Morgunblaðið - 28.08.2004, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 9
Á MORGUN tekur sóknarprestur
við embætti í nýrri sókn í Reykjavík,
Grafarholtsprestakalli. Ásamt því að
vera fyrsti presturinn í þessari sókn
er sr. Sigríður Guðmarsdóttir fyrsta
konan til að gegna embætti sóknar-
prests í Reykjavík. Í hverri sókn
starfar einn sóknarprestur sem hef-
ur yfirumsjón með öllu starfinu en
við margar sóknir starfa einnig aðrir
prestar, sem oft eru kallaðir safn-
aðarprestar, auk annars starfsfólks.
Sigríður varð fyrst sóknarprestur á
Suðureyri árið 1990. Hún starfaði
þar til ársins 1994 og aðstoðaði m.a.
prestinn á Ísafirði eftir snjóflóðin í
Súðavík. Sigríður fluttist svo til
Ólafsfjarðar og gegndi embætti
sóknarprests þar fram til ársins 2000
að hún hélt til New Jersey í Banda-
ríkjunum til að stunda doktorsnám.
„Ég átti heima í New Jersey, rétt hjá
New York, þegar hryðjuverkaárás-
irnar urðu árið 2001. Ég hjálpaði þá
til við ýmislegt sem sneri að Íslend-
ingum og var m.a. með helgistund og
sálgæslu. Þetta var ósköp erfiður
tími. Maður hélt áfram að vera
hræddur lengi á eftir. Ég held
reyndar að fólk sé enn í skelfingu.“
Lengi álitið karlastarf
Sigríður segir ráðningu sína vera
ákveðin tímamót. „Konur eru í
kringum þriðjungur prestastéttar-
innar og hafa víða orðið sóknar-
prestar á landsbyggðinni en ekki
gengið nógu vel að komast í embætti
í Reykjavík. Það eru þó margar kon-
ur sem gegna embætti safnaðar-
presta,“ segir Sigríður og bætir við
að nú sé samkeppnin orðin harðari
þar sem þónokkurt atvinnuleysi sé í
prestastéttinni en það er breyting
frá því sem áður var.
Sigríður er langt komin með dokt-
orsritgerð sína sem fjallar um
kvennaguðfræði og dulræna guð-
fræði. Hún segir að lengi vel hafi
prestastarfið verið álitið karlastaða
og að fólk hafi jafnvel lýst því yfir að
það vildi ekki láta jarða sig af konu.
„Það er margt sem hefur áunnist í
jafnréttismálum Þjóðkirkjunnar en
það er jafnframt margt eftir,“ segir
Sigríður og bætir við að kvenprestar
séu ekki endilega ólíkir karlprestum
en að þeir séu kannski næmari fyrir
þætti tungumálsins. „Það er t.d.
langt síðan ég hef heyrt kvenprest
kalla söfnuðinn bræður eða tala um
allt í karlkyni. Ég held að stærsta
málið í þessu öllu sé að virða til jafns
gjafir karla og kvenna.“
Enn sem komið er er engin kirkja
í Grafarholti en söfnuðurinn hefur
aðstöðu í sal að Þórðarsveig 3. Þar er
Sigríður jafnframt með skrifstofu í
herbergi sem áður var ætlað fyrir
þvottahús.
Sérstök áhersla á barnastarfið
Sigríður segist vera sérlega já-
kvæð fyrir að fá að byggja upp sókn-
ina frá grunni. „Mér þótti einmitt
merkilegt þegar ég tók upp prests-
þjónustubækurnar. Í þær eru öll
verk presta skráð, s.s. skírnir, hjóna-
bönd, fæðingar og dauðsföll. Ég hef
alltaf tekið við gömlum bókum sem
hafa kannski verið í notkun í fimmtíu
ár en núna er það ég sem á að skrifa
á fyrstu síðuna.“
Sigríður segir að hún muni leggja
sérstaka áherslu á barnastarfið enda
mikið af börnum í hverfinu.
Sigríður bætir við að lokum að
prestastarfið vindi alltaf upp á sig
með tímanum þegar betri tengsl
hafa myndast við fólkið í sókninni.
Fyrsta konan sem gegnir emb-
ætti sóknarprests í Reykjavík
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sr. Sigríður Guðmarsdóttir er
prestur í nýrri sókn í Grafarholti.
Peysur - Peysur
heilar - hnepptar - renndar
síðar - stuttar
Stærðir 36-56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—15
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Silkipeysur
Langerma, stutterma
Silkitoppar
Einlitar og teinóttar dragtir
frá Merrytime
Einnig sparifatnaður frá Steilmann
Verið velkomnar
Mjódd, sími 557 5900
Daily Vits
FRÁ
E
rt
u
s
la
p
p
u
r
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Stanslaus orka
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
-fyrir útlitið
Nr. 1 í Ameríku
KYNNUM OKKAR METNAÐARFULLA
13 VIKNA NÁM Í LJÓSMYNDA-OG
TÍSKUFÖRÐUN.
OPIÐ HÚS
Í DAG
FRÁ KL. 11 - 16
Hamraborg 7, Hamrabrekkumegin • Sími 544 8030 • makeupforever.is
SKRÁNING Á STAÐNUM. GÓÐ GREIÐSLUKJÖR.
Digranesvegur
Hamraborg
Hamrabrekka
Nýbýlavegur
Hafnarfjarðarvegur
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16
Flott föt fyrir
konur á aldrinum
25-90 ára