Morgunblaðið - 28.08.2004, Síða 20

Morgunblaðið - 28.08.2004, Síða 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Núna standa yfir miklar framkvæmdir á skólalóðinni við Grunnskólann í Borg- arnesi. Verið er að byggja gervigrasvöll af stærðinni 27 x 47 m og leggur KSÍ til gervi- grasið en Borgarbyggð sér um alla undir- vinnu. Vegna þessa er skólalóðin ónothæf eins og er framan við unglingadeildina og öll umgengni verulega takmörkuð. Bíla- stæði fyrir kennara og starfsfólk skólans eru teppt af vinnuvélum og tilheyrandi og búið er að girða af vinnusvæðið svo að börn- in fari sér ekki að voða. Óhætt er að full- yrða að skólafólk hlakkar til þess að fram- kvæmdunum ljúki og enn spenntari eru knattspyrnuiðkendur sem bíða eftir bættri aðstöðu til æfinga og leikja.    Framkvæmdagleðin er víðar í Borgar- nesi því ástandið er svipað við leikskólann Klettaborg. Þar var byrjað á viðbyggingu um miðjan júlí þegar leikskólinn var lok- aður vegna sumarleyfa. Í viðbyggingunni, sem er um 110 fm, verður eldhús, kaffistofa starfsfólks, skrifstofa, geymsla, ræsting/ þvottur og salerni fyrir fatlaða og er áætlað að allt verði tilbúið í byrjun desember. Helsta truflunin af framkvæmdunun þar er hávaðamengun sem er að sjálfsögðu óhjá- kvæmileg. En að sögn leikskólastjóra hefur þessi röskun gefið börnunum heilmikið „í leikinn“ og orðið tilefni til skemmtilegra umræðna.    Krakkarnir í Bjargslandinu hafa tekið gleði sína á ný eftir að komið var með ný leiktæki á róluvöllinn. Þeir horfðu nefnilega á í sumar þegar allt var rifið niður, og veltu margir fyrir sér hvort þarna ætti ekkert að vera lengur. En nú er búið að bæta úr því og kominn er nýr kastali, nýjar rólur, vega- salt og rennibraut. Fréttaritari sá að verk- takar þurftu ítrekað að vísa börnunum frá á meðan á uppsetningu stóð þar sem ákefðin og eftirvæntingin var þvílík að starfsmenn fengu varla frið með hallamálið til að stilla tækin af.    Safnahús Borgarfjarðar og Snorrastofa eru að efla samstarf sitt og eru starfsmenn á hvorum stað á kafi í undirbúningi fyrir dagskrá og sýningu vegna aldarminningar Guðmundar Böðvarssonar, skálds frá Kirkjubóli. Sýning á munum úr fórum Guð- mundar verður opnuð föstudaginn 3. sept- ember í Safnahúsinu og dagskrá tileinkuð skáldinu veruð haldin laugardaginn 4. sept- ember í Snorrastofu. Samstarf þessara stofnana er styrkur fyrir báðar og nokkur fyrirtæki hafa stutt verkefnið fjárhagslega. Úr bæjarlífinu BORGARNES EFTIR GUÐRÚNU VÖLU ELÍSDÓTTUR FRÉTTARITARA Keppni um titilinnSuðurnesjatröllið2004 fer fram þessa dagana. Mótið hófst með skógarhöggi í Hafn- arfirði í gær. Í dag kl. 13 verður keppt í drumbalyftu og steinatökum í Sandgerði og er keppnin liður í Sand- gerðisdögum. Þá fer hóp- urinn að Samkaupum í Njarðvík og keppir í krossfestulyftu kl. 14.30 og keppni lýkur í Grinda- vík kl. 16 þar sem keppt er í hleðslu og drætti. Margir þekktustu aflraunamenn landsins eru meðal þátt- takanda, meðal annars Magnús Ver Magnússon, Auðunn Jónsson , Kristinn Haraldsson, Jón Valgeir, Grétar Guðmundsson og Guðmundur Otri. Suðurnesjatröll Hvammstangi | Fimm fengu styrki úr Húnasjóði sem er í vörslu byggða- ráðs Húnaþings vestra. Sjóðnum er ætlað að stuðla að fag- og endur- menntun. Húnasjóður var stofnaður af Ásgeiri Magnússyni og Unni Ás- mundsdóttur, sem ráku Alþýðuskóla á Hvamms- tanga árin 1913 til 1920. Styrkurinn er kr. 100.000 á mann en hann hlutu Amalía Lilja Kristleifs- dóttir nemi í líffræði, Kol- brún Stella Indriðadóttir nemi í viðskiptafræði, Björgvin Brynjólfsson nemi í stjórnmálafræði, Ægir Pétursson nemi í tölvunarfræði og Margrét Guðrún Ásbjarnardóttir nemi í búvísindum. Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson Styrkveitingar úr Húnasjóði Séra Hjálmar Jóns-son hafði lofað vísuen eitthvað dróst að senda hana: Ekki treysta um of á prest sem einnig brugðist getur. Vísu færðu fyrir rest, en fyrirgefðu, Pétur. Eftir menningarnótt kom upp í hugann Hjálm- ars vísa sem Hilmir Jó- hannesson orti eitt sinn: Í upphafi var ágæt veislan, einn og sérhver fínn og strokinn. En mikið var nú menningarneyslan minni, svona undir lokin. Björn Ingólfsson leit við í Reðursafninu á Húsavík: Nú er farið fólki að sýna í faðmi Þingeyinga hana-, krumma-, hunda-, svína-, hesta- og mústittlinga. Frá menning- arnótt pebl@mbl.is FERÐAFÓLK naut veðurblíð- unnar á hálendinu síðari hluta sumars, eins og íbúar og gestir annarra landshluta. En sá tími er úti enda kólnar fyrr á há- lendinu. Andstæðurnar voru sláandi í hálendisvininni Hveravöllum einn sólardag fyr- ir skömmu. Þá hlýjuðu franskir ferðamenn sér í heitu lauginni á meðan félagar þeirra biðu dúðaðir undir vegg skálans. Enn er töluverð umferð um Kjöl enda vonandi langt í að leiðin lokist. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Andstæður á hálendinu Ferðalög TUTTUGU sækja um stöðu skólastjóra hins nýja Sjálandsskóla í Garðabæ en um- sóknarfrestur rann út í upphafi vikunnar. Nýr skólastjóri verður ráðinn á næstu vik- um en hann mun vinna að undirbúningi skólastarfs sem hefst að ári, að því er fram kemur á vef sveitarfélagsins. Um stöðuna sóttu þau Anna María Proppé, Arnþór Ragnarsson, Árdís Ívars- dóttir, Einar Sveinn Árnason, Elísabet Jó- hannesdóttir, Erna Ingibjörg Pálsdóttir, Finnur Magnús Gunnlaugsson, Guðlaug Erla Gunnarsdóttir, Guðrún Soffía Jónas- dóttir, Hannes Fr. Guðmundsson, Helgi Grímsson, Hulda Birna Baldursdóttir, Jör- undur Ákason, Kristinn Svavarsson, Sif Vígþórsdóttir, Sigríður Dúa Goldsworthy, Sigríður Hrefna Jónsdóttir, Sigríður Sig- urðardóttir, Svandís Ingimundardóttir og Svanhildur Kr. Sverrisdóttir. Tuttugu sækja um Sjá- landsskóla ÞORKELL Þorsteinsson hefur verið end- urráðinn aðstoðarskólastjóri Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, til eins árs, segir að skagafjordur.com. Hann hefur gegnt stöðunni síðustu árin. Þrír umsækjendur voru um starfið, auk Þorkels voru það Ársæll Guðmundsson, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar og fyrrverandi aðstoðarskólastjóri skól- ans, og Herdís Sæmundardóttir, kennari við skólann og fyrrverandi bæjarfulltrúi. Ráðinn aðstoð- arskólameistari ♦♦♦ HÓPUR af erlendum sjálfboðaliðum sem kallar sig veraldarvini hefur ver- ið að störfum á Siglufirði undanfarna daga. Hópurinn mun starfa hér alls í tvær vikur undir stjórn garðyrkjustjóra við ýmis umhverfisverkefni. Meðal verkefna eru göngustígagerð í skógræktinni í Skarðdal, stikun gönguleiða umhverfis Siglufjörð og vinna við endurgerð á Maddömuhúsi sem mun í framtíðinni hýsa þjóðlagasafn sr. Bjarna Þorsteinssonar. Þetta er annar sjálfboðaliðahópurinn sem kemur í sumar til starfa við svipuð verkefni. Alls hafa 35 sjálfboðaliðar því komið í sumar og sett skemmti- legan svip á bæjarlífið. Ljósmynd/Steingrímur Kristinsson Sjálfboðaliðar: Hluti af hópnum við Leyningsfoss í skógræktinni. Veraldarvinir vinna að umhverfisverkefnum RÆKJUVERKSMIÐJAN Íshaf hf. á Húsavík hefur sagt upp samningi um vaktavinnu sem gilt hefur milli fyrirtæk- isins og Verkalýðsfélags Húsavíkur. Upp- sögnin tekur gildi um miðjan september. Fram kemur á vef stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum að hér er fyrst og fremst um að ræða varúðarráðstöfun hjá fyrir- tækinu þar sem lítil rækjuveiði hefur verið að undanförnu. Þá hafi hátt verð á svokall- aðri iðnaðarrækju, sem keypt er til fram- leiðslunnar, gert rækjuverksmiðjum landsins erfitt fyrir. Stjórnendur fyrirtæk- isins vonast til að geta útvegað nægt hrá- efni svo unnt verði að halda vaktavinnunni áfram. Að öðrum kosti er líklegt að unnið verði á einni dagvakt, að því er fram kemur á vefnum. Vaktavinnu- samningi sagt upp ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.