Morgunblaðið - 28.08.2004, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 28.08.2004, Qupperneq 1
Milli svefns og vöku Múm og Slowblow halda heim- komutónleika í kvöld | Menning 48 FJÖLMIÐLAR í Súdan sökuðu í gær uppreisnarmenn í Darfur-héraði um að hafa rænt börnum flóttafólks sem sam- þykkti beiðni súdönsku stjórnarinnar um að snúa aftur til heimkynna sinna. Fjölmiðlar, sem styðja stjórnina í Khartoum, sögðu að uppreisnarmennirnir hefðu rænt tólf börnum á aldrinum níu til fimmtán ára frá þorpi nálægt höfuðstað héraðsins, Nyala, þegar þau voru á leið til vinnu á ökrunum ásamt foreldrum sínum. Íbúar þorpsins voru nýkomnir þangað eft- ir að hafa dvalið í flóttamannabúðum. Embættismenn Sameinuðu þjóðanna segja að um 1,4 milljónir manna hafi flúið heimkynni sín í Darfur frá því í fyrra þeg- ar súdanska stjórnin hóf blóðuga herferð gegn vopnuðum uppreisnarmönnum í hér- aðinu. Sagðir ræna börn- um í Darfur Khartoum. AFP. BANDARÍSKAR hersveitir fóru í gær út úr gamla borgarhlutanum í Najaf, helgri borg sjíta í Írak, eftir að vopnaðir liðsmenn uppreisnar- klerksins Moqtada al-Sadrs fóru út úr Alí- moskunni samkvæmt samningi sem batt enda á nær þriggja vikna átök. Liðsmenn Sadrs neit- uðu hins vegar að afhenda írösku lögreglunni vopn sín og uppfylltu því ekki eitt af skilyrð- unum sem íraska bráðabirgðastjórnin hafði sett fyrir því að hætta árásum á uppreisnarmennina. Stuðningsmenn Sadrs afhentu fulltrúa Alis al-Sistanis, andlegs leiðtoga íraskra sjíta, lykl- ana að Alí-moskunni, einum af helstu helgidóm- um sjíta, þar sem uppreisnarmennirnir höfðu leitað skjóls vegna árása bandarískra hermanna og íraskra þjóðvarðliða. Tugir liðsmanna Sadrs skildu eftir Kalashn- íkov-riffla við skrifstofu klerksins en talið er að þúsundir stuðningsmanna hans séu enn vopn- aðar í borginni. Margir liðsmanna Sadrs í Mehdí-hernum svokallaða fóru út úr gamla borgarhlutanum með Kalashníkov-riffla í pok- um. Aðrir vöfðu sprengjuvörpur og önnur vopn inn í striga og földu þau í húsum í gamla borg- arhlutanum. „Þeir fela vopnin sín en afhenda þau ekki lög- reglunni eða hernum,“ sagði talsmaður Sadrs. „Bandaríkjamenn héldu að þeir gætu upprætt Mehdí-herinn en hermenn okkar eru hér enn.“ Liðsmenn Mehdí-hersins földu einnig vopn sín í júní þegar Sadr samþykkti að binda enda á fyrstu uppreisn sína gegn hernámsliðinu. Þeir gripu aftur til vopna tveimur mánuðum síðar. Lík fundust í dómhúsi Sadrs Að minnsta kosti 25 rotnandi lík fundust í gær í kjallara byggingar trúarlegs dómstóls sem Sadr stofnaði í Najaf. Íraska lögreglan sagði að þetta væru lík fólks sem liðsmenn Sadrs hefðu tekið af lífi, meðal annars lögreglumanna. Talsmaður Sadrs sagði hins vegar að þetta væru lík „píslarvotta“ sem hefðu fallið í árásum bandarískra hermanna. Farnir úr Alí-moskunni en neita að afvopnast Uppreisnarmenn í Najaf afsala sér yfirráðum yfir helgidómi sjíta Reuters Íraskir lögreglumenn koma að Alí-moskunni eftir að uppreisnarmenn fóru þaðan í gær. Najaf. AFP, AP. Lesbók | Hin veglega morgungjöf  Stalín góði Börn | Ekki sitja ein úti í horni  Skemmtilegir og góðir vinir Íþróttir | Valur aftur í efstu deild  Enska knattspyrnan Lesbók, Börn og Íþróttir HLUTI af Melkoti, litlum bæ sem stóð í Reykjavík frá því í byrjun 18. aldar og fram á þá tuttugustu, kom í ljós við uppgröft nyrst í Suðurgötu nýverið, rétt við