24 stundir - 12.12.2007, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2007 24stundir
VERÐ, GÆÐI OG
PERSÓNULEG
ÞJÓNUSTA
Vinnufatabúðin
Laugavegi s: 551 5425
MENNING
menning@24stundir.is a
Ég flutti inn upptökugræjur og gekk svo
um hús foreldra minna og bankaði í alla
veggi, og endaði svo inni í litlu gluggalausu
fataherbergi því þar var besti hljómburðurinn.
Nýtt andlit hefur bæst í fríðan
flokk leikara Skilaboðaskjóðunnar,
sem sýnd er í Þjóðleikhúsinu, en
það er hinn fjölhæfi Árni Bein-
teinn Árnason sem mun framvegis
leika hlutverk Putta litla á móti
Hrafni Bogdan Haraldssyni sem
hefur verið í hópnum frá upphafi.
Árna Beintein kannast margir við
úr Laugardagslögunum þar sem
hann tekur lífleg viðtöl við þekkt
fólk í samfélaginu. Ásamt því fer
hann með hlutverk í ævintýra-
myndinni Duggholufólkinu sem
var frumsýnd í síðustu viku og hef-
ur gert sínar eigin kvikmyndir, tal-
sett alls kyns sjónvarpsefni og leik-
ið í nokkrum útvarpsleikritum.
Allt þetta þrátt fyrir ungan aldur,
en hann á 13 ára afmæli í dag.
„Þau hjá Þjóðleikhúsinu vildu fá
strák til liðs við sig til þess að leika
á móti og létta undir með Hrafni
Bogdani í Skilaboðaskjóðunni.
Hann hefur staðið sig frábærlega
en það er fullmikið að leggja það á
svo ungan strák að leika einn svo
stórt hlutverk í svona sýningu. Þess
vegna kom ég inn í sýninguna og
þó svo að ég hafi bara æft í þrjá
tíma á dag í fjóra daga hefur þetta
gengið mjög vel, enda mikið fag-
fólk sem kemur að sýningunni og
leikarar og leikstjórar afar hjálp-
samir,“ segir Árni Beinteinn. Skila-
boðaskjóðan er sjötta stóra sýn-
ingin sem hann tekur þátt í og
státar pilturinn því af töluverðri
sviðsreynslu. Líkt og aðrir 13 ára
krakkar er hann vitaskuld í grunn-
skóla og var að klára jólapróf í
byrjun vikunnar. En það er ekki
þar með sagt að hann sitji auðum
höndum enda er nóg að gera hjá
honum í talsetningu ásamt því sem
hann fer með hlutverk í aðventu-
leikritinu María, asninn og gjald-
kerarnir, sem verður sýnt í síðasta
skipti í Borgarleikhúsinu næsta
föstudag, syngur inn á barnaplöt-
una Bönnuð börnum eftir Guð-
mund Inga Þorvaldsson sem kem-
ur út á næsta ári og hefur fengið
aðalhlutverk í útvarpsleikritinu
Engill í Vesturbænum í leikstjórn
Sigrúnar Eddu Björnsdóttur, en
upptökur á því hefjast í janúar
Nýr í Skilaboðaskjóðunni
Á 13 ára afmæli í
dag Árni Beinteinn
Haraldsson.
Fjölhæfur 13 ára piltur með mikla leikreynslu
Eftir Hauk Harðarson
haukurh@24stundir.is
„Mér fannst spennandi og krefj-
andi verkefni að semja fyrir börn.
Þar sem ég hef unnið mikið með
krökkum vissi ég að það væri þörf
á nýrri tónlist fyrir þau. Ég komst
að því að lögin sem krakkarnir
vildu syngja voru kannski ekki al-
veg í takt við lögin sem voru í boði
sem voru sömu lög og ég var að
syngja þegar ég var lítil í sunnu-
dagaskólanum,“ segir Hafdís sem
kenndi í sunnudagaskólanum
meðfram námi í söng og upptöku-
stjórn sem hún kláraði frá LCCM-
skólanum í London. Eftir námið
fór hún í eins árs tónleikaferð um
alla Evrópu ásamt hljómsveit sinni
sem ber einfaldlega heitið Hafdís
Huld.
Eftir að hafa lokið við túrinn
hófst Hafdís handa við að semja
lög á plötuna, ásamt sambýlis-
manni sínum, Alisdair Wright, sem
hún kynntist í söngnáminu. Söng-
konan fékk styrk frá Kristnihátíð-
arsjóði til að gera plötuna og nú
þegar er byrjað að kenna lögin í
sunnudagaskólum og leikskólum.
