24 stundir - 12.12.2007, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2007 24stundir
Menn þrá gömlu, góðu jólalykt-
ina af eplum, appelsínum, kanel,
negul og barri, sem skötustækjan
yfirgnæfir. Til Húseigendafélagsins
koma annað veifið mál út af óþef
frá einstökum íbúðum. Stundum
hefur fólk mánuðum og árum sam-
an ekki hent sorpi og fyllt íbúðir
sínar af rusli og úrgangi. Slíku fylgir
ferleg lykt sem þó er hátíð og sem
ljúfur ilmur miðað við skötustækju
sem er allra lykta verst.
Skötusuða - Lög og húsreglur
Hvað má og ekki má í fjöleign-
arhúsum fer eftir sérstökum lögum
um slík hús og reglum og fyr-
irmælum í húsfélagssamþykktum
og húsreglum. Er byggt á því að
meirihlutinn ráði málum og um
flest er byggt á hagsmunamati.
Einnig að séreign og sameign megi
aðeins hagnýta til þess sem þær eru
ætlaðar og að eigendum beri að
sýna tillitssemi og valda sameig-
endum ekki óþarfa óþægindum og
ama. Ekki eru í fjöleignarhúsalög-
um bein ákvæði um lyktarmengun
og skötustækju og gilda í því efni
almenn ákvæði um tillitssemi.
Húsfélög geta sett nánari fyrirmæli
í húsreglum eða fundarsam-
þykktum um skötusuðu eins og
annað sem ónæði og ágreiningi
getur valdið.
Skötu og reykingum úthýst
Þótt húsreglur fjalli fyrst og
fremst um afnot sameignar þá get-
ur húsfélag einnig sett reglur um
afnot séreigna en því eru verulegar
skorður settar. Eigandi hefur einka-
rétt til hagnýtingar og umráða yfir
séreign sinni og húsfélagið getur
ekki sett reglur sem fela í sér meiri
inngrip og víðtækari takmarkanir á
eignarráðum hans en leiðir af fjöl-
eignarhúsalögum og almennum
reglum eignarréttar. Dæmi um inn-
grip í séreignarráð sem til skamms
tíma hafa þótt ganga of langt er
allsherjarbann við reykingum í
íbúðum og bann við skötusuðu á
Þorláksmessu. Almennings-
viðhorfið og réttarþróunin hefur
síðustu árin siglt óðfluga í þá átt að
úthýsa slíkum ófögnuði. Er nú lík-
lega svo komið í tíðarandanum að
húsfundur geti sett reglur og bann-
að eða takmarkað reykingar og skö-
tusuðu inni í íbúðum. Réttur fólks
sem vill lifa eðlilegu og heilbrigðu
lífi vegur þyngra á metunum en
frelsi granna til að kaffæra sameig-
endur sína í reyk og stækju og við-
bjóði.
Barbarískar átveislur
Illa þefjandi barbarískar átveislur
eiga ekki heima í fjölbýlishúsum.
Ættu þær helst að vera langt uppi í
óbyggðum fjarri siðuðu fólki. Skö-
tusuða í fjölbýlishúsum jaðrar við
villimennsku. Það er yfirmáta
frekja, yfirgangur og tillitsleysi að
sturta yfir granna sína við-
urstyggilegri stækju sem smýgur
alls staðar og tekur sér bólfestu í
fatnaði, hverjum krók og kima,
íbúðum, húsgögnum og sameign
fjölbýlishúsa. Eru dæmi þess að
stækjan hafi verið svo illvíg og líf-
seig að hún hafi verið til ama frá
Þorláksmessu fram á sumar. Hefur
þurft að mála sameign og skipta
um nýleg teppi til að komast fyrir
stækjuna.
Óætur viðbjóður
Kæst skata er frekar úrgangur en
matur, hvað sem hver segir. Hún er
elduð í því skyni að misbjóða, ganga
fram af, ögra og hrekkja fólk með heil-
brigða bragðlauka og lyktarskyn. Þegar
menn koma þessum viðbjóði varla
niður og tárin streyma um diska og
borð þá er sko mest gaman og mikið
skríkt. Sjálfsagt finnst öllum innst inni
skata vera óætur viðbjóður. Þegar
menn segja annað undir pressu vina og
vandamanna, kjamsandi og smjattandi
og þykjast vera að vestan þar sem
vondur matur þykir góður þá eru þeir
undantekningarlítið að ljúga.
Skötublót ekki gömul hefð
Menn vaða í þeirri villu að það sé
þjóðlegt að borða svona vondan,
illaþefjandi mat, ef mat skyldi kalla.
