Morgunblaðið - 28.08.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Orkuveita Reykjavíkur starfrækir
gestamóttöku í Skíðaskálanum í
Hveradölum í tengslum við
Hellisheiðarvirkjun.
Á laugardögum í ágúst verður boðið
upp á leiðsögn um virkjunarsvæðið. Framkvæmdum eru
gerð skil í máli og myndum í Skíðaskálanum.
Opnunartími:
10:00 til 17:00 mánudaga -
föstudaga.
10:00 til 18:00 laugardaga.
Nánari upplýsingar í síma 617-
6784.
Hellisheiðarvirkjun
www.or.is
NEITA AÐ AFVOPNAST
Liðsmenn uppreisnarklerksins
Moqtada al-Sadrs fóru í gær út úr
Alí-moskunni í Najaf, helgri borg
sjíta í Írak, eftir að samkomulag
náðist um að binda enda á nær
þriggja vikna átök í borginni. Upp-
reisnarmennirnir neituðu hins vegar
að afhenda írösku lögreglunni vopn
sín og uppfylltu því ekki eitt af skil-
yrðunum sem bráðabirgðastjórn
Íraks setti fyrir því að hætta árásum
á þá.
Skila 3,5 milljörðum
Tekjur ríkissjóðs af stimp-
ilgjöldum verða um hálfum milljarði
hærri í ár en gert var ráð fyrir, að
sögn Bolla Þórs Bollasonar, skrif-
stofustjóra í fjármálaráðuneytinu.
Stimpilgjöld eru tekin af öllum láns-
samningum sem gerðir eru í landinu.
Jafnvægi einkalífs og vinnu
Cherie Blair hélt erindi á málþingi
í gær og sagði m.a að eitt stærsta
málefni 21. aldarinnar snerist um
jafnvægið milli einkalífs og vinnu.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Bréf 33
Fréttaskýring 8 Skák 33
Úr verinu 11 Umræðan 30/33
Viðskipti 12 Minningar 34/37
Erlent 16 Kirkjustarf 39
Minn staður 20 Dagbók 42/44
Höfuðborgin 21 Myndasögur 42
Akureyri 21 Víkverji 42
Landið 22 Staður og stund 44
Suðurnes 22 Menning 45/53
Árborg 23 Af listum 46
Ferðalög 24/25 Leikhús 46
Daglegt líf 26/27 Bíó 50/53
Neytendur 36 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
Viðhorf 30 Staksteinar 55
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablað Porsche frá
Bilabúð Benna.
Blaðinu í dag fylgir einnig auglýsinga-
blaðið Skólalíf frá Félagi grunnskóla-
kennara.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
ÚTFÖR Gylfa Þ. Gíslasonar, fyrrverandi ráðherra, fór
fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Séra Auður
Eir Vilhjálmsdóttir jarðsöng, en kistuna báru úr kirkju
Jónas Haralz, Össur Skarphéðinsson, Jón Þórarinsson,
Jóhannes Nordal, Sighvatur Björgvinsson, Gunnar
Eyjólfsson, Þráinn Eggertsson og Páll Skúlason.
Morgunblaðið/Jim Smart
Útför Gylfa Þ. Gíslasonar
EIRÍKUR Tómasson, prófessor,
Eggert Óskarsson, héraðsdómari,
og Allan Vagn Magnússon, héraðs-
dómari, hafa skilað inn umsókn um
embætti hæstaréttardómara. Jón
Steinar Gunnlaugsson, prófessor
og hæstaréttarlögmaður, hafði áð-
ur tilkynnt að hann sæktist eftir
embættinu.
Umsóknarfrestur um embættið
rann út á miðnætti í gær. Sam-
kvæmt upplýsingum úr dómsmála-
ráðuneytinu verður ekki ljóst fyrr
en eftir helgi hverjir sóttu um emb-
ættið. Einhver geti hafa póstlagt
umsókn sína í gær og berist hún þá
á mánudaginn. Dagsetning á póst-
stimpli gildi, samkvæmt upplýsing-
um ráðuneytisins.
Ein staða í Hæstarétti losnar
eftir að Pétur Kr. Hafstein hættir
störfum 1. október nk. en þá verða
13 ár frá því hann hóf þar störf.
Í auglýsingu ráðuneytisins segir
að við veitingu embættisins skuli
jafnrétti kynjanna haft í heiðri og
að umsóknir þar sem óskað sé
nafnleyndar verði ekki teknar gild-
ar.
Síðast skipað í fyrra
Síðast skipaði Björn Bjarnason,
dómsmálaráðherra, Ólaf Börk Þor-
valdsson í embætti hæstaréttar-
dómara 20. ágúst á síðasta ári.
Vakti sú ákvörðun deilur og kom til
kasta umboðsmanns Alþingis og
kærunefndar jafnréttismála.
Þá sóttu Allan Vagn, Eggert og
Eiríkur Tómasson einnig um emb-
ættið.
