Morgunblaðið - 28.08.2004, Qupperneq 31
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 31
Eftirfarandi greinar eru á
mbl.is:
Jón Steinsson: „Það er engin
tilviljun að hlutabréfamarkað-
urinn í Bandaríkjunum er öfl-
ugri en hlutabréfamarkaðir
annarra landa.“
Regína Ásvaldsdóttir: „Eitt af
markmiðum með stofnun þjón-
ustumiðstöðva er bætt aðgengi í
þjónustu borgaranna.“
Jónas Gunnar Einarsson:
„Áhrifalaus og mikill meirihluti
jarðarbúa, svokallaður almenn-
ingur þjóðanna, unir jafnan mis-
jafnlega þolinmóður við sitt.“
Jakob Björnsson: „Mörg rök
hníga að því að raforka úr vatns-
orku til álframleiðslu verði í
framtíðinni fyrst og fremst unn-
in í tiltölulega fámennum, en
vatnsorkuauðugum, löndum …“
Tryggvi Felixson: „Mikil
ábyrgð hvílir því á þeim sem
taka ákvörðun um að spilla
þessum mikilvægu verðmætum
fyrir meinta hagsæld vegna
frekari álbræðslu.“
Stefán Örn Stefánsson: „Ég
hvet alla Seltirninga til kynna
sér ítarlega fyrirliggjandi
skipulagstillögu bæjaryfir-
valda …“
Gunnar Finnsson: „Hins vegar
er ljóst að núverandi kerfi hefur
runnið sitt skeið og grundvall-
arbreytinga er þörf …“
Eyjólfur Sæmundsson og
Hanna Kristín Stefánsdóttir:
„Öryggismál í landbúnaði falla
undir vinnuverndarlög og þar
með verksvið Vinnueftirlitsins.“
Jakob Björnsson: „Með þvílík-
um vinnubrögðum er auðvitað
lítil von um sættir.“
Á mbl.is
Aðsendar greinar
UNDANFARNAR vikur hefur
fámennur hagsmunahópur fólks á
Seltjarnarnesi reynt að þyrla upp
moldvirði vegna fyrirhugaðrar
byggðar á Suður-
strönd og á Hrólfs-
skálamel, þar sem
gömul aflögð fisk-
verkunarstöð og
frystihús Ísbjarnarins
hafa um langan aldur
verið afar ljótur blett-
ur á annars fallegu
bæjarfélagi. Árum
saman hefur verið
talað um að á þessu
svæði, sem oftast er
nefnt Ísbjarnarlóðin,
rísi íbúðabyggð og
kemur þessi fram-
kvæmd því engum
bæjarbúa á óvart.
Til marks um vinsældir Nessins
sem bæjarfélags er ört hækkandi
fasteignaverð þar. Slíkt sýnir
svart á hvítu að fólk sækist eftir
að búa í bænum. Það talar sínu
máli. Fyrir utan að þetta er eitt
vistvænasta bæjarfélag höfuðborg-
arsvæðisins þar sem um 40% alls
lands fer undir græn útivist-
arsvæði sem aldrei verður byggt
á. Ekki er fyrirhugað aðskerða
nein opin svæði í tillögum bæj-
arstjórnar, aðeins flytja sum til.
Það eru fá bæjarfélög á landinu
sem hafa svo hátt hlutfall af græn-
um vernduðum útivistarsvæðum. Í
raun er það ekki hagkvæmt ef
skatttekjur eru aðalmarkmið til-
verunnar. Það er mikill lúxus að
geta leyft sér að nota um 40% alls
lands bæjarfélags með þessum
hætti. Þetta vilja Seltirningar
leggja á sig til að gera samfélagið
bæði vist- og fjölskylduvænt.
Það er afar mikilvægt að nýta
önnur svæði undir
íbúðabyggð. Svæði
sem aldrei hefur stað-
ið til að gera að
grænum opnum svæð-
um. Það er orðin að-
kallandi krafa á höf-
uðborgarsvæðinu að
þétta byggð. Það
gengur ekki lengur að
dreifa byggðinni út
um mela og móa eins
og gert hefur verið
hingað til. Kostnaður-
inn er slíkur að ekk-
ert bæjarfélag hefur
lengur efni á að halda
slíkri dreifingu byggðar áfram.
