Morgunblaðið - 28.08.2004, Side 8

Morgunblaðið - 28.08.2004, Side 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hí, hí, hí. Ég er líka búinn að vera á heimastjórnarafmæli. Hvaða áhrif hefurupplýsingatækniá lýðræðið og hvernig má nýta tæknina til að styrkja það? Þetta var á meðal spurninga sem leitast var svara við á norrænni ráðstefnu um Lýðræðið á öld upplýs- ingatækni sem hófst á fimmtudag og lauk í gær. Á ráðstefnunni sátu á annað hundrað manns hvaðanæva af Norður- löndunum og á meðal gesta voru ráðherrar, þingmenn og embættis- menn. Efnt var til ráð- stefnunnar í tilefni af for- mennsku Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni, og fór hún samhliða árlegum fundi norrænna upplýsingatækniráðherra. Undir yfirskriftinni Auðlindir Norður- landa hafa Íslendingar leitt nor- rænt samstarf á árinu, en sú yf- irskrift hefur víðtæka skírskotun. Liður í formennskuáætlun Ís- lendinga er að varpa fram ofan- greindum spurningum varðandi lýðræðið og upplýsingatækni á tímum alþjóðavæðingar. Ríkisstjórn Íslands stefnir að því að styrkja lýðræðislega stjórnarhætti enn frekar með þeim möguleikum sem ný tækni býður upp á og stuðla að auknum gæðum í stjórnsýslu hins opin- bera. Þetta kom m.a. fram í ræðu Geirs H. Haarde fjármálaráð- herra, sem opnaði ráðstefnuna og tók þátt í pallborðsumræðum ásamt ráðherrum frá öllum Norð- urlöndunum. Þeir lögðu m.a. áherslu á gott samstarf meðal þjóðanna á sviði upplýsingatækni og að efla ætti það enn frekar. Geir bendir á að staðan varðandi upplýsingatækni á Íslandi sé mjög góð, aðgangur að Netinu sé gríðarlega víðtækur og notkun sé mikil á mörgum sviðum. „Okkar opinberu stofnanir, sveitarfélög og aðrir slíkir aðilar hafa verið mjög framarlega í því að bjóða upp á þjónustu sína á Netinu, al- menningur hefur tekið því mjög vel og þátttakan er mjög mikil,“ segir Geir. Hann bendir á ef að litið er á Ísland í stærra sam- hengi, s.s. á Evrópuvettvangi, séu Íslendingar komnir að mörgu leyti lengra í almennri tölvunotk- un heldur en aðrar þjóðir. „Það er að hluta til vegna þess að við er- um vel upplýst þjóð og fólk er mjög fljótt að tileinka sér nýjung- ar, það er nú reynslan í þessu.“ Þrjár megináherslur Meðal þess sem Geir benti á í ræðu sinni er að ríkisstjórnin leggi megináherslur á þrjá þætti hvað varðar þróun lýðræðis í upp- lýsingasamfélaginu. Í fyrsta lagi hvað varðar stjórnsýslu og lýð- ræði eins og komið hefur verið að, en stefnt er að því að gera hana rafrænni og benti Geir t.a.m. hversu vel hafi gengið við að fá landsmenn til þess að skila skatt- framtalinu í gegnum Netið, en stærstur hluti framteljenda skilar af sér á rafrænu formi. Opinberar stofnanir eigi því að veita rafræna þjónustu hvarvetna sem ætlað er að leiða til aukinnar hagræðingar og bættrar þjónustu við almenn- ing og atvinnulíf segir í skýrslu um stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004–2007. Í öðru lagi er stefnt að því að upp- lýsingatæknin verði nýtt til þess að skapa ný atvinnutækifæri, örva nýsköpun og uppbyggingu sprotafyrirtækja. Í þriðja lagi stefna stjórnvöld að því að auka aðgang að upplýsingum með kynningu og vitundarvakningu fyrir almenning, opinbera aðila og aðila á vinnumarkaði. Geir segir Norrænu ráðherra- nefndina hafa ákveðið að útvíkka samstarf Norðurlandanna austur á bóginn til baltnesku landanna og Rússlands, að samstarfið verði á breiðari grundvelli. „Þar sem við erum ekki síður veitendur en þiggjendur. Við getum hjálpað þessum aðilum heilmikið með því sem við getum lagt af mörkum.“ Lýðræði fyrir alla, ekki suma Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri-grænna og með- limur Norðurlandaráðs, flutti ræðu á ráðstefnunni og sagði m.a. að svör verði að fást við ákveðnum undirstöðuspurningum áður en lengra sé haldið. Hann segir að tryggja verði aðgang allra að tækninni ef tala eigi um eflingu lýðræðisins í gegnum upp- lýsingatækni. Þar komi hið opin- bera inn sem sá aðili sem geti tryggt og séð til þess að allir geti orðið virkir þátttakendur í lýð- ræðissamfélagi, t.d. í sambandi við kosningar ef þær þróist í að verða með rafrænum hætti í framtíðinni. „Verður þá ekki al- gerlega að tryggja að allir standi jafnt að vígi gagnvart tækninni? Það er auðvitað ekki í dag,“ segir Steingrímur og bendir t.a.m. á að hluti landsbyggðarmanna búi við skerta möguleika á að taka þátt í rafrænu lýðræði því þeir hafi t.d. ekki netaðgang. Hann bendir sérstaklega á tvennt varðandi möguleika tækn- innar í lýðræðislegu samhengi. Í fyrsta lagi bein kosning almenn- ings til að gera fólk þátttakendur í ákvarðanatöku, sem hann segist þykja spennandi kostur. Í öðru lagi möguleikar tækninnar til að dreifa upplýsingum, þannig að fólk geti myndað sér skoðun og tekið afstöðu til málefna. Fréttaskýring | Norræn ráðstefna Upplýsinga- tækni og lýðræði Ríkisstjórnin ætlar að styrkja lýð- ræðislega stjórnhætti með tækninni Geir H. Haarde tók þátt í ráðstefnunni. Tæknin verkfæri en ekki markmið í sjálfu sér  „Það verður líka að vera ein- hver mannlegur þáttur í þessu. Menn verða að geta hringt í símanúmer og fengið einhverja manneskju sem talar við þá og útskýrir fyrir þeim, það má ekki alveg gleymast í þessu,“ segir Geir H. Haarde varðandi þátt upplýsingatækninnar í lýðræð- islegu samfélagi. Tæknin geti sparað mönnum tíma og fyrir- höfn en hún komi aldrei í stað persónulegra samskipta. jonpetur@mbl.is LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA hefur skipað dr. Ágúst Sigurðsson í stöðu rektors Landbúnaðarháskóla Íslands til næstu fimm ára. Land- búnaðarháskóli Íslands verður til úr sameiningu Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, Garðyrkjuskóla ríkis- ins að Reykjum og Rannsóknastofn- un landbúnaðarins (Rala) frá og með 1. janúar 2005. Ágúst lauk doktorsprófi í búfjár- erfðafræði við sænska landbúnað- arháskólann árið 1996 og hlaut við- urkenningu fyrir framúrskarandi árangur í doktorsnámi frá konung- legu sænsku akademíunni. Áður hafði hann út- skrifast sem bú- fræðingur frá Bændaskólanum að Hvanneyri árið 1983, lokið raun- greinadeildar- prófi frá Tækni- skóla Íslands árið 1986 og hlotið B.Sc.-gráðu frá búvísindadeild Hvanneyrar árið 1989. Frá árinu 1996 hefur hann starfað sem ráðunautur í erfða- og kynbóta- fræði hjá Bændasamtökum Íslands og sem landsráðunautur í hrossa- rækt frá ársbyrjun 1999. Sem slíkur hefur hann verið leiðandi á sviði hrossaræktar og hestamennsku hér á landi og starfað sem kynbóta- dómari og fyrirlesari í aðildarlönd- um Alþjóðasamtaka eigenda ís- lenskra hesta. Þá hefur hann stýrt ýmsum umfangsmiklum rannsókn- arverkefnum, m.a. varðandi ræktun íslensku kýrinnar. Ágúst er kvæntur Unni Óskarsdóttur og eiga þau fjög- ur börn. Umsækjendur um stöðuna voru 14 og voru þeir allir taldir uppfylla lág- marksskilyrði laga um hæfni. Nýr rektor Landbúnaðarháskólans Dr. Ágúst Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.