Aðrir umsækjendur þá voru:
Hjördís Hákonardóttir, héraðs-
dómari, Jakob R. Möller, hæsta-
réttarlögmaður, Ragnar Halldór
Hall, hæstaréttarlögmaður og Sig-
rún Guðmundsdóttir, hæstaréttar-
lögmaður.
Embætti hæstaréttardómara laust
Umsóknarfrest-
ur runninn út HELGA Jónsdóttir, borgarritari,
hefur óskað eftir rökstuðningi Árna
Magnússonar, félagsmálaráðherra,
við skipan í stöðu ráðuneytisstjóra
félagsmálaráðuneytisins. Helga var
ein sjö umsækjenda en einn dró um-
sókn sína til baka.
Í bréfi til Árna í gær fer Helga
þess enn fremur á leit að fá aðgang
að öllum gögnum sem varði á ein-
hvern hátt mat félagsmálaráðherra
eða ráðgjafa hans á umsókn hennar í
ráðningarferlinu, sbr. stjórnsýslu-
lög.
Félagsmálaráðherra skipaði í
fyrradag Ragnhildi Arnljótsdóttur,
lögfræðing, í embætti ráðuneytis-
stjóra til fimm ára frá og með 15.
september nk.
Helga vill ekki tjá sig frekar um
málið fyrr en rökstuðningur ráð-
herra liggur fyrir. Hún hefur gegnt
starfi borgarritara, sem er staðgeng-
ill borgarstjóra og æðsti embættis-
maður Reykjavíkurborgar, frá árinu
1995. Árið 1983 varð hún aðstoðar-
maður Steingríms Hermannssonar,
forsætisráðherra og tók við stöðu
skrifstofustjóra í forsætisráðuneyt-
inu 1989. Frá 1992 til 1995 var hún
varafastafulltrúi Norðurlandanna og
Eystrasaltsríkjanna í framkvæmda-
stjórn Alþjóðabankastofnananna í
Washington í Bandaríkjunum áður
en hún tók við embætti borgarritara.
Valið erfitt
Í greinargerð hennar með um-
sókninni kemur fram að hún hafi átt
þess kost að taka virkan þátt í þeirri
öru þróun sem hafi orðið í opinberri
stjórnsýslu og stjórnun síðustu árin.
Æskilegt sé að einstaklingur takist á
við ný verkefni með hæfilegu millibili
og hún treysti því að reynsla hennar
og þekking verði talin nýtileg í starfi
ráðuneytisstjóra.
Allir umsækjendur voru metnir
hæfir og endanlegt val á umsækj-
anda erfitt að því er fram kom í
fréttatilkynningu félagsmálaráð-
herra á fimmtudag.
Óskar rökstuðnings
við ráðningu
ráðuneytisstjóra
KARL Gústaf XVI Svíakonungur,
Silvía drottning og Viktoría krón-
prinsessa koma í opinbera heimsókn
til Íslands 7. september næstkom-
andi.
Einnig kemur Laila Freivalds, ut-
anríkisráðherra Svíþjóðar, með kon-
ungshjónunum til Íslands og mun
hún m.a. eiga viðræður við Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra með-
an á heimsókninni stendur.
Ekki hafa enn fengist upplýsingar
um hvernig dagskrá heimsóknar
sænsku konungshjónanna til Ís-
lands verður háttað en heimsóknin
mun standa yfir í þrjá daga, frá 7. til
9. september.
Skv. upplýsingum Morgunblaðs-
ins er reiknað með að konungs-
hjónin verði svo í einn og hálfan dag
til viðbótar á Íslandi í einkaerindum
eftir að hinni opinberu heimsókn er
lokið.
Sænsku konungshjónin hafa alloft
komið hingað til lands en krónprins-
essan hefur ekki áður komið til Ís-
lands.
Sænsku konungshjónin
heimsækja Ísland
MEÐALHITI í ágústmánuði
hefur verið yfir meðallagi en er
þó aðeins lægri en í fyrra.
Ágústmánuður á síðasta ári var
sá hlýjasti síðan mælingar hóf-
ust.
Það sem af er mánuðinum
hefur hitinn verið að meðaltali
12,9 stig en það er 2,4 stigum
yfir meðallagi. Hitamet féllu á
132 veðurathugunarstöðvum í
hitabylgjunni í byrjun ágúst.
Hitastig í
ágúst yfir
meðallagi
UMFERÐARÓHAPP varð á
Ólafsfjarðarvegi á Árskógs-
strönd sunnan við Dalvík
skömmu eftir hádegi í gær.
Jeppabifreið var ekið á kyrr-
stæðan fólksbíl og við árekst-
urinn kastaðist jeppinn út af
veginum.
Engin slys urðu á fólki, sam-
kvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Dalvík, en báðir bílarn-
ir voru fjarlægðir með
dráttarbíl.
Ekið á kyrr-
stæðan bíl
við Dalvík