Þessi villimennska á Þorláksmessu
er víst ekki gamall og gróinn siður,
nema þá á Vestfjörðum. Það skyldi
þó ekki vera að skötustækjan hafi
stuðlað að eyðingu byggða og fólks-
flótta að vestan.
Í sveitum en ekki í fjölbýli
Það er lítið við því að segja að
fólk sjóði kæsta skötu í sveitum og
á annesjum fjarri siðuðu fólki og í
einbýlishúsum í þéttbýli þar sem
lyktin ætlar ekki aðra að drepa en
þátttakendur í skötublótinu. Hins
vegar veldur skötusuða í fjölbýlis-
húsum sambýlisfólkinu svo mikl-
um ama og ónæði að því er óskylt
að una því. Húsfélagið getur þá
brugðist við með banni við skötu-
suðu í húsreglum eða sett henni
takmarkanir með húsfundar-
ákvörðun.
Tíðarandinn
Eigandi má gera það á sinni eign
sem er venjulegt og eðlilegt og
grannar verða að sætta sig við það.
Við mat á því hvort menn fara yfir
strikið og valda nágranna sínum
ónæði, ama og röskun umfram það
sem hann verður að þola og venju-
legt er, verður að horfa til þess sem
almennt viðgengst og tíðarandinn
telur við hæfi á hverjum tíma.
Þrengir jafnt og þétt að þeim tillits-
lausu sem menga og eru skeyting-
arlausir um frið og rétt granna.
Þetta ónæði er sérstakt vegna
þess að það er tímabundið og því
telja margir að sýna beri því um-
burðarlyndi. Það hafa margir gert
lengi og umborið skötustækju ár-
um saman. Þótt skötusuða sé
bundin við ákveðinn árstíma og yf-
irleitt einn dag ársins þá gefur það
ekki ótakmarkaða heimild til að
hrauna yfir sambýlisfólkið. Eitt
stakt og stórfellt brot á ári er oft al-
varlegra en fleiri smærri. Það má
líka leiða að því líkur að þeir sem
eru skeytingarlausir við granna sína
með skötusuðu séu almennt ekki
ýkja tillitssamir og hófsamir í öðr-
um atriðum. Þeir sýna gjarnan
annars konar yfirgang á öðrum árs-
tíma. Hengja t.d. blóðug fuglahræ
utan á hús og hafa hátt meðan
grannar reyna að sofa.
Dregið úr ónæði
Einstaka skötudýrkandi hefur
reynt að draga úr ónæðinu með
ýmsu móti. Er það vel og virðing-
arvert. Menn hafa reynt að sjóða
skötu á prímus og útigrillum úti á
svölum og í bílskúrum og notað
sérstakar tilfæringar við suðuna
sem þeir telja að drepi niður lykt-
ina. Það er sjálfsagt rétt að með
ýmsu móti má draga úr lykt-
armengun í skötulíki. Þótt öll slík
viðleitni sé til bóta þá dugir hún
ekki. Einnig hefur það færst í
aukana að skötu sé úthýst úr
mannabústöðum og sé elduð og et-
in í sölum úti í bæ. Það er líka í átt-
ina.
Má sjóða skötu í fjölbýlishúsum?
Skötustækjan óvinsæl
Nú brestur brátt á með
skötusuðu og skötuáti
sem nær hæstum hæðum
á Þorláksmessu og er eit-
ur í nösum þorra fólks.
Spurt er hvort þessum
ófögnuði í skötulíki megi
ekki úthýsa úr mannabú-
stöðum.
Skötuilmur! Sumir geta ekki þolað sköt-
ustækjuna og margar kvartanir berast til
Húseigendafélagsins vegna hennar.
24stundir/Árni Torfason
Sigurður Helgi
Guðjónsson, for-
maður Húseigenda-
félagsins, skrifar
LÖG OG REGLUR
107.000 eintök
á dag - ókeypis
Auglýsingasíminn er
510 3744
- kemur þér við
SAN Cable Kit
Rafmagns gólfhitakerfi
Einföld uppsetning. Lagt í flísalím eða flotað
Húsasmiðjan - Byko - Fjarðarkaup - Áfangar Keflavík - Vélaleiga Húsavíkur
Nesbakki Neskaupsstað - Litabúðin Ólafsvík - Skipavík Stykkishólmi
SR byggingavörur - Eyjatölvur - Miðstöðin Vestmannaeyjum - Pottar og
prik Akureyri - Núpur Ísafirði - Litaver - Verkfæralagerinn - Byggt og búið.
Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf - sími 567 4142 - www.raestivorur.is
Hraðhreinsir fyrir
stál - plast - gler o.fl o.fl...