Morgunblaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 25
MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2004 25 Þriðjudagstónleikar 24. ágúst kl. 20:30 Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70, 105 Rvík. www.lso.is - lso@lso.is Þorbjörn Björnsson barítón og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari. Ferðasöngvar eftir Vaughan Williams, íslensk þjóð- lög og sönglög eftir Schubert 29. ágúst kl. 20:30 Gruppo Atlantico; Hlíf Sigurjóns- dóttir fiðla, Robert LaRue selló og Adrienne Kim píanó ásamt Signýju Sæmundsdóttur sópr- an.Verk eftir Haydn, Brahms og Hjálmar H. Ragnarsson Aukatónleikar sunnudaginn 29. ágúst kl. 20:30 Gruppo Atlantico ásamt Sigur- laugu Eðvaldsdóttur fiðluleikara og Guðrúnu Þórarinsdóttur lágfiðluleikara.Verk eftir Robert Schumann. Menningarnótt er sannar-lega mikil menningar-hátíð en hún er líka gríð- armikið partí, eins konar útihátíð, önnur verslunarmannahelgi, Halló Reykjavík! Það er úr ótrúlega miklu að velja ef maður vill sækja menningar- viðburði þennan dag. Fjöldi tón- leika, myndlistarsýninga, upplestra og svo framvegis. Í raun gildir hið sama þennan dag og þegar stór listasöfn á borð við Metropolitan í New York eða Prado í Madríd eru sótt heim, maður verður að velja sér eitthvað eitt eða tvennt til að skoða sérstaklega og láta svo kylfu ráða kasti um það hvað gerist meðan gengið er á milli staða.    Og það var einmitt á gangi sempistilshöfundur rakst á Kjafta- klöppina á Skólavörðustíg þar sem frægar ræður úr sögu Reykjavíkur voru fluttar af JC-félögum – sér- kennilegt uppátæki en skemmti- legt. Og höfundur gekk einnig fram á tónleika hinnar frábæru hljóm- sveitar Jagúar í Pósthússtræti og tónleika nokkurra aldurhniginna sveiflumeistara í Nasa. Hvort- tveggja kom ánægjulega á óvart. Það sem upp úr stendur er þó mannfjöldinn og stemningin sem, eins og áður sagði, minnti einna helst á útihátíð. Á hverju horni voru rokksveitir að spila og þegar líða tók á kvöldið fjölgaði þeim sem hlaðnir voru bjórdósum, vískíflösk- um og ýmsum öðrum drykkjar- föngum. Á köflum var svolítið óþægilegt að vera með lítil börn á ferðinni í þessu húllumhæi öllu sam- an.    Ástandið var þó ekki eins svaka-legt og á menningarnótt í Helsinki sem höfundur upplifði fyr- ir nokkrum árum þar sem nokkur hluti gesta dó áfengisdauða á göt- um úti. Ef rétt er munað er hugmyndin að menningarnótt í Reykjavík feng- in frá Helsinki en hugsanlega þyrfti að minna betur á kjarnann í henni, menninguna eða hina beinu teng- ingu milli hins blómlega listalífs sem þrífst í borginni og íbúa henn- ar. En það hleypur enginn frá sínum innri manni. Og kannski birtist kjarni ís- lenskrar menningar einmitt í athæfi mannfjöldans á þessari nótt en ekki í hinum eiginlegu listviðburðum. Menningarnæturlíf AF LISTUM Þröstur Helgason throstur@mbl.is ’En það hleypur eng-inn frá sínum innri manni. Og kannski birtist kjarni íslenskrar menningar einmitt í at- hæfi mannfjöldans á þessari nótt en ekki í hinum eiginlegu list- viðburðum.