Morgunblaðið - 28.08.2004, Qupperneq 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 49
Sími 594 6000
Bæjarflöt 4, 112 R.vík
Fjöldi lita og gerða
Marley þakrennur
Sjáum einnig um uppsetningu
Portúgal
Vefviðvist múm er í öflugra lagi en
rekin er frábær múm-heimasíða á
slóðinni www.noisedfisk.com/
mumweb. Þó að þetta sé ekki opinber
heimasíða sveitarinnar er hún tæm-
andi hvað varðar upplýsingar um
múm. Síðuna rekur Portúgali sem
tengist sveitinni á þann eina veg að
hann er gríðarlegur aðdáandi. Að
sögn Örvars veit hann iðulega betur
en þau sjálf hvar og hvenær þau eiga
að spila.
Kristín segir að þetta hafi líka gefið
þeim frelsi með opinberu síðuna, sem
er vistuð á www.randomsummer-
.com. „Þar þurfum við ekki að pæla í
þessum föstu upplýsingaþáttum og
leyfum okkur frekar að bregða á leik
með alls kyns rugli.“
Summer Make Good var unnin á
ýmsum stöðum en forvinnan hófst í
Berlín, þar sem Örvar og Kristín eru
búsett.
„Við duttum fljótlega niður á
ákveðna tilfinningu sem mótaði hljóm
plötunnar,“ segir Örvar. „Við unnum
tónlist við útvarpsleikritið Svefnhjólið
og þar byrjaði þessi hljómur (leik-
ritið, sem Bjarni Jónsson byggir á
samnefndri sögu Gyrðis Elíassonar,
hlaut Norrænu útvarpsleik-
húsverðlaunin í liðnum júní). Svo fór-
um við í Galtarvita í sex vikur og þar
byrjaði hún að verða til.“
Þetta var síðasta sumar en múm-
liðar höfðu einnig notast við Galt-
arvita þegar þau unnu Loksins erum
við engin. „Það var gott að vera þarna
í algerri einangrun,“ segir Kristín.
„Maður gat einbeitt sér 100% að tón-
listinni.“
Viðveran var svo brotin upp um
mitt tímabilið en þá fór sveitin í túr til
Bandaríkjanna, Ástralíu, Japans og
Evrópu.
Lokahnykkurinn var svo síðasta
haust í öðrum vita, Garðskagavita.
Garðskagaviti er rétt hjá Garði á
Suðurnesjum, stendur efst á tánni á
Íslandsdýrinu ef svo má segja. Með-
limir og aðstoðarmenn dvöldu þar í
boði bæjarins og Orri (Jónsson, Slow-
blow) kom þá í fyrsta skipti að plötu-
gerðinni og kom hann keyrandi dag-
lega úr borginni.
„Við breyttum húsinu, sem stendur
hjá vitanum, í hljóðver,“ segir Krist-
ín. „Við gátum svo rölt út í sundlaug
og meðfram sjónum, það var frábært
að vera þarna. Undir restina komu
svo tveir náungar frá Fat Cat (út-
gáfufyrirtæki múm) til að vinna í um-
slaginu.“
Örvar tekur undir þetta. „Þetta
voru mjög skemmtilegar vinnubúðir.
Við breyttum t.d. algerlega um vinnu-
lag núna og fórum aðrar leiðir til að
búa til hin og þessi hljóð. Við reynd-
um meira að nýta rýmið og umhverfið
heldur en einhverjar rafrænar hljóð-
bjaganir. Svo fórum við í Sundlaugina
(hljóðver Sigur Rósar) til að hljóð-
blanda. Það var dálítið flókið að hljóð-
blanda, ég held að það séu að jafnaði
50 til 60 rásir í gangi í hverju lagi.“
Sigur Rós færði sig á sínum tíma
frá litlu merki yfir á einn af risunum,
MCA. Er ekki kominn tími á múm?
„Ég held að við getum ekki verið á
stóru merki,“ segir Örvar. „Nándin
er mikil í Fat Cat og við erum mjög
sátt við samstarfið þar. Þar er meira
svona vinasamband í gangi en við-
skiptatengsl. Gagnkvæm virðing og
þannig líður okkur vel.“
Eins og venjulega er nóg að gera í
útgáfumálum hjá múm. Hinn 6. sept-
ember kemur út stuttskífan Dusk
Log á tíutommu og geisladisk. Inni-
heldur hún þrjú áður óútgefin lög og
eitt lag af Summer Make Good. Einn-
ig er komin út bókin Dreams Never
Die sem inniheldur sjötommu/
geisladisk og er samstarfsverkefni
múm, Hey (úr hey-o-hansen) og
myndasöguteiknarans Metaphrog.
Þá samdi múm tónlist við bandarísku
stuttmyndina The Raftman’s Razor
sem fer í sýningar í haust.
arnart@mbl.is
Tónleikar múm og Slowblow fara
fram í Bæjarbíói, Hafnarfirði,
klukkan 20.00 í kvöld og á morg-
un. Miða er hægt að nálgast í 12
tónum. Ný viðhafnarútgáfa af
plötu múm Summer Makes Good
er komin í verslanir.
www.noisedfisk.com/mumweb
Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn