Morgunblaðið - 28.08.2004, Qupperneq 23
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 23
Kópasker | Ný sláturlína hefur verið sett upp í slátur-
húsi Fjallalambs hf. á Kópaskeri og unnið að lokafrá-
gangi mikilla endurbóta á sláturhúsinu. Markmiðið er
að fá leyfi til útflutnings á Evrópumarkað og halda
leyfi til slátrunar fyrir innlenda markaðinn.
Eigendur Fjallalambs stóðu frammi fyrir því í vor að
loka sláturhúsinu og þiggja boð um fjárstuðning til að
úrelda það eða hefja umfangsmiklar endurbætur.
Ákveðið var að halda starfseminni áfram. Garðar Egg-
ertsson, framkvæmdastjóri Fjallalambs hf., segir að
nauðsynlegt hafi verið að fá leyfi til útflutnings. Þá
væru breytingarnar forsenda þess að halda sláturleyfi
fyrir innlendan jafnt og erlendan markað eftir að kröf-
ur til sláturhúsa verða hertar eftir þrjú ár.
Samstaða í héraði
Fjallalamb er mikilvægur vinnuveitandi á Kópaskeri
og var mikil samstaða um þessa framkvæmd meðal
bænda, í sveitarstjórn og meðal íbúa héraðsins. Sá
áfangi breytinganna sem unnið er að í sumar kostar um
50 milljónir og hafa heimamenn lofað 30 milljóna króna
hlutafé til að standa undir því auk þess sem Byggða-
stofnun leggur fram 10 milljóna kr. hlutafé. Meginhluti
framkvæmdarinnar er því fjármagnaður með nýju eig-
in fé.
Slátrunarsalurinn er allur endurnýjaður. Meðal ann-
ars hefur verið sett upp ný fláningslína og verður féð
eftirleiðis fláð hangandi. Garðar segir að slátrunin eigi
að vera hagkvæmari með þessu móti, hægt verði að
auka afköstin án þess að fjölga starfsfólki. Þá verði
vinnan léttari og auðveldara að halda kjötinu hreinu og
auka gæði þess.
„Það hefur orðið mikil breyting í kröfum til slátur-
húsa. Þetta eru ekki lengur grófir staðir sem notaðir
eru við að aflífa fé heldur matvælavinnslur þar sem
fullbúin matvara er unnin,“ segir Garðar.
Á næstu árum er áformað að ráðast í lagfæringar á
kjötvinnslu fyrirtækisins til að auka möguleika á sögun
og niðurhlutun kjötskrokkanna. Segir Garðar að það sé
nauðsynlegt til að reyna að fá sem best verð fyrir af-
urðirnar á erlendum mörkuðum.
Fjallalamb er sérhæft sauðfjársláturhús og kjöt-
vinnsla og hefur reksturinn yfirleitt gengið ágætlega
og vel gengið að selja afurðirnar. Hægt hefur verið að
halda eigninni nokkuð vel við, að sögn Garðars, en ekki
verið afgangur umfram það. Hann segist nokkuð bjart-
sýnn á framtíðina. Segir að sala á lambakjöti bendi til
þess að markaðurinn sé á uppleið aftur eftir ákveðinn
öldudal og hægt verði að horfa fram á veginn.
Miklar endurbætur á sláturhúsi Fjallalambs hf.
Markaðurinn á uppleið
Morgunblaðið/Kristbjörg Sigurðardóttir
Matvælavinnsla: Slátrað verður í haust í endurbættum
slátursal Fjallalambs. Þar er meðal annars komin ný
fláningslína. Garðar Eggertsson stendur í ströngu.
LANDIÐ
þess að bæta samfélagið og það er
ákaflega gaman að fá tækifæri til að
sjá börnin vaxa upp og komast til
manns. Hér áður fólst skólastarfið í
því að búa fólk undir verk sem vitað
var hvernig átti að vinna. Í dag eru
þjóðfélagsbreytingar það hraðar að
hver manneskja upplifir miklar
breytingar á sinni starfsævi. Við leit-
umst við að búa nemendurna undir
að takast á við samfélag sem enginn
veit hvernig verður með því að gera
þau viðbúin að fást við óþekktar að-
stæður. Þetta setur skólastarfið í
annað samhengi því þegar samfélag-
ið breytist þarf að takast á við margt.
Við erum ekki með lausnirnar heldur
búum nemendurna undir að fara í
hina miklu sendiför sem bíður þeirra
að loknum skóla,“ segir Birgir þegar
hann er beðinn að skilgreina
áherslur skólastarfsins. Hann er
mjög ánægður með viðtökur íbúanna
á Selfossi og segir mikla eftirvænt-
ingu ríkja í kringum skólann. „Þetta
er afar spennandi verkefni og það er
mikill styrkur að finna þann hlýhug
sem kemur frá foreldrum og bæj-
arbúum öllum. Farsælt skólastarf
byggist á því að vel takist til í sam-
vinnu skólans og allra sem standa að
nemendunum. Skólastarfið er sam-
vinna og sameiginlegt átak sem mið-
ar að því að skapa farsælan skóla,“
segir Birgir Edwald, skólastjóri hins
nýja Sunnulækjarskóla Selfossi.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Birgir Edwald skólastjóri með nýbyggingu Sunnulækjarskóla í baksýn.
www.toyota.is
Sýningin er opin
laugardag kl. 12 - 16
sunnudag kl. 13 - 16
ING um helgina
Nú eru
síðust
u forv
öð að
tryggj
a sér A
vensis
á þess
u tilbo
ði.
Innifal
ið: Kró
mpakk
i og ál
felgur
eða só
llúga.
Avens
is 120
.000 k
r.
aukab
únaðu
r fylgi
r