Morgunblaðið - 28.08.2004, Page 11
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 11
Allir, sem hafa áhuga á tónlist, eru velkomnir í
kórana og ekki nauðsynlegt að vera félagi í KFUM
og KFUK. Skráning fer fram á skrifstofu KFUM og
KFUK, Holtavegi 28, 104 Reykjavík, eða í síma 588
8899 og á netfanginu skrifstofa@skrifstofa.is.
Nýtt!
Unglingakór og
Gospelkór KFUM og KFUK
KFUM og KFUK í Reykjavík
hefur ráðið listrænan
stjórnanda, Keith Reed, sem er
að stofna tvo nýja kóra.
Kórastarfið er öllum opið.
Unglingakór KFUM og KFUK
fyrir 16-25 ára
Lögð verður áhersla á kröftugan söng ásamt dansi
og leikrænni tjáningu. Gleði og fögnuður verða í
fyrirrúmi. Æfingar verða á miðvikudögum frá kl.
18:30-20:00 í félagsheimili KFUM og KFUK við
Holtaveg. Verð 6.000 kr. fyrir misserið.
Gospelkór KFUM og KFUK
fyrir 20 ára og eldri
Sungin verða sígild gospellög og ný lofgjörðar-
tónlist. Æfingar verða á miðvikudögum frá kl.
20:00-22:00 í félagsheimili KFUM og KFUK við
Holtaveg. Verð er 10.000 kr. fyrir misserið.
KOLMUNNAAFLI íslenzku fiski-
skipanna er nú orðinn 294.000 tonn
samkvæmt upplýsingum frá Sam-
tökum fiskvinnslustöðva. Erlend
fiskiskip hafa landað hér um 67.000
tonnum og því hafa íslenzku fiski-
mjölsverksmiðurnar tekið á móti um
360.000 tonnum það sem af er ári.
Síldarvinnslan á Seyðisfirði hefur
tekið á móti langmestu af kolmunn-
anum eða ríflega 101.000 tonnum.
Næst kemur Eskja á Eskifirði með
61.000 tonn og Síldarvinnslan í Nes-
kaupstað fylgir fast þar á eftir með
ríflega 57.000 tonn. Loðnuvinnslan á
Fáskrúðsfirði er með 48.000 tonn,
HB Grandi á Akranesi með 30.500,
Tangi á Vopnafirði með 23.000,
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum er
með tæp 13.000, Samherji í Grinda-
vík með 6.300, Hraðfrystistöð Þórs-
hafnar með 6.200, Skeggey á Höfn
með tæp 6.000, Síldarvinnslan í
Siglufirði er með 3.400, Ísfélag Vest-
mannaeyja með 3.000. Þá hefur
verksmiðja Ísfélagsins á Krossanesi
tekið á móti 750 tonnum og Síldar-
vinnslan í Helguvík er með 135 tonn.
Versmiðjur SVN hafa því tekið á
móti ríflega 160.000 tonnum samtals.
Íslenzku síldarskipin hafa landað
alls 45.000 tonnum til bræðslu hér á
landi og erlend skip hafa landað
6.000 tonnum. Verksmiðjurnar hafa
því tekið á móti 51.000 tonnum.
Langmestu hefur verið landað hjá
Síldarvinnslunni í Neskaupstað,
16.500 tonnum. Vinnslustöðin í Vest-
mannaeyjum er með 9.000 tonn,
hraðfrystistöð Þórshafnar með
8.700, Ísfélag Vestmannaeyja á
Krossanesi er með 5.000 tonn, HB
Grandi á Akranesi með 3.300 og Ís-
félag Vestmannaeyja í Eyjum með
3.150 tonn. Tangi á Vopnafirði er
með 2.750, Eskja á Eskifirði með
1.250, Loðnuvinnslan á Fáskrúðs-
firði með 800 og Síldarvinnslan á
Seyðisfirði er með 500 tonn.
Nokkuð er á reiki hver heildarafli
íslenzkra skipa úr norsk-íslenzka
síldarstofninum er. Samkvæmt
aflastöðulista Fiskistofu er heildar-
aflinn um 82.000 tonn. Norska fiski-
stofan hefur hins vegar gefið út að ís-
lenzku skipin hafi veitt um 50.000
tonn á Svalbarðasvæðinu. Sé gert
ráð fyrir að það sé að langmestu leyti
síld sem unnin er úti á sjó verður
heildaraflinn um 95.000 tonn. Leyfi-
legur heildarafli er um 128.000 tonn.
Yfir 100.000 tonn
af kolmunna til
Seyðisfjarðar
TÖLUR um verðvísitölur fiskaflans
sem Hagstofan hefur birt sýna að
verð heildaraflans upp úr sjó hefur
lækkað um 5,6% frá því í byrjun árs-
ins. Undangengið tvö ár hefur verð
heildaraflans lækkað um tæp 17%.
Þessar lækkanir eiga að stórum hluta
rætur að rekja til styrkingar íslensku
krónunnar en að hluta má rekja þetta
til lækkunar á afurðaverði í erlendri
mynt.
Frá þessu er greint í Morgunkorni
Íslandsbanka, en þar segir ennfrem-
ur: „Auk lækkunar á verði afla hefur
útgerðin þurft að takast á við ýmsa
aðra neikvæða þætti í ytri skilyrðum.
Olíuverð hefur verið hækkandi, vextir
á uppleið og afli dvínandi í ýmsum
verðmætum tegundum. Svo dæmi sé
tekið hefur afli í úthafskarfa dregist
saman um 38% á milli fyrstu sex mán-
aða þessa árs og sama tímabils í fyrra.
Afli á grálúðunni hefur dregist saman
um 28% á sama tíma og 24% í loðnu.“
Minna afla-
verðmæti
♦♦♦
FRÉTTIR
VEIÐI hefur gengið mjög vel í
Víðidalsá í sumar. Að sögn Ragn-
ars Gunnlaugssonar frá Bakka,
formanns veiðifélags Víðidalsár,
voru um 1400 laxar komnir á land
um miðja vikuna. Er það mikil
breyting frá því í fyrra, þegar 588
laxar veiddust í ánni. Mest er
þetta smálax en veiði hefur verið
mjög jöfn og góð. Veitt er fram í
miðjan september.
Þá hefur veiðin á silungasvæði
Víðidalsár einnig verið góð. Veiði-
menn hafa náð allt að fjörutíu sjó-
bleikjum á tvær stangir á dag, og
segir Ragnar bleikjuna bæði fal-
lega og væna.
Líflegt í Breiðdalnum
Að sögn veiðimanns sem varð
fyrir svörum í veiðihúsinu við
Breiðdalsá hefur verið góð veiði
þar síðustu daga. Eftir hressilega
rigningu fyrr í vikunni, þar sem
hækkaði vel í ánni, tók laxinn við
sér og veiddust 17 á miðvikudag
og 12 daginn eftir. Alls voru
komnir 335 laxar upp úr ánni og
samkvæmt upplýsingum frá
leigutaka árinnar stefnir í met-
veiði ef svo svo heldur fram sem
horfir. Stærsti lax sumarsins er
17 pund.
En það er ekki bara lax sem
tekur í Breiðdalsá, heldur hafa
verið veiddar 770 bleikjur, frá því
silungsveiðin hófst í maí, og 390
urriðar. Veiðimaðurinn sem rætt
var við lenti í rífandi bleikjutöku í
Gljúfrahyl í gærmorgun, en þá
landaði hann tíu bleikjum á stutt-
um tíma.
Góður gangur í Víðidalsá
Morgunblaðið/Sölvi Ólafsson
Þorsteinn J. Vilhjálmsson veiðimaður fær aðstoð við að losa fluguna,
svartan Frances, úr 13 punda laxi sem hann veiddi í Vatnsdalsá á dög-
unum og fékk laxinn að synda aftur út í strauminn.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
FORMENN frjálshyggju- og jafn-
réttisdeilda Heimdallar hafa kært þá
ákvörðun nýkjörinnar stjórnar fé-
lagsins að leggja deildirnar niður og
fella starfsemi þeirra inn í nýja mál-
efnahópa.
Í tilkynningu frá formönnum deild-
anna, þeim Helgu B. Bjargardóttur
og Ragnari Jónassyni, er ákvörðun
stjórnar Heimdallar sögð brjóta lög
félagsins og stjórnin sökuð um að
beita valdi sínu gegn virkum fé-
lagsmönnum í félaginu með ólögleg-
um og ólýðræðislegum hætti.
Stjórn Heimdallar segir í ályktun
sinni um skipulagsbreytingarnar að
fulltrúum deildanna, sem lagðar voru
niður, hafi verið boðin þátttaka í
starfshópum sem á að koma á lagg-
irnar; jafnréttisdeild í starfshóp um
mannréttindi en starfsemi frjáls-
hyggjudeildarinnar tekur að mati
stjórnarinnar til allra málefna- og
starfshópa í nýju skipulagstillögun-
um. Alls verða níu málefna- og starfs-
hópar starfandi á vegum félagsins í
vetur.
Ekki mikill samstarfsvilji
Helga B. Bjargardóttir, formaður
jafnréttisdeildar Heimdallar, segir að
í reglum félagsins komi skýrt fram að
ef deild sé stofnuð innan félagsins
megi stjórnin aðeins leggja deildina
niður ef starfsemi hennar stríði gegn
stefnu félagsins.
„Þessi stefna er mörkuð á aðalfundi
og ég veit ekki til þess að við höfum
gert neitt sem brjóti í bága við hana,“
segir Helga og gagnrýnir einnig að
samráð hafi ekki verið haft við for-
menn deildanna heldur þær einfald-
lega leystar upp vegna skipulags-
breytinga. „Það virðist ekki vera
mikill vilji til samstarfs af hálfu
Bolla,“ segir Helga.
Hún bendir jafnframt á að sjálf-
stæð deild sé ólík nefnd á vegum fé-
lagsins að því leyti að formenn deilda
eigi seturétt á stjórnarfundum félags-
ins en formenn nefnda ekki.
Telja sig í fullum rétti
Bolli Thoroddsen, formaður Heim-
dallar, segir að stjórn félagsins telji
sig vera í fullum rétti að fella málefna-
starfið í nýjan farveg.
„Við teljum að stjórn Heimdallar
móti stefnu félagsins og við erum að
víkka út, opna og samhæfa málefna-
starf félagsins. Í sjöundu grein laga
Heimdallar segir að málefnastarfið sé
á forræði stjórnar, fulltrúaráðs og al-
mennra funda og nefnda sem þessir
aðilar kjósa sér til aðstoðar,“ segir
Bolli.
Aðspurður hvers vegna samráð
hafi ekki verið haft við formenn deild-
anna áður en ákvörðunin var tekin,
segir Bolli að fulltrúar úr báðum
deildunum hafi verið á stjórnarfund-
inum þar sem ákvörðunin var tekin og
rætt hafi verið við þá áður en gengið
var til atkvæða auk þess sem þeim
hafi sérstaklega verið boðin þátttaka í
nefndastarfinu.
Hann segir að nýja stjórnin leggi
mikla áherslu á að opna félagið og
ætli því að hafa opna stjórnarfundi
einu sinni í mánuði. Því eigi ekki að
skipta máli þó fulltrúar deildanna eigi
ekki lengur aðild að stjórnarfundum.
Kæran er nú í vinnslu og mun full-
trúaráð Heimdallar taka málið til um-
fjöllunar fljótlega.
Heimdallur kynnir tillögur að málefnastarfi
Frjálshyggju- og jafn-
réttisdeildir lagðar niður
Helga B.
Bjargardóttir
Bolli
Thoroddsen
Formenn deildanna hafa kært ákvörðunina
HVORKI meira né minna en 22 þús-
und lítrar af vatni rúmast í bílnum
sem Eiríkur Oddsson ekur fyrir
Jörva á Hvanneyri.
Hann var að dæla vatni upp úr
Miðfellsvatni með stórri slöngu
þegar Morgunblaðið átti þar leið
um á dögunum.
Ætlunin var að bleyta veg hinum
megin við vatnið áður en veghefill
færi þar yfir. Eiríkur segir að veg-
urinn megi heldur ekki vera of
blautur áður en farið er með hef-
ilinn yfir, því þá sé hann „bara bless
og út“.
Vatni dælt
úr Mið-
fellsvatni
Morgunblaðið/Þorkell