24 stundir - 12.12.2007, Blaðsíða 36
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Yfirstandandi ár er með þeim bestu
í frjálsum íþróttum hvað varðar ný
heimsmet en allnokkur slík hafa
verið sett síðustu tólf mánuði. Það
er þó undantekning fremur en
regla að svo góður árangur náist á
einu ári enda kemur í ljós að í fjór-
tán af vinsælli greinunum innan
frjálsra standa enn ein átta heims-
met sem slefa í tvítugsaldurinn
þrátt fyrir allar þær framfarir sem
orðið hafa undanfarin ár.
Þrjú af þeim heimsmetum sem
sett hafa verið í ár eru í hálfu eða
heilu maraþoni, tvö í karlaflokki og
eitt í kvennaflokki. Glæsilegt
heimsmet féll einnig í 100 metra
Maraþonhlaup Þrjú af heims-
metum þessa árs eru ný met í
hálfu og heilu maraþoni
Frjálsar í hlekkjum
➤ KonurLangstökk, kringlukast, há-
stökk, 100m, 200m, 300m og
400 metra boð- og grinda-
hlaup. Öll sett 1985 - 1988
➤ KarlarKringlukastsmetið stendur
enn frá árinu 1986
ELLIHRUM HEIMSMET
Florence Griffith Joyner Hún á ennþá
heimsmet í 100 og 200 metra hlaupum
spretthlaupi karla á árinu.
Öllu verra er að á næsta ári eiga
fjölmörg heimsmet 20 ára afmæli,
þar á meðal í öllum helstu hlaupa-
greinum kvenna. Sama gildir um
standandi heimsmetin í langstökki,
hástökki og kringlukasti. Af þeim
fjórtán greinum sem litið var til
hafa karlarnir sett fjögur heimsmet
frá aldamótum en stúlkurnar sjö.
Hins vegar féllu níu heimsmet
karla á tíunda áratugnum en aðeins
eitt kvennamegin
Tiltölulega fá heimsmet sett í frjálsum íþróttum á þessari öld
36 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2007 24stundir
Hjátrúarfullir hætta seintað bera á borð töl-fræði til þess ætlaða að
selja boðskap
þeirra. Nú hef-
ur verið reikn-
að út að Real
Madrid tapar
ekki leik í
deildinni þegar
hinn hollenski
Ruud Van Nistelrooy skorar
mark. Hefur karlinn skorað í 22
leikjum með liðinu síðan hann
kom frá Manchester United og
þrumað inn einum 32 boltum í
þeim. 19 þeirra hafa unnist og
þrívegis hefur orðið jafntefli.
Hefðin fer hins vegar fyrir lítið
sé litið til Meistaradeildarinnar.
Þar hefur hann skorað all-
nokkrum sinnum en liðið tap-
að engu að síður. Samtals hefur
hann skorað 39 mörk fyrir Real
á Spáni. Þar af 11 stykki í vetur
í 17 leikjum. Geri aðrir betur.
Þó þjálfarar margir óttistjanúarmánuð þegar fjöl-margir afrískir leikmenn
í Evrópu
hverfa heim
og taka þátt í
Afríkukeppn-
inni í knatt-
spyrnu er
einn sem get-
ur ekki beðið.
Það er Steve Sidwell hjá
Chelsea sem hefur eins og spáð
var kynnst handverki vara-
mannabekkja mun nánar en
hann vildi síðan hann kom frá
Reading í sumar. Fullyrðir Sid-
well að Michael Essien muni
eiga erfitt að vinna sæti sitt aft-
ur þegar sá kemur til baka í
febrúar. Bjartsýni og metnaður
er af hinu góða í öllu en hætt er
við að Sidwell stundi sjálfs-
blekkingar enda hefur Essien
blómstrað í allan vetur. Mikið
má hann standa sig frábærlega
til að halda Afríkumanninum
frá byrjunarliðinu.
Þá er loks staðfest að Fern-
ando Alonso krotaði stafina
sína á samning við Renault og
mun keppa með þeim í vetur.
Undir þeirra merkjum náði
hann heimsmeistaratitli fyrir
ári og Flavio Briatori, eigandi
liðsins og velgjörðarmaður
Spánverjans, er í sjöunda
himni vegna þessa og er samn-
ingurinn afar góður fyrir
Alonso. Fær hann sem nemur
3,5 milljörðum króna í árs-
laun. Hann gefur sér samt
góðan tíma í jólagjafainnkaup
en fyrstu æfingar hans á Re-
nault-bíl verða 22 janúar.
Heim til pápa
Dómur féll í máli stórstjörn-
unnar Michael Vick sem
stundaði hundaat á sveitasetri
sínu um árabil með blóðugum
afleiðingum fyrir bestu vini
mannsins. 23 mánaða fangelsi
varð raunin eða mánuður fyr-
ir hvern hund sem hann lét af-
lífa vegna lélegs árangurs í
hringnum. Ferill Vick sem var
ein skærasta stjarna NFL-
deildarinnar bandarísku hefur
náð botninum.
Hundsaður
SKEYTIN INN
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Á næsta ári eiga fjölmörg
heimsmet í frjálsum íþróttum
20 ára afmæli, þar á meðal í öllum
helstu hlaupagreinum kvenna.