24 stundir - 18.12.2007, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 14
Amsterdam 1
Ankara 3
Barcelona 7
Berlín 0
Chicago 2
Dublin 6
Frankfurt 2
Glasgow 2
Halifax -6
Hamborg 2
Helsinki -1
Kaupmannahöfn 4
London 4
Madrid 7
Mílanó 3
Montreal -13
München 0
New York -2
Nuuk -2
Orlando 4
Osló -5
Palma 21
París -1
Prag 3
Stokkhólmur -3
Þórshöfn 8
Snýst í suðvestan 13-20 m/s með skúrum
eða éljum sunnan- og vestanlands, en heldur
hægari vindur og léttir til seinni partinn. Kóln-
andi veður.
VEÐRIÐ Í DAG
8
7
8 10
7
Léttir til síðdegis
Sunnan og suðvestan 10-15 m/s og rigning
eða súld, en heldur hægari vindur og úr-
komulítið um landið norðaustanvert. Hiti 2 til
8 stig.
VEÐRIÐ Á MORGUN
7
7
6 9
8
Rigning eða súld
Kona var sakfelld í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær fyrir kynferðis-
brot, en hún notfærði sér ástand
vinkonu sinnar er hún sleikti kyn-
færi hennar þar sem hún lá meðvit-
undarlaus sökum ölvunar.
Atvikið átti sér stað í júlí á síð-
asta ári þar sem konurnar sátu að
drykkju ásamt fjórum vinkonum
sínum í sumarbústað.
Sumar kvennanna sátu naktar í
heitum potti og neyttu áfengis, en
hin ákærða misnotaði brotaþola
eftir að sú síðarnefnda lagðist
drukkin til svefns inni í sumarbú-
staðnum, nakin eftir veruna í heita
pottinum.
Brotaþola var tjáð af vinkonum
sínum þegar hún komst til meðvit-
undar að þær hefðu séð ákærðu
með höfuðið á milli fóta hinnar
ölvuðu. Hún gekk því næst á hina
ákærðu og spurði hana út í atvikið,
en hún neitaði sök þá og einnig
síðar fyrir dómi. Hún fullyrti að
ekkert kynferðislegt hefði átt sér
stað á milli sín og brotaþola.
Framburður vinkvennanna um
gjörðir hinnar ákærðu þótti trú-
verðugur. Þá þótti sannað að
brotaþoli hefði sofið ölvunarsvefni
og að hin ákærða hefði notfært sér
ástand hennar.
Auk skilorðsbundna fangelsis-
dómsins var ákærðu gert að greiða
brotaþola þrjú hundruð þúsund
krónur í skaðabætur og tæpar 560
þúsund krónur í sakarkostnað.
aegir@24stundir.is
Kona dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot
Braut gegn ölvaðri vinkonu
Lögreglan á Selfossi telur að
annar Pólverji, sem grunaður er
um að hafa tekið þátt í nauðgun í
október, hafi rofið farbann og yf-
irgefið landið. Félagi hans fór úr
landi í byrjun desember. Lýst hefur
verið eftir báðum mönnunum á
Schengen-svæðinu.
Í gær var tekin fyrir krafa lög-
reglustjórans á Selfossi um fram-
lengingu farbanns yfir tveimur
Pólverjum, sem grunaðir eru um
að hafa tekið þátt í nauðguninni.
Annar þeirra, Jaroslaw Pruczynski,
mætti ekki og við eftirgrennslan
lögreglu kom í ljós að hann hefur
ekki mætt til vinnu síðan 9. des-
ember. Þriðja manninum var í dag
gert að leggja fram tryggingu fyrir
því að hann yrði tiltækur fyrir lög-
reglu fram til 4. febrúar.
mbl.is
Nauðgunarrannsókn á Selfossi
Annar Pólverji í
farbanni fór úr landi
Héraðsdómur Austurlands dæmdi
í gær karlmann á þrítugsaldri í 8
mánaða fangelsi, þar af 6 skilorðs-
bundna, fyrir þrjár líkamsárásir,
þar af eina sérlega hættulega. Hann
var einnig dæmdur til að greiða
öðrum manninum, sem hann réð-
ist á, 275 þúsund krónur í bætur og
hinum 95 þúsund auk málskostn-
aðar. Maðurinn var fundinn sekur
um að hafa veist að manni, sem sat
í bíl á Eskifirði í maí í vor og slá hann í andlitið í gegnum opna rúðu.
Síðar sama kvöld sló hann manninn nokkur högg með golfkylfu í höf-
uðið með þeim afleiðingum, að sá sem varð fyrir höggunum fékk m.a.
heilablæðingu og mar á heila. Þá sló árásarmaðurinn annan mann í
öxlina með golfkylfunni. Í dómnum segir, að við ákvörðun refsingar sé
litið til þess að maðurinn hafi á afar greinargóðan hátt játað háttsemi
sína en á hinn bóginn sé litið til þess að í málinu sé hann sakfelldur
fyrir þrjár fyrirvaralausar líkamsárásir af litlu tilefni. mbl.is
Dæmdur fyrir þrjár árásir
Umferðarnefnd Sniglanna undrast ummæli Rögnvaldar Jónssonar,
eins reyndasta vegaverkfræðings landsins, um ákvörðun stjórnvalda
um 2+2 veg til Selfoss og Borgarness. Rögnvaldur taldi að frekar ætti
að byggja 2+1 vegi á þessum stöðum.
