Morgunblaðið - 28.08.2004, Page 4

Morgunblaðið - 28.08.2004, Page 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ekta ítölsk leðursófasett á ótrúlegu verði Ekki missa af þessu einstaka tækifæri 70.000 kr. afsláttur Model IS 26 - 3ja sæta sófi og tveir stólar Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-16 Verð áður kr. 249.000 stgr. Verð nú aðeins kr. 179.000 stg gæðahúsgögnBæjarhrauni 12, Hfj. Sími 565 1234 HJÁ ÍSLANDSBANKA er ákvæði um endur- skoðun á fimm ára fresti á verðtryggðum hús- næðislánum með 4,4% föstum vöxtum og getur lántakandi greitt lánið upp án uppgreiðslu- gjalds þegar vextir koma til endurskoðunar. Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, segir að af hálfu bankans liggi til þess gild rök að festa ekki lán til 25 eða jafnvel 40 ára. „Í Vestur-Evrópu er algengast að endurskoðun- arákvæði sé á vöxtunum innan lánstímabilsins. Rökin fyrir því að binda ekki vextina allan lánstímann eru einfaldlega áhætta viðskipta- vinarins, þ.e.a.s ef vextirnir hreyfast í aðra hvora áttina og þá helst til óhagræðis fyrir neytandann þá getur það kostað hann mikið fé í framtíðinni. Slík binding er nánast fordæmislaus í nágrannalöndum okkur,“ segir Bjarni. Fáir búa í sama húsnæði í fjörutíu ár Hann segir það alltaf vera spurningu í viðskipt- um við einstaklinga hvort þeir geri sér grein fyrir því hversu mikla áhættu þeir séu að taka með slíkri bindingu. „Við teljum að þetta sé ekki ásættanleg áhætta fyrir neytendur og að það samræmist ekki stefnu okkar um áhættutöku viðskiptavina okkar ef þeir hefðu ekki þennan endurskoðunarmöguleika. Að síðustu má síðan nefna fjármögnun bankans sjálfs á móti þess- um lánum; við viljum hafa sem mestan jöfnuð á milli eigna og skulda í tímalengd lána,“ segir Bjarni. Aðspurður segir Bjarni að menn geti lent illa í því að vera með bundið lán með fasta vexti til langs tíma ef vextir síðan lækka. Það myndi þá væntanlega koma fram í því að verð fyrir fasteign, sem slíkt lán, sem ekki væri hægt að losna við, hvíldi á myndi lækka. Afföll- in á verðinu myndu þá endurspegla muninn á markaðsvöxtunum og á föstu vöxtunum á lán- inu. Forstjóri Íslandsbanka um bindingu á húsnæðislánum til 25 eða 40 ára „Ekki ásættanleg áhætta fyrir neytendur“ Bjarni Ármannsson EINN frægasti sportbíll sögunnar, Porsche 911, breytist í fyrsta skipti í 6 ár og hefur fengið nýtt útlit. Í fyrsta skipti í sögu Porsche eru kynntir tveir bílar á sama tíma, þ.e. 911 Carrera og 911 Carrera S. Porsche hefur framleitt 911 sport- bílinn síðan 1964 og hefur enginn sportbíll sögunnar unnið jafn marga sigra í kappakstri; yfir 14.000 sigrar hafa verið unnir á þessari týpu, en alls hefur Porsche unnið yfir 23.000 kappaksturssigra. Porsche bílasýningin verður opin fyrir almenning um helgina. Morgunblaðið/Jim Smart Perlan breytist í Porsche NÆRRI einn af hverjum þremur íbúðareigendum á Akureyri og í Reykjavík stefnir að því að nýta sér ný íbúðalán bankanna til þess að endurfjármagna eldri lán. Þetta kemur fram í könnun sem PSN-samskipti gerðu fyrir Viðskiptablaðið. Slétt 30% íbúð- areigenda í Reykjavík og á Akureyri segja að það sé mjög lík- legt eða frekar líklegt að þau muni notfæra sér ný íbúðalán banka og sparisjóða til þess að endurfjármagna eldri lán. Aftur á móti sagði 51% aðspurðra það vera frekar ólíklegt eða mjög óeðlilegt. Könnun Viðskiptablaðsins var gerð á miðvikudagskvöldið í síma og var úrtakið lagskipt slembiúrtak fólks á aldrinum 24-67 ára í Reykjavík og á Akureyri. 30% hyggjast endur- fjármagna eldri lán TVEIR stærstu lífeyrissjóðir landsins, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóður verzlunarmanna, munu lækka vexti sína einhvern tíma í næstu viku og líkur eru á að Sameinaði lífeyr- issjóðurinn muni gera slíkt hið sama. Þorgeir Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, segir að menn muni kynna breytingar á vaxta- stefnu sjóðsins í næstu viku og þær breyt- ingar muni taka gildi frá 1. september. Þorgeir vildi hins vegar ekki gefa upp hversu miklar breytingarnar yrðu en lán til sjóðfélaga bera nú 5,13% vexti. Jóhannes Siggeirsson, framkvæmda- stjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins, segir að vissulega séu menn að hugsa sinn gang í vaxtamálum, það sé engin launung en ætli kannski aðeins að doka við og sjá hvernig þessu muni vinda fram. Vextir hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum til sjóðfélaga eru nú 5,6% en Jóhannes segir ljóst að sjóðurinn verði að fylgja því sem sé að gerast á markaðinum. „Við get- um ekki verið með hærri vexti en aðrir, við erum meðvitaðir um það.“ Haukur Hafsteinsson, framkvæmda- stjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR), segir vexti af lánum sjóðsins hafa fylgt ávöxtunarkröfu á bréfum Íbúðalána- sjóðs með tilteknu álagi. Þeir séu nú 4,83% og hafi verið endurskoðaðir á þriggja mánaða fresti og nú sé komið að því að endurskoða vextina. Aðspurður hvort breytingin verði með svipuðum hætti og hjá Lífeyrissjóði sjómanna segir Haukur það ekki vera ólíklegt, þ.e að vaxtabreyt- ingin verði eitthvað svipuð hjá LSR. Kynna vaxta- breytingar í næstu viku NEYTENDASAMTÖKIN telja að alltaf eigi að vera hægt að greiða upp íbúðalán, óeðlilegt sé, ef fólk hefur vilja og getu til að greiða upp lán, að það megi það ekki. Þetta segir Jóhannes Gunnarsson, formaður samtak- anna. „Við fordæmum öll ákvæði í lánasamningum um að ekki megi greiða upp lán. Það er mjög einfalt. Við teljum fráleitt, í fyrsta lagi, að banna fólki að greiða upp lán, og í öðru lagi að láta það greiða einhverja sérstaka þóknun umfram það sem telst eðlilegt. Það er fráleitt að fólk þurfi að leggja í einhvern óeðlilegan kostnað til að fá að greiða lán upp eins og þekkist líka,“ segir Jóhannes. Fordæma ákvæði um að ekki megi greiða upp lán Jóhannes Gunnarsson BJÖRN Bjarnason, dómsmálaráð- herra, segir að engin tillaga sé uppi um að halda nýtt útboð um kaup á þjónustu um Tetra-fjarskiptakerfið. „Ríkiskaup sáu á sínum tíma um út- boðið vegna Tetra-kerfisins. Við meðferð málsins síðustu mánuði hef- ur verið haft samráð við Ríkiskaup, án þess að þaðan hafi komið tillaga um nýtt útboð eða því hafi verið and- mælt, að gerður yrði viðbótarsamn- ingur á grundvelli upprunalega til- boðsins. Hagsmunir dómsmálaráðu- neytisins byggjast á því að ekki verði rof í fjarskiptastarfsemi lögreglunn- ar,“ segir Björn. Óskar Magnússon, forstjóri Og Vodafone, sagði í Morgunblaðinu í gær að hann vildi að Tetra-fjar- skiptakerfið yrði boðið út aftur enda hefði ekki verið staðið við það tilboð sem Reykjavíkurborg og dómsmála- ráðuneytið gengu að í útboði árið 1999 og leiddi til samninga við Tetra Ísland, sem þá hét Irja. Nú sé ný og betri tækni komin til sögunnar sem ekki þurfi að greiða meira fyrir en nú standi til. Borgarráð samþykkti fyrr í þess- um mánuði viðbótarsamning við Tetra Ísland sem felur í sér veru- legar gjaldskrár- hækkanir fyrir þjónustu fyrir- tækisins. Málinu er ekki lokið af hálfu dómsmála- ráðuneytisins. Sé ný, betri og ódýrari tækni komin til sögunnar til að sinna þess- um fjarskiptum segir Björn það að sjálfsögðu athugunarefni eins og ávallt, þegar um tækniþróun sé að ræða. Þessum málum sé mjög mis- jafnlega háttað eftir löndum og því fleiri þjóðir, sem taki upp fjarskipta- kerfi á borð við Tetra, þeim mun hagkvæmara verði kerfið. Leggja talstöðvum „Ég sé til dæmis að þýska lögregl- an er núna fyrst að koma fjarskipta- málum sínum í það horf að menn eygja þar þann kost, að unnt verði að hverfa frá gamla talstöðvarsam- bandinu. Hvernig nákvæmlega verð- ur að því staðið er þó enn óljóst,“ segir Björn Bjarnason. Tetra-fjarskiptakerfið Engin tillaga um nýtt útboð Björn Bjarnason GREININGARDEILDIR KB banka og Landsbanka gagnrýndu Íbúðalánasjóð fyrir mánuði fyrir að bjóða íbúðabréf út í lokuðu útboði. Voru bréfin í fyrsta útboði sjóðsins seld erlendum fjárfestum. Það sama var uppi á teningnum í öðru útboði á íbúðabréfum nú í þessari viku. Í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði vegna nýja útboðsins segir að sjóð- urinn muni leitast við að selja skuldabréf sín í opnum útboðum. Í ljósi markaðsaðstæðna hér á landi í kjölfar róttækra breytinga á útláns- vöxtum íslenskra banka og spari- sjóða hafi hins vegar verið ákveðið að fara í lokað útboð sem eingöngu var beint til erlendra fjárfesta. Og aftur er Íbúðalánasjóður gagnrýnd- ur. Í hálf fimm fréttum greiningar- deildar KB banka í fyrradag segir að ætla megi að betri kjör hefðu fengist ef fleirum hefðu verið boðin bréfin og Íbúðalánasjóður sé að gera verð- myndun með langtímaraunvexti mjög ógagnsæja. Vinnubrögð Íbúða- lánasjóðs að undanförnu hafi verið til þess að fæla erlenda fjárfesta frá og hafi dregið úr trúverðugleika sjóðs- ins. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa stjórnendur Íbúða- lánasjóðs sagt markaðsaðilum að næsta útboð verði opið. Útboð aftur gagnrýnt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.