Morgunblaðið - 28.08.2004, Page 43

Morgunblaðið - 28.08.2004, Page 43
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 43 Rauðagerði 26 • s. 588 1259 Opið í Rauðagerði 26 í dag, laugardag, kl. 10–18 Eldri vörur seldar með góðum afslætti. Verið velkomin. Komið og fáiðfrían bækling HAUST VETUR 2004 NÝTT NÝTT Dömufatnaður Herrafatnaður Heimilisvörur ÞÝSKUNÁMSKEIÐ GOETHE ZENTRUM www.goethe.is 551 6061 Dýrkun á stöðluðu útliti SLÆMT var að verða vitni að því er gert var grín að útliti fyrrum Banda- ríkjaforseta í eins góðum þætti og Ísland í dag nú er. Hvað er að því að vera 180 cm á hæð? Eru hærri menn eða konur fal- legri en minni? Eru dökkhærðir sætari en ljóshærðir o.s.frv.? Bandaríkjaforseti er gífurlega sjarmerandi og einn fremsti stjórn- málaskörungur sem uppi er í dag. Hann er mannlegur og ákaflega hrífandi persónuleiki. Frábært er að hann skuli hafa lagt lykkju á leið sína til að heimsækja Ísland. Það gengur ekki að gera slíkan fram- úrskarandi einstakling að útlits- tengdu umræðuefni byggðu á staðl- aðri fegurðarímynd í tildursfullu hjali í þætti sem Ísland í dag er. Nóg er af slíku nú þegar í öðru skemmtanatengdu efni. Kveðja, Sveinbjörg. Seðlaveski týndist í miðbænum SEÐLAVESKI týndist á menning- arnótt í miðbænum. Í vestinu var ör- orkuskírteini, debetkort og fl. Skil- vís finnandi vinsamlega hafi samband við Jóhönnu í síma 554 3411 eða 696 2010. Gleraugu í óskilum GLERAUGU, bleik/fjólublá, fund- ust fimmtudaginn 19. ágúst hang- andi í bandi í tré við Glanna í Borg- arfirði. Upplýsingar í síma 898 7892. Hálsmen týndist HÁLSMEN týndist, að öllum lík- indum í Fjölskyldu- og húsdýragarð- inum, sunnudaginn 22. ágúst. Menið er eins og þrjár reimar með silf- urlitum hólk framan á. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 557 6741. Reiðhjól í óskilum HÉR á Select á Bústaðaveginum eru tvö reiðhjól í óskilum. Þau eru búin að vera hér síðan um helgina, þannig að ef einhver saknar þeirra má vitja um þau hérna hjá okkur. Högni er týndur HÖGNI er svartur skógarköttur með hvítan kvið. Hann týndist frá Háholti 3, Hafnarfirði, sl. sunnudag þar sem hann var í pössun. Hann er frekar mannfælinn og er ómerktur og ólarlaus. Þeir sem vita um Högna eru vinsamlega beðnir að hafi sam- band í síma 565 0647 eða 696 4356. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Félag ferðamálafulltrúa efnir til EUTO-ráðstefnu á Hótel Loftleiðum 2. og 3.september. Ásborg Ó. Arnþórsdóttirer formaður FFÍ og einn af skipu- leggjendum ráðstefnunnar. Hvernig er skipulagi ráðstefnunnar háttað? Evrópusamtök forsvarsmanna í ferðaþjón- ustu í Evrópulöndum, EUTO, heldur ráðstefnu á hverju hausti í tengslum við aðalfund og að þessu sinni er það FFÍ sem sér um skipulag og framkvæmd hennar í samvinnu við EUTO. Við fengum einnig Háskólann á Hólum til að taka þátt í faglegum þætti dagskrárinnar. Þegar FFÍ gerðist aðili að EUTO fékk Ísland tölu- verða athygli og við urðum strax vör við mik- inn áhuga á landi og þjóð. Við ákváðum því taka að okkur halda ráðstefnuna hér. Seinna þróaðist verkefnið og stækkaði þannig að úr varð sjö daga námsferð þar sem rúmlega sex- tíu erlendir gestir munu ferðast um landið og kynna sér ferðaþjónustu á Íslandi. Hvert er efni ráðstefnunnar? Titillinn er „Our future is now“ og verður fjallað um þróun umhverfisvænnar ferðaþjón- ustu í Evrópu og er þá átt við umhverfi í víð- um skilningi þ.e. náttúruna, fólkið og menn- inguna. Hverjir taka þátt? Þátttakendur eru frá ýmsum Evrópulöndum, stór hópur frá Skotlandi og félagar frá Möltu, Belgíu, Hollandi, Ítalíu, Eistlandi, Lettlandi o.s.frv. Þarna verða spennandi erindi frá ýms- um löndum, t.d. kemur Loredana Celebre frá Sikiley þar sem menn glíma við áhrif virks eld- fjalls á ferðaþjónustu. Við erum einnig með tvo skoska fyrirlesara og einn frá Eistlandi auk Ís- lendinga. Hvers má vænta af henni? Við væntum mikils af ráðstefnunni því þarna kemur saman fólk úr ýmsum áttum sem skipt- ist á þekkingu. Það myndast líka góð tengsl á milli manna sem síðar verða oft kveikja að frekari samstarfsverkefnum. Hver er ávinningurinn fyrir FFÍ af að vera í EUTO? Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að vera virk í Evrópusamstarfi, fylgjast vel með og hafa áhrif á gang mála. Við erum líka ungt ferðamannaland og getum lært ýmislegt af þeim sem hafa verið lengur að. Við getum líka miðlað til hinna og þannig græða allir á sam- starfinu. EUTO-félagar eru mjög áhugasamir um að kynnast ferðaþjónustufyrirtækjum á Ís- landi, sérstaklega í dreifbýli, og sjá hvernig við nýtum sóknarfæri okkar í samspili við náttúru og menningu. Ráðstefnan er öllum opin og nánari upplýs- ingar um dagskrá og skráningu eru á vefsíðu Ferðamálaráðs, www.ferdamalarad.is. Ferðamál | Ráðstefna Evrópusamtaka forsvarsmanna í ferðaþjónustu Framtíðin er núna  Ásborg Ó. Arnþórs- dóttir er ferðamála- fulltrúi uppsveita Ár- nessýslu, formaður FFÍ og í stjórn EUTO. Hún er fædd árið 1957 og er með BA-próf í uppeldis- og menntunarfræði og framhaldsnám í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ. Eiginmaður hennar er Jón K.B. Sigfússon, veitingamaður í Þjóð- menningarhúsinu, og eiga þau tvö börn, Daníel Mána og Guðrúnu Gígju. 1. Rf3 d5 2. c4 e6 3. e3 Rf6 4. b3 Be7 5. g3 c5 6. Bg2 Rc6 7. O-O O-O 8. Bb2 b6 9. Rc3 Bb7 10. cxd5 Rxd5 11. Rxd5 Dxd5 12. d4 Ra5 13. Hc1 Hfd8 14. Ba3 Df5 15. De2 Be4 16. Hfd1 g5 17. dxc5 bxc5 18. Hxd8+ Hxd8 Staðan kom upp í A-flokki mótsins í Pardubice sem lauk fyrir nokkru í Tékklandi. Bartosz Socko (2554) hafði hvítt gegn Janis Klovans (2456). 19. Rd4! cxd4 20. Bxe4 Dxe4?! 20... Df6 hefði verið skárra þó að svarta staðan væri vissulega erfið eftir 21. Bb2. 21. Bxe7 Hd5 22. Bf6 h6 23. Hc8+ Kh7 24. Dh5 og svartur gafst upp enda óverj- andi mát. Hvítur á leik. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn HAUSTSÝNING Listvinafélags Hallgrímskirkju á verkum Magda- lenu Margrétar Kjartansdóttur verð- ur opnuð í dag kl. 17. Sýningin er í forkirkju Hallgrímskirkju og eru verkin sem prýða kirkjuna lýsingar á samskiptum höfundar við Hallgríms- kirkju frá bernsku. Magdalena Mar- grét sýnir nú í fyrsta sinn á vegum Listvinafélagsins og mun sýning hennar standa til loka nóvember. Verkin eru unnin í olíu á pappír í stærðinni 180x80 cm. Um sýninguna segir Magdalena Margrét: „Einkasýningar mínar hafa hver um sig fjallað um ákveðin málefni úr reynsluheimi kvenna og stúlkna. Verkin nú í Hallgrímskirkju eru sérunnin fyrir þetta rými. Ég hugsa þetta sem innsetningu. Verkin eru þrykkt með ákveðinni aðferð sem er minn pensill. Þetta eru minningabrot og lýsingar á samskiptum mínum við kirkjuna undanfarin sextíu ár. Einn prestur kirkjunnar, séra Jakob Jóns- son, skírði, fermdi og gifti mig en tvær þeirra athafna fóru fram í elsta hluta kirkjunnar þar sem nú er alt- ari. Minnisstæð er stytta sú eftir Einar Jónsson sem stendur við inn- gang kirkjuskipsins og kvað vera Guðmundur „jaki“. Styttan er með þessar líka rosalega stóru hendur og bregður þeim nú fyrir í verkum mín- um sem hér prýða fordyri kirkjunnar á haustsýningu árið 2004.“ Magdalena Margrét stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1980–84 og hefur síðan haldið sýn- ingar í nær öllum listasöfnum hér á landi og verið þátttakandi í ótal sýn- ingum um allan heim. Verk hennar eru í eigu safna og stofnana á Íslandi og erlendis. Hún hlaut starfslaun Reykjavík- urborgar árið 2000 og myndlist- armanna árið 1997. „Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir 4 myndlistarsýningum á ári og er þetta síðasta sýning 22.starfsárs félagsins. Þeir lista- menn, sem áður hafa sýnt á árinu eru Bragi Ásgeirsson, Hörður Ágústsson og nú síðast Steinunn Þórarinsdóttir, en sýning hennar sem bæði var á Hallgrímstorgi og inni í forkirkjunni sló öll aðsóknarmet. Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að sýn- ing Steinunnar á torginu verði fram- lengd,“ segir í tilkynningu frá List- vinafélaginu. Minningabrot Morgunblaðið/ÞÖK Magdalena Margrét Kjartansdóttir við verk sín í Hallgrímskirkju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.