt, að alltaf hafi staðið til að mennirnir yrðu kvaddir heim. Bandarísk stjórnvöld hafa gagnrýnt ákvörðun Filippseyinga, en þau segja stórhættulegt að láta undan kröfum hryðjuverka-manna í Írak. Hætta sé á því að mannránum fjölgi jafnvel í kjölfarið. Hryðjuverka-mennirnir álíti viðbrögð stjórnvalda í Manila merki um veikleika hernaðar-bandalagsins í Írak sem Bandaríkjamenn fara fyrir. Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, varði hins vegar ákvörðunina og sagði hvert einasta mannslíf þess virði að bjarga því. Her Filippseyja farinn frá Írak Reuters Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, situr hér við hlið Angelos de la Cruz er þau sóttu saman guðsþjónustu í Manila. ÞÓREY Edda Elísdóttir stökk 4,60 metra í keppni í stangarstökki, sem fram fór í Madríd á Spáni síðastliðna helgi. Þar með bætti hún Norðurlanda- og Íslands-met sitt um sex sentimetra. En gamla metið setti Þórey Edda í júní á móti í Kassel í Þýskalandi. Þórey Edda varð í öðru sæti á mótinu á eftir heimsmet-hafanum Svetlönu Feofanovu sem stökk 4,80. Feofanova gerði tilraun til að stökkva 4,90 metra og setja nýtt heimsmet. Þórey Edda fór yfir 4,60 í annarri tilraun. Pólska stúlkan Monika Pyrek stökk einnig yfir 4,60 en þurfti þrjár tilraunir. Þórey Edda var himin-lifandi með árangur sinn. „Það var frábært að fara yfir 4,60 metra. Það hefur verið takmarkið mitt að undanförnu að setja nýtt Norðurlanda- og Íslands-met en ég er ekki byrjuð að huga að nýju markmiði. Að fara yfir 4,60 metra var þó ekkert loka-takmark og auðvitað vill maður alltaf stökkva hærra. Ég veit líka að ég get stokkið hærra. Aðstæðurnar voru frábærar í Madríd. Það var nánast enginn vindur en þetta var í fyrsta sinn í sumar þar sem aðstæðurnar hafa verið fyrsta flokks. Vissulega veitir þessi árangur mér byr undir báða vængi og ég mun gera mitt allra besta á Ólympíu-leikunum í Aþenu,“ sagði Þórey Edda. Morgunblaðið/Árni Torfason Þórey Edda Elísdóttir er bjartsýn á framtíðina. Þórey Edda setti Norðurlandamet DAVÍÐ Oddsson forsætis-ráðherra var fluttur á Landspítala – háskóla-sjúkrahús vegna gallblöðru-bólgu aðfaranótt miðvikudags. Við rannsókn fannst staðbundið æxli í hægra nýra. Forsætis-ráðherra fór í aðgerð og voru gallblaðra og hægra nýra fjarlægð í henni. Aðgerðin gekk vel. Davíð mun ekki gegna störfum næstu vikur. Halldór Ásgrímsson utanríkis-ráðherra gegnir starfi forsætis-ráðherra í fjarveru hans. Davíð og Árna Ragnari Árnasyni, þingmanni Sjálfstæðis-flokks, sem einnig á við veikindi að stríða, var óskað góðs bata þegar Alþingi var slitið á fimmtudag. Forsætis- ráðherra á sjúkrahús Morgunblaðið/Jim Smart Davíð Oddsson svarar spurningum fjölmiðla um fjölmiðla- frumvarpið. Davíð Oddsson jafnar sig nú eftir aðgerðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.