Sunnudagsblaðið - 25.04.1965, Blaðsíða 2
BI|HMWHMWIMWWtWWWWMI>W>WMMWMWWmMMMIWMWWWWWW»WW»M»W>MW*
Nordah! Grieg:
Sumarkvöld
Bifreiðin þaut til byggða í aftansins svala,
brann í norðvestri miðnætursólin skær
um skógarins jaðar. — Við hlið mér hún leit sína systur
með silkihár blaktandi. — Það var mín fylgdarmær.
Skinið strauk kjassandi um hennar ljósu línur,
hinn létta hreinleik, hvern brosandi andlitsdrátt,
hennar gullinhadd, hennar yfirbragðshreina enni.
Engi í baksýn og heiðavatn fagurblátt.
Við komum til byggða. Nú blöstu við nýrækt og akrar,
bæir með skínandi stafnþiljum þar og hér.
Húskarlar studdust á rekur. Krakkarnir komu út að hliði,
konan stóð með það yngsta á handlegg sér.
Hvað flaug mér í huga? Sveitaheimilin seiddu,
hin sífrjóa mold dró andann við lækjarnið.
Lífið bar ávöxt, ólgaði af giftu og' grósku,
gripir á túni, börnin móðurbrjst við'.
Ragnar Jóhannesson þýddi.
314 SUNNUDAGSBLAÐ - ALÞÝÐUBLADID