Ráð- herrabústaðinn. Melkot er fyrirmynd að kotinu í Brekkukotsannál Halldórs Laxness. „Það þykir senni- legt að þetta sé hornið af sjálfum Melkotsbænum,“ segir Garðar Guðmundsson hjá Fornleifastofnun Íslands sem séð hefur um uppgröft- inn í tengslum við fram- kvæmdir í Suðurgötunni. „Melkotið er aðallega frægt út af tilvísun í Kiljan, þ.e. af því að hann notaði Magnús í Melkoti sem fyr- irmynd að Birni í Brekku- koti. Kona Magnúsar var ömmusystir Kiljans,“ út- skýrir Garðar. Melkots er ekki getið í heimildum árið 1703 en í lok 18. aldar er þess getið í bók- um, að sögn Garðars. Húsið var síðan rifið árið 1915 og var því búið þar í um 200 ár. Melkotið hefur aldrei verið skoðað áður með þessum hætti, en til er mynd af því frá því um aldamótin 1900 þar sem ferðamenn eru að leggja upp frá Melkoti. Eng- ir munir hafa fundist í upp- greftrinum. Í móöskuhaugi fundust þó bein og glerbrot. Rannsaka á hvort þau teng- ist búsetu í Melkoti. Nú er búið að grafa minj- arnar á nýjan leik og því verða þær ekki rannsakaðar frekar. „Þetta er eitt af þessum kotum sem voru í námunda við Reykjavík og hafði sína sögu að segja um fólkið sem þar bjó,“ segir Garðar um gildi fornleif- anna. „Það er ólíkt því sem við höfum verið að skoða. Við höfum gert meira af því að skoða stórbýli en minna af því að skoða kotbýli og þekkjum þau síður.“ Elsa Norðdal gróf um 1970 í reit sem markast af Tjarnargötu, Suðurgötu og Vonarstræti og þá fundust gamlar byggingar frá vík- ingatíð, m.a. gamall skáli. Nyrst í Suðurgötunni, til móts við hús Hjálpræðis- hersins, fundust nú einnig minjar frá landnámsöld. „Við höfum séð brot af veggjum og mannvist þar, sem er mjög sennilega frá 10. öld,“ segir Garðar. Búið er að skrá minjarnar. Hluti Melkots kom í ljós „ÞESSI dalur verður nær hjarta sinnar þjóðar,“ sagði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra í Selárdal í gær en þá var því fagnað að endurbótum á listasafni og kirkju Samúels Jónssonar er lokið, a.m.k. í bili. Fleiri framfaramál eru í bígerð í dalnum. Um árabil hafa hús og listaverk Samúels legið undir skemmdum. Fyrir tilstuðlan landbúnaðarráðu- neytisins var í sumar ráðist í um- talsverðar endurbætur á húsunum sem nú eru vel held á vatn og vind. Þá hefur þýskur myndhöggvari, Gerhard König, gert við fjögur af sex ljónum í hinum fræga ljóna- gosbrunni. Þegar Gerhard hóf við- gerðina höfðu þrjú ljónanna fallið um koll og sum týnt bæði leggjum og loppum. Nú standa þau öll traustum fótum og bíða þess að vatn taki að streyma út um gin þeirra á nýjan leik. Morgunblaðið/Rúnar Pálmason Nær hjarta þjóðarinnar „HÉR er á ferðinni enn eitt meist- araverk, á ferðalagi sem hófst á útrás í Debut og úthverfri tjáningu í Post og Homogenic, en hvarf aftur til persónu- legrar tjáningar og innrænnar ljóðrænu í Vespertine. Í Medúllu er Björk horfin á vit þess allra innsta í mann- eskjunni, uppruna hennar, fortíðar, eðlis og kjarna,“ segir Bergþóra Jónsdóttir tónlistar- gagnrýnandi í um- sögn sinni um nýjustu plötu Bjarkar Guð- mundsdóttur sem kemur út á mánudag. Bergþóra gefur plötunni bestu með- mæli, fimm stjörnur og segir að á henni sé Björk „enn söm við sig; frumleg, skörp, skemmtileg og næm, og spilar úr efnivið sínum af miklum frumleika og óviðjafn- anlegu listfengi.“/51 „Enn eitt meistaraverk“ ♦♦♦ STOFNAÐ 1913 233. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.