Morgunblaðið - 28.08.2004, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 28.08.2004, Qupperneq 21
MINNSTAÐUR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 21 Bílskúrshurðir Iðnaðarhurðir Sími 594 6000 Bæjarflöt 4, 112 R.vík Kópavogur | Árlegar viðurkenningar Umhverfisráðs Kópavogs voru af- hentar við hátíðlega athöfn í Félags- heimili Kópavogs í gær. Alls voru veittar sex viðurkenningar fyrir fegr- un og fallegt umhverfi, en það var Margrét Björnsdóttir, formaður Um- hverfisráðs, sem afhenti viðurkenn- ingarnar. Við tækifærið afhenti Hreinn Bergsveinsson, formaður Rot- aryklúbbs Kópavogs, Sigurði Geirdal bæjarstjóra fræðsluskilti sem Rot- ary- Lions- og Kivanisklúbbar í Kópavogi standa að ásamt umhverf- isráði og bæjarskipulagi. Þá var í lok athafnar haldið í rútuferð þar sem hinir viðurkenndu staðir voru skoð- aðir, fræðsluskilti um þá fest upp og skjöldur afhjúpaður við götu ársins 2004, sem er Sæbólsbraut 1–31. Andri Helgi Sigurjónsson, lands- lagsarkitekt og starfsmaður um- hverfisráðs segir þessum viður- kenningum ætlað að hvetja íbúa bæjarins til að fylgja fordæmi þeirra sem vel gera. „Áður fyrr voru alltaf veittar viðurkenningar fyrir fegurstu garðana, og þannig var gert í um fjörutíu ár,“ segir Andri Helgi. „Síð- ustu tíu ár hefur verið gerð áherslu- breyting á viðurkenningunum, þess eðlis að viðurkenningar eru veittar því sem vel er gert og athyglisvert í bæjarfélaginu á sviði umhverfismála. Það eru ýmsir flokkar og ekki þeir sömu ár eftir ár. Það sem við sjáum að vel er gert viljum við veita við- urkenningu.“ Framlag til ræktunarmála Hrafnhildur Bernharðsdóttir og Jón Viðar Magnússon hlutu við- urkenningu fyrir starf sitt að upp- græðslu og trjárækt við Lind- arhvamm, sem einnig ber númerið Vatnsendablettur 5. Í umsögn Um- hverfisnefndar segir „Lind- arhvammur við Elliðavatn er sann- kallaður unaðsreitur. Þó ófá handtök og vinnustundir liggi að baki rækt- unar landsins er hægt að segja að ánægjan og gleðin sem gróðurinn veitir sé margfalt á við það sem lagt var í verkið í upphafi.“ Framlag til umhverfismála Heilsuleikskólinn Urðarhóll hlaut viðurkenningu umhverfisráðs fyrir ötult starf við flokkun og endurnýt- ingu sorps og öfluga umhverfisstefnu sem byggist á ábyrgri umgengni, flokkun og endurnýtingu og ábyrgum innkaupum. Hafa starfsmenn leik- skólans unnið markvisst að þróun verkefna í umhverfisgeiranum og um leið aflað sér dýrmætrar reynslu sem getur auðveldað öðrum leikskólum að feta í fótspor Urðarhóls. Í umsögn Umhverfisnefndar segir: „Það er að verða okkur jarðarbúum ljóst að auð- lindir jarðarinnar eru ekki óþrjót- andi. Fræðsla og umhverfisvitund eru mikilvægustu þættirnir til þess að opna augun og bregðast við mál- um. Með frumkvöðlastarfi sínu vinnur Heilsuleikskólinn Urðarhóll bæj- arfélaginu ómetanlegt gagn á sviði umhverfismála.“ Frágangur húss og lóðar Húsvirki hf. fékk viðurkenningu vegna fjölbýlishússins að Lómasölum 2–4, sem er fjögurra hæða, tveggja stigaganga fjölbýlishús. Húsið er hannað með það fyrir augum að allt viðhald verði í lágmarki. Í umsögn Umhverfisnefndar segir m.a.: „Ljóst er að við byggingu Lómasala 2–4 hef- ur verið lögð rík áhersla á að vanda vel til alls frágangs. Samspil húss og lóðar er ágætlega leyst og undirstrikar mikilvægi þess að hús og umhverfi sé hannað í sam- hengi.