Þegar Hafdís var lítil dreymdi
hana um að syngja inn á barna-
plötu. Hún nýtti því tækifærið
núna og fékk til liðs við sig hóp af
krökkum sem syngja fimm lög á
plötunni. Það er óhætt að segja að
Hafdís Huld hafi farið ótroðnar
slóðir við gerð plötunnar. Þar sem
hún er búsett í litlu þorpi á miðju
Englandi fékk hún húsaskjól hjá
foreldrum sínum á meðan platan
var í vinnslu.
Rólópásur og súkkulaðikökur
„Ég flutti inn upptökugræjur og
gekk svo um hús foreldra minna og
bankaði í alla veggi og endaði svo
inni í litlu gluggalausu fataherbergi
því þar var besti hljómburðurinn.“
Þar útbjó hún hljóðver og segir
Hafdís að súkkulaðikökur og ann-
að góðgæti hafi flætt úr eldhúsi
móður sinnar við mikinn fögnuð
krakkana sem voru á aldrinum
fjögurra til tólf ára. „Svo var einn
sem kom til mín og vildi fá að taka
trommusóló, og það var bara not-
að. Við leyfðum hugmyndafluginu
að njóta sín og reyndum að koma
öllum hugmyndum sem krakkarn-
ir fengu inn á plötuna.“
Hafdís segir að aðrar reglur gildi
þegar aðallistamaðurinn er 5 ára.
Til dæmis þurfi að taka pásur á
hálftíma fresti svo aðalsöngvarinn
geti skroppið út á róluvöll.
Hafdís lagði mikla áherslu á að
krökkunum liði vel á meðan á tök-
um stóð. „Þú heyrir alveg í rödd-
unum á krökkunum hvað það er
rosalega gaman og mikið stuð og
það skilar sér svo innilega á plöt-
unni,“ segir Hafdís.
Saknar Íslands
Hafdís segist sakna þess að búa á
Íslandi og fannst kærkomið að taka
plötuna upp hér á landi. Parið
mun halda jól í faðmi fjölskyldu
Hafdísar heima hjá foreldrum
hennar. Þegar talið berst að jóla-
matnum segist Hafdís ekki hafa
hugmynd um hvað verði á borð-
um, því faðir hennar sem hún lýsir
sem snilldarkokki stundar til-
raunastarfsemi og kemur á óvart á
hverjum jólum. „Pabbi er nú þegar
byrjaður að plana jólamatinn.
Hann kemur alltaf mikið á óvart.
Eina sem ég veit fyrir víst er heima-
tilbúni ísinn hennar mömmu,“
segir þessi hressa söngkona að lok-
um.
Ný íslensk barnaplata frá Hafdísi Huld
Búin til inni í fataskáp
Hafdís Huld Þrastardóttir,
fyrrum söngkona Gus-
Gus, sendi nýlega frá sér
plötu sem ber heitið
Englar í ullarsokkum.
Platan er ætluð börnum á
öllum aldri en hug-
myndin kviknaði þegar
Hafdís vann í sunnudaga-
skóla í kirkju í London
fyrir íslensk börn.
Hafdís Huld Gefur út barnaplötu
fyrir jólin. Hér er hún ásamt aðstoð-
armönnum sínum.➤ Englar í ullarsokkum er önnursólóplata Hafdísar. Fyrri plat-
an, Dirty Paper Cup, hlaut
mjög góða dóma.
➤ 10 krakkar syngja inn á plöt-una sem tekin var upp heima
hjá foreldrum hennar.
HAFDÍS HULD
Hinir árlegu jólasöngvar
Skólakórs Kársness verða
haldnir annað kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 13. desember
klukkan 20. Á efnisskrá eru
fjölmörg þekkt jólalög sem
fylgt hafa kórnum um árabil á
aðventunni í bland við önnur
sem heyrast sjaldnar. Ungir
hljóðfæraleikarar leika með í
In dulci jubilo eftir Buxtehude
og nokkrir fyrrverandi kór-
félagar koma einnig fram og
syngja jólalög eftir Mist Þor-
kelsdóttur og Þóru Mart-
einsdóttur.
Þekkt jólalög
Óperudeild Söngskóla Sig-
urðar Demetz heldur tónleika
í kvöld, miðvikudaginn 12.
desember, í Saltfélaginu. Á
efnisskrá verða aríur, dúettar
og hópatriði úr óperum eftir
Mozart, Händel, C. Franck og
Gilbert og Sullivan ásamt jóla-
lögum. Píanóleikari verður
Julian Hewlett, en stjórnandi
óperudeildar er Keith Reed.
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
Nemasöngur