Sunnudagsblaðið - 25.04.1965, Síða 14

Sunnudagsblaðið - 25.04.1965, Síða 14
Jðnadabs voru honum meira vlr5i en Dannebrogskross, því bæði skýldu þau honum fyrir vatni og kulda, en hitt var litlu minna um vert, að þau voru tignarmerki, sem enginn íslendingur bar á staðnum nema hann. Þegar fastaverzlun var sett á Borðeyri, var Jónadab orðinn nokkuð við aldur. Margra ára ferjuslark hafði sett mark á hans hrausta skrokk. Hann hafði tekið slíku ástfóstri við rosabullurnar, að hann hafði aldrei dregið þær af fótum sér allt vorið á meðan verzl- unarskipin lágu á höfninni. Var það jafnt um nætur sem daga. Hann liafði heldur aldrei borið á stígvélin neinn mýkjandi lög eða feiti svo þau urðu með tímanum hörð eins og tréstokkar. í lok síðustu vertíðar, sem hann stundaði ferjuna, fékk hann með engu móti komizt úr rosabullun- um. Þá kom honum til hjálpar góðvinur, sem skar þær eftir endi- löngu utanaf fótum hans. Þá kom í ljós, að fætur hans voru eins og kvistótt brimsorfin rekatré, sem varla voru fær um að bera búk- inn með eðlilegum hætti. Hann var því orðinn hálf örkumla og hætti öllu sjóvolki, en settist að mestu að hjá frændum og vinum í nálægum .sveitum og varð gam- all maður. Jónadah hafði á sínum upphefð- ar og velgengnis árum byggt Knallhettuna. Það var ein herberg iskytra, með tveimur rúmstæðum. Svo var eldhúskompa með ofurlít- illi kamínu, sem var tengd við skorstein, sem var hlaðinn úr dönskum múrsteini. Spekúlantarn ir höfðu gefið Jnnadab spvturnar i kofann og múrsteina. en ein- hver lagtækur maður smíðað þessa vistarveru. Kona hans hét Ingi- björg. Ég man 'vel eftir henni. Hún var kona í lægra iagi, en gild- vaxin. Ekki var hún talin brifin, bar hún utan á sér, að hún var ekki nostursöm. Jónatan Jónadabsson bjð lengl ! Knallhettunni ásamt móður sinni, en faðir lians var Iöngum fjarvcrandi. Búðarmenn hjá Eiis verzlun voru sumir gáskafullir og höfðu Tana að leiksoppi þegar þeim bauð slíkt í skapi, einkum ef hann var fullur. Eitt sinn 'sögðu þeir honum að eldur væri laus í Knallhettunni og nú riði honum á að flýta sér heim til þess að slökkva í kofanum. Þeir fengu honum tvær fötur og lögðu ráðin á, að hann skyldi bera 5 beim sjó upp á þak Knallhettunnar og hella úr þeim ofan í eldhússtrompinn. Tani hraðaði sér heim og gekk að þessu verki með ákafa. Þegar hann hafði hellt úr báðum fötun- um, kallaði hann ofan í reykháfs opið: „Viltu meira vatn, marama?" Ingibjörg gamla afþakkaði það og bað guð í himninum að hjálpa sér í þessum svávarháska. Tani var rammskygn, en hafði þó ekki mikið orð á þessari dular- gáfu sinni. Fyrir og eftir aldamót mátti heita að Sólheima-Móri væri daglegur gestur á Borðeyri. Ennisætt var þá fjölmenn þar i grennd, en draugurinn fylgdi hverj um trúlega, sem var af þeim ætt- stofni, og var ekki sporlatur. Oft var það þegar Tani var til aðstoð* ar í pakkhúsi, að hann þreif mottu og hýddi frá sér og hafði Ijótan munnsöfnuð uppi, sagðist hann þá vera að reka Sólheima-Móra á dyr, því ekki vildi hann hafa hann fyrir fótum sér. Aldrei brást það að einhver af Ennisætt kom í kaup- staðinn og átti erindi í pakkhúsið þegar Tani hafði nýverið ráðizt að Móra. Ekkert skipti Tani sér af því þð að Móri slæptist í sölubúðinni, enda hafði hann litla umgöngu um hana, aðra en þá að vitja um lekabyttuna, þegar hann vildi minnast við hana. ÁRNI BÓNDI OG LEKABYTTAN Fleiri voru það en Tani, sem Borðeyrarmenn höfðu að skot- spæni þegar þeim þótti tilbreyt- ingar vant. Bóndi einn sem Árni hét var þar í grenndinni. Hann bjó allgóðu búi, var gleðimáður og nokkuð vínhneigður. Honum var tíðfarið til Borðeyrar enda átti hann vinum að mæta í verzluninni, því búðarmönnum þötti hann skemmtilegur og upplífgandi. Það var venja þeirra er hann kom I búðina, áð rétta honum hálffult brennivlns-mál og byrjaði þá glefis og gleðskapur ef litið var að gera. Eitt sinn um vetur var fáförult í kaupstaðnum vegna ótíðar. Nó var það nær miðjum degi, að búð- armenn sjá að bóndi kemur ríð- andi sunnan með firðinum. Þeir taka nú ráð sín saman, losa alla slatta úr brennivíns málum, fara svo inn á kontór og láta búðina vera mannlausa. Þegar bóndi hafði komið hesti sínum í hús, gekk hann rakleitt inn í búðina, en þar var engan mann að sjá. Hann fór þá inn fyrir búðarþorðið og skygndist í pjáturmálin, sem vorU honum kunnug. en þau voru öU þurr í laggir. Nú þótti honum iUt x efni og þó að hann væri hinn. frómasti maður, gat hann ekki stillt sig um að Iosa um tunnu- krana og láta brennivín irenna * pelamál, sem fylltist á nokkrum augnablikum. En hann kunni ekki að skrúfa fyrir rennslið, svo vínið flóði út á búðargólfiö. En hér sannaðist sem oftar, að þegar neyð in er stærst er hjálpin næst. VerU unarmennirnir höfðu staðið við skyggnigluggann á kontórshurð- inni og sáu hverju framfór un» fyrirtektir Árna. Þeir hlupu v& til og skrúfuðu fyrir kranann svo lítið eitt fór til spillis af víninu. Svo leiddu þeir Árna inn á kontór, ekki sem neinn stórhöfðingía> heldur sem glæpamann, sem stað ínn hafði verið að verki svo senx merkin sýndu á búðargólfinu. Þeir létu Árna setjast á stól, en ekki þurfti hann að híma þar þurJ> brjósta. Svo hófust miklar bolla- leggingar um ægilegar refsingaÞ sem hann aétti í vændum. Einhver gizkaði á, að hann myndi verða dæmdur til Brimarhólmsvistar og ætti þaðan ekki útkvæmt. Annar, sem taldi sig kunna nokkuð í lðg um, þótti líkur til þess, ef l°8' krókum yrði beitt, að hann slyppj mcð 27 vandarhagga hýðingu. Ární bar sig furðu vel. þó að fram- tíðarhorfur væru ískyggilegar. — Ríflegar vínveitingar hresstu upP á skapsmunina. Lögvitri búðar- þjónninn, sagði að úr því sen» komið væri, bætti það mjög raál' stað hans, að hann færi þá sam- stundis á fund sýslumanns, sem þa bjó i Bæ við utanverðan Hruta- fjörð, játaðj fyrir honum gl^P feinn og bæðisfc þess, að hanfi véP 326 SUNNUDAGSBLAÐ - ALÞÝÐUELAÐXÐ

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.