“ Framlag til umhverfismála Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð fékk viðurkenningu fyrir fjölbreytt úti- svæði og fallegt umhverfi, þar sem áhersla er lögð á möguleika til útivist- ar og líkamsþjálfunar. Í umsögn seg- ir: „Það er vísindalega sannað að um- hverfi með fallegum, fjölbreytilegum og gróskumiklum gróðri hefur já- kvæð og góð áhrif bæði á andlega og líkamlega heilsu manna.“ Verðlaun fyrir hönnun Björgvin Snæbjörnsson hlaut við- urkenningu fyrir hönnun einbýlis- hússins að Laxalind 6. Þar var haft að leiðarljósi að nýta til fulls fallegt út- sýni frá lóðinni. Að skapa góð tengsl milli innri og ytri rýma og að skapa skemmtilega umgjörð utan um dag- legt líf fjölskyldunnar. Þykir húsið hafa látlaust form og er leitast við að nýta útsýni sem best og hleypa inn birtu. Í umsögn Umhverfisráðs segir: „Einbýlishúsið að Laxalind 6 er gott dæmi um hönnun sem tekur mið af lóð og lagar sig að henni.“ Eins og áður segir var Sæbóls- braut 1–31 valin gata ársins 2004. Við hana eru raðhús á tveimur hæðum sem standa nálægt götu. Engar gangstéttar eru við götuna né heldur bílastæði önnur en þau sem eru innan lóða. Skjólveggir, gróðurker og gróð- urbeð ná að götu og gefa henni hlý- legt yfirbragð og þykja snyrti- mennska og góður frágangur einkenna götumyndina. Umhverfisráð Kópavogsbæjar veitir umhverfisviðurkenningar Sæbólsbraut 1–31 fegursta gata Kópavogs Morgunblaðið/ÞÖK Fegursta gatan: Sæbólsbraut 1–31 þótti bera af í snyrtilegu umhverfi. Reykjavík | Skólastarf er að hefjast í Kennarháskóla Íslands þessa dag- ana og gangar skólans iða af lífi. Fjarnemar setja jafnan mikinn svip á skólastarfið í upphafi haustmiss- eris þar sem þeir mæta fyrstir í skól- ann í um vikulangar lotur. Sú nýbreytni er tekin upp í skól- anum í ár að allir nýnemar, bæði í stað- og fjarnámi, hefja nám á sama tíma. Eitt af markmiðum skólans er að tengja fjarnám og staðnám meira en verið hefur og er skipulag ný- nemaviku spor í þá átt. Grunnskólabraut fjölmennust Líkt og áður er grunnskólabraut fjölmennasta braut skólans með 986 nemendur og leikskólabraut er næstfjölmennust með 362 nemend- ur. KHÍ er næststærsti háskóli landsins og í vetur munu samtals 2.544 stúdentar stunda þar nám en af þeim er rúmlega helmingur í fjar- námi eða um 61% stúdenta. Í framhaldsdeild munu 573 nem- endur stunda nám í vetur, þar af 102 í meistaranámi. Tvær nýjar brautir eru kenndar til Dipl.Ed.-gráðu en það er Fullorðins- fræðsla og Kennslufræði og skóla- starf. Símenntunarstofnun Kennarahá- skólans býður upp á úrval námskeiða fyrir fagstéttir skólans og almenn- ing. Ein nýjung í vetur eru fræðslu- kvöld fyrir foreldra þar sem tekið verður á ýmsum málum er varða skólagöngu og uppeldi. Símenntunarstofnun hefur um- sjón með ökukennaranámi í sam- vinnu við Umferðarstofu og er áætl- að að það nám hefjist um næstu áramót. Skólastarf í Kennara- háskóla Ís- lands hafið HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI ÞAÐ verður mikið um að vera á Akureyri í dag, í tilefni Akureyrarvöku, sem haldin er í tengslum við afmæli Akureyrarbæjar og lok Listasumars. Boðið er upp á viðamikla dagskrá víða, í Kjarna- skógi, við Íþróttahöll og á sundlaugarsvæð- inu en mest verð- ur þó um að vera í miðbænum. Fjöldi myndlist- arsýninga verður opnaður í sýning- arsölum bæj- arins og tónlist- armenn verða vítt og breitt um bæinn með hljóð- færi sín. Í Samkomuhúsinu verður opið hús og starfsemi LA kynnt og ætlar Hildigunnur Þráins- dóttir að leika einþáttunginn, Maður, kona: egglos, sex sinnum í röð. Í Borgarbíói verður myndin Bærinn við Pollinn, eftir Gísla Sigurgeirsson, sýnd fjórum sinnum. Að auki verða fjölmargar aðrar uppákomur. Vökunni lýkur með eldgöngu kl. 23. Kyndlaberar fara úr Listagili og mæta kyndlareið Léttismanna og Lúðrasveitar Akureyrar í skrúð- göngu sem endar við Strandgötu. Þar verða eldar tendraðir með aðstöð félaga úr Cirkus Atlantis. Akureyringum og gestum á Akureyrarvöku verður boðið að smakka á grilluðu nauta- kjöti á Ráðhústorgi í dag. Líf og fjör um allan bæ RÚMLEGA 20 vélhjólakappar frá Akureyri héldu í þriggja daga ferð á torfærufákum sínum í gær. Lagt var upp frá Brúarlandi í Eyjafjarð- arsveit, yfir í Mývatnssveit, þar sem hópurinn gisti í nótt. Ekið var yfir Bíldsárskarð, inn að Sörlastöðum í Fnjóskadal, yfir Vallafjall í Bárð- ardal, upp í Svartárkot og áfram Suðurárbotna að Grænavatni í Mý- vatnssveit. Í dag heldur hópurinn í dagsferð í Kelduhverfi en gistir svo aftur á Sel-Hóteli Mývatni í nótt. Að sögn Gunnars Hákonarsonar leiðangursstjóra er hér um að ræða hinn árlega HH túr, eins og hann orðaði það og er ýmsum vél- hjólaköppum boðið að taka þátt í ferðinni. Gunnar sagði að ekið væri eftir slóðum og að ferðin væri farin í sátt við landeigendur á leiðinni. Fyrirtæki Gunnars, HH verktakar, býður svo öllum hópnum til grill- veislu í samstarfi við Sel-Hótel Mý- vatni, bæði föstudags- og laug- ardagskvöld. Morgunblaðið/Kristján Vélhjólakappar á ferðalagi Vélhjólakapparnir leggja af stað frá Eyjafjarðarsveit yfir að Mývatni. „ÉG ER þokkalega ánægður,“ sagði Halldór Jónsson, forstjóri Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri, um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sjúkrahúsið sem birt var í gær. „Skýrslan er almennt jákvæð hvað okkur varðar, starfsemi spítalans og rekstur. Þannig að fyrir hönd okkar starfsfólks er ég ánægður með nið- urstöður skýrslunnar. Hann sagði að á það bæri einnig að líta að „við ráðum ekki endilega öllu,“ og vísaði þar til margs konar utanaðkomandi þátta, sem stjórn- endur FSA réðu ekki, m.a. varðandi hönnun viðbyggingar, aukinn launa- kostnað og hærri lyfjakostnað svo eitthvað sé nefnt. Áætlanir liggja fyrir „Það sem okkur þykir skipta mestu varðandi viðbygginguna er að nú liggja fyrir áætlanir um nýtingu hennar,“ sagði Halldór en í skýrsl- unni er gagnrýnt að byggingin hafi staðið auð til fjölda ára þar sem ekki fékkst fé til að innrétta hana. Þá hafi hönnun verið ábótavant og hún nýt- ist því ekki sem skyldi. Byggingin var hönnuð hjá embætti Húsameist- ara ríkisins. Halldór benti á að byggingin hafi verið hönnuð fyrir meir en 12 árum en á þeim tíma sem liðinn er hafi forsendur breyst. Það mætti þó segja að fyrirkomulag byggingarinnar væri að vissu leyti gallað. „Það þjónar hins vegar eng- um tilgangi að eyða miklu púðri í vangaveltur um það núna,“ sagði Halldór. Nú væri verið að ganga til samninga við verktaka um innrétt- ingu á einni af ónotuðu hæðunum í byggingunni. „Ráðherra hefur svo samþykkt áform um nýtingu á hin- um hæðunum, en þar verður stjórn- sýsla spítalans og þar verður einnig þjónusta við sjúklinga án innlagnar, eða svonefnd ferliverk.“ Halldór sagðist vonast til þess að fé yrði sett í þau verkefni í beinu framhaldi af innréttingunni sem nú er að fara af stað. Forstjóri Fjórðungssjúkrahússins um skýrslu Ríkisendurskoðunar Almennt jákvæð í okkar garð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.