24 stundir


24 stundir - 18.12.2007, Qupperneq 4

24 stundir - 18.12.2007, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 24stundir Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda. Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is Neytendasamtökin könnuðu að þessu sinni verð á Síríus konsum suðusúkkulaði í 200 g pakkningu. Verðmunur er verulegur og er hæsta verð 61,5 % hærra en það lægsta eða 110 króna munur. Mikill verðmunur á suðusúkkulaði Sonja McManus NEYTENDAVAKTIN Síríus konsum suðusúkkulaði 200 g. Verslun Verð Verðmunur Kaskó 179 Melabúðin 249 39,1 % Samkaup-Strax 269 50,3 % Þín verslun Seljabraut 276 54,2 % 11-11 289 61,5 % Kjarval 289 61,5 % „Þessir staðir voru mjög áþekkir nektardansstöð- unum hér heima“ segir Hreiðar Eiríksson sem ræðir reynslu sína af viðtölum við fórnarlömb mansals hjá Unifem í dag. Hreiðar er mastersnemi í lögfræði en starfaði áður sem rannsóknarlögregluþjónn. Hann fór á vegum friðargæslunnar til Bosníu árið 2002. „Við fórum inn á staði þar sem við töldum að kon- um væri haldið, til að athuga hvort þarna væri um ófrjálsa þolendur mansals að ræða,“ segir Hreiðar en hátt á annað hundrað kvenna voru fluttar aftur til síns heima þá níu mánuði sem hann starfaði í Bosníu. Konurnar voru fengnar til að koma með lögregluþjón- unum út af stöðunum og voru fluttar í örugg hús þar sem þær fengu læknisþjónustu og sálfræðiviðtöl áður en lögreglumennirnir töluðu við þær. Varðandi stöðu þessara mála á Íslandi segir Hreiðar: „Það er óhætt að segja að það séu ákveðnir samnefn- arar milli þess sem ég hef rekist á hér og þess sem ég sá í Bosníu. En lengra er ég ekki tilbúinn að ganga að svo stöddu.“ Opið hús verður hjá Unifem milli kl. 17 og 19 í dag. aak Opið hús og fyrirlestur um mansal hjá Unifem á Íslandi Eins og nektardansstaðir hér Mansal Hreiðar Eiríksson talar um mansal í Bosníu. Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is Landsvirkjun Power (LVP) verður ekki eins félag og Reykjavik Energy Invest (REI), segir Bjarni Bjarna- son, forstjóri LVP, en félagið mun hefja störf á nýju ári og stefnir í út- rás. Félagið verður í 100 prósenta eigu Landsvirkjunar sem mun leggja til átta milljarða króna í hlutafé. Ekki kemur til greina að selja hluti í félaginu til einkaaðila né að setja það á almennan mark- að. Fá ekki einkarétt „Mér sýnist munurinn vera sá að þetta félag verður í 100 prósenta eigu Landsvirkjunar. Þá flyst verk- fræði- og framkvæmdaþekkingin úr Landsvirkjun yfir í þetta félag. Það var ekki gert í REI,“ segir Bjarni um muninn á félögunum tveimur. „Svo er ekki um neitt framsal að ræða og Landsvirkjun Power fær ekki einkarétt á nokkr- um sköpuðum hlut frá móður- félaginu.“ Hann segir ennfremur enga kaupréttarsamninga hafa ver- ið gerða við starfsmenn hins nýja hlutafélags og að ekki standi til að gera neina slíka. Einungis nafnbreyting Í ársbyrjun stofnaði Landsvirkj- un fjárfestingafélagið Landsvirkjun Invest (LVI) um útrásarverkefni sín. Það félag stofnaði síðan HydroKraft Invest ásamt Lands- bankanum og lagði hvor aðili fyrir sig um tveggja milljarða króna hlutafé til. Stefnt var að því að skrá félagið á erlendan hlutabréfamark- að. Bjarni segir muninn á LVP og LVI einfaldlega vera nafnbreytingu. HydroKraft og önnur smærri félög í eigu Landsvirkjunar muni renna inn í LVP. „Í byrjun þessa árs var hugmyndin að félagið væri í fjár- festingum. Um mitt árið kviknaði síðan sú hugmynd að flytja verk- fræði- og framkvæmdasvið Lands- virkjunar yfir í félagið. Þá var ekki eðlilegt að félagið héti Invest og því völdum við nafnið Power, sem er miklu breiðara. Þetta er orkufélag sem sýslar með orkutengd mál, hvort sem það er í ráðgjöf, fjárfest- ingum, eða rekstri. Það er allt op- ið.“ Power verður ekki nýtt REI  Forstjóri Landsvirkjunar Power segir félagið ekki verða nýtt REI  Landsvirkjun mun eiga allt hlutafé í nýju útrásarfyrirtæki sínu ➤ Landsvirkjun er að fullu íeigu íslenska ríkisins eftir að 50 prósenta eignarhlutur Reykjavíkur og Akureyrar var keyptur haustið 2006 fyrir um 30 milljarða króna. ➤ Landsvirkjun Power verðurað fullu í eigu móðurfélags síns, en starfar sem hluta- félag. LANDSVIRKJUN 24stundir/Golli Landsvirkjun Ekki kemur til greina að selja hluti í félaginu til einkaaðila. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfu ellilífeyrisþega, sem vildi greiða fjármagns- tekjuskatt af þeim hluta líf- eyris, sem var ávöxtun af inn- borguðu iðgjaldi. Var úrskurður skattstjóra um að greiða skyldi tekjuskatt af líf- eyri staðfestur með dóminum. Dómurinn taldi, að skattlagn- ing lífeyristekna væri að öllu leyti lögmæt. Hafnaði dóm- urinn því að skattlagningin bryti í bága við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og mann- réttindasáttmála Evrópu. mbl.is Héraðsdómur Mátti skatt- leggja lífeyriOpið 08-18 - laugard. 10-20 - sunnud. 11-20 Skútuvogi 6 - Sími 570 4700 - www.eico.is Vekjandi jólagjafir Laserklukka Vekjaraklukka sem varpar tíma á vegg eða loft. 4.990 kr. Laserklukka Vekjaraklukka sem varpar tíma og útihita á vegg eða loft. 11.900 kr. Laserklukka Vekjaraklukka sem varpar tíma á vegg eða loft. Sillanlegur geisli. 4.990 kr. Serblad 24 stunda jolablad Kolbrun S.510 3722 Kolla@24stundir.is Katrin s.510 3727 Kata@24stundir.is

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.