Morgunblaðið - 23.08.2004, Page 15

Morgunblaðið - 23.08.2004, Page 15
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2004 15 Upplýsingar sendist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „Traust – 15799“. Óskum eftir að kaupa atvinnuhúsnæði með trausta leigusamninga Á verðbilinu 100 til 1000 milljónir á stór-Reykjavíkursvæðinu. Aðrir staðir koma til greina. Eftirfarandi greinar eru á mbl.is: Jón Steinsson: „Það er engin tilviljun að hlutabréfamarkað- urinn í Bandaríkjunum er öfl- ugri en hlutabréfamarkaðir annarra landa.“ Regína Ásvaldsdóttir: „Eitt af markmiðum með stofnun þjónustumiðstöðva er bætt að- gengi í þjónustu borgaranna.“ Jónas Gunnar Einarsson: „Áhrifalaus og mikill meirihluti jarðarbúa, svokallaður almenn- ingur þjóðanna, unir jafnan misjafnlega þolinmóður við sitt.“ Jakob Björnsson: „Mörg rök hníga að því að raforka úr vatnsorku til álframleiðslu verði í framtíðinni fyrst og fremst unnin í tiltölulega fá- mennum, en vatnsorkuauðug- um, löndum …“ Tryggvi Felixson: „Mikil ábyrgð hvílir því á þeim sem taka ákvörðun um að spilla þessum mikilvægu verðmætum fyrir meinta hagsæld vegna frekari álbræðslu.“ Stefán Örn Stefánsson: „Ég hvet alla Seltirninga til að kynna sér ítarlega fyrirliggj- andi skipulagstillögu bæjaryf- irvalda …“ Gunnar Finnsson: „Hins veg- ar er ljóst að núverandi kerfi hefur runnið sitt skeið og grundvallarbreytinga er þörf …“ Á mbl.is Aðsendar greinar GUÐI sé lof fyrir margan efnis- mann, sem ritar greinar í blöð eða flytur fréttir í útvarp og sjónvarp. Ég segi mann og á einnig við konu því Bergþóra var drengur góður. Samt þarf þetta unga fólk að gæta sín. Hættur leynast við hvert fótmál og „íslenskan er orða frjó- söm móðir“. Í síðastliðinni viku birtust margar ambögur á prenti og heyrðust í hljóðvarpi og sjónvarpi. Ég byrja á Morgunblaðinu. Það hefir hvað breiðast bakið. Föstu- dag s.l. er mynd af ungri geð- þekkri stúlku sem færir Pétri Blöndal verðlaun. Þar er líkinga- mál notað án þess að það eigi við. Rangt er að tala um „þak“ á greiðslum. Greiðslur eru takmark- aðar en hafa hvorki þak né kjall- ara. Húsasmíð kemur þar hvergi við sögu. Í útvarpsfréttum var getið um skipan Halldórs Ásgrímssonar í ráðherrastöður. Ung en skýrmælt fréttakona ræddi um fund, sem var haldinn að „tjaldarbaki“. Að tjaldabaki átti það að vera. Samt má segja að hér sé athygl- isverð hugmynd fréttakonunnar. Framsóknarflokkurinn ætti að taka tjaldinn sem einkennismerki flokksins. Þá gæti Halldór haldið alla fundi „að tjaldarbaki“. Vel viðeigandi flokksmerki því tjald- urinn er tíður gestur í túnum bænda. Þá kom ungur starfsmaður Veð- urstofunnar og sagði fréttir af kuldabola. Kvað hann flugvél Landhelgis- gæslunnar hafa farið könnunar- flug á norðlægar slóðir. Nefndi vélina TF SÝN, rétt eins og hún væri á vegum Ingólfs í Útsýn. Syn er fræg í fornritum. Gyðja sem synjaði farar svo sem Snorri greindi frá. Menn synja beiðni en hafna tilboði. Þetta eiga menntuð ungmenni að vita. Þór Jakobsson, fjölfróður vís- indamaður, ætti að taka í taum- ana. Hann mætti einnig koma því til leiðar að sjónvarpsstöðvarnar Sky og CNN birtu veðurfregnir héðan og nefndu Reykjavík í veð- urfréttum sínum. Ungur fréttamaður sagði „fund- inn sekur“ í stað sakfelldur. Sýkn- um sem flesta. PÉTUR PÉTURSSON þulur. SYN eða SÝN – tjald eða tjaldur Frá Pétri Péturssyni: DILBERT mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.