‘ ÞEIM er mikið niðri fyrir, aðstand-endum Beauty. Um er að ræða tvo al- þjóðlega leikhópa með aðsetur í Eng- landi, og leikrit íslensks leiklistar- nema, Eyrúnar Óskar Jónsdóttur, hennar fyrsta í fullri lengd. Reyndar er varla um eiginlegt leikrit að ræða, heldur einhvers konar ósamstæða texta og samtalsbrot sem sækja efni sitt að einhverju leyti í þjóðsögur, en jafnframt er efnið að miklu leyti helg- að málum sem ber hátt í pólitískri umræðu nútímans: stríðsrekstri og umhverfisvernd, nánar tiltekið Íraks- stríðinu og Kárahnjúkavirkjun. Brotakennt eðli textans endur- speglast í sýningunni allri, þar sem bæði ægir saman ólíkum sjónrænum þáttum, fjölbreyttum leikstíl og að- ferðum, auk þess sem sýningin stekkur sífellt á milli hátíðlegrar ein- lægni, forseraðrar tilfinningatúlk- unar og glottandi íróníu. Það er djarft teflt í þessari sýningu og gam- an ef hægt væri að segja að það skil- aði þeim ávinningi í áhrifum sem að er stefnt. En sú er því miður ekki raunin. Hinir ólíku og ósamstæðu þræðir ná ekki að hljóma saman, né verður óm- streitan milli þeirra sérlega kraft- mikil eða áhrifarík. Til þess vantar skýra hugsun, eða kannski öllu held- ur vilja til að mynda samband við áhorfendur, taka þá með í leikinn. Í staðinn er eins og sýningin öll gangist upp í óræðninni, njóti þess að þurfa ekki að gera almennilega grein fyrir hvað hún vill segja. Vitaskuld er hún afdráttarlaus í fordæmingu sinni á stríði og náttúruspjöllum og einlæg í lofgjörð sinni um sakleysið og feg- urðina í hinu einfalda og smáa. En sá búningur sem hún býr þessum boð- skap ber hann ofurliði í tákngnótt sinni. Í verkinu eru þó kaflar sem sýna ágætt skáldlegt ímyndunarafl höf- undar, til dæmis í samtali móður og sonar á leið í stríðið. Gagnrýnni sýn á það hvað átti að segja og hvernig best væri að segja það hefði áreiðanlega leitt hæfileika Eyrúnar betur í ljós. Hinir ungu leikarar sem flytja okk- ur sýninguna eru nokkuð markaðir reynsluleysi sínu, og ráða tæpast við það verkefni sem þau setja sér. Sum þeirra búa að sterkri líkamstjáningu en flóknar nútímadansrútínur þær sem þeim er gert að framkvæma eru greinilega á mörkunum að þau ráði við. Að öðru leyti er leikur fremur til- þrifalítill, jafnvel einkennilega daufur á köflum, eins og í að öðru leyti ágæt- lega heppnuðum lokakaflanum. Hóp- söngvar voru skemmtilega hugsaðir en flutningur ekki nógu góður til að þeir næðu áhrifum sínum. Leikstjórn er hreint ekki góð á þessari sýningu. Staðsetningar iðu- lega klúðurslegar, ýktum leikstíl ótæpilega beitt þegar hófstilling hefði skilað meiri áhrifum og einnig hefur leikstjórunum mistekist að laða fram tilfinningalega innlifun þar sem hennar var þörf. Það sem Beauty hef- ur helst við sig er tilfinningin fyrir þörf aðstandenda hennar til að skapa og koma efni sínu á framfæri. Gagn- rýn skoðun á því hvernig meðölum leikhússins verður best beitt í þessu skyni mun auk listræns þroska án efa skila okkur öflugum listamönnum í fyllingu tímans. Listamönnum sem meina það sem þeir segja og vita hvernig þeir eiga að segja það svo skiljist. Fegurðin í hinu smáa LEIKLIST Zecora Ura Theatre og Dan Kai Teatro Höfundur: Eyrún Ósk Jónsdóttir, leik- stjórn: Eleanor Bernardes og Jorge Lopes Ramos. Leikendur: Agnes Brekke, Hann- ah Whelan, Unai Lopez de Armentia, Ey- rún Ósk Jónsdóttir, Kristján Óskarsson, Ichel Rubio Martinez, Laura Gonzáles Cortón og Gemma Rowan. Lækjarskóli í Hafnarfirði 19. ágúst 2004. BEAUTY Þorgeir Tryggvason ÆÐISLEGT að heimsækja Safna- safnið á Svalbarðsströnd á sólríkum sumardegi, skoða útilistaverk eftir börn og fullorðna, menntaða og ómenntaða listamenn. Bregða sér svo innfyrir þar sem handverk og hugverk, arfur og nýsköpun standa saman án árekstra. Eftir að líta yfir Íslenskt dúkkusafn er því ekkert eðlilegra en að ganga inn í herbergi með Íslenskri samtímalist og skoða sýningu Helga Þórssonar og Mar- grétar Guðmundsdóttur, tveggja ný- útskrifaðra myndlistarmanna frá Rietveld akademíunni í Amsterdam. Vinna þau verk sín saman í sýning- arrýmið sem innsetningu. Margrét hannar m.a. föt á hunda og Helgi mótar garðálfa í tyrkneskum þjóð- búningum og dýfir tuskudýrum í gifs. Tvíeykið sækir því í nokkuð áþekka fagurfræði – fegurð sem framkallast af réttlætiskennd, sem bandaríski listfræðingurinn Elaine Scarri fjallar um í bók sinni „On beauty and being just“ (Af fegurð og að vera réttlátur). Stangast á sæt- leiki og ljótleiki á sýningunni. Ég finn allavega alltaf til samúðar með hundum í fötum þótt þeir séu of- ursætir. Finnst verið að misbjóða þeim og breyta í eitthvað „fluffí“ fyr- irbæri sem þjónar ímynd eiganda þeirra og að því leytinu ljótt að sjá. Lítil grútarleg tuskudýr Helga Þórssonar draga líka fram samúð fyrir hinu litla og ljóta líkt og álfar hans gera sem eru með allt of stóran haus og snerta hina „réttlátu“ feg- urð. En það virðist innprentað í manneskjur með siðferðiskennd að finna samúð og væntumþykju fyrir litlum verum með stórt höfuð, eins og t.d. smábörnum. Engin landamæri Í herbergi á efri hæð Safnasafns- ins sýnir Ólöf Nordal innsetningu sem hún nefnir „Hanaegg“. Spilar Ólöf á samskonar fagurfræði og ég nefni hér að ofanverðu og sýnir 11 litla skúlptúra úr plasti af afbök- uðum skrípum. Þetta eru fyrirbæri eins og moðormur, varúlfur, varga- svín og aðrar þjóðsögulegar furðu- verur á fósturstigi sem svo umbreyt- ast í uppvexti og kunna að verða manninum óviðráðanlegar og ógeðs- legar. Sætleikinn og ljótleikinn skapast þá af átökum réttlæt- iskenndar og fordóma, ef við þá göngum áfram út frá hugmyndum Elaine Scarri. Ólöf lætur fara vel um skúlptúr-fóstrin á gólfi safnsins. Hreiðrar um þau með frauði sem sennilega umlukti þau í flutn- ingakassa frá Reykjavík til Sval- barðsstrandar og verður þá líkt og staðgengill móðurkviðar. Þá er listakonan kunn fyrir að vinna með þjóðararfinn í nútímalegu samhengi og má vel tengja þessi þjóðsögulegu fyrirbæri við hug- myndir um erfðabreytingar og þann dilk sem slíkar tilraunir kunna að draga á eftir sér. Ólöf sýndi álíka verk á sýningunni „Yfir bjartsýnisbrúna“ í Hafnarhús- inu, sem var samstarfsverkefni Listasafns Reykjavíkur og Safna- safnsins í fyrra. Skúlptúrarnir voru þá í ólíkum litum, framsettir á borði eða hillu. Voru þeir á margan hátt meira aðlaðandi, en mér finnst and- litslituð fóstrin í hlýlegu hreiðri í Safnasafninu koma nær manni og snerta mann dýpra. Þær eru því hjartnæmar sýning- arnar sem Safnasafnið býður upp á þessa dagana. Prýðilegustu innsetn- ingar sem falla vel inn í þá stefnu safnsins að brjóta niður landamæri og fordóma á milli samtímalistar og alþýðulistar. Réttlát fegurð MYNDLIST Safnasafnið – Svalbarðsströnd Opið daglega frá 10-–18. Sýningum lýkur 5. september. INNSETNINGAR NEÐRI HÆÐ – HELGI ÞÓRSSON OG MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR EFRI HÆÐ – ÓLÖF NORDAL Morgunblaðið/Ransu Innsetning Ólafar Nordal á efri hæð Safnasafnsins sýnir þjóðsögulegar furðuverur á fósturstigi. Blíðlegur álfur Helga Þórssonar býður sýningargestum Safnasafnsins að skoða lítið grútarlegt tuskudýr. Jón B.K. Ransu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.