Umferðarnefnd þykir ljóst af reynslu undanfarinna tveggja ára af 2+1
vegum, að þetta sé ekki góð lausn og sé í raun hættuleg lausn, og varar
við því að svona vegir verði byggðir á Íslandi í framtíðinni. Svona vegir
ýti undir hraðakstur á tvöföldum köflum, sérstaklega á háannatíma,
hvort sem um er að ræða bifreiðar, bifhjól, fjórhjól eða stærri ökutæki.
Sniglar undrast ummæli
um 2+2 vegi út frá Reykjavík
Allt útlit er fyrir að kveikt hafi
verið í Fiskiðjunni í Vest-
mannaeyjum, þar sem eldur kom
upp aðfaranótt föstudags. Menn
úr tæknideild lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu rannsök-
uðu vettvang í gær. Maður sem
úrskurðaður var í gæsluvarðhald
vegna rannsóknar málsins hefur
verið látinn laus. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum er málið enn í rann-
sókn. Maðurinn sem var
úrskurðaður í gæsluvarðhald
neitar að hafa kveikt í, en hann
var síðastur út úr húsinu áður en
eldurinn kom upp. mbl.is
Útlit fyrir íkveikju í Eyjum
Síðastliðinn laugardag birti
blaðið verðkönnun á jóla-
trjám. Þar sagði að miðað
væri við tré á stærðarbilinu
1,5-2,0 metrar. Þarna átti að
standa 1,75-2,0 metrar. Eft-
irtaldir selja jólatré í stærð-
arflokknum 1,50-1,75 metrar
á lægra verði en tré sem eru í
stærðarflokknum 1,75-2,0
metrar: Byko, Europris, Garð-
heimar og Jólatréssalan
Landakoti. Aðeins Blómaval
selur þessa tvo stærðarflokka
á sama verði.
Trjástærðin
reyndist röng
Leiðrétting
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvað-
eina, sem kann að vera missagt í
blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á
síðu 2.
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
Starfsfólk verslana ber ábyrgð á
helmingi búðahnupls hér á landi,
en hlutfallið er með því hæsta sem
þekkist í Evrópu. Þetta kemur fram
í nýlegri alþjóðlegri rannsókn, Glo-
bal Theft Barometer, sem náði til
32 landa í Evrópu, Norður-Amer-
íku og Asíu árið 2006.
„Ég myndi giska á að tuttugu
prósent starfsmanna steli um átta-
tíu prósentum af því sem stolið er,“
segir Eyþór Víðisson, öryggisfræð-
ingur hjá VSI – öryggishönnun og
ráðgjöf. „Ég held að vandamálið
hér á landi sé að hér vantar alla
umræðu um þessi mál og sömu-
leiðis fræðslu fyrir starfsmenn því
ég tel að þeir viti ekki í mörgum til-
fellum að þeir séu að gera rangt og
fái sér súkkulaðistöng því aðrir
gera það.“
„Kunningjaafgreiðslur“
Svokallaðar kunningjaaf-
greiðslur eru ein tegund þjófnaðar
sem er hvað algengust hér á landi
hjá starfsfólki. „Þá kemur mamma
í búðina, verslar og vörurnar eru
settar í poka án þess að þær séu
skannaðar inn í kerfið. Það er erfitt
að rukka mömmu,“ segir Eyþór.
Samkvæmt rannsókninni er
svipaður fjöldi kvenna og karla
gripinn við búðahnupl, en konur
stela fleiri og ódýrari hlutum.
Í rannsókninni kemur fram að
þjófnaður er áttatíu prósent af
rýrnun hjá verslunum. Kostnaður
við búðahnupl hér á landi er tæpir
þrír milljarðar króna, sem sam-
svarar að hér sé stolið vörum í
verslunum fyrir um átta milljónir
króna á dag.
Mest stolið í desember
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
voru 640 búðaþjófnaðir tilkynntir
á síðasta ári, flestir í desembermán-
uði eða 73. Á þessu ári hafa 715
búðahnuplsmál ratað inn á borð
lögreglu en langflestir þjófanna
voru á aldrinum 15 til 24 ára. Það
sem af er desembermánuði hafa til-
fellin verið 31 talsins.
„Skýringin er einfaldlega sú að
flestir stela í hlutfalli við það sem
þeir versla. Langflestir stela þegar
þeir eru að versla og svo nota
margir tækifærið þegar mikið er að
gera í verslunum,“ segir Eyþór.
Starfsfólk stelur
helmingnum
Starfsfólk verslana ábyrgt fyrir helmingi búðahnupls Þjófn-
aður starfsfólks hérlendis með því mesta sem þekkist í Evrópu
➤ Búðahnupl hefur minnkaðum 5,7% á milli ára hér á
landi.
➤ Dregið hefur úr þjófnuðumum 3,2% prósent í Dan-
mörku, um 2,3 prósent í
Portúgal og um 2,2 prósent á
Spáni.
➤ Meðaltalið í Evrópu var þó1,6% aukning búðaþjófnaða.
BÚÐAHNUPL
SÍÐASTA BÓK BJÖRNS TH.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Í þessari margslungnu
sögu frá Sturlungaöld
segir frá systrum
tveim, Þórum
Guðmundsdætrum frá
Þingvöllum og þungum
örlögum þeirra, en
Þóra yngri var móðir
Gissurar jarls.
Tær stíll og myndvísi
á sviðsetningu atburða
bregst Birni ekki í þessari
bók fremur en í fyrri
bókum hans.