Morgunblaðið - 28.08.2004, Qupperneq 24
FERÐALÖG
24 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ferðahópurinn varskemmtilegur og sam-stilltur, og hrein forrétt-indi að njóta leiðsagnar
þess sérfræðings um menningu,
sögu og tungu Grikkja sem Sigurður
er, segja þau Bergljót Gunn-
arsdóttir og Oddur Björnsson.
Ferðaáætlunin var bæði stíf og
metnaðarfull, en flogið var til Aþenu
hinn 22. maí og aftur heim 6. júní
eftir ferðalag um meginland Grikk-
lands með viðkomu á hátt í tuttugu
merkum sögustöðum, auk siglinga
um grísku eyjarnar og til hinnar
fornu borgar Efesos í Tyrklandi.
„Við hefðum ekki viljað sleppa mín-
útu úr ferðinni, en vorum samt
óskaplega fegin þegar þetta var bú-
ið. Sá yngsti í ferðinni var 13 ára og
sá elsti um áttrætt. Ég held að öll-
um hafi þótt mjög gaman, en um leið
hafi öllum þótt þetta alveg passlegur
skammtur,“ segir Bergljót og hlær.
Akrópólis í morgunljóma
Það væri líklega efni í heila bók að
gera öllu skil sem varð á vegi ferða-
langanna, en þau Bergljót og Oddur
gera þó heiðarlega tilraun til að
stikla á stóru í ferðasögunni.
„Eftir komuna til Aþenu dvöldum
við á hóteli með útsýni yfir borgina.
Þegar við litum út um gluggann
fyrsta morguninn blasti Akrópól-
ishæðin við okkur í allri sinni dýrð í
gylltum morgunljómanum. Þetta
kom okkur alveg í stuð fyrir ferð-
ina,“ segir Bergljót. Í Aþenu var
gengið á Akrópólishæðina og sögu-
staðir á borð við Ólympíuvöllinn frá
árinu 1896 skoðaðir. „Þar var Ól-
ympíueldurinn geymdur áður en
hann var fluttur á nýja leikvanginn,
og smelltum við auðvitað af mynd-
um við eldinn,“ bætir Oddur við.
Þau segja að ekki hafi verið árenni-
legt um að litast í Aþenu í maí, þar
sem borgin hafi verið undirlögð
framkvæmdum og undirbúningi fyr-
ir Ólympíuleikana, og sé það mesta
furða að náðst hafi að koma öllu á
koppinn í tíma. „Þetta leit út fyrir að
vera eitt allsherjar kaos, allt var
hálfkarað, sundurgrafið og umferð-
aröngþveitið mikið.“
Rústirnar í Efesos
Á Krít voru hinar frægu hall-
arrústir Mínosar konungs í Knossos
skoðaðar, og segja þau Bergljót og
Oddur að mest hafi komið þeim á
óvart hversu lítil höllin er og völund-
arhúsið fræga sem ófreskjan Mínot-
áros á að hafa verið í. Til Santóríní
var gaman að koma en öll byggðin á
þessari sérkennilegu eldfjallaeyju
liggur í bröttum hlíðum. Þar vor
rústir Akrótírí, elstu varðveittu
borgar Evrópu, skoðaðar. Eftir sigl-
ingu um grísku eyjarnar var haldið
til Tyrklands og rústir borgarinnar
Efesos frá tímum Rómverja kann-
aðar. „Þessa borg er enn verið að
grafa upp og er þar að finna ótrú-
lega vel varðveittar borgarrústir,
með leikhúsum, leikvöngum, al-
menningssalernum og jafnvel vænd-
ishúsum,“ segir Bergljót. Oddur
bætir því við að það hafi verið hreint
stórkostlegt að skoða rústirnar.
„Þetta er gríðarstórt og borgin
ákaflega falleg og skartar m.a.
musteri Artemisar, einu af sjö undr-
um veraldar. Þarna eru líka merkar
Akrópólishæð: Blasti við ferðafólkinu í morgunljóma.
GRIKKLAND | Söguslóðir með Sigurði A. Magnússyni
Fornminjar við
hvert fótmál
Bergljót Gunnarsdóttir
og Oddur Björnsson
skelltu sér með í leið-
söguferð Sigurðar A.
Magnússonar um sögu-
slóðir á Grikklandi í vor
og segja hana einhverja
þá eftirminnilegustu
sem þau hafi farið.
Safn: Oddur Björnsson skipar sér hér í röð merkra fornminja.
Enski boltinn
Sérstök umfjöllun um enska
boltann verður alla laugardaga
í vetur í íþróttablaði
Morgunblaðsins.
Skjóttu á úrslitin!
Á vefnum getur þú tekið þátt í getraunaleik
og unnið til verðlauna.
Á finnur þú einnig allt
um enska boltann á einum stað
l staðan
l umferðir
l dagskrá útsendinga
l úrslit