Ég var einn þeirra sem fóru
fyrir hópi bæjarbúa sem vildi
vernda vestursvæði Nessins um
aldur og ævi. Sú barátta hafðist
svo eftir var tekið. Þar er nú ein-
hver dýrmætasta útivistarperla
höfuðborgarsvæðisins. Vest-
ursvæðið er friðað til frambúðar.
Umferð fólks um svæðið eykst
jafnt og þétt. Á góðum degi koma
hundruð ef ekki þúsundir manna á
svæðið til útivistar, golfiðkunar,
fugla- og fjöruskoðunar og ann-
arrar dægradvalar. Oft má sjá
heilu fjölskyldurnar njóta útvistar
á þessum nesodda höfðuðborg-
arsvæðisins.
Ekki má gleyma frábæru
göngustígakerfi sem liggur með-
fram strönd Nessins þar sem dag-
lega má sjá mikinn fjölda fólks á
hjólum, línuskautum, skokkandi
eða í heilsubótargöngu. Stígakerf-
ið þræðir sig um Nesið og tengist
göngustígum Reykjavíkur sem lík-
ist æðakerfi sem liggur upp að
Rauðavatni og víðar. Þá liggur
víðáttumikið grænt skrúðgarða- og
útvistarsvæði frá norðurströnd
Nessins yfir Valhúsahæð og niður
í Bakkavör sunnan megin sem er
paradís barnanna allt árið um
kring.
Það er með ólíkindum ef fá-
mennur hópur bæjarbúa, sem á
persónulegra hagsmuna að gæta,
ætlast til þess að enn meira landi
verði breytt í óbyggð svæði. Það
gengur einfaldlega ekki upp hvað
varðar heildarhagsmuni bæj-
arfélagsins og íbúa þess.
Nesið með sína rúmlega 4.600
íbúa er ein minnsta rekstrareining
höfuðborgarsvæðisins. Miðað við
vaxandi kröfu íbúa um síaukna og
bætta þjónustu er þetta að verða
of lítill tekjustofn til að mæta
þörfum íbúa um stöðuga uppbygg-
ingu samfélagsþjónustunnar. Við
eigum góða skóla, en það þarf
mikið fjármagn til að gera þá enn
betri. Við höfum líka öflugt
íþróttastarf sem þarf aukna fjár-
muni til framfara. Við þurfum
fjármagn til að viðhalda og end-
urbæta grænu náttúrusvæðin og
almenningsgarða, göngustígakerf-
ið, leiksvæði fyrir börn og til að
halda bæjarfélaginu jafn snyrti-
legu og það er nú. Ekki má
gleyma heilbrigðisþjónustunni.
Þetta kostar allt peninga sem
koma úr vösum okkar íbúanna.
Við þurfum fleiri skattgreiðendur.
Sumir sem drepið hafa niður
penna um uppbyggingu á Ísbjarn-
arlóð tala eins og seðlar vaxi á
trjám.
Það gengur þvert á hagsmuni
heildarinnar að nýta ekki þessi
svæði undir nýja byggð sem mikil
þörf er fyrir til að mæta kröfum
bæjarbúa um meiri breidd í hús-
næðisstærðum. Þar sem Nesbúar
hittast þessa dagana er um það
talað að einhverjir þeirra sem hafa
riðið fram á ritvöllinn undanfarið
hafi ekki hagsmuni heildarinnar í
huga, heldur óttist þeir að byggðin
kunni að rýra endursöluverð fast-
eigna þeirra.
Þótt Seltjarnarnesið sé eft-
irsóknarvert fámennt bæjarfélag
sem kúrir sem náttúruperla við
Faxaflóann þá er það óraunhæf
krafa að klukka framþróunar bæj-
arfélagsins verði stöðvuð til þess
eins að mæta kröfu fáeinna íbúa
sem óttast að fá ekki nógu mikið
fyrir fasteign sína þegar hún verð-
ur seld.
Um 40% alls lands á Nesinu
fer undir græn útivistarsvæði
Jón Hákon Magnússon
skrifar um skipulagsmál
á Seltjarnarnesi ’Það gengur þvert áhagsmuni heildarinnar
að nýta ekki þessi svæði
undir nýja byggð …‘
Jón Hákon
Magnússon
Höfundur hefur búið á Nesinu síðan
1971 og verið virkur þátttakandi í
bæjarmálum þess.