Morgunblaðið - 28.08.2004, Blaðsíða 27
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 27
gangist undir afnæmismeðferð.
Hún breytir því miklu fyrir lífs-
gæði slíkra einstaklinga.
Það er mjög mikilvægt að ein-
staklingar og heilbrigðisstarfsfólk
þekki einkenni ofnæmis fyrir geit-
ungum og að leitað sé eftir grein-
ingu og meðferð.
Fyrir þá sem eru með ofnæmifyrir eitri geitunga eru þeirvágestir sem ógna lífi og
vellíðan. Hlý veðrátta og vaxandi
blóma- og gróðurrækt hefur valdið
því að geitungum hefur fjölgað.
Geitungar eru skordýr af ættbálki
æðvængna (Hymenoptera) en til
þeirra teljast einnig humlur og bý-
flugur. Þeir geta stungið og valdið
umtalsverðum óþægindum og jafn-
vel lífshættulegum viðbrögðum.
Langalgengast er að fólk fái stað-
bundið svar með kláða og bólgu en
lítill hluti almennings myndar of-
næmi og fær verri svörun á stærra
svæði. Þeir sem eru með lífs-
hættulegt ofnæmi fá almenn við-
brögð, sk. ofnæmislost sem er lífs-
hættulegt ástand. Talið er að
bráðaofnæmi vegna geitunga eða
býflugna valdi u.þ.b. 50 dauðs-
föllum á ári í Bandaríkjunum.
Árásargirnin í hámarki
Fjöldi geitunga nær hámarki í
ágúst/september. Þá er árás-
argirnin einnig mest og þeir geta
stungið við minnsta áreiti. Mesta
hættan á geitungastungu er t.d.
við vinnu og leik í garðinum. Einn-
ig eru geitungar sérlega sólgnir í
sætindi, bjór og vín og geta þeir
orðið óbærilega ágengir þar sem
fólk er að borða utan dyra í sól-
ríku veðri. Einstaklingar geta
fengið ofnæmi fyrir einni, fleirum
eða jafnvel öllum tegundunum æð-
vængja. Alvarlegt ofnæmi er oft
hægt að greina með blóðprófi. Ef
það er neikvætt er nauðsynlegt að
gera húðpróf, en þau eru gerð á
göngudeild Ofnæmis, lungna og
svefns á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi í Fossvogi.
Almenn ráð
Til að forðast stungur er rétt að
hafa eftirfarandi í huga:
Að eyða búum sem eru við
heimili.
Sýna aðgát við garðvinnu,
nota hanska.
Matarbiti og drykkir bjóða
geitungum heim. Gosdósir eru sér-
staklega varhugaverðar.
Geitunga innan dyra má
sprauta á hárlakki eða drepa í
einu höggi.
Hafa þétt net yfir vögnum
barna sem sofa úti.
Klæðast hvítum/ljósum fatn-
aði.
Nota ekki ilmefni.
Gangið ekki berfætt úti við,
klæðist síðum buxum og langerma
skyrtum.
Lyfjameðferð
Ef grunur vaknar um stungu
hjá einstaklingi með geit-
ungaofnæmi er meðhöndlað strax
eins og um ofnæmislost sé að
ræða.
Gefa strax adrenalín. Ein-
staklingur með geitungaofnæmi á
alltaf að bera á sér Epi-pen
sprautu (adrenalín) sem honum
hefur verið kennt að nota og and-
histamín.
Að því búnu á að kalla á að-
stoð og leita umsvifalaust á bráða-
móttöku. Allir næmir sjúklingar
skulu merktir með Medic Alert
merki.
Sértæk afnæming með æð-
vængjueitrinu (hymenopthera) er
mjög árangursrík meðferð sem
rétt er að gefa sjúklingum sem fá
ofnæmislost eftir stungu og reyn-
ast vera með jákvæð ofnæmispróf.
Það má segja að einstaklingur með
hættulegt geitungaofnæmi sé í
stöðugri lífshættu nema hann
FRÁ LANDLÆKNISEMBÆTTINU
Geitungar og ofnæmi
Sigurveig Þ. Sigurðardóttir læknir,
sérfræðingur í barnalækningum, of-
næmis- og ónæmislækningum
Landspítala – háskólasjúkrahúsi.
RAFLAGNA
ÞJÓNUSTA
RAFSÓL
Skipholti 33 • 105 Reykjavík
Sími:
553 5600
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
2
6
6
.0
0
2
lögg i l tu r ra fverk tak i
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
Slóg- og
slordælur
með
öflugum
karbít
hnífum.
Áratuga
reynsla.
fg wilson
Sími 594 6000
Slógdælur